DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-1257
DROPS Design: Mynstur nr fa-337
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 g nr 522, turkos/blár
100-100-100-100-150-150 g nr 904, bláfjólublár
100-100-100-100-100-100 g nr 910, þokumistur

ATH: Ef pilsið er prjónað með einum lit þá þarf 200-250-250-300-300-350 g Fabel.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 28 l x 30 umf með öldumynstri verði 10 x 10 cm.
FYLGIHLUTIR: Teygja, ca 66-110 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2682.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

RENDUR: Prjónið rendur þannig:
* 2 umf með turkos/blár, 2 umf með litnum bláfjólublár *, endurtakið frá *-* í 6 cm.
* 2 umf með fjólublár, 2 umf með litnum þokumistur *, endurtakið frá *-* i 3 cm.
* 2 umf með þokumistur, 2 umf með litnum turkos/blár *, endurtakið frá *-* í 5 cm.
Endurtakið þessa 14 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

PILS:
Fitjið upp 375-425-475-525-600-650 l á hringprjóna nr 3 með turkos/blár DROPS Fabel.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan eftir A.1 (= 15-17-19-21-24-26 mynstureiningar á breiddina) og prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 345-391-437-483-552-598 l í umf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.2.

Þegar stykkið mælist 13-13-13-13-13-14 cm prjónið A.3 yfir allar l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 315-357-399-441-504-546 l í umf. Haldið áfram með A.4.

Þegar stykkið mælist 26-26-26-26-27-28 cm prjónið A.5 yfir allar l. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 285-323-361-399-456-494 l í umf. Haldið áfram með A.6.

Þegar stykkið mælist 39-39-39-40-41-42 cm prjónið A.7 yfir allar l. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 255-289-323-357-408-442 l í umf. Haldið áfram með A.8.

Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-50-51 cm prjónið A.9 yfir allar l. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 225-255-285-315-360-390 l í umf. Haldið áfram með A.10.

Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm prjónið A.11 yfir allar l. Þegar A.11 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 195-221-247-273-312-338 l í umf. Haldið áfram með A.12.

Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið A.13 yfir allar l = 165-187-209-231-264-286 l. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm prjónið 1 umf br (= uppábrot), prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir fald áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið faldinn saman tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá op til að þræða teygjuna í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Mynsturteikning hefur verið uppfærð. A.2 og A.3

Mynstur

symbols = sl
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1257

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Annette Von Brughan wrote:

Hello Angelica. Thanks for this beautiful pattern. Please tell me where would be the best part in the pattern if I want to make the skirt longer?

20.06.2021 - 14:46

DROPS Design answered:

Dear Annette, it is best to add extra rows eveny divided between increase rows. Happy Stitching!

20.06.2021 - 19:08

country flag Angelica wrote:

På alla diagram när antalet maskor ändras så minskar antalet maskor på vänster sida före den extra maskan man gör utom när det går från diagram 3 till 4 då det istället ökar med en maska. Ska det verkligen vara så eller har det blivit fel i beskrivningen?

29.12.2020 - 23:33

DROPS Design answered:

Hej Angelica, sätt ett märke så du har 25 m mellan varje. När du har stickat A.1 har du nu 23 m mellan varje märke. När du har stickat A.3 har du nu 21 m mellan varje märke osv. Lycka till

14.01.2021 - 12:37

country flag Hege Etterlid wrote:

Skal kastene strikkes rett eller vridd, skal det bli hull eller ikke?

23.06.2020 - 16:54

DROPS Design answered:

Hei Hege, Kastene skal strikkes rett, slik at det blir hull. God fornøyelse!

24.06.2020 - 07:53

country flag Susanne wrote:

Danke für die schnelle Antwort. Nun habe ich doch noch eine Frage zum Diagramm: A1 hat vor den 4 Maschen, die zusammen gestrickt werden, rechts 11+links 10 Maschen. Bei A2 ist das genauso. Allerdings liegen zwischen den Umschlägen 2 Maschen. Ist das so richtig? Fr. Richarts hat das am 6.11.2017 schon gefragt. Drops hat eine Überprüfung des Diagramms angekündigt. Scheinbar ist das Diagramm wie 2017 mit 1U 2 reM 1 U. Wie ist es richtig? Oder 1 U 1 re M 1U und dann je 11 Maschen beiderseits?

18.03.2020 - 09:49

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, es ist ja so richtig. A.1 wird über 25 M gestrickt (= 11 M re, 1 Abnahme, 1 Abnahme, 10 M re), = 23 M bleiben. A.2 wird so gestrickt: 1 M re, 1 Umschlag, 9 M re, 1 Abnahme, 1 Abnahme, 8 M re, 1 Umschlag, 1 M re (= 23 M). Viel Spaß beim stricken!

18.03.2020 - 11:17

country flag Susanne wrote:

Hallo, gern würde ich den Rock stricken. Leider ist mir nicht klar, ob die Arbeit rund gestrickt wird oder, ob ich den Rock zum Schluss hinten oder wo auch immer zusammen nähen muss. Wenn ja, wie näht man das schön zusammen, dass es keine dicke Naht gibt? Kann mir da jemand einen Tipp geben? Vielen Dank. Susanne

16.03.2020 - 15:49

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, den Rock wird in Runden von unten nach oben gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

16.03.2020 - 15:54

country flag Carterkat wrote:

In A3, are the two stitches between yarn overs supposed to be knit together or are the two stitches between the yarn overs supposed to be knit all the way through the skirt to the top? A4 and higher all show only one stitch knit between the yarn overs on the diagram.

19.01.2020 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Carterkat, a white square in diagram is a stitch you have to knit, ie in A.3 you start with K1, yo, etc... and finish with yo, K1. Just work diagrams as shown, some are including decreases (= A.3, A.5 for example) and some other will be repeated in height and do not include decreases (A.2, A.4, A.6 for example). Happy knitting!

20.01.2020 - 10:06

country flag Giovanna wrote:

Salve. Volevo sapere la differenza nella lavorazione tra il punto zigzag e il punto chevron a ferri. Grazie per l'attenzione

30.03.2019 - 01:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Giovanna. A seconda del modello, può essere diverso il modo di dimuire le maglie e di lavorare la maglia gettata al ferro successivo. Buon lavoro!

30.03.2019 - 16:46

country flag Patricia wrote:

Boa noite Estou a fazer o diagrama A4, e verifiquei que os 2 pontos laçada feitos antes e depois de 1 ponto meia, não fica alinhado com o diagrama A3 (neste diagrama tinha 2 pontos meia entre as laçadas) que fiz anteriormente, resultando que na saia os buracos não saiam alinhados.Como devo fazer? Obrigada

03.12.2018 - 20:51

DROPS Design answered:

Bom dia,Em A.4, já só há 1 ponto meia antes e depois das 2 laçadas. Pode ser isto que está a desalinhar o ponto. Bom Tricô!

05.12.2018 - 12:15

country flag Patricia wrote:

Boa tarde Uma vez que estou a fazer a saia em redondo, sempre pelas carreiras do direito, gostaria de saber como fazer a segunda carreira, dos respetivos diagramas de ponto ziguezague. (no esquema mostra o ponto meia, mas não sei se é a carreira do direito ou avesso) Faço em ponto meia, ou em ponto liga? Obrigada.

26.11.2018 - 16:30

DROPS Design answered:

Bom dia, Como está a tricotar em redondo esta bonita saia, não há carreiras do avesso. Sendo assim, tricota sempre a 2.ª, 4.ª e todas as carreiras pares em ponto meia. Bom Tricô!

27.11.2018 - 12:26

Naazneen Mannan wrote:

I have the same question as the first one. From A4 chart, we don't have 2 stitches between the fold but just one. Is this a mistake??

01.11.2018 - 11:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mannan, I'm afraid I don't understand your question, A.4 is worked over 21 sts as follows on row 1: K1, YO, K8, slip 1, K1, psso, K2 tog, K8, YO = 21 sts. the decreases in the pattern are lined up. Happy knitting!

01.11.2018 - 14:25