DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Dune

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með öldumynstri og hringlaga berustykki. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 169-18
DROPS Design: Mynstur nr bs-093
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
350-400-450-450-500-550 g nr 1306, púður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni eða 28 l með öldumynstri verði 10 cm á breiddina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri), prjónið þar til 2 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= alls 4 l fleiri í umf). Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt.

ÚRTAKA:
Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 126-130-138-138-148-156 l á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út um 0-5-15-24-23-33 l jafnt yfir í síðustu umf – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 126-135-153-162-171-189 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið A.1 (= 9 l) alls 14-15-17-18-19-21 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 322-345-391-414-437-483 l í umf. Prjónið síðan mynstur á hæðina þannig: Endurtakið A.1b alls 1-1-1-1-2-2 sinnum, endurtakið síðan A.1c alls 1 sinni, A.1d er endurtekið alls 1-1-1-2-2-2 sinnum, A.1e er endurtekið alls 1 sinni, A.1f er endurtekið alls 0-0-1-1-1-2 sinnum = 378-405-459-486-513-567 l í umf. Stykkið mælist ca 18-18-20-21-23-24 cm á hæðina.

Prjónið síðan þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 51-57-67-71-76-86 l (= hálft bakstykki) JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-10-10-9-12 l jafnt yfir, setjið næstu 87-89-96-101-104-111 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja, sléttprjón yfir næstu 102-113-133-142-153-173 l (= framstykki) JAFNFRAMT er fækkað um 14-13-19-20-19-25 l jafnt yfir, setjið næstu 87-89-96-101-104-111 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið 1 prjónamerki á milli nýrra lykkja, sléttprjón yfir næstu 51-57-67-71-76-86 l (= hálft bakstykki) JAFNFRAMT er fækkað um 7-7-10-10-9-12 l jafnt yfir = 196-220-248-264-288-316 l (= 98-110-124-132-144-158 l á milli prjónamerkja).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 3 umf í sléttprjóni er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf þar til stykkið mælist 37-39-39-40-40-41 cm frá prjónamerki = ca 312-344-372-392-416-448 l alls (= ca 156-172-186-196-208-224 l á milli hverra prjónamerkja). Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið A.2 yfir allar l. Fellið af. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm alls.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 87-89-96-101-104-111 l af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 og fitjið að auki upp 10 nýjar l mitt undir ermi = 97-99-106-111-114-121 l í umf. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja. Prjónið sléttprjón og í fyrstu umf er fækkað um 15-13-14-15-14-15 l jafnt yfir = 82-86-92-96-100-106 l. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 1½ cm millibili 10-11-13-12-12-12 sinnum til viðbótar = 60-62-64-70-74-80 l. Þegar stykkið mælist 26-26-25-25-24-23 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið A.2 yfir allar l. Fellið af. Stykkið mælist alls 29-29-28-28-27-26 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 169-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Helena Kent wrote:

Could you email me a pdf of Pattern no bs-093, Knitted Drops jumper with round yoke and wave pattern? I can't open this free pattern on my phone. Thank you. Helena

26.06.2022 - 22:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kent, our pattern can only be printed, but using a virtual printer might allow you to save it as a pdf. For any further assistance, do not hesitate to contact the store where you bought the yarn - even per mail or telephone. Happy knitting!

27.06.2022 - 09:02

country flag Birgitta wrote:

Hej! Jag stickar modellen Dune nr 169-18, eller modell bs-093. Jag håller på med vågmönstret och får det inte att gå jämt ut. På A1 (tredje rapporten med 15 m) blir det två m över då jag kommer till slutet på varvet. Har kollat flera gånger men hittar inget fel. Har jag månne missförstått mönstret??? Två maskor ihop 2 ggr, 7 räta maskor med 6 omslag emellan, två maskor ihop 2 ggr. Och sedan två maskor ihop igen...Hoppas på snabbt svar! Tack!

07.03.2022 - 10:19

DROPS Design answered:

Hej Birgitta, på 3:e rapport har du 1 rm innan första omslaget (som du inte har på 2:a rapport). sæt gerne et mærke imellem hver rapport, så er du sikker på at du har lige mange masker i hver rapport :)

09.03.2022 - 10:49

country flag Annette wrote:

Die Umschläge sollen in der nächsten Reihe verschränkt gestrickt werden um Löcher zu vermeiden. Sollen in der Musterreihe 6 (alle Maschen links) die Umschläge alle links verschränkt gestrickt werden? Auf dem Foto sieht man kleine Löcher im Muster, die dann nicht erscheinen.

30.11.2021 - 11:27

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Umschläge in die Diagramme A.1 (a bis f) und A.2 werden ganz normal gestrickt, dh nicht verschränkt; diese Umschläge sollen Löcher bilden. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2021 - 16:43

country flag Gerlinde Engelstädter wrote:

In der Anleitung heißt es:A1b insgesamt 1-1-1-1-2-2, dann A1c 1x Ich weiß nicht, was das bedeutet!

12.11.2021 - 07:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Engelstädter, Sie stricken zuerst alle Maschen im Muster wie im diagram gezeigt: A.1b (= 6 Reihen) entweder 1 Mal (4 ersten Größen) oder 2 Mal (2 größeren Größen = 12 Reihen) in der Höhe, dann stricken Sie die 6 Reihen A.1c = einmal in der Höhe. Kann das Ihnen helfen? Viel Spaß beim stricken!

12.11.2021 - 08:02

country flag Virpi Sory wrote:

Tässä ohjeessa on kaarrokkeen jälkeen neulottu sileää etu- ja takakappale. Kuvassa kuitenkin näkyy sivussa kainalosta helmaan kulkeva koristeneule. Saisiko tähän ohjeen?

17.02.2021 - 07:56

DROPS Design answered:

Sivuissa olevat reiät muodostuvat, kun sivuissa tehdään lisäykset langankierroin.

12.03.2021 - 14:03

country flag Bonnie H Campbell wrote:

Can you convert the 450 Grams yarn needed for a size L to yardage required? I do not have a website.

21.10.2018 - 01:14

DROPS Design answered:

Hi Bonnie, 450 g is roughly equivalent to 1650 yards. Happy knitting!

22.10.2018 - 08:01

country flag Merlin wrote:

In the second paragraph of the yoke pattern it says to work stockinette st over the first 71 stiches while dropping 10 stitches. Does that mean I should have 71 stitches after the decrease or should I have 61 after the decrease?

20.10.2017 - 03:15

DROPS Design answered:

Dear Merlin, that's right, work the first 71 sts dec 10 sts evenly = 61 sts remain for half back piece. Happy knitting!

20.10.2017 - 09:17

country flag Scott wrote:

I am confused--in the yoke I am not sure how many times to work A.1c . It says to repeat A.1b 1 time, then repeat A1c 1 time total. does that mean I knit a1c and repeat it once or do I only knit once?

13.10.2017 - 06:49

DROPS Design answered:

Dear Scott, under yoke you work A.1C 1 time in height in total in all sizes, ie work the 6 rows in A.1C then work A.1d either 1 or 2 times in height depending on the size. Happy knitting!

13.10.2017 - 09:46

country flag Malene wrote:

Jeg driver å strikker denne lekre genseren. Jeg er kommet til der på bolen hvor man skal øke masker og her står der at man skal strikke frem til 1 maske før første merke og lage økningen, MEN så står der at man skal strikke til det er 2 masker igjen før 2.merke og gjenta økningen, blir ikke det feil??? Hvorfor ikke strikke til der er 1 maske igjen slik som til 1.merke?

08.02.2017 - 10:24

DROPS Design answered:

Hej Malene. Det er korrekt som der staar, for du har 1 m för maerket förste gang og strikker 3 m mellem kastene (dvs, 2 m paa den anden side af maerket) og anden gang har du 2 m för maerket og strikker 3 m mellem kastene (dvs, 1 m paa den anden side af det andet maerke).

14.02.2017 - 16:16

Zjiraffe wrote:

Beautiful pattern. However sleeves are quite tight, and body okay. I would rather take two more stiches at the sleeves and 2x 2 stiches less at the body. I think body-sleeves ratio would be better (size M).

01.10.2016 - 15:13