DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Jolly May

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino með litlum kaðlakanti, gatamynstri og laskalínu. Stærð XS - XXXL.

DROPS 169-27
DROPS Design: Mynstur nr bm-026
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500-550 g nr 44, púður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – fyrir stroff og kant.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðlakant.
DROPS PERLUTALA, bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sléttprjón (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í mynstri á bakstykki og á ermum.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÉTTU ÞANNIG:
Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l slétt saman, A.4 (= 6 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).
FÆKKIÐ LYKKJUM FRÁ RÖNGU ÞANNIG:
Byrjið 2 l á undan A.4, prjónið 2 l snúnar brugðið saman, A.4 (= 6 l), 2 l brugðið saman (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf).
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (fyrsta hnappagatið á að vera mitt á milli A.2):
STÆRÐ XS: 9, 17, 24, 31, 38 og 45 cm.
STÆRÐ S: 9, 17, 25, 33, 40 og 47 cm.
STÆRÐ M: 9, 17, 25, 33, 41 og 49 cm.
STÆRÐ L: 9, 16, 23, 29, 36, 43 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 10, 17, 24, 31, 38, 45 og 52 cm.
STÆRÐ XXL: 10, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm.
STÆRÐ XXXL: 10, 18, 25, 33, 40, 48 og 55 cm.

ÚRTAKA (á við um kant í hálsi):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að fækka lykkjum í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 126 l), mínus kant að framan (t.d. 10) og deilið þeim l sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14 l) = 8,3. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá eru 7. og 8. l prjónaðar saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 327-355-383-453-481-551-579 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með Baby Merino. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 5 l br *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 l í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 fyrstu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman (frá réttu). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, en nú eru prjónaðar 2 síðustu l í hverri brugðinni mynstureiningu brugðið saman = 237-257-277-327-347-397-417 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.1A þar til 12 l eru eftir á prjóni (= 22-24-26-31-33-38-40 mynstureiningar 10 l), prjónið A.1B (= 7 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 191-207-223-263-279-319-335 l á prjóni og stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8-8 cm. Prjónið 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram eins og áður) þar sem fækkað er um 5-2-1-5-2-6-5 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 186-205-222-258-277-313-330 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið næstu umf frá réttu þannig – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.2 þar til 5 l eru eftir á prjóni og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: í 7. umf í mynstri er síðasta l prjónuð á undan kanti að framan slétt. Eftir A.2 er sett 1 prjónamerki 49-54-58-67-72-81-85 l inn frá hvorri hlið (= 88-97-106-124-133-151-160 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan þannig (1. umf = rétta): 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 l sl, 2 l br, prjónið sléttprjón fram að prjónamerki í hlið, prjónið A.3A (= 6 l), endurtakið A.3B yfir næstu 72-81-90-108-117-135-144 l (= 8-9-10-12-13-15-16 mynstureiningar 9 l), prjónið A.3C (= 10 l), prjónamerki, prjónið sléttprjón þar til 8 l eru eftir á prjóni, endið á 2 l br, 1 l sl og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-6-8-10-10-10 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3-3 sinnum = 202-221-238-270-289-325-342 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á framstykki og í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp í mynstri á bakstykki.
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38-39 cm prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 50-55-58-66-70-79-83 l (= vinstra framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg, prjónið 90-99-106-122-129-147-156 l (= bakstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10-10 l fyrir handveg og prjónið þær 50-55-58-66-70-79-83 l sem eftir eru (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 52-52-61-61-61-70-70 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Baby Merino eða DROPS ♥ You #7. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.2 – ATH: Í umf 7 í A.2 er síðasta l í umf prjónuð slétt (á við um stærð L + XL + XXL). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið A.3A (= 6 l), prjónið A.3B yfir næstu 36-36-45-45-45-54-54 l (= 4-4-5-5-5-6-6 mynstureiningar 9 l) og endið á A.3C (= 10 l). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) – passið uppá að prjónað sé jafn langt í mynstureiningu A.3 og á fram- og bakstykki áður en fellt er af fyrir handveg. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5-5 l, prjónið 74-78-79-83-83-88-94 l og fellið af næstu 3-3-4-4-5-5-5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón nr 3 og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 338-365-380-420-435-481-510 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur á ermum og bakstykki eins og áður og sléttprjón með kant að framan á framstykki. Að auki er nú prjónað A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (prjónamerki er staðsett mitt á milli A.4). Í fyrstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 24-25-28-29-32-34-34 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá röngu og frá réttu) alls 4-5-2-3-0-0-3 sinnum – ATH: Þær l sem ekki ganga jafnt upp í A.3 á baki og á ermum þegar úrtaka er gerð eru prjónaðar í sléttprjóni.
HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 46-48-50-51-53-54-56 cm (það á að prjóna 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati á kant að framan), setjið fyrstu 10-13-16-18-22-26-27 l í byrjun á 2 næstu umf á þráð fyrir hálsmáli (til þess að sleppa við að klippa frá þráðinn sem prjónað er með, prjónið l áður en þær eru settar á þráð). Haldið áfram með mynstur og laskalínu eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 0-0-0-1-1-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum og 1 l 3-3-3-4-4-4-4 sinnum.
Eftir alla úrtöku/affellingu fyrir laskalínu og hálsmáli eru 80-85-94-106-113-129-132 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp frá réttu ca 114-126-140-164-179-209-214 l (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu þar sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 110-112-128-130-140-144-146 l (þ.e.a.s. fækkið um ca 4-14-12-34-39-65-68 l) – LESIÐ ÚRTAKA. Prjónið 4 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 30.05.2016
ERMI: ... Þegar stykkið mælist 5-6-6-7-5-9-9 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 3.-2½.-3.-2½.-2½.-2½.-2. cm millibili alls 14-16-13-15-16-14-17 sinnum = 80-84-87-91-93-98-104 l – ATH: Útauknu l eru prjónaðar með sléttprjóni þar til þær ganga aftur jafnt upp í mynstri. Prjónið þar til stykkið mælist ca 47-47-46-46-45-45-45 cm

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 l á kaðlaprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl, 2 l sl af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 l á kaðlaprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Nina wrote:

Hej! En fråga gällande halsen- det står att de första 13 maskorna i början av två varv ska sättas på tråd för halsen, men sedan att det ska minskas för hals i början av varven. Vilka maskor minskar jag, om de första 13 är på tråden? De första maskorna efter de som är på tråden? Mvh, Nina

16.05.2024 - 10:20

country flag Robin Ryan wrote:

Hi! On the yoke decrease after joining sleeves, there is a K2tog before A4 , then A4, then a sl1k1psso after A4 and this is a reduction of 2 for each shoulder. The pattern says decrease of 8 per row, but I only see total decrease of 4 per row. What am I missing?

05.12.2022 - 03:44

DROPS Design answered:

Hi Robin, You have 4 markers in the middle of each A.4, in each transition between the front/back pieces and sleeves. As you say, you decrease before and after each A.4: 2 x 4 = 8 stitches decreased on each decrease-row. Happy knitting!

05.12.2022 - 06:47

country flag Morard wrote:

Merci pour vos informations.

01.02.2021 - 12:27

country flag Morard wrote:

Bonjour, comment tricoter A4 au moment de la transition dos/devant ?

30.01.2021 - 10:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Morard, A.4 se compose de 6 mailles et doit être tricoté à cheval sur le devant/le dos et les manches pour former les lignes des raglans ainsi: tricotez les 3 dernières mailes du devant droit + les 3 premières mailles de la manche = 1er A.4. Tricotez les 3 dernières mailles de la manche + les 3 premières mailles du dos = 2ème A.4. Tricotez les 3 dernières mailles du dos + les 3 premières mailles de la manche = 3ème A.4. Tricotez les 3 dernières mailles de la manche + les 3 premières mailles du devant = 4ème A.4. Bon tricot!

01.02.2021 - 08:33

country flag Amanda Westbye wrote:

Hva er forskjellen på Baby merino uni color og Baby merino mix?

13.10.2020 - 22:03

DROPS Design answered:

Hej Amanda. Det är bara lite skillnad i färgen. Uni color är helt enfärgade och Mix är lite mixade i färgen (du ser skillnaden på färgkartan). Mvh DROPS design

15.10.2020 - 08:52

country flag Siri Granum wrote:

Det står ikke forklaring på hvordan å strikker mønsteret på boken. Tegn er en runding med skrå strek

09.01.2020 - 17:25

DROPS Design answered:

Hej Siri, cirklen betyder kast og den skrå strek er 2 rett sammen. God fornøjelse!

15.01.2020 - 15:43

country flag Élodie wrote:

Bonjour, J'ai choisi une laine en taille 3,5 au lieu de 3. Pouvez vous me donner des indications sur l'échantillon à réaliser pour vérifier la taille ? Merci.

05.11.2019 - 12:43

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, l'échantillon est primordial pour réussir l'ouvrage conformément aux explications - plus d'infos ici. Bon tricot!

05.11.2019 - 14:50

country flag Noora Voutilainen wrote:

Hei! Minulla on ongelmia kaarrokkeen kanssa. Ohjeessa käsketään siirtää kaarrokkeen alussa samalle pyöröpuikolle kaikki silmukat, myös hihojen silmukat. Näin tehdessä kainaloiden päätellyt silmukat kiristävät työtä (kaikki hihan silmukat kerralla puikolla)siten, että hihan neulominen on lähes mahdotonta. Mikä neuvoksi??

09.05.2019 - 14:39

DROPS Design answered:

Neulominen on aluksi hankalaa, kun kaarrokkeen osat on yhdistetty, se kuitenkin helpottuu joka kerroksen jälkeen. Voit neuloa kaarrokkeen ensimmäiset kerrokset kahdella pyöröpuikolla, mikä voi tehdä neulomisesta hieman helpompaa.

08.01.2020 - 16:54

country flag Sylvie wrote:

A l’empiècement, j’ai mes 365m, je fais les dim raglan ce qui ôte 200m (25x8), reste donc 165m. Je diminue de 40m (5x8)= 125m. Encolure = -7m = 118m. Commt peut-il rester 85m SVP ? Moi j’ai +33m ! Merci de bien vouloir m’éclairer SVP.

15.04.2019 - 23:16

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, n'oubliez pas L'ENCOLOURE: "EN MÊME TEMPS, quand l'ouvrage mesure environ 48 (1-2 rangs après la dernière boutonnière), glisser les 13 premières m au début des 2 rangs suivants sur un arrêt de mailles pour l'encolure" - vous avez lors 26 m sur les aiguilles auxiliaires (365-200-40-26=99 m). Et au total 7 m diminuees pour l'encolure de chaque cote: 7x2=14. 99-14=85 m. Bon tricot!

16.04.2019 - 16:24

country flag Marina wrote:

Ja, hier nochmals ich, das bis dahin habe ich ja verstanden nur in der Anleitung steht das ich wenn das Muster A1 fertig ist ich nur noch 223 Maschen auf der Nadel sind. Wo sind die Maschen geblieben??? Das ist vor dem Mustersatz A2 wenn ich zur Nadel 3 wechsle. Ich weiß nicht weiter😢

25.01.2019 - 14:56

DROPS Design answered:

Liebe Marina, bei der letzte Reihe in A.1A und A.1B werden Sie 2 Masche abnehmen -siehe letzte Diagram symbol = es sind nur noch 8 M in jedem A.1A (2 M in jedem Zopf) und 5 in A.1B (= 2 M im Zopf), dann haben Sie: 5 Blendemaschen, 26 x 8 M (A.1A), 5 M (A.1B), 5 Blendemaschen = 223 M. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2019 - 16:31