Morocco Dream |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Safran með gatamynstri og kögri. Stærð S-XXXL.
DROPS 162-22 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrsta fl skipt út fyrir 1 ll. Umferð endar á 1 kl í ll frá byrjun umf. Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umferð endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. KÖGUR: 1 KÖGUR = Klippið 2 þræði 40 cm langa. Leggið þá saman tvöfalda og dragið lykkjuna í gegnum ll-boga og dragið síðan þræðina inn í lykkjuna. Klippið kögrið til þannig að það verði 19 cm langt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklið 28 ferninga sem síðar eru saumaðir saman í fram- og bakstykki. Heklið síðan netamynstur í mismunandi stærðum. Að lokum er fram- og bakstykki saumað saman. HEKLAÐUR FERNINGUR: Heklið einn ferning þannig – sjá mynsturteikningu A.1: Heklið 5 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið saman í hring með 1 kl. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið síðan 2 st um ll-hringinn, * 3 ll, 3 st um ll-hringinn * endurtakið frá *-* 6 sinnum til viðbótar, 3 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af 3 næstu l (þ.e.a.s. 1 kl í 2 næstu st, 1 kl í næstu ll). UMFERÐ 2: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af 3 næstu l. UMFERÐ 3: 3 ll (= 1 st), 2 st um ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-bpga *, endurtakið frá *-* (= A.1) 2 sinnum til viðbótar, 5 ll, 1 fl í næsta ll-boga, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, 1 kl í hverja af næstu 3 l. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! UMFERÐ 4-9: Haldið áfram eins og áður. Endurtakið A.1 alls 4 sinnum í umf, en endið eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þ.e.a.s. síðasti st-hópurinn í horni A.1 er ekki heklaður í 4. skiptið þegar A.1 er endurtekið. Endið í hverri umf með 1 kl í 3. ll í umf og 1 kl í næstu 3 l. UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 2 fl um ll-boga, 3 ll, 2 fl í sama ll-boga, haldið síðan áfram eins og sýnt er í A.1. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf, 1 kl í hverja og eina af 2 næstu l. UMFERÐ 11: 8 ll (= 1 st + 5 ll), 1 st um ll-boga, haldið síðan áfram eins og sýnt er í A.1. Endið á 1 kl í 3. ll í umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 27 ferninga alveg eins = 28 ferningar. FRÁGANGUR: Saumið saman hekluðu kantana eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Nú eru 2 alveg eins stykki sem saman standa af 14 ferningum hvort. ÖXL: Heklið nú öxl í netamynstri – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á 5. ferningi – sjá mynsturteikningu. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* yfir 5. og 4. ferning. Heklið 1 st í sauminn á milli tveggja ferninga. Endið á 1 ll og 1 st í saum á milli 4. og 3. ferning. Snúið við og heklið svona fram og til baka þar til netmynstur hefur verið heklað í 5-6-7 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina alveg eins nema spegilmynd yfir 2. og 1. ferning. Endurtakið á hinu stykkinu. Saumið saman axlasaum fallega í l eina og eina. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. HLIÐAR: Heklið nú á hvorri hlið þannig: Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni á 14. ferningi – sjá mynsturteikningu. S/M: Heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* yfir 14., 11. og 8. ferning og haldið áfram alveg eins undir ermi (= 5. ferningur). Heklið alveg eins á hinni hliðinni. Endurtakið á hinum hlutanum. L/XL – XXL/XXXL: Heklið 3 ll, * 1 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið yfir 14., 11. og 8. ferning. Snúið við og heklið alveg eins fram og til baka þar til netamynstur hefur verið heklað í 4-8 cm. Heklið alveg eins á hinni hliðinni. Endurtakið á hinum hlutanum. KANTUR AÐ NEÐAN: Heklið kant að neðan með byrjun frá réttu þannig: S/M: Byrjið á 1 kl í ll-boga í horni. Heklið þannig: 1 ll, * 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að neðan. L/XL – XXL/XXXL: Byrjið á 1 kl í fyrsta st í horni á kanti að neðan. Heklið 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* meðfram öllum kanti að neðan, snúið við og heklið alveg eins fram og til baka í 3-6 cm. Endurtakið alveg eins á hinum hlutanum. FRÁGANGUR: Saumið saman hliðarsauma og sauma undir ermum fallega í l eina og eina, en skiljið eftir 22-25-28 cm fyrir klauf á hvorri hlið. Heklið kant í kringum hálsmál þannig: Festið enda í axlasaum, heklið 1 ll, * 1 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum allt hálsmál. Endið á 1 ll, 1 kl í fyrstu ll í umf. Klippið frá og festið alla enda. Setjið nú KÖGUR – sjá skýringu að ofan í annan hvern ll-boga neðst niðri meðfram kanti. KANTUR Á ERMUM: Heklið í kringum kant á ermum þannig: Byrjið á 1 kl fyrir miðju undir ermi og heklið frá réttu þannig: S/M: 1 ll, * 1 ll í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* í kringum allan kantinn og endið á 1 ll, 1 kl í 1. ll í umf. Endurtakið alveg eins hinum megin. L/XL - XXL/XXXL: 3 ll, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* í kringum allan kantinn. Endið á 1 ll, 1 kl í 3. ll í umf. Haldið svona áfram þar til kanturinn mælist 2-4 cm. Endurtakið alveg eins hinum megin. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (31)
Anne-Marie wrote:
I want to make it. Looks pretty and comfortable.
16.02.2015 - 12:12Lingonne wrote:
Charmant modèle que je souhaite réaliser mais pas en robe plutôt en tunique en supprimant un rang de carrés mais en gardant les franges bien entendu ; ce qui fait son charme.
08.02.2015 - 16:50Plus.google.com wrote:
I enjoy what you guys are usually up too. Such clever work and exposure! Keep up the awesome works guys I've added you guys to my personal blogroll.
27.01.2015 - 15:12Ann-cathrine Falk wrote:
Vart har Diagrammet tagit vägen
23.01.2015 - 14:15DROPS Design answered:
Hei Ann-Cathrine. Diagrammet staar nederst i mönstret.
23.01.2015 - 16:08Eva wrote:
Letní dovolenková móda
08.01.2015 - 15:10Sandrine wrote:
Superbe
07.01.2015 - 16:48Helena Burgrová wrote:
Hezká a elegantní :-) moc se mi libí
29.12.2014 - 22:31Riccarda wrote:
Pubblicatelo velocemente per favore, non vedo l'ora di farlo per la prossima estate!
27.12.2014 - 16:40Riccarda wrote:
Il profumo dei mitici 70's!!!!
27.12.2014 - 16:31Lene Sørensen wrote:
Nu SKAL jeg lære at hækle! Jeg er helt vild med dette design!
21.12.2014 - 14:36