DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Saltwater

Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk með gatamynstri og framkantskraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 168-32
DROPS Design: Mynstur nr as-059
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
200-225-225-250-275-300 g nr 15, ljós sægrænn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 21 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 13 l með gatamynstri eftir teikningu A.1 verði 10 cm á breidd.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan upp fyrir handveg, síðan eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermar og fram- og bakstykki er prjónað áfram hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 191-203-217-233-251-269 l á hringprjóna nr 6 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 l, prjónið 31-34-36-40-43-47 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki (merkir hlið), prjónið 81-87-93-101-109-119 l sléttprjón (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki (merkir hlið), prjónið 31-34-36-40-43-47 l sléttprjón, A.1 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 l og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm – passið uppá að síðasta umf sé prjónuð frá röngu, skiptið stykkinu upp við prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónuð til loka hvert fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 81-87-93-101-109-119 l. Prjónið 2 umf sléttprjón og fitjið upp 39-39-39-39-38-36 nýjar l fyrir ermar í lok þessa 2 umf = 159-165-171-179-185-191 l á prjóni. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 4 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 20 l, prjónið sléttprjón þar til 24 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1 yfir næstu 20 l og endið á 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm fellið af miðju 17-17-19-19-21-23 l af fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónið til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 70-73-75-79-81-83 l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist ca 69-72-75-78-81-84 cm – stillið af að næsta umf sé frá réttu, prjónið 2 umf slétt yfir allar l áður en þær eru felldar LAUST af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 70-73-76-79-82-85 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 55-58-62-66-71-75 l. Prjónið 1 umf frá réttu eins og áður og fitjið upp 39-39-39-39-38-36 nýjar l fyrir ermi í lok þessarar umf í hlið = 94-97-101-105-109-111 l á prjóni. Prjónið 1 umf br til baka frá röngu, en 4 fyrstu l eru prjónaðar slétt (= kantur á ermum) og síðustu 24-24-26-26-28-28 l við miðju að framan eru prjónaðar eins og áður.

Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, a.1 yfir kant að framan eins og áður, prjónið sléttprjón þar til 24 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1 yfir næstu 20 l og endið á 4 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantur á ermi).
Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 69-72-75-78-81-84 cm – stillið af að næsta umf sé prjónið frá röngu. Prjónið 2 umf sl, en síðustu 24-24-26-26-28-28 l við miðju að framan halda áfram eins og áður. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 70-73-75-79-81-83 l á öxl = 24-24-26-26-28-28 l eftir á prjóni fyrir kraga. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Haldið áfram með A.1 með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til kraginn mælist 9-9-9-9-10-11 cm frá prjónamerki. Í byrjun á 3 næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 6-6-6-6-7-7 l = 6-6-8-8-7-7 l eftir á prjóni. Fellið af þessar l í næstu umf frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið fyrstu umf frá réttu eins og áður. Í næstu umf (= ranga) eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok umf. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur á ermi), A.1 yfir næstu 20 l, prjónið sléttprjón þar til 24-24-26-26-28-28 l eru eftir á prjóni, haldið áfram með A.1 yfir næstu 22-22-24-24-26-26 l og endið á 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 69-72-75-78-81-84 cm – stillið af að næsta umf sé prjónið frá réttu, prjónið 2 umf slétt yfir fyrstu 70-73-75-79-81-83 l á öxl (hinar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 70-73-75-79-81-83 = 24-24-26-26-28-28 kragalykkjur eftir á prjóni. Þegar kraga-l eru felldar af, fellið þær af í byrjun á hverri umf frá réttu (í stað byrjun á hverri umf frá röngu).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkant með 1 spori í hverja l þannig að það verði 4 umf garðaprjón á móti hverri annarri á öxl – passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið kragann saman við miðju að aftan – saumið röngu á móti röngu og saumið kragann við hálsmál aftan við hnakka (saumurinn á að snúa inn að röngu). Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í lokin frá réttu upp meðfram hægra framstykki, í kringum kraga aftan í hnakka og niður meðfram vinstra framstykki með heklunál nr 5 með Brushed Alpaca Silk þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. Heklið annan kant alveg eins neðst niðri í kringum báðar ermar, en nú endar umf á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl í næstu l).

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 168-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Magda wrote:

Dzień dobry, nie rozumiem jak zrobić końcówkę przodów. Czy mam najpierw zrobić 9 cm, potem w następnych 3 lewych rzędach zamykać po 6 oczek? I na końcu te pozostałe 6 oczek? A w lewym nie robi się dłuższego kołnierza? Czy robi się jak prawy tylko zamyka oczka na prawej stronie? Pozdrawiam

27.02.2021 - 15:20

DROPS Design answered:

Witaj Magdo, najpierw wykonujesz część kołnierza jak w opisie, i jest to prostokąt o długości 9 cm. W 3 następnych rzędach na lewej stronie robótki zamykasz po 6 oczek w każdym, a pozostałe oczka przerabiasz jak wcześniej (w sumie zamkniesz 18 o.), górna część kołnierza ma kształt trójkąta. Na końcu zamykasz te pozostałe 6 oczek tak jak zakańczasz robótkę. Na lewym przodzie wykonujesz kołnierz tak samo (będzie symetryczny), tylko zamykasz po 6 o. na początku każdego z 3 rzędów na prawej stronie robótki. Powodzenia!

28.02.2021 - 18:38

country flag Inge Frederiksen wrote:

Denne åben jakke i Drops Brushed Alpaca I str. XXXL er mønstret over 26 m, der er to masker i overskud da mønstre går over 4 m (24).Hvad skal jeg gøre ved de 2 overskydende masker. Jeg har set opskriften i Ude og Hjemme nr. 34 2020. Venlig hilsen Inge

21.09.2020 - 14:53

DROPS Design answered:

Hej Inge. Diagram A.1 består kun av 2 maskor, så du stickar det 13 gånger för att få det över 26 maskor. Mvh DROPS Design

22.09.2020 - 08:00

country flag Karen wrote:

Jetzt habe ich die ersten Reihen gestrickt und nun merke ich, dass das Muster A.1 fehlt. Wo finde ich das Muster?

10.01.2020 - 20:12

DROPS Design answered:

Liebe Karen, Diagram A.1 finden Sie bei der Maßskizze, unter der Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

13.01.2020 - 08:16

country flag Pirkko wrote:

Piirroksen alla olevat merkit ja A1 eivät aukea. Puuttuuko ohjeesta joku mallipiiros? Voiko ohjeeseen käyttää puuvilalankaa?

12.09.2019 - 14:37

DROPS Design answered:

Hei, piirrosten tulisi aueta. Voit korvata mallin langan esim. DROPS Paris-langalla, jolla on sama neuletiheys.

20.01.2020 - 18:03

country flag Hanne Eriksen wrote:

Hvorfor kan jeg ikke udskrive opskriften

05.09.2019 - 14:13

DROPS Design answered:

Hej Hanne, Du skal klikke på "Skriv ud" knappen som ligger lige til højre for billedet i opskriften. God fornøjelse!

06.09.2019 - 08:23

country flag Maija wrote:

The diagram of A1 is unclear to me. 1)The explanatory box next to “slip 1 stitch as if to knit, K1, psso” is grey on the edges & empty. 2)There is no explanation for the diagonal descending right to left on the diagram itself. So I am going to make a leap that the grey box matches the missing instruction, so that for A1, I do a row of K. Then a row of *yo, K2 tog*. Then a row of K. Then a row of *slip 1 stitch as of to knit, K1, psso, yo*. Is that correct?

05.02.2019 - 22:17

DROPS Design answered:

Dear Maija, on 1st row in A.1 work: *YO, slip 1 st as if to K, K 1, psso*, repeat from *-* and on 3rd row in A.1 work *K 2 tog, YO*, repeat from *-*. Happy knitting!

06.02.2019 - 09:24

country flag Sylbermond wrote:

Was ist denn die Rumpfseite? Wird die Jacke von unten nach oben gestrickt, oder von rechts nach Links? Verstehe leider die Anleitung diesbezüglich und die Maßskizze nicht. Lieber Gruß Sylvia

05.04.2018 - 12:38

DROPS Design answered:

Liebe Sylbermond, Jacke wird von unten nach oben gestrickt, beide Vorderteile und Rückenteil werden in einem Stück bis Armlöcher gestrickt (vom rechten bis linken Vorderteil), dann wird jedes Teil separat bis Schulter gestrickt und neue Maschen für die Ärmel angeschlagen., Viel Spaß beim stricken!

05.04.2018 - 13:15

country flag Lauga wrote:

Bonjour, Comment savoir le nombre de pelotes pour ce modèle en taille L. Merci pour votre réponse

30.01.2018 - 10:27

DROPS Design answered:

Bonjour, vous avez besoin de 225 g de laine Brushed Alpaca Silk, cela veut dire 9 pelotes. Bon tricot!

02.02.2018 - 10:16

country flag Marina wrote:

Verso la fine del davanti destro le istruzioni dicono "continuare a lavorare il diagramma A.1 e lavorare le 2 m vivagno da ciascun lato a punto legaccio" : cioè delle 26m 4 sono di vivagno? Perché fino a quel momento 2 erano di vivagno e 24 di schema. Adesso ne tolgo 2 allo schema e le uso per il vivagno?

13.05.2017 - 17:31

DROPS Design answered:

Buona sera Marina. Sì è corretto. Le maglie che toglie allo schema e che diventano maglie vivagno, serviranno per cucire il colletto allo scollo sul dietro. Buon lavoro!

13.05.2017 - 18:08

country flag Marina wrote:

Grazie, l'ho iniziato. Come lavorare le maglie gettate dello schema A1 sul rovescio del lavoro?

29.03.2017 - 16:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Marina. Sul rovescio, lavora le gettate a rovescio così si formano i buchi. Buon lavoro!

29.03.2017 - 16:09