DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Late Summer Night's Dream

Prjónað pils úr DROPS Delight í garðaprjóni með stuttum umferðum. Stærð S-XXXL.

DROPS 156-7
DROPS Design: Mynstur nr de-129
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 02, plóma/beige/fjólublár
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 11, syren/grænn

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
TEYGJA: ca 66-110 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR:
Þegar skipt er um þráð er það alltaf gert í sömu hlið á stykki (þ.e.a.s upp við mitti).

MYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= rétta): sl með litnum plóma/beige/fjólublár.
UMFERÐ 2 (= ranga): sl með litnum plóma/beige/fjólublár.
UMFERÐ 3: sl með litnum syren/grænn.
UMFERÐ 4: br með litnum syren/grænn.
UMFERÐ 5: sl með litnum plóma/beige/fjólublár.
UMFERÐ 6: sl með litnum plóma/beige/fjólublár.
Endurtakið umf 3-6.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman áður en 1 kantlykkja byrjar í hverri umf frá réttu í gegnum allt stykkið.

ÚTAUKNING:
Aukið út innan við 1 kantlykkju í lok hverrar umf frá réttu í gegnum allt stykkið.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo að ekki myndist gat.

STUTTAR UMFERÐIR:
Prjónaðar eru stuttar umferðir í sléttprjóni með litnum syren/grænn. ATH: Í hvert skipti þegar snúið er við er hert á þræði svo að ekki myndist gat!
UMFERÐ 1 og afgangur af umf frá réttu eru prjónaðar þannig: Prjónið 1 umf sléttprjón, 2 l slétt saman, sléttprjón þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið fyrstu 90-94-102-108-116-124 l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið fyrstu 75-78-81-86-92-103 l, snúið við.
UMFERÐ 6: Prjónið fyrstu 60-62-60-64-69-82 l, snúið við.
UMFERÐ 8: Prjónið fyrstu 45-46-40-42-46-61 l, snúið við.
UMFERÐ 10: Prjónið fyrstu 30-30-20-21-23-40 l, snúið við.
Stærð S, M og XXXL:
UMFERÐ 12: Prjónið fyrstu 15-15-20 l, snúið við.
UMFERÐ 13: Prjónið 1 l sléttprjón, 2 l slétt saman þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón, snúið við.
ALLAR STÆRÐIR:
Prjónið til baka yfir allar 142-146-154-160-168-176 l.
Nú eru 14-14-12-12-12-14 umf í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni og garðaprjóni á hringprjóna. Lykkjum er fækkað í annarri hliðinni – LESIÐ ÚRTAKA og aukið er út í hinni hliðinni – LESIÐ ÚTAUKNING, í hverri umf frá réttu í gegnum allt stykkið, svo að garðaprjón verði á ská. LESIÐ LEIÐBEININGAR!

PILS:
Fitjið laust upp 142-146-154-160-168-176 l á hringprjóna nr 3 með litnum plóma/beige/fjólublár. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Prjóni síðan 1. umf þannig (= rétta): Prjónið STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 34-30-26-26-26-30 umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram að prjóna til skiptis stuttar umferðir og mynstur eins og útskýrt er frá að ofan alls 6-7-8-9-10-10 sinnum, en í stærð S,M,L og XXXL er prjónað yfir 30-26-30-26 umf og í 2,4 og 6. skiptið er prjónað mynstur. ATH: Í stærð XXXL er prjónað yfir 26 umf og í 8. og 10. skiptið er prjónað mynstur. Nú eru 3-4-5-9-10-5 mynstureiningar yfir 34-30-26-26-26-30 umf og 3-3-3-0-0-5 mynstureiningar með mynstri yfir 30-26-30-0-0-26 umf.
Þegar allar mynstureiningarnar með stuttum umferðum og mynstri hafa verið prjónaðar mælist pilsið ca 70-76-84-90-100-108 cm við mitti (þ.e.a.s. sú hlið sem lykkjum var fækkað í hverri umf frá réttu). Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman uppfitjunarkant og affellingarkant saman. Saumið lykkjur fallega saman 1 og 1. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur! Brjótið uppá kantinn í mitt (hlið sem skipt var um enda) um 2 cm frá röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá op til þess að þræða teygju í gegn. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Late Summer Night's Dream

Daniela Kozáková, Czech Republic

156-7 Late Summer Night's Dream

Maria Magdalena, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (150)

country flag Joan De Mildt wrote:

Met welke kleuren is dit rokje gebreid? Niet alleen 02 en 11 zoals in het patroon staat. Is het 06 pink-purple?

22.04.2018 - 20:31

DROPS Design answered:

Hallo Joan, Ja hoor, deze is met 2 kleuren gebreid, doordat er kleurovergangen zitten in de bollen, lijkt het alsof er veel meer kleuren gebruikt zijn.

29.04.2018 - 17:52

country flag Joan De Mildt wrote:

Met welke kleuren is dit rokje gebreid? Niet alleen 02 en 11 zoals in het patroon staat. Is het 06 pink-purple?

22.04.2018 - 20:29

country flag Lilian Otto wrote:

Liebes Drops Team, leider passt es immer noch nicht. Wegen der vorherigen Antwort: Von 30 R können nicht 14 Krausrippen sein sonst wären nur 2 R glatt gestrickt!? Meine vorherige Frage ist damit leider noch nicht beantwortet. Ich verstehe die Anleitung, nur diese stimmt nicht mit dem Bild überein. Das Würde ich gerne klären. Kann man das außerhalb dieses Forums lösen und evtl auch ein Bild schicken?

29.01.2018 - 20:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Otto, Anleitung stimmt schon und wurde schon mehrmals gestrickt. Bei der Größe M stricken Sie 30 Reihen Muster = 1 Krausrippe + 7 x (2 Reihen Glatt, 1 Krausrippe) = 30 Reihen und 8 Krausrippen. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2018 - 08:35

country flag Lilian Otto wrote:

So habe ich die Anleitung auch verstanden. Auf dem Bild zähle ich im Bereich des Musters jedoch 14 x Krausrippen und 13 x je 2 Reihen glatt = 54 Reihen!? Und im Bereich des Musters spaltet sich aus einer Krausrippe nochmal eine Krausrippe + 2 R glatt re heraus? Davon steht nichts in der Anleitung. Bitte um Hilfe. Vielen Dank.

27.01.2018 - 20:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Otto, oops mein Fehler, Muster wird über 4 Reihen gestrickt (nur die Reihe 3 bis 6 wiederholen = 2 Reihen Glatt + 1 Krausrippe) dann wiederholen Sie 7 x die 4 Reihen = 28 Reihen + 2 Reihen glatt = 30 Reihen (= 14 Krausrippen). Viel Spaß beim stricken!

29.01.2018 - 09:35

country flag Lilian Otto wrote:

Ich stricke Größe M. Bei z. B. 30 R im Muster stricken verstehe ich: 2 R (Hin + Rück) kraus in Farbe 1 und 2 R glatt in Farbe 2 stricken. Danach sind es hier gezählt 8 Krausrippen und 7x dazwischen die glatt gestrickten Reihen bevor wieder ein Rapport verkürzte Reihen kommt. Auf dem Bild zähle ich in der Frontansicht zwischen den Rapporten 14x Krausrippen? Und sehe auch dass es auch "gespaltene Krausrippen" gibt die in der Anleitung nicht erwähnt werden? Danke!

24.01.2018 - 00:18

DROPS Design answered:

Liebe Frau Otto, Muster ist 6 Reihe (= 1 Krausrippe mit Farbe 1, 2 Reihe glatt rechts mit Farbe 2 und 1 Krausrippe mit Farbe 1). Sie strickend abwechselnd die verkürzten Reihen (= 13 Reihe in der Größe M) und einige Reihen im Muster (= 5 x die 6 Reihe): zuerst 30 Reihe, dann 26 Reihe, dann 30 Reihe, dann 26 Reihe, dann 30 Reihe, 1 x 26 Reihe und 2 x 30 Reihe (mit verkürzten Reihen inzwischen). Viel Spaß beim stricken!

24.01.2018 - 09:49

country flag Lilian Otto wrote:

Kann meine Frage nicht kürzer schreiben! Bekomme immer Fehlermeldung dass meine Frage zu lang sei oder das Kommentarfeld leer...

24.01.2018 - 00:13

country flag Marimar wrote:

Bonjour, je ne comprends pas bien comment je dois procéder pour les rangs raccourcis : le 1er rang : sur l'endroit..... est ce qu'il correspond à tous les rangs impairs des rangs raccourcis ? le rang 2 sur l'envers : voulez vous dire que l'on tricote à l'envers ?.. merci pour votre aide

06.01.2018 - 19:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, tous les rangs sur l'endroit des rangs raccourcis se tricotent comme le 1er rang (en jersey endroit = à l'endroit sur l'endroit) et tous les rangs sur l'envers se tricotent en jersey (= à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

08.01.2018 - 09:06

country flag Barbara Lowell wrote:

HI Love this skirt but I am wanting to make it ankle length. How to modify the pattern? Also is there translation available for all the questions other nations ask?

25.11.2017 - 15:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lowell, we are unfortunately not able to adjust each our pattern to every individual request. For any further assistance you may request help from your store or any knitting forum. To translate all comments/questions in this section you can use any online translator. Happy knitting!

27.11.2017 - 09:11

country flag Josephine wrote:

Bei meiner Maschenprobe habe ich mehr Reihen benötigt als in der Anleitung angegeben. Muss ich dadurch die Anzahl der Reihen im Muster erhöhen oder bei den verkürzten Reihen?

23.11.2017 - 18:16

DROPS Design answered:

Liebe Josephine, versuchen Sie mit kleineren Nadelnd und Maschenprobe spannen ob es so besser wird. Sonnst sollen Sie sicher das Muster anpassen. Ihr DROPS Laden kann Ihnen sicher damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

29.11.2017 - 09:46

country flag Marimar wrote:

Bonjour Je souhaite me tricoter cette jupe, mais je souhaiterai la faire au moins 5 cm plus longue. Que me conseillez vous de faire ?.. J'avais pensé monter des mailles à la fin de mon tricot pour faire une bande qui ferait fonction de ceinture. qu'en pensez vous ? Merci pour vos conseils

06.11.2017 - 20:36

DROPS Design answered:

Bonjour Marimar, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. N'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS, il pourra probablement vous aider et vous conseiller. Bon tricot!

07.11.2017 - 08:41