DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-1241
DROPS Design: Mynstur nr fa-331
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál: Ca 50 cm mælt meðfram miðju-l og ca 150 cm mælt efst.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100 g nr 100, natur
50 g nr 914, strönd

Eða notið
DROPS FLORA frá Garnstudio
100 g nr 01, natur
50 g nr 13 gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS 2 SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir blúndukant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1341.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

RENDUR:
* 6 umf í litnum natur, 6 umf í litnum strönd *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður.

SJAL:
Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 3,5 með natur Fabel eða Flora.
Setjið 1 prjónamerki í 4. l í umf (= miðjulykkja), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Prjónið þannig: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1A yfir 1 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkja), A.1B yfir 1 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 11 l. Haldið áfram með A.1A og A.1B hvoru megin við miðjulykkju (miðjulykkja er prjónuð í sléttprjóni til loka). Þegar mynstur hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 35 l í umf (þ.e.a.s. 17 l hvoru megin við miðjulykkju). Haldið áfram í garðaprjón og útaukningar á sama hátt þar til 275 l eru í umf (stykkið mælist nú ca 27 cm meðfram miðjulykkju og 108 cm efst meðfram kanti). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað mynstur eftir mynsturteikningu A.2 þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A yfir 2 l, prjónið A.2B yfir næstu 130 l (= 10 mynstureiningar 13 l), A.2C yfir 2 l, 3 l sléttprjón (= miðjan af þessum 3 = miðjulykkja), A.2D yfir 2 l, A.2B yfir næstu 130 l (= 10 mynstureiningar 13 l). A.2E yfir 2 l og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar allt A.2B hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 407 l í umf (þ.e.a.s. 203 hvoru megin við miðju-l).
Næsta umf er prjónuð þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2A yfir 2 l, prjónið A.2F yfir næstu 187 l (= 11 mynstureiningar 17 l), haldið áfram með A.2C eins og áður (þ.e.a.s. í þessari umf eru prjónaðar 11 l sléttprjón, sláið uppá prjóninn), 3 l sléttprjón (= miðja), haldið áfram með A.2D eins og áður (þ.e.a.s.) í þessari umf er slegið uppá prjóninn, eftir það 11 l sléttprjón), prjónið A.2F yfir næstu 187 l (= 11 mynstureiningar 17 l), prjónið A.2E yfir 2 l og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar aukið hefur verið út til 17 l í A.2C/A.2D er nægilegt pláss fyrir 1 mynstureiningu til viðbótar með A.2F hvoru megin við miðju 3 l (A.2C/A.2D heldur áfram eins og áður með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við 3 miðju-l). Þegar prjónaðar hafa verið alls 7 rendur eru 475 l í umf og síðasta röndin er með litnum natur, haldið l eftir á prjóninum.

BLÚNDUKANTUR:
Prjónið blúndukant meðfram kanti neðst á sjalinu. Blúndukanturinn er prjónaður beint við réttu á sjalinu með því að prjóna 2 fyrstu/næstu l á prjóni á sjalinu slétt saman með fyrstu l á blúndukanti þannig: Fitjið upp 12 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum strönd og prjónið mynstur fram og til baka á prjóni eftir mynsturteikningu A.3 – JAFNFRAMT í byrjun á hverri umf frá réttu er blúndukanturinn prjónaður í tvær fyrstu/næstu l sem eru staðsettar á prjóni á sjalinu slétt saman með fyrstu l í A.3. Haldið svona áfram meðfram öllum kantinum á sjalinu, en yfir miðju 9 l á sjali er fyrsta l prjónuð í A.3 saman við bara eina l frá sjali (þ.e.a.s. í stað tveggja l á sjali) – þetta er gert til að koma í veg fyrir að hornið fyrir miðju á sjalinu verði bogalaga.

Klippið frá og festið enda. Bleytið stykkið og leggið til í form eftir máli.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman (bæði frá réttu og frá röngu)
symbols = sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er annar uppslátturinn látinn falla niður, hinn er prjónaður slétt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt
symbols = sláið tvisvar uppá prjóninn á milli 2 l, 2 l slétt saman
symbols = fellið af 1 l
symbols = prjónið fyrstu/næstu l á sjali slétt saman með þessari l
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1241

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Pilar wrote:

No me salen las cuentas para el borde. Si hay 475 puntos y los 9 centrales se hacen en 9 pasadas de ida quedan 466 que se harán en 233 pasadas, dos en cada ida. En total 233+9=242, pero siendo 4 pasadas de ida por repetición quedarian 60,5 repeticiones. Vamos que me sobrarán 2 puntos tras 60 repeticiones del borde.

10.11.2022 - 07:12

country flag Merel wrote:

Na 3 strepen heb ik 407 steken op de naald staan. Na 7 strepen heb ik 477 steken: 2 kantsteken, A2A 25 steken (4e streep 5 meerseringen, streep 5-7 6 meerseringen = 2+5+6+6+6=25), A2F 204 steken (12x17), A2C 6 steken (Na 5 strepen 17 steken, nog 2 strepen met totaal 6 meerseringen daarna), 3 steken tricot, A2D 6 steken, A2F 204 steken, A2E 25 steken, 2 kantsteken. Wat heb ik verkeerd gedaan?

08.08.2022 - 21:10

DROPS Design answered:

Dag Merel,

Door het breien van A.2a en A.2c en A.2d en A.2e meerder je steeds 52 steken over 18 naalden. Na 3 strepen (van 12 naalden per streep, dus 2 maal 18 naalden) zou je er 2x52= 104 steken bij moeten hebben en dat is in totaal 379 steken. Ik ben bang dat er een foutje in geslopen is en dat met 1 streep 6 naalden naturel of 6 naalden shoreline bedoeld wordt. Volgens mij kom je dan meer in de buurt.

14.08.2022 - 20:58

country flag Anita wrote:

Ad avslutning av blondekant. Her står ingenting om felling, bare klipp og fest. Jeg vil at sjalet skal ha tydelige spisser i begge hjørner og det blir det ikke med dette mønsteret. Vennl forklar hvordan avslutte slutten på blondekanten. På forhånd takk for raskt svar da det haster.

19.01.2021 - 20:13

DROPS Design answered:

Hei Anita. Når du har strikket ferdig blondekanten til sjalet, feller du bare de 12 maskene som vanlig. Se evnt hjelpevideoen: For å få markerte spisser på sjalet kan du fukte sjalet og legg det i form etter mål og feste spissene med nåler, se evnt video: Fukt arbeidet og legg det i form etter mål. mvh DROPS design

27.01.2021 - 13:44

country flag Jannie Wouters wrote:

Wat betekent : A.1B over 1steek , onderaan blz. 2. Het woord over snap ik hier niet. Bij de tekenverklaring staat : een dubbele omslag TUSSEN 2 steken. Dus waar moeten de dubbele omslagen. Voor of na de steek??, over snap ik niet

25.11.2020 - 21:05

DROPS Design answered:

Dag Jannie,

Het betekent dat je over (in) de eerstvolgende steek op de naald A.1B breit. De eerste steek van A.1B is een dubbele omslag, 1 recht en nog eens een dubbele omslag. Dus de dubbele omslagen moeten zowel voor als na de steek.

26.11.2020 - 09:28

country flag Ula wrote:

Bardzo dziekuje. Film na pewno sie przyda aczkolwiek powiem ze poradziłam sobie. Najpierw polecam wykonac probke taśmy. Potem drut z nabranymi oczkami dać równolegle do szala na drucie na prawej stronie tak by sie stykały. Nastepnie wkłuć prawy drut w 1sze o.oraz 2 pierwsze szala przeciagnac nitke. Zdjąc 1sze 3 oczka z drutu. Wykonac rzad 1szy a potem 2gi. Powtarzac czynnosc z drutami przy rzedach nieparzystych. Powodzenia

30.06.2020 - 09:31

DROPS Design answered:

Witaj Ulu! Super, a film też już jest :) Pozdrawiamy!

03.07.2020 - 21:33

country flag Ula wrote:

Prosze pomóżcie jak przerobic razem o.brzegu z 2 oczkami szala. Wydaje sie ze sporo osób ma z tym problem. Nie zostawiajcie swoich fanów bez pomocy..

29.06.2020 - 11:25

DROPS Design answered:

Nie zostawimy Ulu :) Serdecznie pozdrawiamy!

29.06.2020 - 15:38

country flag Ula wrote:

Witam serdecznie. Bardzo proszę o wytłumaczenie jak przerabiać kwadracik z kółkiem w ażurowym brzegu czyli dokładnie jak łączyć brzeg z szalem. Również ie rozumiem jak przerobić duży kŕzyżyk. Będę badzo wdzięczna za pomoc.

28.06.2020 - 19:56

DROPS Design answered:

Witaj Ulu, już zgłaszałam prośbę o nagranie filmiku jak to zrobić, bo nie ty pierwsza masz z tym problem. Czekamy na zamieszczenie. Pozdrawiamy!

29.06.2020 - 15:37

country flag Ula wrote:

Witam serdecznie. Mam pytanie: w miejscu gdzie zaczynamy przerabiac schematy A2A, A2B,A2C,D iE i kiedy mowa o 3 o.środkowych: czy od tego momentu te 3 oczka przerabiamy dżersejem bez narzutów po obu stronach oczka środkowego? Rozumiem ze gdyby byly tam narzuty to chusta bedzie nabierala innego ksztaltu bo schematy A2C i A2D juz uwzgledniaja narzuty. Jednak bez nich zmienia sie srodek symetrii szala zamiast podwójny narzut-o.ś-podw.narzut, sa 3 oczka dżersejem? Prosze o pomoc

26.06.2020 - 01:47

DROPS Design answered:

Witaj Ulu, te 3 oczka środkowe będą odtąd przerabiane dżersejem, bez narzutów z każdej strony oczka środkowego. Pozdrawiamy!

29.06.2020 - 16:04

country flag Ulrika Nielsen wrote:

Jag såg denna sjal uppstickad i en butik o föll direkt. Skaffade garnet o började sticka. Ganska snart knöt sig min hjärna o det tog flera månader att göra den. Nu har jag stickat 7 stycken - och återkommer gång på gång! Älskar mönstret!!

22.01.2020 - 22:09

country flag Katarzyna Górska wrote:

Nie rozumiem w jaki sposob jest robiony ten ażurowy brzeg. Szczerze to video bardzo mi pomoże w zrozumieniu tej metody wykończenia szala.

17.07.2019 - 18:17