DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Shades of Eire

Prjónað DROPS sjal með 2 þráðum úr Alpaca með stuttum umferðum, gatamynstri og röndum, prjónað ofan frá og niður.

DROPS 171-8
DROPS Design: Mynstur nr z-752
Garnflokkur A+A = C
-----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt við miðju að aftan: ca 60-65 cm.
Mælt meðfram kanti efst: ca 210 cm.

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100 g litur nr 7233, gulgrænn
150 g litur nr 7238, dökk ólífa
250 g litur nr 7815, grænn/turkos

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
Prjónið rendur þannig:
Fitjið upp með 2 þráðum í litnum gulgrænn og prjónið umf 1-12, endurtakið síðan umf 5-12 7 sinnum til viðbótar = 105 l.
Skiptið yfir í 1 þráð í litnum gulgrænn og 1 þráð í litnum dökk ólífa, endurtakið umf 5-12 alls 9 sinnum = 213 l.
Skiptið yfir í 1 þráð í litnum dökk ólífa og 1 þráð í litnum grænn/turkos, endurtakið umf 5-12 alls 8 sinnum = 309 l.
Prjónið síðan mynstur A.1-A.5 með 2 þráðum í litnum grænn/turkos.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón.

SJAL:
Fitjið upp 3 l á hringprjón nr 5 með 2 þráðum í litnum gulgrænn Alpaca. Prjónið RENDUR – sjá útskýringu að ofan og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l.
UMFERÐ 3 (= rétta): 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 9 l. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkjuna (= miðjulykkja).
UMFERÐ 4 (= ranga): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið br þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Prjónið síðan og aukið út með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þannig:
UMFERÐ 5 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkja í garðaprjóni.
UMFERÐ 6 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 l br, prjónið næsta uppslátt snúinn br svo ekki myndist gat, prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn br, prjónið 2 l br og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl fram að miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 8 (= stuttar umf frá röngu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 2 l sl, 1 l snúin slétt (svo ekki myndist gat), 4 l sl, snúið stykkinu. ATH! Þessa umf á að prjóna slétt frá röngu svo að það myndist rönd í garðaprjóni séð frá réttu.
UMFERÐ 9 (= rétta): lyftið 1. lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 7 l sl til baka.
UMFERÐ 10 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið fyrsta uppsláttinn snúinn br (svo ekki myndist gat), prjónið 2 l br og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
UMFERÐ 11 (= stuttar umf frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 7 l sl, snúið stykkinu.
UMFERÐ 12 (= ranga): Lyftið 1. af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið 7 l sl til baka. ATH! Þessa umf á að prjóna slétt frá röngu svo það myndist rönd í garðaprjóni séð frá réttu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Endurtakið umf 5-12 fram og til baka, EN í hverri endurtekningu eru prjónaðar 2 l fleiri í stuttum umferðum þar til stuttar umferðir hafa verið prjónaðar yfir alls 26 l í hvorri hlið. Haldið áfram eins og áður, en prjónið stuttar umferðir einungis yfir 26 l til loka (aðrar l eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður).
Eftir hverja endurtekningu hefur verið aukið út um 12 nýjar l (aukið er út í umf 5 og 7).

Eftir síðustu rönd og endurtekningu af umf 5-12 eru 309 l á prjóni.
Skiptið yfir í 2 þræði í litnum grænn/turkos. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10 l þannig: Aukið út eins og áður hvoru megin við miðjulykkju (= 6 l) og aukið út um 4 l jafnt yfir (þ.e.a.s. 2 l hvoru megin við miðjulykkju, þessar l eru auknar út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð) = 319 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá röngu (kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður).

Prjónið síðan eftir mynstri þannig: A.1 yfir 2 l, A.2 er endurtekið fram að 1 l á undan miðjulykkju, prjónið A.3 yfir næstu 3 l (miðjulykkja er í miðju A.3), endurtakið fram þar til 2 l eru eftir og prjónið A.5 yfir þessar l. Prjónið mynstur alls 1 sinni á hæðina. Klippið ekki frá, heldur fellið af með picot – sjá útskýringu að neðan.

PICOT:
Fellið laust af með sl frá réttu þannig: Prjónið 1 l sl, ((** stingið inn hægri prjóni á milli 2 fyrstu lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja á prjóni, ekki í gegnum lykkju), sláið 1 sinni uppá hægri prjón, dragið uppsláttinn fram á milli l og setjið uppsláttinn á vinstri prjón **, endurtakið frá **-** 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar l á vinstri prjóni).
* Prjónið fyrstu lykkju á vinstri prjóni slétt, lyftið fyrstu lykkju á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð *)), endurtakið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið frá ((-)) meðfram öllu sjalinu þar til 1 l er eftir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = sláið uppá prjóninn á milli l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Liesbeth wrote:

Hoe haal je een ajoursteek op? Ik heb een stuk uit moeten halen en krijg die ajoursteken in het midden niet goed terug op de naald. De steken eronder zijn ook al losgegaan. Veel dank alvast!

28.12.2023 - 13:16

DROPS Design answered:

Dag Liesbeth,

Hoe ver het is los gegaan weet ik niet, maar ik probeer altijd de steken, tot waar ze los zijn geraakt (in de hoogte en de breedte) op aparte, korte naalden te zetten, zodat je dat stukje even apart kunt breien, tot je weer bij de rest bent.

30.12.2023 - 17:57

country flag Bente Sti Pedersen wrote:

I mønster 3 fra pind 15 til 25, tager jeg 2 m ud på hver side af midten. Så bliver der jo flere m fra midten og til mønstret. Forstår ikke hvordan mønstret kan blive ved at ligge oven over hinanden, det vil da blive forskudt - men det er det ikke på opskriften? Eller hvad gør jeg forkert?

05.01.2023 - 14:11

DROPS Design answered:

Hej Bente, du skal fortsætte så mønsteret kommer over hinanden, de nye masker er en fortsættelse af mønsteret :)

10.01.2023 - 10:50

country flag Anna Lis Haajse wrote:

Jeg har problemer med udtagningerne ved gentagelsen?

25.05.2020 - 13:42

DROPS Design answered:

Hej, du fortsætter udtagningerne på samme sted som tidligere. Hvis du strikker som 5.p tager du ud efter kantmasken og på hver side af midtmasken. osv . God fornøjelse!

27.05.2020 - 13:30

country flag Sofia Coelho wrote:

Onde está «Continuar com 1 fio verde turquesa + 1 fio verde azeitona escuro, repetir 9 vezes ao todo as carreiras 5-12 = 213 ms/pts.», não deve estar «Continuar com 1 fio verde azeitona + 1 fio verde azeitona escuro [...]»? Obrigada.

26.01.2020 - 20:28

DROPS Design answered:

Exactamente! Foi um lapso da nossa parte e já corrigimos, Obrigado pela sua ajuda. Bom Tricô!

27.01.2020 - 14:39

country flag Sofia Coelho wrote:

Onde está «Continuar com 1 fio verde turquesa + 1 fio verde azeitona escuro, repetir 9 vezes ao todo as carreiras 5-12 = 213 ms/pts.», não deve estar «Continuar com 1 fio verde azeitona + 1 fio verde azeitona escuro [...]»? Obrigada.

26.01.2020 - 20:28

DROPS Design answered:

Exactamente! Foi um lapso que já corrigimos, Obrigada pela ajuda. Bom Tricô!

27.01.2020 - 14:41

country flag Sandra wrote:

Hallo,\r\nIk heb de wol al een tijdje in huis, maar nog niet aangedurfd om te beginnen. Ik heb nog maar weinig ervaring met breien volgens een redelijk ingewikkeld patroon. \r\nNu vraag ik me af of ik het beschreven deel twee keer moet breien en dan aan elkaar naaien? Hoe krijg ik de middelste naad in de omslagdoek? \r\nGroetjes\r\nSandra

04.12.2018 - 16:58

country flag Manob wrote:

Mijn sjaal is prachtig geworden! zou hem nog graag met blauw maken en dan vooral de 6360 mix. zou de grijs blauw en de turkoois blauw of marine blauw daar mooi mee mixen? onze drops winkel in ede is helaas weg en geen stenen winkel meer om de kleuren te zien bij elkaar. . .

24.10.2018 - 21:45

DROPS Design answered:

Dag Manob,

Omdat kleuren zo persoonlijk zijn, is het lastig om zo van afstand daarin te adviseren. Het hangt er ook heel erg vanaf hoeveel contrast je mooi vindt en welke kleuren je mooi bij je vindt passen.

Het beste is om even contact op te nemen met je (online) winkel en vragen of ze bijv. extra bollen kunnen sturen, zodat je de kleuren kunt vergelijken.

28.10.2018 - 17:40

country flag Mari wrote:

Hei, etter første pinne på diagram A1-A5, hvor går veien videre? Skal nå strikke på vrangen tilbake. Forsetter jeg slik at A5 kommer over A5, A4 over A4 osv, eller begynner jeg på A1 igjen? I så fall har jeg da avsluttet retten med diagram A5 og begynner vrangen med A1. A2 kommer da over A4, A3 som før, A4 over A2 og A5 over A1. Hva er riktig? Takker for hjep. :)

03.08.2018 - 16:21

DROPS Design answered:

Hei Mari. Diagrammene viser alle pinnene sett fra rettsiden. Når du skal strikke vra vrangen må du derfor lese diagrammet «baklengs»: altså i motsatt rekkefølge og motsatt vei (dvs fra venstre mot høyre). Du vil på andre omgang begynne på venstre side av diagram A.5: strikke 1 masker rett (vrang fra retten) og videre strikke 3 masker vrang, så strikkes A.4 freme til midten hvor det strikkes A.3 osv. God fornøyelse

21.08.2018 - 11:45

country flag Virginie wrote:

When you say " 1 edge sts in garter st " do you mean a knit stitch ? Or an alternate knit right side/ purl wrong side ?

24.07.2018 - 16:35

DROPS Design answered:

Dear Virginie, when you work edge sts in garter st, you will K these sts both from RS and from WS - see video below. Happy knitting!

25.07.2018 - 08:40

country flag Alexandra Van Rosmalen wrote:

Deze omslagdoek ziet er prachtig uit en ik wil hem dus gaan breien, maar ik ben in verwarring want ik zie vier kleuren op het plaatje, maar ik zie maar drie kleuren genoemd bij de benodigdheden! Hoeveel gram van hoeveel kleuren wol heb ik nodig? Hartelijke groet, Alexandra

01.03.2018 - 13:33

DROPS Design answered:

Hoi Alexandra, Je hebt maar drie kleuren nodig omdat er steeds met twee draden gebreid wordt. Eerst brei je met 2 draden geel/groen, dan met 1 draad geel/groen en 1 draad donker olijfgroen, dan met 1 draad donker olijfgroen en 1 draad groen/turkoos en tot slot met 2 draden groen/turkoois. Dus door draden van verschillende kleuren te combineren creëer je extra kleuren.

04.03.2018 - 17:25