DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 26-9
DROPS Design: Mynstur nr vs-001-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 2 - 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 ára
Stærð í cm: 92 - 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140
Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
250-250-300-300-350 gr litur nr 07, zink

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3190.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við miðju 12 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl, 2 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl). Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við 5 stroff-l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU:
Byrjið 2 l á undan 5 stroff-l, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 5 stroff-l, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU:
Byrjið 2 l á undan 5 stroff-l, prjónið 2 l snúnar br saman, 5 stroff-l, 2 l br saman (= 2 l færri).

ÚRTAKA-1 (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 1 kantlykkju. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um kant í hálsmáli):
Fækkið um 2 l þannig: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan sl fyrir miðju að framan, takið 2 l óprjónaðar eins og prjóna eigi þær slétt saman, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir.
----------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 146-154-166-174-182 l á hringprjóna nr 3 með Belle. Prjónið 1 umf slétt í hvorri hlið (= 73-77-83-87-91 l á milli prjónamerkja).
Næsta umf er prjónuð þannig: 1 l sl, 2 l br, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 33-35-38-40-42 sinnum (þ.e.a.s. þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 33-35-38-40-42 sinnum og endið á 1 l sl, 2 l br og 1 l sl. Haldið svona áfram stroff í 4 cm.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: 1 l sl, 2 l br, 1 l sl, 1 l br, prjónið sléttprjón þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-12-12-12 l jafnt yfir þessar l, prjónið 1 l br, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br, 1 l sl, 1 l br, prjónið sléttprjón þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni JAFNFRAMT er fækkað um 10-10-12-12-12 l jafnt yfir þessar l og endið á 1 l br, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl = 126-134-142-150-158 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og 10 l stroff í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFEESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-10-10-12 cm aukið út um 1 l hvoru megin við stroff-einingu í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l færri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 16-16-20-20-24 cm = 134-142-150-158-166 l. Þegar stykkið mælist 22-25-28-31-34 cm fellið af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 3 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 61-65-69-73-77 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 50-50-52-52-54 l á sokkaprjóna nr 3 með Belle. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir í 1. umf. = 38-38-40-40-42 l. Þegar stykkið mælist 6-7-7-8-10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2-2-2½-2-2 cm millibili alls 8-10-10-13-14 sinnum = 54-58-60-66-70 l. Þegar stykkið mælist 23-28-33-36-40 cm fellið af 6 l mitt undir ermi = 48-52-54-60-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 218-234-246-266-282 l á prjóni.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

MYNSTUR: Byrjið við aðra laskalínuna á bakstykki og prjónið sléttprjón hringinn en í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma eru prjónaðar 5 l stroffprjón þannig: 1 l br, 1 l sl, 1 l br, 1 l sl og 1 l br (þ.e.a.s. 2 l stroffprjón á fram- og bakstykki og 3 l stroffprjón á ermi).

LASKALÍNA: JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtölu fyrir laskalínu í annarri hverri umf alls 15-16-16-17-18 sinnum og síðan í hverri umf alls 4-5-6-6-7 sinnum.
V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 27-31-34-37-41 cm setjið miðjulykkjur að framan á þráð fyrir v-hálsmáli. Prjónið síðan stykkið fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið við miðju að framan þannig – LESIÐ ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) þar til stykkið mælist ca 34-38-41-45-49 cm upp að hálsi á bakstykki og allar l hafa verið felldar af.
Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru ca 45-45-49-59-59 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 36-40-44-48-52 cm upp að öxl. Stillið af að næsta umf sé frá röngu.

HÁLSMÁL:
1 umferð = rétta. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið slétt út umf. Prjónið nú upp l innan við 1 kantlykkju meðfram hálsmáli, prjónið l af þræði, prjónið l upp meðfram hinni hliðinni á hálsmáli og prjónið fram að miðju að framan = ca 62 til 76 l í kringum háls. Prjónið 1 umf sl og aukið jafnt út til 76-80-86-92-92 l. Síðan er prjónað stroff hringinn (= 1 l sl, 1 l br – ATH: l af þræði fyrir miðju að framan eru prjónaðar slétt, stillið stroffið af eftir þeim).
JAFNFRAMT í 2. umf er fækkað um 2 l fyrir miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku í hverri umf þar til kantur í hálsmáli mælist 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 26-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Scarlett Goeman wrote:

Bonjour et merci pour vos modèles, je ne comprends pas quand je vais remettre les manches sur l'ouvrage en attente, il y aura le trou laissé par les mailles que l'on a rabattues tant sur l'ouvrage que sur les manches, j'ai relu et je ne trouve pas, il faudra coudre aussi ce trou en finition? Merci

26.06.2017 - 11:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goeman, tout à fait, on assemblera les mailles rabattues pour les emmanchures à celles rabattues au début de la manche, comme on le voit dans la vidéo ci-dessous. Bon tricot!

26.06.2017 - 13:14

country flag Lenoir wrote:

Il y a des marqueurs de chaque côté des cotes sur les côtés du pull De chaque côté des marqueurs il y a 10 mailles A quel endroit dois je diminuer les 6 mailles de l' emmanchure Merci je suis un peu perdue

26.05.2017 - 21:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lenoir, vous rabattez les 3 mailles après le 1er marqueur, tricotez jusqu'à ce qu'il reste 3 m avant le 2ème marqueur, rabattez les 6 m suivantes (= 3 m avant + 3 m après le marqueur), continuez jusqu'à ce qu'il reste 3 m et rabattez les 3 dernières mailles. Bon tricot!

29.05.2017 - 08:56

country flag AIRI P-M wrote:

En ymmärrä ohjeesta kohtaa: Vaihda pyöröpuikkoon nro 4 ja neulo seuraava krs näin: 1 o, 2 n, 1 o, 1 n, neulo sileää neuletta kunnes jäljellä on 5 s ennen merkkilankaa, ja kavenna SAMALLA näiden silmukoiden kohdalla tasavälein 10-10-12-12-12 s, Tehdäänkö kavennukset 1, rivillä merkkilankojen välillä tasavälein? Vai mitä tuo tarkoittaa??

04.12.2016 - 20:28

DROPS Design answered:

Hei! Kavennukset tehdään ensimmäisellä kerroksella sileän neuleen kohdalla. Eli joustinneuleen kohdalla ei kavenneta.

05.12.2016 - 14:00

country flag Lisa wrote:

Det här mönstret funkar inte i storlek 92. Jag gjorde exakt som det stod (tog hjälp av kunniga väninnor så jag vet att jag gjorde rätt) men halsöppningen blev då alldeles för liten, inte en chans att få på den på min tvååring. Jag repade upp och började denna gång maska av för v-ringen flera cm tidigare, men det funkade inte då heller. Så jag är mycket besviken på detta mönster!

03.12.2016 - 15:59

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Saa maalene paa din tröje stemmer ikke overens med maalene nederst i maalskitsen? Og din strikkefasthed var korrekt?

22.12.2016 - 14:38

country flag Bernard GUILLON wrote:

Bonjour, j'ai téléchargé les explications de ce petit pull simple à tricoter, mais j'ai été surpris de ne pas y voir les côtes (d'après l'image des côtes 1/1). les explication commence directement sur le jersey. j'ai lu dans les questions que quelqu'un avait fait 4 cm de côtes, est-ce bien ça? mais ça me semble beaucoup en comparaison de l'image? merci d'avance

08.04.2016 - 22:08

DROPS Design answered:

Bonjour Monsieur Guillon, on commence par tricoter 1 tour endroit, puis on continue en côtes ainsi pendant 4 cm: 1 m end, 2 m env, *1 m end, 1 m env*, répéter de *-* 33-35-38-40-42 fois au total (c'est-à-dire jusqu'à ce qu'il reste 4 m avant le marqueur, 1 m end, 2 m env, 2 m end (le marqueur se trouve entre ces 2 m), 2 m env, *1 m end, 1 m env*, répéter de *-* 33-35-38-40-42 fois au total et terminer par 1 m end, 2 m env et 1 m end. Bon tricot!

11.04.2016 - 12:13

country flag Bente Nielsen wrote:

Vedr. halsudskæring kan jeg ikke få maskeantallet til at passe.

22.03.2016 - 15:29

country flag Bernardi wrote:

Bonjour, je tricote les manches. Je voudrais savoir comment faire pour augmenter les 2 mailles sous les manches. En jeté, 2 fois de suite ? merci de me répondre

15.03.2016 - 09:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bernardi, évitez 2 jetés côte à côte, vous pourriez avoir un trou, vous pouvez augmenter avec 1 jeté de chaque côté du marqueur, mais tricotez 1 ou 2 m entre les 2 jetés au milieu sous la manche pour éviter un trou - ou bien vous pouvez également utiliser une autre technique pour augmenter - par ex celle-ci. Bon tricot!

15.03.2016 - 10:04

Sandra wrote:

My stockinette stitch doesn't seem right. It doesn't look like neat v stacking, but instead rows of slanted (\) stitch and rows of blurred rib. What should I do to correct this? Thank you. (It looks more pronounced when I work in slightly elastic yarn like when working in this jumper than when I work with non elastic cotton yarn).

27.01.2016 - 09:13

DROPS Design answered:

Dear Sandra, you will find under tab "videos" different videos showing how to work stocking st, the K and P sts, make sure you are always working the front loop of sts as shown in the video. Happy knitting!

27.01.2016 - 10:36

country flag Odile wrote:

Après avoir fait les 4cm de côtes du dos-devant, je ne comprends pas ce que veut dire: avant le marqueur en même temps, répartir les diminutions au dessus de ces mailles. Merci de bien vouloir m'expliquer.

10.11.2015 - 23:23

DROPS Design answered:

Bonjour Odile, après les 4 cm de côtes, tricotez ainsi: 1 m end, 2 m env, 1 m end, 1 m env, puis *tricotez en jersey les mailles suivantes jusqu'à ce qu'il reste 5 m avant le marqueur, mais répartissez en même temps 10-12 diminutions (cf taille)*, tricotez ensuite les 10 m suiv ainsi: 1 m env, 1 m end, 2 m env, 1 m end, marqueur, 1 m end, 2 m env, 1 m end, 1 m env, répétez de *-* encore 1 fois et terminez par 1 m env, 1 m end, 2 m env et 1 m end: vous avez diminué 20-24 m au total (10-12 m sur le dos et autant sur le devant) et avez 10 m en côtes sur les côtés du pull. Bon tricot!

11.11.2015 - 09:20

Sossa Moda wrote:

On the part of raglan .. i just want to know the Difference between (( every other round ))) and (( every round)) is (every other round)) means that one row has decrease and next row hasnot ..... and (( every round)) means that every row has decreases finally thanx for this great pattern note ( sorry if there any mistak ... my english isnot very well )

05.09.2015 - 01:43

DROPS Design answered:

Dear Sossa Moda, that's correct, when you dec every other round, you work *1 row with dec, 1 row without dec* and repeat these both rows, when dec every round, you work every round with dec. Happy knitting!

07.09.2015 - 09:31