Sailor Aksel |
|
|
|
Prjónuð jakkapeysa með laskalínu, lausum matrósarkraga með slaufu, sokkum og húfu með dúsk úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð börn 2-10 ára
DROPS Children 26-7 |
|
PEYSA: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. RENDUR-1 (á við um fram- og bakstykki og ermar): 2 umf sl með natur, 2 umf sl með dökk blár, 2 umf sl með natur (= 6 umf). RENDUR-2 (á við um kraga): 4 umf sl með natur, 4 umf sl með dökk blár, 4 umf sl með natur. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA: Byrjið 2 l á undan l með prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 1 l sl (= l með prjónamerki), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l fleiri). LASKALÍNA: Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hverri laskalínu. FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l) og 2 l br saman (= 2 l færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á vinstri kant að framan. 1 hnappagat = sláið uppá prjóninn þegar 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 næstu l slétt saman og endið á 2 l sl. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 2 ÁRA: 2, 8, 14, 20 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 2, 8, 13, 19, 24 og 30 cm. STÆRÐ 5/6 ÁRA: 2, 8, 15, 21, 28 og 34 cm. STÆRÐ 7/8 ÁRA: 2, 9, 16, 23, 30 og 37 cm. STÆRÐ 9/10 ÁRA: 2, 10, 18, 26, 34 og 41 cm. ---------------------------------------------------------- PEYSA: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 138-146-154-162-170 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN og munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan, en síðustu 5 l halda áfram í garðaprjóni til loka (= kantur að framan). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki 37-39-41-43-45 l inn frá hvorri hlið (= 64-68-72-76-80 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-10 cm aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 12-14-16-18-20 cm = 146-154-162-170-178 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 18-21-24-27-30 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 36-38-40-42-44 l eftir á hvoru framstykki og 62-66-70-74-78 l á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-38-40-40 l á sokkaprjóna nr 3 með dökk blár og prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið RENDUR-1. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-6-9-9 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 8-9-11-13-15 sinnum = 52-56-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 25-30-33-37-41 cm fellið af miðju 6 l mitt undir ermi = 46-50-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 226-242-258-278-294 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram fram og til baka á hringprjóna eins og áður með sléttprjóni og 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við öll prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 16-16-16-17-18 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) alls 0-2-4-6-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 28-31-35-38-42 cm (stillið af að prjónaðar séu 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati) setjið síðustu 16-13-13-10-10 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fækkið síðan lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-1-1-2-2 sinnum og 1 lykkju 1-2-2-2-2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og hálsmáli eru 64-64-64-62-62 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 96 til 116 l í kringum hálsmál (meðtaldar l á þræði) á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 70-70-76-82-82 l – ATH: Fækkið ekki lykkjum yfir kant að framan. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. MATRÓSARKRAGI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 164-176-190-204-216 l á hringprjóna nr 3,5 með dökk blár. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 52-56-60-64-68 l sl, prjónið 1 l sl og setjið 1 prjónamerki í þessa l, prjónið 58-62-68-74-78 l sl, prjónið 1 l sl og setjið 1 prjónamerki í þessa l, prjónið næstu 52-56-60-64-68 l. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 22-24-26-28-30 sinnum. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 6 umf garðaprjón með dökk blár eftir uppfitjunarkant eru prjónaðar RENDUR-2 – sjá útskýringu að ofan (rendurnar eru einnig prjónaðar í garðaprjóni). Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár, garðaprjóni og úrtöku eins og áður JAFNFRAMT er nú einnig lykkjum fækkað í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 5 l 1 sinni, 4 l 1 sinni, 3 l 3 sinnum, 2 l 5 sinnum og 1 l 3-5-7-9-11 sinnum. Eftir alla úrtöku/affellingu eru 14-14-16-18-18 l eftir á prjóni, fellið af. Brjótið innri kant á kraganum ca 1 cm inn að röngu og saumið fallega niður. Saumið saman kraga við miðju að framan með nokkrum smáum sporum. Setjið kragann á peysuna og saumið smellu á milli peysu og kraga á hvorri öxl inn við hálsmál. SLAUFA: Fitjið upp 12 l á prjóna nr 3 með rauður og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka í 8 cm, fellið af. Fitjið upp 10 l á prjóna nr 3 með rauður og prjónið 8 umf garðaprjón, fellið af. Saumið saman styttri endana þannig að það myndist hringur, klippið frá og festið enda. Dragið sjálfa slaufuna í gegnum hringinn og saumið saman bæði stykkin á bakhlið. Saumið slaufuna niður við miðju að framan við kraga þannig að hann hylji sauminn. ---------------------------------------------------------- HÚFA: GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. RENDUR: 2 umf sl með natur, 2 umf sl með dökk blár, 2 umf sl með natur (= 6 umf). ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á eftir hverju prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á. Fitjið upp 96-100-104 l á hringprjóna nr 3 með dökk blár. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5, prjónið 1 umf sl. Prjónið síðan RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar rendurnar hafa verið prjónaðar er haldið áfram með dökk blár og sléttprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-15-16 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið með 24-25-26 l á milli prjónamerkja. Fækkið síðan um 1 l á eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5-6-6 sinnum og síðan í hverri umf alls 6-6-7 sinnum = 52 l eftir í umf í öllum stærðum. Prjónið 1 umf sléttprjón þar sem allar l eru prjónaðar saman 2 og 2, endurtakið í næstu umf = 13 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 20-21-23 cm á hæðina. DÚSKUR: Gerið lítinn dúsk með natur ca 3-4 cm að þvermáli og saumið niður efst á toppinn á húfunni. --------------------------------------------------------- SOKKAR: HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6-6-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6-6-8-8 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5-5-7-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5-5-7- l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-10-12-12-12-12 l eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ---------------------------------------------------------- SOKKUR: Fitjið upp 42-46-52-56-62-66 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: STÆRÐ 22/23 + 24/25: 2 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-4 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá **-** alls 2-2 sinnum og endið á 2 l sl og 2 l br. STÆRÐ 26/28 + 29/31: 1 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-5 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá *’-** alls 3-3 sinnum og endið á 1 l sl. STÆRÐ 32/34 + 35/37: 2 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 4 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6 sinnum, ** 2 l sl, 4 l br **, endurtakið frá **-** alls 3-3 sinnum og endið á 2 l sl og 2 l br. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið síðan sléttprjón en stoffið heldur áfram yfir miðju 28-28-34-34-40-40 l að aftan (= 14-18-18-22-22-26 l sléttprjón framan á sokk). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fækkið aðra hverja 4 lykkju brugðið til 3 lykkjur brugðið (fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman = 3-3-3-3-4-4 l færri). Eftir 2½-3-4-5-6-6 cm fækkið þær 4 lykkjur brugðið sem eftir eru til 3 lykkjur brugðið. Endurtakið úrtöku með 2½-3-4-5-6-6 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 32-36-40-44-48-52 l eftir á prjóni og 2 l br í hverri br mynstureiningu fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 15-18-21-24-27-29 cm. Haldið nú eftir miðju 18-18-22-22-26-26 l fyrir miðju að aftan á prjóni fyrir hæl og hinar 14-18-18-22-22-26 l eru settar á þráð (= miðja ofan á fæti). Haldið áfram með stroff fram og til baka yfir hæl-l í 4½-5-5-5½-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki í mitt á prjóninn. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-11-11-12-12-13 l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 44-50-52-58-58-64 l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við l ofan á fæti þannig: Þær 2 síðustu l á undan 14-18-18-22-22-26 l ofan á fæti eru prjónaðar slétt saman og 2 fyrstu l á eftir 14-18-18-22-22-26 l eru prjónaðar áfram slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 7-8-8-9-9-11 sinnum = 30-34-36-40-40-42 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 10-12-13-14-16-18 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-4-4-4-4 cm til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 15-17-18-20-20-21 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 4-4-5-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 2-2-2-3-3-3 sinnum = 6-10-8-8-8-10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 13-15-17-18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
REINE MARIE wrote:
COMMENT FAIRE 1 JETE DE CHAQUE COTE DES DEUX MARQUEUR FAUT IL LE FAIRE A 1M DES MARQUEURS .MERCI POUR UNE REPONSE .
15.07.2023 - 16:09DROPS Design answered:
Bonjour Marie, exactement. Bon tricot!
15.07.2023 - 17:03Helen wrote:
I haven 't attempted to do this pattern yet, but it is so cute that I want to make it for my two great grandchildren( both boys).
03.09.2021 - 17:44Claudia Meischl wrote:
Vielen Dank, für die schnelle Antwort. LG Meischl
03.09.2018 - 16:02Claudia Meischl wrote:
Hallo liebes Team, ich verstehe beim Kragen die Abnahme nicht. Beids.d.h. am Anfang jeder R. Abketten: 5M je 1x, 4M je 1x u.s.w.ist damit gemeint am Anfang und Ende der R. gleich 5 M auf einmal abketten od. 5x nacheinander je R. 1x abnehmen. LG Claudia
02.09.2018 - 18:07DROPS Design answered:
Liebe Frau Meischl, Sie werden am Anfang jeder Reihe (Hin sowie Rückreihen) so abketten: 5 M x 1 (= 5 M am Anfang der nächsten Hinreihe, die Reihe bis zur Ende stricken, wenden, 5 M am Anfang der Rückreihen abketten, die Reihe bis zur Ende stricken), dann: 4 M x 1 (= wie zuvor aber jetzt nur 4 M am Anfang der nächsten beiden Reihen abketten), usw. Viel Spaß beim stricken!
03.09.2018 - 15:57Mira Tax wrote:
Ik brei inderdaad heen en weer, maar de mouwen brei je toch echt rond bij dit patroon. Mijn probleem is dat de mouwen dan nauwelijks op de naalden passen, Daar zoek ik een oplossing voor.
21.04.2016 - 08:50DROPS Design answered:
Hoi Mira. Ja, je breit het lijf heen en weer en de mouwen in de rondte. Maar als je alle steken op de nld zet voor de raglan (inclusief de mouwen) brei je de pas heen en weer (dus ook de steken voor de mouwen. Tot aan het armsgat brei je de mouwen in de rondte - ik verwijs hier naar mijn vorige reactie betreffend nld en magic loop.
21.04.2016 - 11:34Mira Tax wrote:
Bedankt voor het antwoord! Werkt die magic loop ook als je de pas breit, dwz als de mouwen samen met voor- en achterpand op 1 rondbreinaald staan en er moet worden geminderd voor de raglan?
19.04.2016 - 20:55DROPS Design answered:
Hoi Mira. Je hooft geen magic loop voor de pas - je breit heen en weer
20.04.2016 - 15:32Mira Tax wrote:
Ik ben bezig met de pas. Voor het breien van de mouwen zijn de punten van mijn rondbreinaalden echter te lang (merk Knit Pro): ik krijg de mouw niet goed gebreid. Zijn er verwisselbare naaldpunten van Drops die korter zijn en geschikt om de mouwen mee te breien?
19.04.2016 - 10:36DROPS Design answered:
Hoi Mira. Onze punten zijn niet korter, maar probeer eventueel met breinaalden zonder knop of de magic loop techniek:
19.04.2016 - 15:51