DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7888.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 166-47
DROPS Design: Mynstur nr ne-190
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
800-900-1000-1100-1200-1300 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7888.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.7. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

MYNSTUR-1:
Prjónið A.1 alls 2-2-2-3-3-4 sinnum á hæðina.
Prjónið A.4 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.1 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.5 alls 1 sinni á hæðina.
Prjónið A.6 alls 1 sinni á hæðina JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er aukið út um 1 l.

ÚTAUKNING-1:
Aukið alltaf út frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það á ekki að myndast gat.

ÚTAUKNING-2:
Aukið alltaf út frá réttu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf, það á ekki að myndast gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 83-91-99-107-115-123 l á hringprjóna nr 5 með Nepal.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið A.1 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Endurtakið A.1 alls 3 sinnum á hæðina.
Prjónið A.2 þannig (fyrsta umf = ranga): 1 l garðaprjón, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að það verði eins í báðum hliðum á stykki), prjónið A.2 þar 2 l eru eftir (= 10-11-12-13-14-15 sinnum), prjónið fyrstu l í garðaprjóni, endið á 1 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.3 prjónað yfir A.2 þannig (fyrsta umf = rétta): 1 l garðaprjón, A.3 þar til 2 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.3, endið á 1 l garðaprjón. Lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.3 þar til stykkið mælist 20-21-22-22-23-23 cm, stillið af að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið nú sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki í 7 cm, stillið af að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 1 l = 82-90-98-106-114-122 l. Prjónið A.7 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Prjónið síðan MYNSTUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm fellið af 3-3-5-5-7-7 l fyrir handveg í hvorri hlið á stykki í byrjun á 2 næstu umf. Þegar fellt hefur verið af fyrir handveg og mynstur-1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 77-85-89-97-101-109 l í umf (ATH: Aukið er út um 1 l í síðustu umf í mynstri-1). Prjónið A.3 þar til 5-5-1-1-5-5 l eru eftir, prjónið fyrstu 5-5-1-1-5-5 l í A.3. Haldið áfram með mynstur til loka. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, stillið af að næsta umf sé frá réttu, fellið af miðju 25-25-27-27-29-29 l fyrir hálsmáli (= 26-30-31-35-36-40 l eftir á hvorri öxl). Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 25-29-30-34-35-39 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 58-58-66-66-74-82 l (meðtalin 1 kantlykkja að framan) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! MYNSTUR ER PRJÓNAÐ SAMTÍMIS SEM AUKIÐ ER ÚT Í HLIÐ ÞANNIG:
ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l í byrjun umf frá réttu, innan við 1 l garðaprjón í hlið þegar stykkið mælist 2½ cm – LESIÐ ÚTAUKNING-2, endurtakið útaukningu með 2½ cm millibili til loka.

MYNSTUR:
Prjónið frá réttu þannig: 1 kantlykkja að framan í garðaprjóni, A.1 þar til 1 l er eftir, endið á 1 l garðaprjón. Endurtakið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Prjónið A.2 yfir A.1 (fyrsta umf = ranga). Kantlykkja að framan og 1 l í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er a.3 prjónað yfir A.2. Endurtakið A.3 þar til stykkið mælist 20-21-22-22-23-23 cm, stilli af að síðasta umf sé frá réttu. Prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón, með 1 kantlykkju að framan og 1 l í hlið í garðaprjóni í 7 cm, stillið af að síðasta umf sé frá röngu. Prjónið A.7 með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki eins og áður. Prjónið mynstur-1 með 1 l garðaprjóni í hvorri hlið á stykki eins og áður. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm fellið af 3-3-5-5-7-7 l fyrir handveg í byrjun á næstu umf frá röngu. Haldið áfram með mynstur og 1 kantlykkju með garðaprjóni við miðju að framan þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, stillið af að næsta umf sé umf frá röngu. Fellið af fyrstu 25-29-30-34-35-39 l fyrir öxl, prjónið sl yfir þær l sem eftir eru. Prjónið garðaprjón til loka. Í fyrstu umf (= frá réttu) fitjið upp 13-13-14-14-15-15 l í lok umf (þessar eru saumaðar síðar í hálsmál = sjalkragi). Nýju l eru prjónaðar í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR: Útaukning við miðju að framan heldur áfram til loka. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 4-4-4-4-5-5 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1, endurtakið útaukningu með 4 cm millibili 2 sinnum til viðbótar. Fellið af þegar prjónað hefur verið í garðaprjóni í 12-12-12-14-14-14 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. aukið út frá hlið innan við 1 l garðaprjón í lok á umf frá réttu. Fellið af l fyrir handveg í byrjun á umf frá réttu. Fellið af fyrir öxl í byrjun á umf frá réttu. Fitjið upp nýjar l fyrir sjalkraga í lok umf frá röngu.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 42-42-42-50-50-50 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið A.1 alls 3 sinnum á hæðina. Kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni til loka. Prjónið A.2 (fyrsta umf = ranga) alls 5-5-5-6-6-6 sinnum á breiddina með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.3 prjónað til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inni í A.3. Endurtakið útaukningu með 5-4-3½-4- 3½-3 cm millibili 8-10-11-9-11-12 sinnum til viðbótar = 60-64-66-70-74-76 l. Fellið af þegar stykkið mælist 51-50-50-49-48-47 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogann í ystu l með garðaprjóni. Saumið sjalkragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmálið.

KÖGUR:
Klippið 3 þræði ca 34 cm, þræðið í gegnum götin (í A.7), hnýtið LAUSAN hnút, þ.e.a.s. hnúturinn hangir ca 1 cm niður frá gati. Setjið 1 kögur á milli allra gata.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.02.2016
Leiðrétting: Útaukning á framstykki var víxlað. Útaukning í byrjun umf á hægra framstykki og í lok umf á vinstra framstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 26.05.2020
BAKSTYKKI:..Prjónið A.2 þannig (fyrsta umf = ranga): 1 l garðaprjón, prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að það verði eins í báðum hliðum á stykki), prjónið A.2 þar 2 l eru eftir (= 10-11-12-13-14-15 sinnum), prjónið fyrstu l í garðaprjóni, endið á 1 l garðaprjón.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag Svenja wrote:

Hallo DROPS-Team, die Ärmel habe ich auch schon fertig. Ich komme mit dem Seitenteil nicht weiter! Bitte schnelle Antwort, damit ich weiter stricken kann. LG Svenja

09.11.2015 - 09:08

DROPS Design answered:

Sie haben Recht, dass sich in der Anleitung etwas widerspricht. Die Zunahmen erfolgen laut Anleitung an der Seite der Jacke, also an derselben Seite, an der Sie auch das Abketten machen. Die Beschreibung "am vorderen Rand" passt hier dann allerdings nicht, wobei es mir eher wahrscheinlich erscheint, dass die Zunahmen am vorderen Rand erfolgen und nicht an der Seite. Ich leite das Problem an die Designerinnen weiter, bis zur Antwort von dort müssten Sie sich noch gedulden.

12.11.2015 - 23:44

country flag Svenja wrote:

Hallo DROPS-Team, ich bin beim Rechten Vorderteil, habe gerade für dem Arm Abk.. Sie schreiben "am Ende jeder Hin-R" soll die zunahme gemacht werden, und die abnahme für den Armausschnitt am Anfang der Rück-R. Dann nehme ich ja da ab wo ich die ganze Zeit die zunahmen (2,5 cm) gemacht habe. Ist das so richtig? Denn weiter unten heißt es "die Zunahmen am vorderen Rand" weiterarbeiten. Ich bin verwirrt...bitte wo genau nehme ich für den Arm ab und dann weiter zu? LG Svenja

31.10.2015 - 10:42

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

19.11.2015 - 21:36

country flag Hendrika wrote:

Goedemiddag, Ik heb al een aantal keer telpatroon A.2 gebreid, maar ik krijg het patroon er niet in. Ik heb geen idee wat ik fout doe..? Groet Hendrika

08.10.2015 - 16:51

DROPS Design answered:

Hoi Hendrika. Dat is moeilijk om te zeggen wat er dan fout gaat (helaas). Je moet ervoor zorgen dat je breit de juiste steken op de goede kant EN op de verkeerde kant. Dus de st die r op de kant zijn, moeten av op de verkeerde zijn - en omgekeerd.

09.10.2015 - 14:48

country flag Hanna wrote:

Hej! "På första v (= från rätsidan) läggs det upp 13-13-14-14-15-15 m i slutet på v (dessa ska senare sys mot halsen = sjalkrage). De nya m stickas i rätst. KOM IHÅG: Ökningen mitt fram fortsätter till färdigt mått." Det jag undrar är om man ska öka innan de nya maskor man nyss lagt upp, där alla de andra ökningarna har gjorts eller om man ska öka i slutet på varv. MVH

29.09.2015 - 18:59

DROPS Design answered:

Hej Hanna, du ökar på samma ställe som alla de andra ökningarna. Lycka till!

06.10.2015 - 15:13

country flag Sandrine wrote:

Les 29 mailles correspondent à l'épaule ?

25.08.2015 - 17:13

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, tout à fait, ces mailles correspondent à celles de l'épaule, terminez ce rang sur l'envers, et à la fin du rang suivant sur l'endroit, on monte les mailles pour le col (celles-ci seront cousues le long de l'encolure dos) - tout ça pour le devant droit, pour le devant gauche, ce sera en sens inverse. Bon tricot!

25.08.2015 - 18:09

country flag Sandrine wrote:

Il faut bien rabattre les 29 mailles côté emmanchures c'est à dire en début de rang ?

25.08.2015 - 17:11

country flag Sandrine wrote:

à 62 cm il faut rabattre sur l'endroit les 29 mailles c'est à dire en début de rang ?

25.08.2015 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, pour le devant droit, quand l'ouvrage mesure 62 cm (taille M) - ajustez pour que le rang suivant soit sur l'envers, on rabat les 29 premières m au début du rang suivant sur l'envers, et on tricote les mailles restantes à l'endroit. Bon tricot!

25.08.2015 - 16:43

country flag Virginia Hernandez wrote:

This is such a gorgeous coat, please tell me there's a crochet version?? If not, is a crochet version of this exact coat in the works? If not...we crocheters are missing out.

21.07.2015 - 08:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hernandez, there is only a knit version to this jacket, have a look in all our crocheted jackets here. Happy crocheting!

27.07.2015 - 16:20

country flag GENDRE Jocelyne wrote:

Bonjour , Il y a une incohérence entre le nombre de CM pour arrêter aux emmanchures et CM total par rapport dessin du modèle . Faut il rabattre a 44 cm pour taille M OU A 60 CM Car en hauteur total on ne peut arriver a 62 cm Vous remercie par avance de votre réponse. Par contre confirme tres beau model. JOCELYNE

10.07.2015 - 14:39

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gendre, et merci. En taille M, les 62 cm représentent la hauteur totale soit 44 cm jusqu'aux emmanchures puis 18 cm jusqu'aux épaules. Bon tricot!

10.07.2015 - 16:38

country flag Cindy Ashley wrote:

Not understanding on the back piece when it says work A3 until 5 stitches remain, work first 5 stitches of A3 until finished measurement. Does this just mean to work A3 until required measurements?

04.07.2015 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ashley, that's correct you repeat A.3 until finished measurements in height, but in width repeat the 8 sts in A.3 until 5 sts remain at the end of row and finish row with the first 5 sts in A.3. Happy knitting!

06.07.2015 - 09:58