-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= sl frá réttu, br frá röngu | |
= br frá réttu, sl frá röngu |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Day After Day Cardigan |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa í perluprjóni með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður úr 1 þræði DROPS Cloud eða DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-26 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna þyngdar á garninu er öll mæling gerð þegar stykkinu er haldið uppi annars verður flíkin of löng. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út fyrir laskalínu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.1 í hverri laskarönd. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ATH: Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í perluprjóni ÚRTAKA: Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l í perluprjóni: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l kantlykkja í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ S: 2, 10 og 18 cm. STÆRÐ M: 2, 11 og 20 cm. STÆRÐ L: 2, 11 og 20 cm. STÆRÐ XL: 2, 12 og 22 cm. STÆRÐ XXL: 2, 12 og 22 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 12 og 22 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður. PEYSA: Fitjið upp 52-56-60-64-68-72 l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið) á hringprjóna nr 10 með 1 þræði Cloud eða Snow eða 2 þráðum Air. 1. umferð (= rétta) er prjónað þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, slétt yfir næstu 44-48-52-56-60-64 l, JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir, endið á 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 62-66-70-74-78-82 l. Prjónið 1 umf til baka. Síðan eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-10-11-12-13-14 l PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið prjónamerki (= framstykki), A.1 (= 4 l), 1 l sl, A.1, setjið prjónamerki (= ermi), 18-20-22-24-26-28 l perluprjón, setjið prjónamerki (= bakstykki), A.1, 1 l sl, A.1, setjið prjónamerki (= ermi), 9-10-11-12-13-14 l perluprjón, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki). Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! LASKALÍNA FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umf 2-3-4-5-6-8 sinnum, í 4. hverri umf 1-1-1-2-2-3 sinnum og í 6. hverri umf 4-4-4-3-3-2 sinnum. Nú eru 32-36-40-44-48-54 l á bakstykki og 20-22-24-26-28-31 l í hvoru framstykki. LASKALÍNA Á ERMI: Aukið út í annarri hverri umf 12-13-14-16-17-18 sinnum og í 4. hverri umf 2-2-2-1-1-1 sinnum. Nú eru 37-39-41-43-45-47 l á hvorri ermi. Þegar útaukningu er lokið eru 146-158-170-182-194-210 l á prjóni. Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 20-22-24-26-28-31 l (= framstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið yfir næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki), setjið næstu 37-39-41-43-45-47 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 7 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 20-22-24-26-28-31 m (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 86-94-102-110-118-130 l fyrir fram- og bakstykki. Nýju l undir ermum eru prjónaðar í perluprjóni, en miðju l er prjónuð br (séð frá réttu). Setjið prjónamerki í stykkið. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 7 cm – LESIÐ MÆLING, aukið út um 1 l hvoru megin við br l með prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm = 94-102-110-118-126-138 l. Þegar stykkið mælist alls 66-68-70-72-74-76 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Setjið til baka 37-39-41-43-45-47 l af þræði á hringprjóna nr 10. Haldið nú áfram í perluprjóni yfir allar l. Fitjið upp 4 nýjar l í lok á 2 næstu umf = 45-47-49-51-53-55 l. ATH: Nýjar l eru prjónaðar inn í perluprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið! Í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 4 sinnum til viðbótar = 35-37-39-41-43-45 l. Fækkið nú lykkjum með 4½-3½-3½-3-3-3 cm millibili 6-7-7-8-9-9 sinnum = 23-23-25-25-25-27 l. Þegar ermin mælist 39-38-38-38-38-37 cm frá nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum – Munið eftir MÆLING – skiptið yfir á hringprjóna nr 9. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu og takið upp 52-56-60-64-68-72 l (= 1 l í hverja l í uppfitjunarkanti) í kringum hálsmál á hringprjóna nr 9 með 1 þræði Cloud eða Snow eða 2 þráðum Air. Prjónið 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 52-56-58-60-60-62 l. Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig: Prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Haldið síðan áfram með næstu 4 umf í garðaprjóni. Fellið af. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (62)
Kalotina wrote:
Wenn die Raglanzunahmen gestrickt wurden, im wechen Muster werden die aufgenommenen Maschen weiter gestrickt?
02.02.2019 - 23:11DROPS Design answered:
Liebe Kalotina, die neuen Maschen werden im Perlmuster gestrickt - siehe RAGLANZUNAHMEN. Viel Spaß beim stricken!
04.02.2019 - 11:57Mieke wrote:
Bedankt voor de uitleg. Het lag echt aan mij!
23.01.2019 - 13:33Mieke wrote:
Tevens staat er in het patroon 2x een 1e naald. Erg verwarrend. Klopt dit?
23.01.2019 - 09:35DROPS Design answered:
Dag Mieke,
Klopt; je breit dan opnieuw 1 naald (aan de verkeerde kant) waarbij je de markeerders plaatst. De naald die daarna weer komt is aan de goede kant.
23.01.2019 - 11:01Mieke wrote:
Het meerderen om de naald voor de raglan is geen probleem maar de 4e en 6e naald is een probleem. Je mag alleen meerderen voor de raglan op de goede kant. Wat doe ik fout?
23.01.2019 - 09:33DROPS Design answered:
Dag Mieke,
Als je om de naald meerdert, meerder je op de goede kant wel en op de verkeerde kant niet dus om en om. Als je op de 4e naald meerdert meerder, zorg je dat je 1 van de 4 naalden meerdert en dan in een naald op de goede kant. Eveneens zo voor 6 naalden.
23.01.2019 - 10:59Mai-Britt Elisabeth Nørfelt wrote:
Hej jeg prøver igen fordi jeg kan ikke komme videre. Jeg strikker den i str. L, det ville være rart at komme videre med for/bag stykke og ærmer. Med venlig hilsen Mai-Britt Nørfelt
22.01.2019 - 22:54DROPS Design answered:
Hei Mai-Britt. Du øker til raglan på hver side av A.1. Det økes på forskjellige omganger på ermene og for/bakstykket, men du øker 2 masker på hver del hver gang - 1 maske i hver side. på for/bakstykket øker du FØR 1. A.1,ETTER 2. A.1, FØR 3. A.1 og ETTER 4. A.1 og du øker som forklart i RAGLAN BOL: først på hver 2 pinne, dette gjentar du 4 ganger, når du er ferdig med det øker du etter 4. pinner (=1 gang), og så hver 6 pinne 4 ganger = 18 masker økt på hver del (36 totalt). På ermene (ETTER 1. A.1, FØR 2. A.1, ETTER 3. A.1 og FØR 4. A.1) øker du som forklart i RAGLAN ERMER = 32 masker økt per erme (64 totalt). Da har du 170 masker på pinnen. God fornøyelse
24.01.2019 - 15:12Javaudin wrote:
Bonjour pourriez vous m'indiquer les dimensions pour une taille XS?
20.01.2019 - 22:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Javaudin, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Vous pouvez vous aider des mesures du modèles et ajuster ainsi les explications aux vôtres. Pour toute assistance complémentaire, n'hésitez pas à contacter le magasin où vous avez acheté votre laine. Bon tricot!
21.01.2019 - 12:20Mai-Britt Elisabeth Nørfelt wrote:
Jeg forstår slet ikke udtagningerne på ærmer og for/bagstykke, jeg får alt for mange masker.
20.01.2019 - 21:27DROPS Design answered:
Hei Mai-Britt. Se svar over
24.01.2019 - 15:19Cannizzaro Francesca wrote:
Buongiorno! Vorrei sapere a quale taglia italiana corrisponde la vostra xxxl. Grazie
26.12.2018 - 11:06DROPS Design answered:
Buongiorno Francesca. Le taglie Drops vestono comodo. Alla fine delle spiegazioni, trova un grafico con le misure espresse in cm. Confrontando queste misure con un capo la cui vestibilità la soddisfa, può trovare la taglia corretta. Buon lavoro!
26.12.2018 - 13:13Lena Hildeman wrote:
Hej Jag undrar - När alla maskor är ökade på ärmen får jag det till att ärmen då ska ha 31 maskor, men i mönstret står det 39. Var är felet? Mvh Lena
07.02.2018 - 21:22DROPS Design answered:
Hei Lena. I str M. Når du setter 4 merker i arbeidet har du 9 masker på hvert erme (A.1(= 4 masker) + 1 maske rett + A.1(=4 masker)). Du øker på hver 2. pinne 13 ganger på hvert erme = 26 økte masker, deretter øker du 2 ganger på hver 4. pinne = 4 økte masker. Da har du de 9 masker du hadde i begynnelsen + 26 økte masker + 4 økte masker = 39 økte masker når alle økningene er ferdig, på ett erme. God Fornøyelse!
08.02.2018 - 10:00Andrea wrote:
Ich stricke das Modell in Gr. S und habe 2 Fragen. 1.Arbeite ich das Knopfloch nur über 1oder über mehrere R.? 2.bei Raglanzunahmen an den Ärmeln. In der Anleitung heißt es, dass man die Zunahmen in jeder 2. R 12x und in jeder 4.R 2 x wdh. soll. Ich verstehe nicht was ich in den 4.R machen soll.
20.01.2018 - 19:54DROPS Design answered:
Liebe Andrea, bei jedem Knopfloch wird nur 1 M abegnommen, und mit 1 Umschlag zugenommen = 1 Loch. Bei der Größe S nehmen Sie mit einem unterschiedlichen Rythmus beim Rumpfteil und bei den Ärmeln. Wenn Sie in jeder 4. Riehe zunehmen sollen stricken Sie 3 Reihe ohne Zunahmen, dann 1 Reihe mit 2unahmen (= 1x beim Rumpfteil und 2 x bei den Ärmeln). Viel Spaß beim stricken!
22.01.2018 - 09:39