Petit Lutin |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Sett með prjónuðum buxum, sokkum og húfu / jólasveinahúfu úr DROPS Cotton Merino. Stærð börn 1-18 mánaða
DROPS Children 26-17 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BUXUR: ÚRTAKA-1: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir 3 kantlykkjum í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 3 kantlykkjum í garðaprjóni: Byrjið 2 l á undan 3 kantlykkjum og prjónið 2 l slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónið fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 hlutum neðan frá og upp eftir opi fyrir fætur. Síðan er stykkið prjónað í hring áður en það skiptist aftur upp við mitti og framstykki er prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 14-16-18 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar l í lok hverrar umf alls 9 sinnum í hvorri hlið = 50-52-54 l í umf og stykkið mælist ca 6 cm. Geymið stykkið og prjónið framstykki. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 14-16-18 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino og prjónið sléttprjón fram og til baka í 5 cm. Fitjið nú upp 6 nýjar l í lok hverrar umf alls 3 sinnum í hvorri hlið = 50-52-54 l í umf og stykkið mælist ca 7 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið l frá fram- og bakstykki á sama hringprjón = 100-104-108 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 50-52-54 l á milli prjónamerkja) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn – byrjun umf = hlið. Þegar stykkið mælist 2-3-5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 84-88-92 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 10-11-14 cm frá prjónamerki (stykkið mælist ca 17-18-21 cm frá uppfitjunarkanti) prjónið upphækkun að aftan þannig: Prjónið sl eins og áður yfir fyrstu 42-44-46 l þ.e.a.s. fram að 2. prjónamerki (= framstykki – ATH: Ekki er prjónuð upphækkun yfir þessar l), prjónið sl þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í byrjun umf, snúið við og prjónið br til baka þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka þar til 10 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, snúið við. Prjónið sl þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki, snúið við og prjónið br til baka þar til 15 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka í byrjun umf (= hlið). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt yfir allar l JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 80-88-96 l – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt þegar snúið er við er lykkjan sótt á milli 2 l upp og prjónað er áfram slétt með næstu l á prjóni. Prjónið síðan stroff í hring þannig: 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stroffið mælist 1½ cm prjónið kant með gatamynstri þannig: 1 l sl, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir í umf, endið á 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið síðan áfram þar til 1 umf er eftir áður en stroffið mælist 3 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 40-44-48 l (= framstykki), fellið LAUST af næstu 40-44-48 l með sl yfir sl og br yfir br (= bakstykki). FRAMSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 9-11-13 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 16 l) 9-11-13 l sléttprjón og 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið áfram með mynstur svona fram og til baka. JAFNFRAMT eftir 1-1-0 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í 2.- 4.- 6. hverri umf alls 7-7-6 sinnum = 26-30-36 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 7-9-11 cm frá prjónamerki – stillið af þannig að næsta umf er prjónuð frá réttu, prjónið 6 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 l sl og setjið þessar l á 1 þráð fyrir axlaband, fellið af næstu 10-14-20 l og prjónið sl yfir síðustu 8 l (= axlaband). AXLABAND: Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til bandið mælist ca 18-20 cm (eða að óskaðri lengd). Fellið af og endurtakið í hinni hliðinni. FRÁGANGUR: STROFF: Prjónið upp frá réttu ca 50 til 56 l meðfram öðru opi fyrir fót á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 58-62-66 l. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar kanturinn mælist 2 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hinu opinu. Saumið saman op í klofbótinni innan við 1 kantlykkju – þ.e.a.s. saumið saman annan stroff kantinn, síðan er saumað saman í klofi og að lokum hitt stroffið. Saumið tölu neðst í hvort axlaband. Tölurnar eru hnepptar í gegnum gat á gataumferð í stroffi. SNÚRA: Klippið 2 þræði Cotton Merino ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman. Hnýtið hnút á hvorn enda. Byrjið við miðju að framan og þræðið snúruna upp og niður í gegnum göt í gataumferð á stroffi í mitti. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. HÚFA: Fitjið upp 75-81-85 (91-91) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Cotton Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað stroff (= 1 l sl, 1 l br) með 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og 1 l sl innan við kantlykkju í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-10 (8-8) l jafnt yfir = 65-71-75 (83-83) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm setjið 3 l í byrjun á hverri umf á þráð (prjónið l fyrst). Haldið áfram í sléttprjóni, í hverri umf eru settar 3 nýjar l á þráðinn. Haldið svona áfram þar til 30-33-33-39-39 l eru á þræði í hvorri hlið (= 5-5-9-5-5 l á prjóni.) Klippið frá og setjið til baka allar l á prjóninn. Prjónið 1 umf slétt frá réttu yfir allar l, í næstu umf er fellt af. Stykkið mælist ca 19-20-21-24-25 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman húfuna fyrir miðju að aftan með lykkjuspori. Prjónið upp frá réttu ca 44-60 l meðfram kanti að neðan á húfunni á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er jafnt út til 55-59-65-69-75 l. Prjónið 2 umf sléttprjón með 1 kantlykkju með garðaprjóni á hvorri hlið. Næsta umf er prjónuð þannig (frá réttu): 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn * endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, þær eru prjónaðar slétt. Prjónið nú 3 umf sléttprjón með 1 l garðaprjón á hvorri hlið, fellið síðan af. Brjótið kantinn tvöfaldan að röngu við gataumferð og saumið niður. SNÚRA: Klippið 3 þræði af Cotton Merino ca 2 metra, tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinna sig aftur saman, hnýtið hnút á hvorn enda. Þræðið snúruna í faldinn. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (4-4-4) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (4-4-4) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-8-10 (10-12-12) l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 36-36-40 (40-44-44) l á sokkaprjóna nr 3 með Cotton Merino og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 2-2-2 (3-3-3) cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja að aftan). Næsta umf er prjónuðu þannig: 10-10-12 (12-14-14 ) l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 16 l) og 10-10-12 (12-14-14) l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Jafnframt þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5-6) cm fækkið um 2 l fyrir miðju að aftan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 4-4-3 (3-3-3) cm millibili alls 2-2-3 (3-4-4) sinnum = 32-32-34 (34-36-36) l. Þegar stykkið mælist 9-10-12 (13-16-19) cm haldið eftir miðju 16-16-18 (18-20-20) l fyrir hællykkjur og miðju 16 l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4 (4½-5-5) cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan upp 7-8-9 (10-11-11) l hvoru megin við hæl og l af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 38-40-44 (46-50-50) l á prjóni. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.1 yfir miðjulykkjur ofan á fæti eins og áður – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 16 l ofan á fæti: Þær 2 síðustu l á undan 16 l eru prjónaðar slétt saman og 2 fyrstu l á eftir 16 l eru prjónaðar snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 6-6-7 (7-7-7) sinnum = 26-28-30 (32-36-36) l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (10½-11½-13) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½-4) cm). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-14-15 (16-18-18) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið síðan lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf: 2-2-3 (3-5-6) sinnum og síðan í hverri umf: 3-3-3 (3-2-1) sinnum = 6-8-6 (8-8-8) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (13-15-18) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (11)
Rehan wrote:
The diagram has problem with symbols. Please recheck the diagram
18.01.2016 - 11:55DROPS Design answered:
Dear Mrs Rehan, can you please explain more so that we can check? Thank you!
18.01.2016 - 15:22