DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Tauriel

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með dominoferningum, garðaprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 173-4
DROPS Design: Mynstur nr fa-350
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 g litur nr 200, grár
100-150-150-150-150-200 g litur nr 651, sandfok

ATH: Ef peysan er prjónuð með einum lit þá þarf 350-400-450-500-550-600 g Fabel.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, með litnum sandfok. Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár *, endurtakið frá *-* til loka. Fyrsta umf með nýja litnum er alltaf frá réttu.

DOMINOFERNINGUR:
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkja.
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl að l með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl (l með prjónamerki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 2 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt.
Endurtakið umf 1 og 2, þ.e.a.s. aukið út um 2 l í miðju á ferningi í hverri umf frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri), 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 l fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf.

MYNSTUR (á við um ermi):
Prjónið * 6 umf garðaprjón með litnum sandfok, prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, síðan eru prjónaðar rendur þannig: Prjónið * 2 umf garðaprjón í litnum sandfok, 2 umf garðaprjón í litnum grár *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Stykkið er nú prjónað með litnum grár til loka. Snúið stykkinu þannig að rangan snúi út og prjónið síðan áfram í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru prjónaðir 2 dominoferningar – sjá ferning í mynsturteikningu, síðan er prjónaður 1 kantur að l á dominoferningi (þ.e.a.s. neðri kantur á peysu) með stuttum umf – sjá stjörnu í mynsturteikningu. Kanturinn er prjónaður frá miðju að aftan, að miðju að framan, aftur að miðju að aftan. Að lokum er berustykki prjónað á peysuna yfir dominoferninginn – sjá kross í mynsturteikningu.

BAKSTYKKI:
DOMINOFERNINGUR:
Fitjið upp 5 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum grár. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Skiptið um lit yfir í litinn sandfok og prjónið DOMINOFERNINGUR – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka og RENDUR – sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið Dominoferning og rendur þar til stykkið mælist 38-42-46-50-56-62 cm þar sem það er breiðast = ca 124-136-148-164-180-200 umf garðaprjón, passið að síðasta garðaprjónið sé með litnum sandfok og ca 64-70-76-84-92-102 l hvoru megin við l með prjónamerki í (= alls ca 129-141-153-169-185-205 l í umf). Prjónið 2 umf garðaprjón með litnum grár og aukið út eins og áður (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við l með prjónamerki) og aukið út um 4 l jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju í umf frá réttu (= alls 10 l fleiri í umf frá réttu) = ca 69-75-81-89-97-107 l hvoru megin við l með prjónamerki í (= alls ca 139-151-163-179-195-215 l í umf). Setjið l á þráð og prjónið framstykki dominoferningur.

FRAMSTYKKI:
DOMINOFERNINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki dominoferningur.

Setjið til baka l frá bakstykki dominoferningur á prjóna saman við l af framstykki dominoferningur. Setjið 1 prjónamerki á milli skiptinga á milli þeirra (= 2 prjónamerki) = ca 278-302-326-358-390-430 l alls.

NEÐRIKANTUR:
Stykkið er prjónað saman með l frá miðju að aftan (þ.e.a.s. hornið á dominoferningi) og út að hlið, niður að horni fyrir miðju að framan, upp að hlið og niður að miðju að aftan. Fitjið upp 16-16-12-12-12-12 l á hringprjóna nr 3,5 með grár. Prjónið stuttar umf og rendur þannig:

VINSTRA BAKSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá horni við miðju að aftan og út að prjónamerki á hlið þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf (= 1 l fleiri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn sandfok.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 5 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn grár.
Endurtakið umf 1 til 8 þar til allar l frá horni á dominoferningi út að hlið þar til prjónamerki hefur verið prjónað saman með kanti.

VINSTRA FRAMSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman með l frá hlið og niður að horni á dominoferningi á framstykki þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, prjónið sl út umf (= 1 l færri).
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er efir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri af dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn sandfok.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið eins og umf 1.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 5 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið sl þar til 1 l er eftir á prjóni, prjónið næstu l saman við fyrstu 2 l frá dominoferningi (= 3 l slétt saman = 2 l færri frá dominoferningi).
Skiptið yfir í litinn grár.
Endurtakið umf 1 til 8 niður að horni fyrir miðju að framan. ATH: Í síðustu endurtekningu af 8. eða 2. umf eru settar fyrstu 3 l frá dominoferningi til baka á prjóninn (= 4 l slétt saman = 3 l færri frá dominoferningi).

HÆGRA FRAMSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá horni á framstykki dominoferningur og út að prjónamerki í hlið eins og á vinstra bakstykki neðrikantur.

HÆGRA BAKSTYKKI NEÐRIKANTUR:
Prjónið saman við l frá hlið og niður að horni á dominoferningi á framstykki eins og á vinstra framstykki neðrikantur. Passið uppá að síðasta röndin sé með litnum sandfok. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Prjónið nú berustykki á bakstykki með litnum grár þannig:

HÆGRA BAKSTYKKI:
Takið upp 64-70-76-84-92-102 l með grár frá réttu á prjóna nr 3,5 í annarri hliðinni á dominoferningnum, takið upp 2 l í hornið á dominoferningnum, takið upp 64-70-76-84-92-102 l niður meðfram hinni hliðinni á dominoferningnum = 130-142-154-170-186-206 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og aukið út um 15-13-13-11-13-9 l jafnt yfir hvoru megin við hornið (= alls 30-26-26-22-26-18 l fleiri) = 80-84-90-96-106-112 l á hvorri hlið (= alls 160-168-180-192-212-224 l). Prjónið síðan yfir fyrstu 80-84-90-96-106-112 l (þ.e.a.s. í hægri hlið á stykki séð frá réttu þannig:

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR, STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI OG JAFNFRAMT AUKIÐ ÚT Í HLIÐ ÞANNIG:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið fyrstu 2 l slétt saman, snúið við (= 1 l).
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): Prjónið 1 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið næstu 2 l frá dominoferningnum slétt saman, snúið stykkinu (= 2 l). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu!
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið 2 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, snúið við (= 3 l).
UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
UMFERÐ 7 (= frá réttu): Prjónið 3 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman, snúið við (= 4 l).
UMFERÐ 8 (= frá röngu): Prjónið sl til baka.
Haldið svona áfram með stuttar umferðir, þ.e.a.s. að prjónað er yfir 2 l fleiri í hverri umf frá réttu, en prjónið 2 l slétt saman, þ.e.a.s. að 2 l fækka í 1 l. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar l upp að horni á dominoferningi.
STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI:
Þetta á einungis yfir stærðir L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 0-0-2-2-2-2 cm prjónið 0-0-1-1-1-1 stutt rönd í garðaprjóni og prjónið til baka = 2 umf = 1 stutt rönd í garðaprjóni) yfir l sem nú þegar hefur verið prjónað yfir, prjónið stutta rönd í garðaprjóni með 0-0-5-4-3-2 cm millibili alls 0-0-4-6-8-11 sinnum.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar berustykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í byrjun næstu umf frá réttu. Aukið svona út með 1½-1-1- ½-½-½ cm millibili alls 9-12-14-17-19-22 sinnum = 10-13-15-18-20-23 l á undan prjónamerki. Þegar berustykkið mælist 15-14-15-14-15-17 cm (mælt meðfram hlið) fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá réttu þannig:
Fellið af 3 l alls 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 l alls 1-2-2-3-4-4 sinnum, 1 l alls 4-5-4-5-5-5 sinnum (þ.e.a.s. það er eftir 1 l á undan prjónamerki).

Stykkið mælist ca 19-21-23-25-28-31 cm mælt frá hlið á dominoferningi og upp. Þegar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka eru alls 40-42-45-48-53-56 l á prjóni. Setjið l á þráð og prjónið vinstra bakstykki.

VINSTRA BAKSTYKKI:
= 80-84-90-96-106-112 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR, STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI OG JAFNFRAMT AUKIÐ ÚT Í HLIÐ ÞANNIG:
STUTTAR UMFERÐIR:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið fyrstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman (= 1 l).
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið 1 l sl, setjið 1 prjónamerki, prjónið næstu 2 l frá dominoferningnum, snúið stykkinu (= 3 l).
Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu!
UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (= 2 l).
UMFERÐ 5 (= frá röngu): Prjónið 2 l sl, prjónið næstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu (= 4 l).
UMFERÐ 6 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið sl út umf.
UMFERÐ 7 (= frá röngu): Prjónið sl, prjónið næstu 2 l frá dominoferningi, snúið stykkinu (= 4 l).
UMFERÐ 8 (= frá réttu): Prjónið 2 l slétt saman, prjónið sl út umf.
Haldið svona áfram með stuttar umferðir, þ.e.a.s. prjónið yfir 2 l fleiri frá dominoferningi í hverri umf frá röngu og fækkið um 1 l í byrjun hverrar umf frá réttu, þ.e.a.s. 2 l fækka í 1 l. Haldið svona áfram þar til prjónað hefur verið yfir allar l upp að horni á dominoferningi.
STUTT RÖND Í GARÐAPRJÓNI:
Þetta á einungis við stærð L-XL-XXL-XXXL:
Þegar stykkið mælist 0-0-2-2-2-2 cm prjónið 0-0-1-1-1-1 stutt rönd í garðaprjóni (þ.e.a.s. prjónið frá röngu fram þar sem snúið var síðast við, snúið við og prjónið til baka = 2 umf = 1 stutt rönd í garðaprjóni) yfir l sem þegar hefur verið prjónað yfir, prjónið stutta rönd í garðaprjóni með 0-0-5-4-3-2 cm millibili alls 0-0-4-6-8-11 sinnum.
ÚTAUKNING Í HLIÐ:
Þegar berustykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju í lok næstu umf frá réttu. Aukið svona út með 1½-1-1- ½-½-½ cm millibili alls 9-12-14-17-19-22 sinnum = 10-13-15-18-20-23 l á undan prjónamerki. Þegar berustykki mælist 15-14-15-14-15-17 cm (mælt meðfram hlið) fellið af fyrir handvegi í byrjun hverrar umf frá röngu þannig: Fellið af 3 l alls 1-1-2-2-2-3 sinnum, 2 l alls 1-2-2-3-4-4 sinnum, 1 l alls 4-5-4-5-5-5 sinnum (þ.e.a.s. það er eftir 1 l á eftir prjónamerki).

Stykkið mælist ca 19-21-23-25-28-31 cm mælt frá hlið á dominoferningi og upp. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar til loka eru alls 40-42-45-48-53-56 l á prjóni.

BAKSTYKKI:
Setjið til baka l af hægra og vinstra bakstykki á sama prjón = 80-84-90-96-106-112 l. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 13-11-11-9-8-8 cm frá horni á dominoferningnum (nú eru eftir ca 2 cm til loka) fellið af miðju 34-34-38-38-40-40 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 23-25-26-29-33-36 l eftir á öxl. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l = 22-24-25-28-32-35 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 15-13-13-11-10-10 cm frá horni á dominoferningi. Fellið af. Stykkið mælist alls ca 60-62-64-66-71-77 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra bakstykki.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Setjið til baka l af hægra og vinstra framstykki á sama prjón = 80-84-90-96-106-112 l. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 8-6-4-2-1-1 cm frá horni á dominoferningi eru felldar laust af miðju 20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig = 30-32-35-38-43-46 l eftir á öxl. Fækkið síðan l í hverri umf frá hálsi með því að fækka um 1 l innan við 3 kantlykkju í hverri umf frá réttu alls 8-8-10-10-11-11 sinnum = 22-24-25-28-32-35 l eftir á öxl. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist alls 7-7-8-8-9-9 cm frá þeim 20 l sem felldar voru af fyrir hálsmáli, fellið af. Stykkið mælist alls ca 60-62-64-66-71-77 cm. Prjónið hina öxlina alveg eins.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-54-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum sandfok. Prjónið MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 14-12-10-8-3 cm, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf, aukið út með 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 21-22-23-24-25-26 sinnum = 88-92-96-102-106-110 l. Þegar stykkið mælist 48-47-46-45-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla). Prjónið síðan fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 4 l 2 sinnum, 2 l 3 sinnum og 1 l 2 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-56-56-56-55-54 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni á hvorri hlið á stykki. Fellið af þær l sem eftir eru.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Allur frágangur er gerður með litnum grár. Saumið saman neðri kant við miðju að aftan yst í lykkjubogana.
Saumið axlasauma. Saumið ermar í með rönguna út, þ.e.a.s. sléttprjóni er snúið inn. Saumið hliðarsauma niður við neðrikant yst í lykkjubogana.

Mynstur

symbols = dominoferningur
symbols = neðri katur
symbols = berustykki
symbols = þetta er ca stærðin, það fer eftir hversu margar lykkjur eru í dominoferningnum
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 173-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (149)

country flag Bettina wrote:

Hej. Når jeg skal strikke nederst bagpå dominorude ender jeg med at retsiden bliver mod højre kant af dominorude, så jeg ikke strikker mod rigtig retning. Jeg kan se at I tidligere har lagt forklaring/instruktions video på, men den er ikke mere tilgængelig. Jeg er en habil strikker, men det her forstår jeg ikke. Kan jeg bede om hjælp? V. H Bettina

02.11.2023 - 14:55

DROPS Design answered:

Hej Bettina, Her finder du videoen: Hvordan strikkes nederste kant i DROPS 173-15

07.11.2023 - 09:27

country flag Ursula wrote:

1.000 Dank!!! Das ist sehr hilfreich!

25.04.2023 - 14:00

country flag Ursula wrote:

Es tut mir leid, aber ich begreife dass einfach nicht! Leider habe ich auch niemanden der mir helfen koennte,schade.

24.04.2023 - 19:55

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, in diesem Video zeigen wir, wie dieser Rand für die Jacke gestrickt wird, es kann Ihnen also sicher damit helfen. Viel Spaß beim stricken!

25.04.2023 - 08:48

country flag Ursula wrote:

Ich verstehe die Anleitung fuer den unterer "Rand" nicht wirklich. Koennten Sie sie grafisch darstellen? Ich begreife nicht wie ich den "Rand" mit den Quadraten verbinden soll,bzw. dieser "Rand" entsteht.

24.04.2023 - 12:30

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, dafür haben wir leider kein Grafisk - das unterer Rand stricken Sie quer mit den Maschen vom Domino zusammen: die Maschen vom Rand anschlagen und am Ende jeder Hinreihe die letzte Masche vom Rand zusammen mit den 2 ersten Maschen vom Domino (ab der Spitze bis zur Seite) zusammenstricken, gleichzeitig stricken Sie aber verkürzten Reihen damit das untere Kant breiter wird. Also die 8 Reihen wiederholen bis alle Maschen bis zur Markierung an der Seite gestrickt sind, dann stricken Sie weiter bis zur vorderen Mitte (Spitze vom Domino Vorderteil), dann bis zur rechten Seite vom Pullover und endlich bis zum hinteren Mitte (bis zum Anfang von diesem Rand). Viel Spaß beim stricken!

24.04.2023 - 16:21

country flag Ariane wrote:

Hallo, ich bin jetzt an der Passe von Tauriel und kann beim besten Willen nicht verstehen, wo ich Weiterstricken muss. Ich kann doch nicht 100 Maschen aufnehmen, wo im Moment links und rechts die Dominoquadrate ein Dreieck an den Seiten ergeben, wo ich die Maschen ja eigentlich aufnehmen müsste. Ich wäre sehr dankbar für einen Tipp Vielen Dank Ariane

03.02.2023 - 13:39

DROPS Design answered:

Liebe Ariane, beim Rückenteil wird man zuerst die Maschen aus der rechten Seite vom Domino + 2 M aus der Spitze + die Maschen aus der linken Seite vom Domino auffassen, 1 Rüchreihe stricken (und gleichzeitig regelmäßig verteilt zunehmen, damit es je 80-112 M an jeder Seite gibt), dann stricken Sie nur das rechte Rückenteil mit verkürzten Reihen bis die Spitze, dann stricken Sie das linke Vorderteil bis die Spitze und endlich stricken Sie beide Vorderteile zusammen. Hoffentlich kann das Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

03.02.2023 - 15:20

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, je veux tricoter le modèle TAURIEL, avec la Fabel print n° 901. Que me conseillez-vous de choisir comme couleur unie pour le haut et les manches ? (Je suis brune et les couleurs sombres ne me vont pas du tout). Cordialement.

22.01.2023 - 20:57

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, pour toute aide au choix de la couleur idéale, contactez votre magasin DROPS, ce sera plus facile pour eux de vous aider à trouver la couleur qu'il vous faut en fonction de ce que vous souhaitez - contactez-les même par mail ou téléphone. Bon tricot!

23.01.2023 - 10:12

country flag Iwona Harris wrote:

Am I right in thinking that the sleeves are inside out, i.e. with the purl side facing out? In the photo it looks like regular stocking stitch , knit side out.

21.09.2022 - 20:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Harris, yes correct, the sleeve is worked with the purl side out (see PATTERN (applies to sleeve):). Feel free to work them in regular stocking stitch if you like them to. Happy knitting!

22.09.2022 - 09:42

country flag Lily Ruiz wrote:

Cual es la mitad izquierda de la espalda?? ... cual es el frente izquierdo?? ... como debo mirar la prenda para determinar el lado izquierdo o derecho?? Mil gracias por la respuesta

18.06.2022 - 15:04

DROPS Design answered:

Hola Lily, el lado izquierdo y derecho de la prenda son los que estarían a la izquierda y a la derecha cuando tienes la prenda puesta.

18.06.2022 - 15:35

country flag Randi Eibye wrote:

Forstår jeg det rigtigt, at det er vrangsiden af det færdige arme, der vender udad, og den glatte/ret- side, der vender indad?

13.06.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Hej Randi, ja du syr ærmerne i så det glatstrikkede vender indad mod vrangen :)

15.06.2022 - 15:48

country flag Kim wrote:

Hallo, ik ben met het voorpand bezig. Ik begrijp deze zin niet: “ Minder dan elke nld langs hals 1 st naast 3 kant st elke nld aan de goede kant ”. Wat wordt bedoeld met “1 st naast 3 kant st”? Hoe moet ik hier minderen?

12.03.2022 - 21:15