DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Modest Michael

Prjónuð peysa í garðaprjóni og hringlaga hálsmáli úr DROPS Air. Stærð börn 1-10 ára

DROPS Children 26-11
DROPS Design: Mynstur nr ai-002-bn
Garnflokkur C eða A+A
----------------------------------------------------------
Stærð: (12/18 mán) 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: (80/86) 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
150-200-200-250-250-300 gr litur nr 10, þoka

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm og 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4092.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
----------------------------------------------------------

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp (51) 54-58-61-64-68 l á hringprjóna nr 5 með Air og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (22) 24-27-30-33-36 cm fellið af 1 l í byrjun 2 næstu umf (markar handveg) = (49) 52-56-59-62-66 l á prjóni. Þegar stykkið mælist (29) 32-35-39-42-46 cm setjið miðju (7) 8-10-11-14-14 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsi þannig: Fellið af 2 l 2 sinnum og 1 l 2 sinnum = (15) 16-17-18-18-20 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (33) 36-40-44-48-52 cm og fellið laust af. Endurtakið á hinni öxlinni.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki þar til stykkið mælist (31) 34-38-42-46-50 cm. Fellið nú af miðju (17) 18-20-21-24-24 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = (15) 16-17-18-18-20 l eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist (33) 36-40-44-48-52 cm og fellið laust af. Endurtakið á hinni öxlinni.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp (29) 31-33-33-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Air. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist (5) 6-6-6-7-7 cm aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með (5) 6-4½-4½-3½-3½ cm millibili alls (4) 4-6-7-9-10 sinnum = (37) 39-45-47-52-54 l. Þegar stykkið mælist (22) 26-31-35-39-43 cm prjónið 2 umf þar sem felldar eru af 4 l í byrjun í báðum þessum umf, fellið síðan laust af allar l.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í hvorri hlið á fram- og bakstykki frá handveg og niður þar til ca 6 cm eru eftir neðst niðri á fram- og bakstykki (= klauf) – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu, ca 44 til 62 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 4 með Air. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl, 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br, fellið síðan laust af með sl.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Karin wrote:

Tänkte sticka denna tröja till mitt barnbarn. Jag behöver sticka till 12 år. Hur många maskor behöver jag öka mönstret med för en storlek.

10.02.2021 - 09:25

DROPS Design answered:

Hej Karin. Vi har dessvärre inte möjlighet att räkna om mönster till fler storlekar än det som finns i mönstret, men jag hade ökat motsvarande som mellan de 2 tidigare storlekarna. Alternativt mätt på en tröja ditt barnbarn har och beräknat maskor utifrån stickfastheten. Mvh DROPS Design

11.02.2021 - 09:49

country flag Carol Post wrote:

In Drops 26-11 (Children), the pattern for the front states, when the piece is 18" long: "...slip the middle 14 sts on 1 stitch holder for neck and finish each shoulder separately." However, nowhere in the pattern does it tell one how to "finish each shoulder". What do I do with the stitches on either side of the holder? HOW do I finish each shoulder??

29.06.2020 - 04:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Post, slip the stitches from first shoulder (before the 14 sts for neck) on a stitch holder, and finish each shoulder separately binding off for neck as explained = 20 sts remain for shoulder and cast off when piece measures 52 cm/20.47 in (larger size). Then slip stitches from first shoulder back on needle and work as first shoulder = cast off for neck and continue til same height before casting off. Happy knitting!

29.06.2020 - 09:13

country flag Solange wrote:

Bonsoir J’ai une question sur les manches : «  rabattre 4 m au début des 2 rangs » cela veut dire : je rabat 4 m a l’endroit et au rang suivant donc a l’envers je rabat encore 4 m Merci et bonne soirée

23.04.2020 - 00:15

DROPS Design answered:

Bonjour Solange, tout à fait, vous rabattez 4 mailles au début du rang suivant sur l'endroit, terminez le rang, tournez et rabattez 4 mailles au début du rang suivant sur l'envers, terminez le rang et rabattez les mailles au rang suivant. Bon tricot!

23.04.2020 - 09:54

country flag Martha wrote:

Hei, jeg er en nybegynner og strikker mitt første strikkeplagg. Jeg er nesten ferdig og har kun halsen og montering igjen. Jeg er litt usikker på beskrivelsen på hals...har jeg forstått det rett at ved hals skal jeg legge til 44-62 nye masker inkl tråden foran og skal jeg evt strikke frem og tilbake eller rundt? Og pls husk at jeg er skikkelig nybegynner..forklar med babystep😊

06.04.2020 - 22:41

DROPS Design answered:

Hei Martha, Du har forstått det riktig, at du strikker opp 44-62 masker rundt halsen som inkluderer maskene på tråden foran. Deretter strikker du rundt, først 1 omgang rett, 1 omgang vrang, 1 omgang rett og 1 omgang vrang før du kaster løst av med rett. God fornøyelse!

07.04.2020 - 07:48

country flag Helen wrote:

You had a wonderful video of how to sew in the stocking stitch sleeve into the garter stitch body of the jumper, but I cannot find it again. Please help!

24.09.2019 - 08:18

DROPS Design answered:

Hello! Here is a video "How to set in sleeve". Hope it helps!

25.09.2019 - 11:50

country flag Karen wrote:

Me podrían explicar mejor como hacer el escote gracias

13.06.2019 - 22:38

country flag Ingela Svensson wrote:

Jag har stickat tröjan i st 2. Ärmarna blev så smala. Det står lägg upp 31 m (st2) inkl 1 kantm i varje sida) Har tolkat det så att jag hade 31 m och efter 4 ökningar hade jag 39 m. Varför så smala ärmar?

19.02.2019 - 11:10

DROPS Design answered:

Hei Ingela. Oppskriften skal stemme med målene på målskissen - åpningen til ermet skal være 12 cm øverst. Du legger opp 31 masker. Med den angitte strikkefastheten er dette ca 18 cm i omkrets. Videre øker du 1 maske i hver side (=2 maske totalt) på hver 6 cm totalt 4 ganger = 5 masker økt. 39 masker er ca 23 cm i omkrets. Kan det være du strikker litt stramt? God fornøyelse

27.02.2019 - 11:20

country flag Daniela wrote:

Hallo liebes Drops Team, kann ich auch die Wolle Nepal dafür verwenden? Lieben Dank

24.11.2018 - 15:18

DROPS Design answered:

Liebe Daniela, dieser Pullover wird mit 1 Garn der Garngruppe C (DROPS Air) gestrickt, Sie können dann auch ein anderes Garn der selben Garngruppe benutzen - Hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Viel Spaß beim stricken!

26.11.2018 - 08:24

country flag Kasia wrote:

Dzień dobry, proszę opisać dokładniej, jak należy kończyć każde ramię osobno. Jeśli dobrze to sobie wyobrażam, to po odłożeniu odpowiedniej ilości oczek na drut pomocniczy będę mogła skończyć jedno ramię na tej samej nitce. Skąd mam pociągnąć nitkę na drugie? Z góry dziękuję!

11.10.2018 - 18:40

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu! Musisz dołączyć nową nitkę. Pozdrawiamy

12.10.2018 - 11:51

country flag Anikjl wrote:

Bonjour j’aimerais faire se pull qui est super mais en taille un peux +grande de 12 ans comment faudrait il faire s il vous plait?? Merciii pour votre aide à bientôt!!bon mardi!!!

28.08.2018 - 08:55