Regal Splendour |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Nepal, prjónaður ofan frá og niður, með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-8 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veljið mynstur fyrir rétta stærð (á við um A.3 + A.4). LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu á undan/á eftir A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Aukið út til hægri á UNDAN A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. Aukið út til vinstri á EFTIR A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum við 4 prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan A.3A þannig: Byrjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir A.3B þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 l á undan prjónamerki, prjónið l 2 slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki): Aukið út við 4 prjónamerkin. Aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn á undan A.3A og á eftir A.3B. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna og er prjónað ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 62-62-62-70-70-70 l á hringprjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt þar sem auknar eru út 18 l jafnt yfir í öllum stærðum = 80-80-80 88-88-88 l. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið næstu umf þannig: Aukið út um 1 l fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 4 l í laskalínu), aukið út um 1 l fyrir laskalínu, prjónið 6 l merktar með ör í mynstri A.2A (= hægri ermi), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= framstykki), aukið út um 1 l, A.1 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 6 l merktar í mynstri A.2B (= vinstri ermi), aukið út um 1 l, A.2 (= 4 l), aukið út um 1 l, prjónið 14-14-14-16-16-16 l merktar í mynstri A.3A og prjónið 12-12-12-14-14-14 l merktar í mynstri A.3B (= bakstykki) = 88-88-88-96-96-96 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur svona JAFNFRAMT sem útaukning fyrir LASKALÍNA heldur áfram hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – ATH: Ekki er aukið út eins á fram- og bakstykki og ermum og útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur (þ.e.a.s. þar til nægilega margar l eru fyrir heila mynstureiningu á breiddina, síðan eru næstu útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni): FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út hverri umf 1-5-7-9-15-25 sinnum og síðan í annarri hverri umf alls 15-14-14-14-12-8 sinnum. ERMI: Aukið út í hverri umf 3-5-3-3-1-3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 14-14-16-17-19-19 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir alla útaukningu eru 220-240-248-268-284-316 l í umf. Nú eru settar 46-50-50-52-52-56 l yfir hvorri ermi settar á þráð (þ.e.a.s. l yfir A.2A/A.2B, 7-9-9-10-10-12 l sléttprjón hvoru megin við þær og 2 l frá A.1 í hvorri hlið – ATH: Þetta er gert án þess að prjóna l) = 128-140-148-164-180-204 l eftir á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, haldið áfram með A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður, 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= hlið), prjónið 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón, A.3A og A.3B yfir næstu 60-60-60-74-74-74 l eins og áður og 2-5-7-4-8-14 l sléttprjón = 140-152-164-180-200-224 l í umf. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við miðju 60-60-60-74-74-74 l fram og bakstykki (þ.e.a.s. að utanverðu við A.3A/A.3B framan og aftan = 4 prjónamerki) og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og A.3A/A.3B miðja að framan og miðja að aftan. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 5-5-6-6-7-7 cm millibili alls 3 sinnum í öllum stærðum = 128-140-152-168-188-212 l. Þegar stykkið mælist 19-20-21-24-25-26 cm frá skiptingu við ermar (stykkið mælist ca 38-40-42-46-48-50 cm frá öxl), aukið út að utanverðu við A.3A/A.3B (þ.e.a.s. inn að mynstureiningu með sléttprjóni) – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-4-3-3 cm millibili alls 8-8-8-8-10-10 sinnum = 160-172-184-200-228-252 l. Þegar stykkið mælist ca 51-52-53-52-53-54 cm frá skiptingu við ermar – stillið af eftir einni heilli gataeiningu í A.3A/A.3B, prjónið næstu umf þannig: Aukið út 4-7-4-7-6-6 l yfir næstu 10-13-16-13-20-26 l (sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), prjónið A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l (veljið mynstur fyrir rétta stærð), aukið út 8-14-8-14-12-12 l jafnt yfir næstu 20-26-32-26-40-52 l (þ.e.a.s. sláið uppá prjóninn eftir ca 2.-2.-4.-2.-3.-4. hverja l), prjónið A.4A yfir næstu 31-31-31-38-38-38 l, A.4B yfir næstu 29-29-29-36-36-36 l og aukið út 4-7-4-7-6-6 l jafnt yfir síðustu 10-13-16-13-20-26 l = 196-220-220-248-272-296 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið næstu umf þannig (uppslátturinn er prjónaður snúinn inn í stroff svo að ekki myndist gat): 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-6-6-6-8-10 sinnum, 4 l sl, prjónið stroff yfir næstu 70-70-70-84-84-84 l eins og sýnt er í mynstri A.4A/A.4B, * 4 l sl 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-3-3-3-4-5 sinnum og endið á 2 l sl. Haldið svona áfram með stroffið, til þess að forðast að stroffið dragist mikið saman er prjónuð 1 umf slétt yfir allar l á eftir 3. Hverri umf með stroffiprjóni. Þegar stroffið mælist 28-28-28-30-30-30 cm (allur kjólinn mælist ca 98-100-102-104-106-108 cm frá öxl), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl. HÆGRI ERMI: Prjónið í hring á stutta hringprjóna/sokkaprjóna. Setjið l af þræði frá hægri hlið (séða frá réttu) á stutta hringprjóna nr 5,5. Prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2A (= 28 l), prjónið 9-11-11-12-12-14 l sléttprjón og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l í lok umf = 52-56-58-60-62-66 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-8-8-10-10 nýjar l (= miðja undir ermi) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og mynstri. Þegar ermin mælist 4-4-4-3-2-3 cm fellið af 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 8-5-8-6-5-6 cm millibili alls 4-6-4-5-6-5 sinnum = 44-44-50-50-50-56 l. Þegar ermin mælist 31-31-31-28-28-28 cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og næsta umf er prjónuð þannig: STÆRÐ S + M + XXXL: Prjónið 2 l sl, * 2 l br, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, * 4 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2 sinnum og endið á 2 l sl. STÆRÐ L + XL + XXL: Prjónið 1 l br, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl, prjónið A.5 yfir næstu 28 l, 4 l sl, 2 l br, 4 l sl og 1 l br. Haldið svona áfram með stroff í 18-18-18-20-20-20 cm (öll ermin mælist ca 49-49-49-48-48-48 cm – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), prjónið 1 umf slétt yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl. VINSTRI ERMI: Prjónið á sama hátt og hægri ermi, en prjónið mynstur eftir A.2B (í stað A.2A). FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (68)
Morand Aude wrote:
J'adore tricoter les robes ... j'aime beaucoup ce modèle .. points ajourés torsades ... tout pour me plaire
09.06.2015 - 19:40Ana Sarita wrote:
Hermoso!!!!!!
09.06.2015 - 02:13Karin Holm wrote:
Fed kjole. Ellers kort ærmet trøjer. Sjaler og poncho
04.06.2015 - 13:31Daiana wrote:
Espectacular!
04.06.2015 - 10:23Heli Apo wrote:
Very beautuful! I love that!
03.06.2015 - 00:58Susanne wrote:
Vil rigtig gerne strikke denne smukke kjole :-)
02.06.2015 - 23:15Christine Barholt wrote:
Den vil jeg gerne strikke
02.06.2015 - 20:22Despina Christensen wrote:
Jeg vil strikke den til min datter. Måske i hvid eller Oliven.Nepal er også en superlækker garn at strikke med. Den er bare perfekt :-)
02.06.2015 - 16:26Barbara Schüler wrote:
Ein Traum, das werde ich bestimmt stricken!!!! Freue mich schon auf die Anleitung, Strickkleider muss man einfach haben!
02.06.2015 - 15:23Buffy wrote:
Magnifique !
01.06.2015 - 05:22