DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Aura

Prjónaður toppur úr DROPS Muskat, prjónaður ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1288
DROPS Design: Mynstur nr r-687
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL
Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
250-300-300-350-400-400 g nr 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með gatamynstri verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (á við um dreifingu á úrtöku/útaukningu):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d.154 l) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10 l) = 15,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í 14. og 15. Hverri l og 15. og 16. Hver l er prjónuð slétt saman (ef fækka á lykkjum), eða aukið út til skiptis í ca 15. og 16. hverri l.
ATH: Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð.
----------------------------------------------------------

TOPPUR:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka í 2 stykkjum, síðan eru l settar saman og stykkið er prjónað í hring til loka.

BERUSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 71-71-77-81-85-91 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og setjið 1 prjónamerki í 18.-18.-20.-22.-22.-24. l inn frá hvorri hlið (= 35-35-37-37-41-43 l á milli prjónamerkja).
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu er aukið út hvoru megin við 2 l með prjónamerki í – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri).
Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 18-20-20-22-25-25 sinnum = 143-151-157-169-185-191 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Stykkið mælist nú ca 8-9-9-10-11-11 cm. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 35-37-39-43-46-48 l (= band á öxl), prjónið sl yfir næstu 73-77-79-83-93-95 l (sú fyrsta af þessum l er nú þegar á hægri prjóni), fellið síðan af síðustu 35-37-39-43-46-48 l (= band á öxl), klippið frá. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Fitjið upp 3-5-9-12-14-20 nýjar l í byrjun umf, prjónið 73-77-79-83-93-95 l af prjóni og fitjið upp 3-5-9-12-14-20 nýjar l í lok umf = 79-87-97-107-121-135 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-4-4-5-5-5 cm – JAFNFRAMT eftir 3-3-3-4-4-4 cm fækkið um 1 l á hvorri hlið með því að prjóna 2 næst síðustu l í hvorri hlið slétt saman frá réttu = 77-85-95-105-119-133 l. Þegar garðaprjóni er lokið – passið uppá að síðasta umf sé frá röngu, geymið stykkið.

BERUSTYKKI AÐ FRAMAN:
Fitjið upp og prjónið eins og berustykki að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið lykkjurnar frá berustykki að framan og að aftan á sama hringprjón nr 3,5 = 154-170-190-210-238-266 l. Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 og fækkið JAFNFRAMT um 10-14-10-6-10-14 l jafnt yfir í 1. Umf – LESIÐ ÚRTAKA-/ÚTAUKNING = 144-156-180-204-228-252 l og 12-13-15-17-19-21 mynstureiningar 12 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er mynstur prjónað í hring eftir mynsturteikningu A.2 JAFNFRAMT er fækkað um 2-6-6-6-6-6 l jafnt yfir í 1. Umf = 142-150-174-198-222-246 l og fækkað er um 6 l jafnt yfir í 11. umf = 136-144-168-192-216-240 l. Eftir A.2 er prjónað mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (ATH: Veljið mynstur fyrir rétta stærð = 17-18-21-24-27-30 mynstureining 8 l). Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 170-180-210-216-243-270 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið LAUST af. Toppurinn mælist ca 47-49-49-52-53-54 cm frá öxl og niður (mælt flatt) – ATH: Vegna þyngdar á garninu þá kemur stykkið til með að teygjast þegar það er mátað.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma á berustykki kant í kant í ysta lykkjubogann svo að saumurinn verði flatur.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 1 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf (= gat)
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf (= ekki gat)
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Aura

Sasa, Germany

Aura

Renate Heinz, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1288

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Gaetane wrote:

Bonjour ! Si l on veut l avoir plus long un peu on procède comment ? 49cm selon votre patron c est pas assez long pour moi ! Merci 🙏

01.05.2024 - 13:37

DROPS Design answered:

Bonjour Gateane, notez bien que le poids du fil peut allonger l'ouvrage, essayez-le avant de continuer, et répétez le point ajouré A.3 (avec ou sans augmentation, au choix). Bon tricot!

02.05.2024 - 07:55

country flag Gaetane wrote:

Bonjour! Concernant les augmentations (1) au début, si j ai bien saisi, avant la 20 iemes m, je fait un jeté je tricote celle-ci,je passe mon marqueur, je tricote la m suivante,je fait un jeté et je continue ainsi de l autre côté, est-ce bien ça ? Merci , très jolie ce top 👍👍🙏🙏

24.04.2024 - 12:41

DROPS Design answered:

Bonjour Gaetane, c'est bien cela, mais n'oubliez pas d'augmenter de chaque côté de la 20ème maille à partir de la fin du rang de la même façon (on augmente 4 mailles à chaque fois). Bon tricot!

24.04.2024 - 13:01

country flag Didier Annick wrote:

Bonjour je suis étonnée pour le montage des mailles pour le devant, le dos est bien moins large que le devant surtout avec la poitrine,Merci pour votre retour

03.04.2024 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Didier, je ne suis pas bien sûre de comprendre votre question, le nombre de mailles à monter pour le dos et le devant est identique, on tricote le devant de la même façon que le dos, on va réunir les 2 pièces après les emmanchures. Pouvez-vous préciser votre question si j'ai mal compris? Merci pour votre compréhension!

03.04.2024 - 13:21

country flag Malgorzata wrote:

Potrzebuje więcej zdjęć tej bluzki aby zobaczyć jak to wyglada pod pachą. Nie bardzo rozumie jak ja mam przerabiać ściegiem francuskim oczka gdzie jest przerwa między 9-79- 9 ??

10.05.2023 - 18:49

DROPS Design answered:

Witaj Gosiu, na końcu karczku tyłu nabierasz nowe oczka z każdej strony robótki, które stanowią połowę podkroju rękawa (druga połowa podkroju rękawa będzie na karczku przodu). Przerabiasz te oczka ściegiem francuskim (tak samo jak pozostałe oczka) przez 4-4-4-5-5-5 cm (zależy od Twojego rozmiaru). Pozdrawiamy!

11.05.2023 - 08:14

country flag Torill Bjerke wrote:

Hei! Jeg har strikka i over 50 år, og har også prøvd meg på disse oppskriftene med mønster ovenfra og ned. Men jeg liker det absolutt ikke! Kan ikke skjønne hvorfor dere må lage omtrent alle oppskrifter sånn nå? Dere har mange fine oppskrifter, og garn, jeg har brukt begge deler masse. . Kan dere ikke lage oppskrifter for både ovenfraog ned, + nedenfra og opp? Altså begge deler for de modellene dere har, da kan jo vi strikkere velge den fremgangsmåten vi liker best. Mvh Torill

27.03.2022 - 00:33

DROPS Design answered:

Hej Torill, du kan let vælge alle de toppe som strikkes nedefra og op. Se her: Topper - nedenfra og opp

30.03.2022 - 14:31

country flag Ally wrote:

Thank you for the videos how to knit a jumper from the top. Unfortunately, this top is not knitted from top. It's started from the middle. Joining top section with bottom section by slip stich. And that where my question was. How do you slip stich from the completed yoke?

04.03.2021 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Ally, this top is worked top down, you first work the yoke on back piece then yoke on front piece separately, but then simply slip all stitches on same needle to work the body in the round to the bottom edge. Happy knitting!

04.03.2021 - 16:12

country flag Ally wrote:

Hello, would you be able to point me out to a video on how to slip sts from yoke front and back on to the same circular needle size 3.5 mm? thank you

03.03.2021 - 16:26

DROPS Design answered:

Dear Ally, we don't have such a video but maybe this video or this lessons both showing how to knit a jumper top down can help - Happy knitting!

04.03.2021 - 07:34

country flag Birgit Holmboe wrote:

Jeg vil gerne Downloaden denen opskrift

15.05.2020 - 12:42

country flag Malika Koubaili wrote:

Bonjour quand j'arrive au motif 3 je ne comprend pas comment faire les augmentations sur mon aiguille g 136 maille et apparament je dois en avoir 170 pour la taille s merci de votre reponse

24.02.2019 - 19:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Koubaili, au rang 21 de A.3 vous allez faire 2 jetés (= 4 m end, 1 jeté, 1 m end, 1 jeté, 3 m end) et donc ainsi augmenter 2 m x 17= 34 augmentations + les 136 m = 170 m. Au rang 22 de A.3, tricotez ces jetés torse pour qu'ils ne fassent pas de trous. Bon tricot!

25.02.2019 - 11:10

country flag Sonia B. wrote:

Bonjour, je suis arrivée au diagramme A.3. Moi aussi, le top arrive au milieu de la poitrine et j'ai dû prendre la taille L à cause de mon fil qui me donnait un échantillon de 25 m. au point ajouré. La largeur et la longueur sont exactement comme dans vos explications. Si j'ajoute 1 ou 2 rgs de m. serrées au crochet pour allonger les bretelles, croyez-vous que cela est une bonne idée? Je n'ai pas envie de tout recommencer. Mon travail est trop beau comme ça! Merci.

03.06.2018 - 19:19

DROPS Design answered:

Bonjour Sonia B., vous pouvez tout à fait ajouter votre touche personnelle au modèle pour qu'il corresponde à vos envies. Pour toute assistance individuelle complémentaire, merci de bien vouloir contacter le magasin où vous avez acheté votre fil. Bon tricot!

04.06.2018 - 09:28