DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6409.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blanchard

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með mismunandi áferðamynstri og háum kraga. Stærð S - XXXL.

DROPS 172-15
DROPS Design: Mynstur nr ne-218
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 g nr 0206, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l x 20 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6409.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í 2 hlutum + ermar og saumað saman í lokin.

BAKSTYKKi:
Fitjið upp 68-76-84-92-100-108 l á hringprjóna nr 5,5 með Nepal. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 8 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 4 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 12 l eru eftir, prjónið 4 l sl og 8 l garðaprjón. Haldið áfram með stroff og garðaprjón þar til stykkið mælist 6 cm. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 8 l garðaprjón, A.1 yfir næstu 48-56-64-72-80-88 l, endið með 4 fyrstu l í A.1 og 8 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22 cm er fitjuð upp 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið = 70-78-86-94-102-110 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 26-26-27-27-28-28 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið síðan þannig – frá réttu: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.2 yfir fyrstu 48-48-56-56-64-64 l (= 6-6-7-7-8-8 mynstureiningar á breiddina), 2 l sléttprjón, prjónið A.3 yfir næstu 18-26-26-34-34-42 l og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-51-52 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir fyrstu 49-49-57-57-65-65 l, þær l sem eftir eru halda áfram eins og áður. Prjónið nú þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.4 yfir fyrstu 48-48-56-56-64-64 l, 2 l sléttprjón, haldið áfram með A.3 yfir næstu 18-26-26-34-34-42 l og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið (= merkir handveg) = 68-76-84-92-100-108 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 l af fyrir háls, í næstu umf er fækkað um 1 l frá hálsi = 21-25-28-32-35-39 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og bakstykki þar til stykkið mælist 60-62-63-65-66-68 cm.
Setjið miðju 18-18-20-20-22-22 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli frá miðju, fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 21-25-28-32-35-39 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm, fellið af.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 40-40-48-48-48-48 l á sokkaprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff (= 4 l sl, 4 l br). Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 8-6-12-10-10-8 l jafnt yfir = 32-34-36-38-38-40 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5. Prjónið sléttprjón, þegar stykkið mælist 10-10-10-8-10-8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi. Aukið út með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 14-15-16-16-18-18 sinnum = 60-64-68-70-74-76 l. Fellið af þegar stykkið mælist 52-50-49-47-46-44 cm. ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma upp fyrir handveg, látið neðstu 22 cm vera opna = klauf. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónið upp ca 76-90 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á stutta hringprjóna nr 5,5. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í fyrstu umf í garðaprjóni er aukið út jafnt yfir til 104-104-112-112-112-120 l. Síðan er prjónað stroff (4 l sl, 4 l br). Prjónið stroff þar til kraginn mælist 20-20-21-21-22-22 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 172-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Alie De Wit wrote:

Dochter blij gemaakt met deze mooie trui heb het in legergroen gebreid super

03.12.2019 - 21:02

country flag Claire PETIT wrote:

Bonjour Je viens de terminer ce modèle avec la laine Népal coloris 0100 "naturel" qui correspond bien au modèle présenté.

24.11.2019 - 10:53

country flag Claire PETIT wrote:

Suite... J'ai contacté l'expéditeur qui me conseille de lui renvoyer le colis à mes frais en colissimo (refus point relay qui est moins onéreux ), qui m'adressera un bon d'achat et je devrai refaire une commande dans autre coloris. N'est il pas possible d'avoir un bon de retour ? Ce n'est pas une erreur de commande. Merci pour votre aide

24.10.2019 - 16:33

country flag Claire PETIT wrote:

Suite... J'ai contacté l'expéditeur qui me conseille de lui renvoyer le colis à mes frais en colissimo (refus point relay qui est moins onéreux ), qui m'adressera un bon d'achat et je devrai refaire une commande dans autre coloris. N'est il pas possible d'avoir un bon de retour ? Ce n'est pas une erreur de commande. Merci pour votre aide

24.10.2019 - 15:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Petit, Ce modèle a bien été réalisé en Nepal 0206 (cf modèle original), les couleurs peuvent parfois apparaître différemment sur la photo du modèle et celles des nuanciers en raison des différentes dues notamment à la luminosité et chaque écran. En espérant que vous trouverez une solution. Bon tricot!

24.10.2019 - 15:54

country flag PETIT Claire wrote:

Ayant l intention de réaliser le modèle Blanchard de la meme couleur que le modèle présenté je commande 14 pelotes Népal 0206 beige clair. Or le coloris de la laine reçue aujourd'hui ne correspond pas du tout a celui du modèle qui, à mon avis, est plutôt écru.

24.10.2019 - 15:35

country flag MINOSA CORINE wrote:

Bonjour, je désire tricoter le modèle Blanchard en beige clair coloris 0206 en Drop Népal mais vous n'en avez pas en stock, vos autres fournisseurs non plus. Pourriez vous m'indiquer si cette qualité va être prochainement réapprovisionnée et sous combien de temps Merci pour votre réponse Cordialement C. MINOSA

19.10.2019 - 14:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Minosa, en cliquant sur le lien "commandez" vous accèderez à la boutique en ligne de notre Superstore qui a suffisamment de Nepal 0206 en stock - Vous pouvez également contacter (même par mail ou téléphone) les différents magasins DROPS en France pour savoir quand ils recevront cette couleur, eux seuls peuvent vous répondre. Bon tricot!

21.10.2019 - 09:37

country flag Danielle wrote:

Bonjour j'essaies d'imprimer le patron et l'image ne s'imprime pas. Comment je dois faire

06.08.2019 - 15:18

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, nous avons effectué avec succès un test d'impression de ce modèle. Essayez de vérifier les paramètres de votre imprimante, vous pouvez également essayer de nettoyer le cache de votre navigateur, et essayer à nouveau. Bon tricot!

07.08.2019 - 11:57

country flag Janne Rosenvard wrote:

Skal mønster spejlvendes på forstykke, så A3 møder A3 og A4 møder A4 ved skulder?

29.07.2019 - 13:01

DROPS Design answered:

Hei Janne. Nei, bakstykket og forstykket strikkes helt likt hva mønster angår. Så når du ser genseren fra forsiden og baksiden er mønsteret likt på begge sider. God fornøyelse

31.07.2019 - 14:33

country flag Marian Ravnborg wrote:

Ret og vrang borten ses tydeligt på begge ærmer. Hvis opskriften følges kan vrang borten kun ses på bagsiden af v. ærme. Højre ærme vil vrangbort ses på forside af ærme. ?

18.02.2019 - 12:19

DROPS Design answered:

Hei Marian. Tenker du på vrangborden nederst rundt hånleddet? Du skal strikke 4 rett, 4 vrang rundt på hele omgangen i 8 cm. Vrangborden skal altså gå rundt hele håndleddet. God fornøyelse

21.02.2019 - 09:11

country flag Patrizia wrote:

Vorrei realizzarlo coi ferri non circolari. È possibile? Se si posso avere lo schema relativo? Grazie infinite

08.12.2018 - 17:09

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia. Può sostituire i ferri circolari con quelli dritti. Le spiegazioni per il davanti e il dietro sono già date per una lavorazione in ferri di andata e ritorno, quindi può seguirle così come sono. Per le maniche, deve avviare lo stesso numero di maglie e aggiungere 1 m vivagno da ciascun lato per la cucitura. Buon lavoro!

08.12.2018 - 21:20