DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Bright Sally

Prjónuð jakkapeysa með köðlum, gatamynstri og hettu úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð börn 2-12 ára

DROPS Children 26-13
DROPS Design: Mynstur nr z-036-bn
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 – 9/10 – 11/12 ára
Stærð í cm: 92- 98/104 - 110/116 -122/128 – 134/140 – 146/152

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 3620, rauður
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
75-75-100-100-125-125 gr litur nr 14, rauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með einum þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 5-6-6-7-7-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8250.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og tilbaka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstrið séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.

PEYSA:
Fitjið upp 153-165-177-189-201-213 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan þannig: A.1 (= kantur að framan) A.2 (= 5 l), A.3 (= 12 l) yfir næstu 132-144-156-168-180-192 l, prjónið A.4 (= 6 l), endið á A.1 (= kantur að framan). Þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 131-141-151-161-171-181 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en í hverri mynstureiningu á A.3 er nú prjónað A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig: A.1, A.2, A.5, 1 l br, sléttprjón yfir næstu 89-99-109-119-129-139 l, A.5, A.4, A.1. Haldið áfram með þetta mynstur. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 36-38-40-43-45-48 l inn í hvorri hlið (bakstykki = 59-65-71-75-81-85 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 6½-7½-8½-9½-10½-11½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 115-125-135-145-155-165 l. Þegar stykkið mælist 28-31-34-37-40-43 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (nú eru 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki) og bakstykki og framstykkin er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 47-51-57-61-67-71 l. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í byrjun á hverri umf þannig: 2 lykkjur 1-1-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum = 41-45-47-51-55-57 l. Þegar stykkið mælist 38-42-46-50-54-58 cm fellið af miðju 17-19-21-23-23-25 l fyrir hálsmáli. Í næstu umf er fækkað að auki um 1 lykkju við háls = 11-12-12-13-15-15 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 40-44-48-52-56-60

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 28-31-33-36-38-41 l. Fækkið lykkjum fyrir handveg í hlið eins og á bakstykki = 25-28-28-31-32-34 l. Þegar stykkið mælist 39-43-47-51-55 cm setjið fyrstu 10-12-12-14-13-15 l frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umf frá réttu: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 11-12-12-13-15-15 l eftir á öxl – þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar með sléttprjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 40-44-48-52-56-60 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 28-31-33-36-38-41 l. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-33-33-34-36-36 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þráð af Alpaca og 1 þráð af Kid-Silk. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-4½-5-4-4-4 cm millibili 4-4-5-7-8-9 sinnum til viðbótar = 40-43-45-50-54-56 l. Þegar stykkið mælist 25-30-33-37-41-44 cm fellið af 6 l mitt undir ermi fyrir handveg. Prjónið síðan ermi fram og til baka JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fækkið um 2 l í hvorri hlið 2 sinnum, 1 l í hvorri hlið 0-0-1-1-1-2 sinnum, síðan er fækkað um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 29-34-38-42-46-50 cm. Fækkið um 3 l í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 30-35-39-43-47-51 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermi í.

HETTA:
Prjónið upp ca 62-78 l í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umf sl frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 76-78-80-82-84-86 l. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1 í hvorri hlið. Þegar hettan mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af. Saumið hettuna með saman með lykkjuspori efst uppi.

Saumið 5-6-6-7-7-8 tölur jafnt yfir í vinstra framstykki – það á að hneppa tölunum í gegnum götin í kanti að framan á hægra framstykki, stillið tölurnar af eftir götunum þeim.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2019
Leiðrétting á lykkjufjölda í minnstu stærð 2 ára: Bakstykki = 47 lykkjur, framstykki 28 lykkjur og 11 lykkjur eftir á öxlum.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt, prjónið 2 l af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, prjónið 2 l af hjálparprjóni
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (38)

country flag Paula Parracho wrote:

Boa noite, FRENTE ESQUERDA: A 39-43-47-51-55 cm de altura total, colocar em espera para o decote as 10-12-12-14-13-15 primeiras ms/pts a partir do meio da frente num alfinete de ms/pts. Arrematar então no princípio de cada carreira pelo direito: 1 vez 2 ms/pts e 2 vezes 1 m/p - Estes remates são no decote ou do lado da cava? Não entendo, Obrigada

13.03.2019 - 22:16

DROPS Design answered:

Boa tarde, Estes remates são no lado do decote. Bom tricô!

08.04.2019 - 17:13

country flag Agnès Savigny wrote:

Bonjour! pour le devant gauche: glisser en attente pour l'encolure les 14 premières mailles à partir du milieu devant. je ne comprends pas de quelles mailles on parle, d'où on commence à compter? merci pour votre aide

07.12.2018 - 14:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Savigny, en début de rang sur l'envers (devant gauche), tricotez les 14 premières mailles du rang et glissez-les en attente sur un fil, continuez le rang jusqu'à la fin. Vous avez maintenant mis 14 m en attente côté encolure (vous reprendrez ces mailles plus tard pour la capuche), au début du rang suivant sur l'envers, rabattez les mailles pour l'encolure comme indiqué (= 1 x 2 m et 2 x 1 m). Bon tricot!

07.12.2018 - 14:43

country flag M. Paulis wrote:

Kan dit patroon ook zonder capuchon en zo ja, hoe pas ik dat aan? Als het niet kan heeft u dan een soortgelijk patroon voor een lang kindervest met meerder knopen voor de sluiting? Leeftijd 2-3.

22.08.2018 - 15:08

DROPS Design answered:

Dag M. Paulis, In plaats van een capuchon te breien na het opnemen van steken rondom de hals, zou je een boord kunnen breien. Het is dan wel mooi om een extra knoopsgat te maken zodat het vest tot bovenaan dicht kan.

23.08.2018 - 17:52

country flag Gerlinda Hoogeboom wrote:

Ik merk dat jullie eigenlijk, zover ik zie, alleen maar rondbreinaalden gebruiken. Hebben jullie nou helemaal geen patronen voor gewoon 2 naalden, ik ( en ik ben niet de enige) vind het breien op een rondbreinaald verschrikkelijk, net als met 4 breinaalden breien.

11.03.2018 - 18:58

DROPS Design answered:

Hallo Gerlinda, Onze ontwerpen komen uit Noorwegen en daar is het heel gebruikelijk om alles met rondbreinaalden te breien. Veel patronen kunnen echter ook aangepast worden zodat je ze met rechte naalden kunt breien. Klik hier voor meer informatie daarover. In het geval van dit patroon moet je even kijken hoe je uitkomt met de kantrand onderaan. Misschien is het mogelijk (bij een kleine maat) om voor- en achterpand beide op een rechte naald te zetten.

12.03.2018 - 09:15

country flag Claessens Danièle wrote:

Bonjour, je fais le modèle children 26-13 et j'ai un doute au niveau de l'arrondi de la manche à la fin je trouve 26 mailles restantes et celui ci ci me parait petit par rapport à l'emmanchure. Vous serait il possible de me confirmer que mes calculs sont bons et que la longueur totale de la manche est bien 47 cm Je vous remercie

15.02.2018 - 22:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Claessens, en fonction de la taille et du nombre de rangs en hauteur, le nombre de mailles restant à la fin de l'arrondi de la manche peut varier, mais si votre manche mesure bien la bonne longueur, alors tout est juste, l'arrondi (en commençant par les 6 m rabattues sous la manche d'un côté jusqu'à l'autre côté) sera ensuite assemblé le long de l'emmanchure dos/devant. Bon tricot!

16.02.2018 - 09:48

country flag Sarah wrote:

Hi, i do not quite understand how to do the pattern on the second row. Do i follow the same order as on the 1 st row: A1, A2, A3, A4, A1 or do I reverse: A1, A4, A3, A2, A1? Thank you

04.03.2017 - 22:07

DROPS Design answered:

Dear Sarah, you have to work the diagrams reversed from WS so that each diagram will follow, read diagram from the left towards the right from WS. Happy knitting!

06.03.2017 - 09:25

country flag Mirjam wrote:

Ik kom niet uit met de steken op het achterpand. 32 voor links, 32 voor rechts, 51 voor het achterpand = 115 st. 51-/- 3 st aan weerskanten voor de armsgaten = 45 (geen 49 st) 45-/- 1x2 1x1 aan weerskanten =39 (geen 43 st) 39-/- 17 voor de hals = 22 22-/-1 st voor de hals =20 blijven er dus 10st over voor elke schouder ipv 12 Zie ik nu iets over het hoofd? Met vriendelijke groet, Mirjam Goudswaard

27.01.2017 - 16:30

DROPS Design answered:

Hoi Mirjam. Je hebt 125 st en kant 6 st af aan beide zijkanten. Na de minderingen (4 keer totaal) heb je 34 st op elk voorpand en 57 voor het achterpand. 6 st afkanten voor elk armsgat: 31 voor elk voorpand en 51 (3 aan beide zijkanten) voor het achterpand. Dan kant je 6 st verder af aan beide zijkanten van het achterpand = 45 st over. 19 middelste af = 13 st op elke schouder + nog 1 st afkanten = 12 over. Hetzelfde voor het voorpand: 31 st - 3 = 28 st over - 12 st middenvoor = 16 en dan nog 4 st afkanten = 12 st over

02.02.2017 - 14:54

Israa Ezzat wrote:

Why 2 button holes in each band? I think a band shouls have a one button hole and the other band should have no holes to fasten the button. Can you please explain.

01.11.2016 - 08:57

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ezzat, front bands do have holes all the way (= lace pattern), but not all holes from front bands will be used to button. Happy knitting!

01.11.2016 - 12:34

Johanna VanSpronsen wrote:

Row 7 of A.1 makes two holes (for button holes?); should the holes be made just on the right side of work?

21.06.2016 - 19:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs VanSpronsen, A.1 is worked on both front band sts, ie on right and left band. The holes in A.1 are used then to button at the end. Sew the buttons on the opposite band. Happy knitting!

22.06.2016 - 09:35

Naresh Sachdev wrote:

I need help with Bright Sally drops design. When you work A3 you are decreasing 2 stitches. How does this work. Where is corresponding increase in stitches. I could not find video explaining the pattern. Your help will be greatly appreciated.

17.06.2016 - 14:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Sachdev, dec in A.3 as shown in the video below - you dec 2 sts in each A.3 - 10 sts remain in each A.3. See also 2nd video showing how to work A.1, A.2, A.3 and A.5. Happy knitting!

17.06.2016 - 15:44