DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 156-2
DROPS Design: Mynstur nr la-020
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Mál:
Breidd efst: ca 140 cm full strekt.
Lengd við miðju að aftan: ca 76 cm full strekt.

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
Eða notið:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200 gr litur nr 4088 fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – ATH! Lesið um prjónfestuna að neðan.

PRJÓNFESTA:
Sjalið á að bleyta og strekkjast út í rétta stærð í lokin svo að prjónfestan er ekki svo mikilvæg en til þess að fá einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust/fast er prjónuð prufa með sléttprjóni á prjóna nr 3,5 og þá eiga að fást ca 23 l og 30 umf sem verða 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1- A.13. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Ef óskað er eftir stærra sjali er hægt að endurtaka A.4-A.6 á hæðina.

FORMUN:
Þegar skipt er um garntegund frá garnflokki A er ekki mikilvægt að strekkja sjalið út í rétta stærð, heldur er hægt að leggja það niður og láta það þorna þegar það liggur flatt. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 9 l á hringprjóna nr 3,5 með Lace eða BabyAlpaca Silk. Prjónið A.1 (fyrsta umf er frá röngu). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 21 l á prjóni.
Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.2, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.2, endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 49 l á prjóni.

Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.3, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.3, endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 65 l á prjóni.

Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.4, A.5 2 sinnum, A.6, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.4, A.5 2 sinnum, A.6, endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.4-A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 97 l á prjóni.
Eftir A.4-A.5 er pláss fyrir 2 endurtekningar á A.5 í hvorri hlið á sjali.

Prjónið þar til 6 heilar mynstureiningar af A.4-A.6 eru á hæðina. Þ.e.a.s. nú eru 12 sinnum A.5 hvoru megin við miðjulykkja = 257 l.

Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, A.7, endurtakið A.8 þar til 4 l eru eftir á undan miðjulykkju (= 7 sinnum), A.9, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.10, endurtakið A.11 þar til 12 l eru eftir (= 7 sinnum), A.12, endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.7-A.12 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 353 l á prjóni.

Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið A.13 fram að miðjulykkju (= 22 sinnum), 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), prjónið A.13 út umf (= 22 sinnum). Þegar A.13 hefur verið prjónað til loka eru 617 l á prjóni. Fellið LAUST af með br frá röngu.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið gegn blautt. Pressið vatnið varlega úr sjalinu – ekki vinda, rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og pressið til að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Þegar BabyAlpaca Silk er notað – LESIÐ FORMUN – að ofan!
Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið sjalið varlega út í rétta stærð og notið nálar til að festa það niður, dragið út miðju á gatamynstureiningunni í A.13 og myndið horn/odd. Látið sjalið þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.10.2014
Nýtt mynstur A.7 (fyrsti uppslátturinn í umf 15 hefur verið færður)
Yfirfarið á vefsvæði: 07.10.2014
Eða notið: DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio 200 gr litur nr 4088, fjólublár
Yfirfarið á vefsvæði: 05.06.2015
Leiðrétting: Uppfært mynstur A.8 og A.9
Yfirfarið á vefsvæði: 17.08.2015
Leiðrétting: Ný skýringarmynd A.4
Yfirfarið á vefsvæði: 02.08.2017
Leiðrétting á síðasta hluta í mynsturteikningu A.10, A.11 og A.12

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (130)

country flag Susanne Lauersen wrote:

Jeg forstår ikke opskriften når jeg har strikket 3ret+a4a5a5a6+1m+a4a5a5a6+3ret. En gang igennem. Hvad skal jeg så? Ligeledes står der i rettelserne at der er rettelse i A4. Er det foretaget i det diagram som jeg ser her ovenover mig? På forhånd tak for hjælpen

16.05.2019 - 01:01

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Rettelsene som står forklart er allerede inkludert i tekst/diagrammene så oppskriften er helt oppdetert. Når du har strikket A.4-A.6 1 gang i høyden gjentar du diagrammene. Men du har nå plass til 4 rapporter av A.5 mellom A.4 og A.6 på hver side av midten (fordi du har flere masker). Så da strikker du slik: 3 rett, A.4, A.5, A.5, A.5, A.5, A.6, 1 maske osv. Du fortstter med å gjenta disse diagrammene i høyden til de er strikket totalt 6 ganger i høyden. For hver gang de gjentas strikkes det 2 rapporter mer av A.5 på hver side av midten. Dvs det er 12 ganger A.5 på hver side av midten etter de 6 rapportene i høyden. God fornøyelse

16.05.2019 - 07:49

country flag Gudrun Buchhöcker wrote:

Ich bin etwas verwirrt: Bei A11 in der 30. Reihe sind es lt Anleitung 17 Maschen, bei A8 16 Maschen. Ist das ein Druckfehler?

14.05.2019 - 21:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Buchhöker, die Maschenanzahl wird jedoch bei der 30. Reihe dieselbe beidseitig die mittlere Masche: A.7 (= 26 M), A.8 (= 16 M), A.9 (22 M) = 64 M - A.10 (=20 M), A.11 (= 17 M), A.12 (= 27 M) = 64 M. Viel Spaß beim stricken!

15.05.2019 - 08:32

country flag Cinzia wrote:

Is it possible to have this scheme in vertical and complete with rhombus at the bottom? Thank you Kind regards Cinzia

27.03.2019 - 15:54

DROPS Design answered:

Dear Cinzia, you can find the diagrams related to this shawl on the bottom of the page. Following the given instructions you can realize this shawl. For any further assistance, please contact your DROPS store, and there you'll find the help you need. Happy knitting!

27.03.2019 - 17:31

country flag Bente wrote:

Det ser ikke ud til at den lyse og den lyngfarvede er ens omkring midten. Hvad gør jeg for at få en midte som den hvide?

18.03.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Hei Bente. Jo, de 2 sjalene på bildene er like. Og de er begge strikket etter oppskriften. God fornøyelse

19.03.2019 - 14:37

country flag Hanne wrote:

Har fundet en løsning. I forstod måske ikke mit spørgsmål ;-)

12.03.2019 - 15:48

country flag Hanne wrote:

Er kørt fast efter, ved 97 masker på pinde. Efter A4 -A5 osv.... kan det forklares på en anden måde, forstå det ikke. Hver side af sjalet, menes der på hver side af midtermasken ?

09.03.2019 - 20:56

DROPS Design answered:

Hej Hanne, jo men du fortsætter på nøjagtig samme måde, men i og med du har taget ud ifølge diagrammet, har du nu en rapport mere yderst i hver side af sjalet. God fornøjelse!

14.03.2019 - 11:40

country flag Susan Ibsen wrote:

Ville blive glad for et svar, da jeg nok ikke helt forstår opskriften. Er det på hver 2. eller på hver 4. pind, at der skal strikkes 3 masker retstrikning? God dag til alle.

04.02.2019 - 12:02

DROPS Design answered:

Hei Susan. Du skal strikke 3 masker i retstrikk i hver side av sjalet hele veien oppover- altså på hver pinne strikkes de 3 ytterste maskene retstrikk. Dette blir den kanten du kan se langs toppen av sjalet. God fornøyelse

07.02.2019 - 08:35

country flag Kirsten wrote:

Hej Min veninde ønsker sig sjalet First Frost. Jeg vil spørg eom, hvor mange gentagelser af rapporterne A4-A6 der er på det viste foto? og hvor meget ekstra garn jeg skal beregne for hver gang denne rapport øges? Samtidig vil jeg høre om formning af sjalet efter vask gælder for både ved brug af Drops LAce og Drops Baby Alpaca Silk?

20.01.2019 - 09:11

DROPS Design answered:

Hei Kirsten. Du strikker A.4-A.6 totalt 6 ganger i høyden. Vi har dessverre ikke oversikt over hvor mye garn som brukes til 1 rapport av A.4-A.6 i høyden. Fordi det hele tiden økes masker utover vil du trenger mer garn per rapport i høyden fordi du strikker fler rapporter med A.5 i bredden for hver gang det gjentas. Ved bruk av Baby Alpaca Silk trenger du ikke trekket sjalet ut i form på samme måte som når du bruker Lace, men du kan legge det utover og la det tørke flatt. God fornøyelse.

28.01.2019 - 14:31

country flag Margrethe wrote:

Hvilke spidser er det der trækkes frem i den hvide model på de to sider? \r\nPå min krøller den bare i kanten, som den gør på jeres billede af den farvede udgave.\r\nJeg ønsker at sjalet skal se pænt ud, når jeg trækker det i facon. \r\nHvor skal jeg placere nålene?

25.11.2018 - 00:23

country flag Katrin Gjelseth wrote:

A8 skal gjentas 7 ganger inntil det gjenstår 4 masker før midtmaske. så skal a9 strikkes. Etter de 2 første mønsteromgangene på A9, er det plutselig 5 masker i mønstret. Så 6, og så 7 før det igjen er 4 masker. og så øker det igjen. A10 er tilsvarende. Hvordan er dette tenkt stikket? Det skal jo være bare 4 masker igjen før midtmasken.

26.09.2018 - 19:10

DROPS Design answered:

Hei Katrin. Du følger diagrammene som anvist, med alle økingener og fellinger som inngår. Når det står at du strikker A.9 over 4 masker gjelder dette bare den første omgangen. Når det er økinger/fellinger videre i diagrammet strikkes disse som vist, og masketallet som A.9 strikkes over endres i takt med dette. På grunn av 3 økinger på den første omgangen av A.9 (og felling av 2 masker) er det 5 masker på 2. omgang av diagrammet (ikke 3 omgang). På den 3 omgangen er det 4 masker på grunn av en forskyvning i A.8. Om du følger diagrammene som anvist, med alle økinger og fellinger så vil dette gå opp i masketallet på omgangen. God fornøyelse.

01.10.2018 - 10:10