DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 156-9
DROPS Design: Mynstur nr ee-500
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 25 - 27 cm

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
300-300-350 gr litur nr 09, ljós vínrauður

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 fl x 11 umf verði 10 x 10 cm og stjörnumynstur með 5 stjörnum á breidd x 3 stjörnur á hæð verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3300.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Passið uppá að lykkjurnar sem eru heklaðar upp séu nægilega lausar.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl.

LEIÐBEININGAR:
Í byrjun á umf með fl er hekluð 1 ll (kemur ekki í stað 1. fl).
Umferðin endar á 1 kl í fyrstu fl í byrjun á umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður að tá.

STROFF / LEGGUR:
Heklið 25-29-31 LAUSAR ll með heklunál nr 8 með Snow og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. Heklið síðan stjörnumynstur þannig:
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 3 ll, takið upp 5 l með byrjun í 2. ll frá heklunálinni (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, heklið 1 ll sem myndar gat efst í 6 l, * takið upp 1 l í gatinu, 1 l í hlið á síðustu l af þeim 6 l, 1 l í sömu ll eins og sú síðasta af þeim 6 l sem teknar voru upp, 1 l í hvora af næstu 2 ll (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-13-14 sinnum, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
UMFERÐ 2: 2 ll, heklið 2 hst í hvert «stjörnugat», endið umf á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 12-14-15 stjörnur. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
UMFERÐ 3: 3 ll, takið upp 1 l í 2. og 3. ll frá heklunálinni, 1 l aftan í lykkjubogann af þeim fyrstu 3 hst í umf (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll, * takið upp 1 l í gatinu, 1 l við hliðina á síðustu l af þeim 6 l, 1 l aftan í lykkjubogann á sama hst og síðasta l af þeim 6 l sem teknar voru upp, 1 l í aftari lykkjubogann af hverjum og einum af næstu 2 hst (= 6 l á heklunálinni), bregðið þræðinum um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 l, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 11-13-14 sinnum, endurtakið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Endurtakið umf 2 og 3 alls 8 sinnum. Endurtakið síðan umf 2 1 sinni til viðbótar = 9 stjörnurendur. Stykkið mælist ca 30 cm. Snúið stykkinu þannig að rangan snúi út, snúið við og heklið 1 umf í gagnstæða átt þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í hvern hst JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-6 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA, endið á 1 kl í 1. fl = 21-25-25 fl. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FÓTUR:
Stykkið er heklað í hring.
Allar fl eru heklaðar aftan í lykkjubogann á fl í umf að neðan.
UMFERÐ 1: LESIÐ LEIÐBEININGAR! Heklið 2 fl í fyrstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8-10-10 fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl, hoppið yfir næstu fl, 2 fl í næstu fl, 1 fl í hverja af næstu 8-10-10 fl og 2 fl í síðustu fl = 24-28-28 + 1 ll.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hverja af 12-14-14 fyrstu fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 12-14-14 fl = 31-35-35 l.
UMFERÐ 3: Heklið 2 fl í fyrstu l, 1 fl í hverja af næstu 13-15-15 l, 2 fl í næstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 13-15-15 l og 2 fl í síðustu l = 34-38-38 fl + 1 ll.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja af 17-19-19 fyrstu fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 17-19-19 fl = 41-45-45 l.
UMFERÐ 5: Heklið 2 fl í fyrstu l, 1 fl í hverja af næstu 18-20-20 l, 2 fl í næstu l, 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 2 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 18-20-20 l og 2 fl í síðustu l = 44-48-48 fl + 1 ll.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af 22-24-24 fyrstu fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 22-24-24 fl = 51-55-55 l.
Hér endar útaukning í stærð 35/37 og 38/40.

STÆRÐ 41/43:
UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja af næstu 27 l, 1 ll, hoppið yfir næstu l og heklið 1 fl í hverja af næstu 27 l.
UMFERÐ 8: Heklið 1 fl í hverja af 27 fyrstu fl, 7 st um ll og 1 fl í hverja af síðustu 27 fl = 61 l.

ALLAR STÆRÐIR:
Eftir síðustu útaukningu eru 51-55-61 l í umf. Haldið áfram hringinn með 1 fl í hverja l þar til stykkið mælist 6-7-8 cm. Í næstu 5 umf eru heklaðar 2 fyrstu fl og 2 síðustu fl í umf saman að 1 fl – Munið eftir ÚRTAKA (aðrar fl eru heklaðar eins og áður) = 41-45-51 fl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Byrjið undir fæti framan við tá. Saumið saman kant í kant yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur fyrir miðju undir fæti. Klippið frá og festið enda. Brjótið stykkið niður við ökkla svo að réttan snúi út.

Heklið aðra tátilju á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag FLUNA wrote:

Super agréable à crocheter ces chaussons. le point est très joli, très agréable à réaliser, et la laine est toute douce. Le travail monte vite. pour l'instant je n'en suis qu'à la longueur à la jambe et je n'ai pas de souci. J'ai hâte de continuer la suite pour voir le rendu définitif.

08.11.2015 - 23:42

country flag Linda wrote:

I can't not find the yarn you use for these, and your other boot patterns, is there another yarn I can use

11.08.2015 - 23:51

DROPS Design answered:

Dear Linda, please click here to get the list of stores in Canada and/or shipping to Canada. Happy knitting!

12.08.2015 - 18:41

country flag Lieda Lundquist wrote:

I'm trying to use the pink crochet pattern, is there a site to see the video on how to make these boots???

03.01.2015 - 22:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lundquist, you will find under the tab "video" on the right side of the picture relevant video showing the techniques used in that pattern as how to crochet the star stitch in the round. Happy crocheting!

05.01.2015 - 09:01

Jennifer wrote:

I have attempted the "foot" of this pattern 3 times now and 3 times frogged. The pattern says to increase at the beginning and end of rounds 1-8 but the heel all three times has been huge. I would love some actual help on this. Is there anyone who has had this work who would be willing to help me understand this?

22.12.2014 - 19:56

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, remember to check your tension, I made these slippers myself and they turned out very well - if your tension doesn't match, try to adjust following your own measures. Happy crocheting!

23.12.2014 - 18:55

Jennifer wrote:

When it says continue til piece measures 7cm, do I measure from side to side, front to back or from top of foot to toe? Thanks!

22.12.2014 - 18:33

DROPS Design answered:

Dear Jennifer, start to measure from beg of "Foot" part, ie from round 1 under section "FOOT" - fold slippers double and measure from 1st round to last round worked (straight). Happy crocheting!

23.12.2014 - 18:50

Roger wrote:

When measuring out the 6-7-8 cm/ 2 1/2-2 3/4-3" after the final increase where is this done from. I did one doing it from the last increase and the boot just loops huge.

08.12.2014 - 18:08

DROPS Design answered:

Dear Roger, you measure from the beg of "foot" - where it says before "now measure piece from here", ie from round 1 under "foot". Happy crocheting!

10.12.2014 - 14:20

country flag Lia wrote:

Ich verstehe leider den Satz, der unter "Alle Größen" steht. Ich habe nun 55 M in der Runde. Es heißt, man muss 1fM in jede M häkeln, bis die Arbeit 7 cm erreicht (bei Fußgröße 39). Ab welchem Punkt misst man diese 7 cm ab? Ab dem Moment, an dem man anfägt diese zu machen oder ab dem Schaft (denn das wären bei mir schon 7 cm an der Hacke) ? Danke im Voraus =)

02.12.2014 - 19:20

DROPS Design answered:

Sie messen ab der 1. Rd, die unter "Fuß" beschrieben ist.

06.03.2015 - 14:24

country flag Donna wrote:

Is there a tutorial for the star pattern in this slipper?

30.11.2014 - 15:04

DROPS Design answered:

Hi Donna, please find below a video showing how to crochet the star pattern in the round. Happy crocheting!

01.12.2014 - 10:31

country flag Julia wrote:

Hallo, ich möchte den Bund in einer anderen Farbe häkeln. Wie genau muss ich die wolle aufteilen beim Kauf? 50:50 von jeder Farbe? Vielen Dank und Grüße

24.11.2014 - 23:20

DROPS Design answered:

Liebe Julia, wir haben das Modell nur einfarbig gearbeitet, Sie müssen dann evtl. die Länge des Schafts anpassen.

02.12.2014 - 18:27

country flag Linda wrote:

From rows 1 to 6/8 where it states at the beginning and end of every other row to make 2 sc in 1st and last sc is this not at the back of foot where the heel is.

18.11.2014 - 04:14

DROPS Design answered:

Dear Linda, on the rounds 1 to 8 under "Foot" you inc 2 sts at beg of round, and 2 sts at end of round (= middle back, towards heel), at the same time, you inc on mid upper foot (2 sts in the middle st 7 sts around ch). Happy crocheting!

18.11.2014 - 09:31