DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 171-25
DROPS Design: Mynstur nr de-157
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 g nr 18, haustskógur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 41 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir ermi – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

STUTTAR UMFERÐIR MEÐ GARÐAPRJÓNI – MEÐ UPPSLÆTTI:
Þegar snúið er við og slegið 1 sinni uppá prjóninn þá er komið í veg fyrir göt í stykkinu.
Stuttar umferðir í garðaprjóni: Prjónið þann fjölda lykkja sem gefinn er upp í mynstrinu, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, lyftið þræðinum fram frá framhlið á stykki, setjið til baka óprjónuðu lykkjuna á vinstri prjóninn. Snúið stykkinu. Í næstu umf þegar komið er að lykkjunni sem tekin var óprjónuð af, prjónið lykkjuna og þráðinn sem liggur utan um hana (uppsláttinn) saman eins og ein lykkja og prjónið út umferðina.

ÚTAUKNING:
Þegar teknar eru upp fleiri l en eru í rönd í garðaprjóni (t.d. á að taka upp 140 l jafnt yfir næstu 132 röndum í garðaprjóni) takið upp 1 l í hverri rönd í garðaprjóni og hinar l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn jafnt yfir á milli l. Þ.e.a.s. í þessu dæmi eru teknar upp 132 l í 132 röndum í garðaprjóni og slegið er uppá prjóninn alls 8 sinnum jafnt yfir = 140 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst er prjónaður ytri hringur, síðan eru teknar upp l á styttri boganum á hringnum og hringirnir í miðjunni prjónaðir.

YTRI HRINGUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Fitjið upp 70-72-74-76-78-80 l á hringprjóna nr 4 með Delight.

1 STYKKI:
Prjónið 14-14-14-14-16-16 umf garðaprjón (= 7-7-7-7-8-8 rönd með garðaprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar stuttar umf þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sl yfir fyrstu 60-66-66-66-66-66 l – LESIÐ STUTTAR UMFERÐIR Í GARÐAPRJÓNI – MEÐ UPPSLÆTTI, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka, snúið við.
UMFERÐ 3: Prjónið sl yfir fyrstu 54-60-60-60-60-60 l, snúið við.
UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka, snúið við.
UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir fyrstu 48-54-54-54-54-54 l, snúið við.
UMFERÐ 6: Prjónið sl til baka, snúið við.

Haldið svona áfram að prjóna stuttar umferðir í garðaprjóni. Þ.e.a.s. prjónið yfir 6 l færri í hverri umf frá réttu þar til prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón yfir síðustu 6 l (= 20-22-22-22-22-22 umf garðaprjón, þegar prjónaðar hafa verið alls 34-36-36-36-38-38 umf með garðaprjóni þar sem stykkið er breiðast). Síðasta umf er frá röngu. Prjónið síðan stuttar umf þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sl yfir fyrstu 8 l, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl til baka, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Prjónið sl yfir fyrstu 14 l, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Prjónið sl til baka, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir fyrstu 20 l, snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Prjónið sl til baka, snúið stykkinu.
Haldið áfram að prjóna stuttar umferðir í garðaprjóni þannig: Þ.e.a.s. prjónið yfir 6 l fleiri í hverri umf frá réttu þar til eftir eru 2-4-6-8-10-6 l á prjóni (= 22-22-22-22-22-24 umf í garðaprjóni). Síðasta umf frá röngu. Prjónið 14-14-16-16-16-16 umf garðaprjón yfir allar l.

Nú hafa verið prjónaðar 28-28-30-30-32-32 umf garðaprjón þar sem stykkið er styst og 70-72-74-74-76-78 umf garðaprjón þar sem stykkið er breiðast. Stykkið mælist ca 7-7-7-7-8-8 cm þar sem stykkið er styst og ca 17-18-18-18-19-19 cm þar sem það er breiðast.

Prjónið alls 20-20-20-21-21-21 stykki. Stykkið mælist nú ca 137-137-146-154-164-164 cm þar sem stykkið er styst og ca 341-351-361-379-389-400 cm þar sem það er breiðast. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman affellingarkantinn við uppfitjunarkantinn, í ystu lykkjubogana.

HRINGUR Í MIÐJU:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna (skiptið yfir á sokkaprjóna þegar þörf er á) frá stystu hliðinni á ytri hringnum inn að miðju. Takið upp frá réttu með hringprjónum nr 4 þannig: Passið uppá að saumurinn komi niður að miðju að aftan.

Takið upp 1 l í hverja og eina af fyrstu 35-37-40-41-43-45 röndum í garðaprjóni (þ.e.a.s. yfir næstu 70-74-80-82-86-90 umf), fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l (fyrir handveg), hoppið yfir næstu 35-37-39-41-43-45 rendur í garðaprjóni (= alls 70-74-78-82-86-90 umf), takið upp 134-140-144-150-154-158 l jafnt yfir næstu 140-132-142-151-164-156 rendur í garðaprjóni (= alls 280-264-284-302-328-312 umf) – LESIÐ ÚTAUKNING, fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l (fyrir handveg), hoppið yfir næstu 35-37-39-41-43-45 rendur í garðaprjóni (= alls 70-74-78-82-86-90 umf), takið upp 1 l í hverja af fyrstu 35-37-40-41-43-45 röndum í garðaprjóni (þ.e.a.s. yfir næstu 70-74-80-82-86-90 umf) = 276-290-304-316-328-340 l.

Stykkið er prjónað í hring í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, til loka. Prjónið 1 umf br, setjið 5 prjónamerki og fækkið l jafnt yfir þannig: Fækkið um 0-2-4-4-4-4 l jafnt yfir alla umf og prjónið þannig: * 46-48-50-52-54-56 l br, setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið síðustu 46-48-50-52-54-56 l br = 276-288-300-312-324-336 l.

Í næstu umf er l fækkað þannig: Prjónið 1 l sl, prjónið næstu 2 l slétt saman (= 1 l færri), * prjónið þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri), 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l slétt saman (= 1 l færri) *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, prjónið þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman (= 1 l færri), 1 l sl (= alls 12 l færri).

Fækkið l svona í 4. hverri umf þar til 24 l eru eftir. Prjónið allar l 2 og 2 saman = 12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Hringurinn í miðju mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm að þvermáli.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring, neðan frá og upp.
Fitjið upp 46-48-50-52-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Delight. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni, en gengið er frá ermum með rönguna út. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-10-6-10-10-8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið svona út með 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 16-17-19-20-20-22 sinnum = 78-82-88-92-96-102 l. Fellið af þegar ermin mælist alls 53 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Snúið ermunum við og saumið þær í með rönguna út.

Mynstur

symbols = ytri hringur
symbols = hringur í miðju
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Griet Ascoop wrote:

Goeiedag, ik ben dit vest aan het breien, en het wordt zeker prachtig, dat kan ik al zien. Ik heb de rug dichtgebreid in decrondteczoals voorgeschreven, maar dan is de rug bij mij niet vlak. Hij wobbelt en eindigt op een soort mutsachtige welving. Ik heb de rug nu weer uitgehaald, en zal sneller moeten minderen denk ik. Kunt u me adviseren hoe ik dat best aanpak ? Danku.

30.01.2017 - 13:03

DROPS Design answered:

Hoi Griet. Ik vind het een beetje moeilijk in te schatten wat er fout is gebeurd. Ik zou kijken of de stekenverhouding klopt in de hoogte/breedte en of je fouten hebt gemaakt bij de verkorte toeren. Om het werk minder breed te maken kan je de verkorte toeren over meer st maken.

30.01.2017 - 15:54

country flag PASCAL wrote:

Bonjour, Je suis entrain de tricoter ce modèle avec la laine recommandée; PB elle se tricote en 2,5mm et non 4 comme sur les explications (= une vraie passoire), j'ai donc doublé la laine delight, mais le résultat rendu par rapport aux rayures n'est bien évidemment pas celui espéré. Dommage, je me dois donc d'acheter des pelotes supplémentaires et à nouveau des frais de port.... Pourquoi cela. Habituée et fidèle cliente à vos ouvrages, je ne comprends plus.

26.01.2017 - 15:36

DROPS Design answered:

Bonjour Pascal, ce modèle se tricote volontairement avec des aiguilles plus grosses pour avoir un échantillon de 21 x 45 rangs = 10 x 10 cm au point mousse. La quantité indiquée correspond à celle utilisée sur la base de cette tension. Bon tricot!

26.01.2017 - 15:55

country flag Sabine wrote:

Hallo, der erste Mustersatz endet ja mit 14Reihen Kraus rechts. Beginnt der nächste dann wie der erste auch mit 14Reihen Kraus rechts oder gleich mit den verkürzten Reihen. Oder anders ausgedrückt: sind zwischen den verkürzten Reihen also 28Reihen Kraus ??? Danke für eine schnelle Antwort

17.01.2017 - 23:36

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, Sie stricken zuerst 14 Reihen Kraus rechts über alle 70-72-74-76 Maschen (siehe Größe), dann beginnen die verkürzten Reihen: 2 R über die ersten 60-66 M (siehe Größe), 2 R über die ersten 54-60 M, 2 R über die ersten 48-54 M, usw, dh immer 6 M weniger bei der Hinreihe stricken bis Sie 2 R über die 6 letzten M gestrickt haben), dann haben Sie insg 17-18 Krausrippen an der breitesten Stelle gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2017 - 09:44

country flag Lisa Lebrija wrote:

Hej igen... jeg har fundet ud af, at de første 7 riller skal strikkes hver gang. Så skulle det passe. Hvert "stykke" består af 37 riller, og det skulle give de 361 cm på den bredeste kant. Så sådan vil jeg prøve at strikke det.

24.11.2016 - 19:42

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Ja, du har ret - skulle lige laese igennem et par gange. Tak for meldingen (du var mere vaagen end mig der :))

30.11.2016 - 14:43

country flag Lisa Lebrija wrote:

Hej, jeg har nu strikket stykket 20 gange, og har kun 266 cm på det bredeste og 155 på det korteste!! Hvad er gået galt? Jeg strikker str. L. Skulle jeg have strikket de 7 første riller med, så der mellem de forkortede riller bliver 15 fulde riller?

23.11.2016 - 21:09

DROPS Design answered:

Hej Lisa. Nej, de förste 7 riller strikker du kun 1 gang. Har du strikket for lidt vendinger eller har du for mange riller per 10 cm (41 riller per 10 cm)? Stemmer din strikkefasthed ikke, saa har det indflydelse paa dine maal.

24.11.2016 - 15:38

Nathalie wrote:

I wanted to say that i am delighted by the pattern and the wool. I chose to follow the suggested color as i loved it on the picture of the garment. It is gorgeous, much nicer that how it is shown in the color range of the wool delight. Thanks for your help, you have an amazing team.

27.10.2016 - 09:24

Nathalie wrote:

Started to knit, did part 1 until row 6. I have 7 ridges on the short side and 10 on the long side. Then I should keep doing short rows. Do you mean I should do short rows after 48-42-36-30-24-18-12-6 stitches?each time on the RS? This would leave me with 7 ridges on the short side and 18 on the long one and not 11 and 18. Please tell me what I got wrong. Thanks. Nathalie

25.10.2016 - 22:25

DROPS Design answered:

Dear Nathalie, in 2nd size you work short rows over the first 66 sts then 60, 54, 48, 42, 36, 30, 24, 18, 12 and 6 sts = a total of 11 ridges + the 7 ridges over all sts = a total of 18 ridges have been worked. Happy knitting!

26.10.2016 - 09:15

country flag Gail wrote:

Where can I find finished dimension, I am unsure of what size to make. I just ordered the yarn, but don't know if I should make large or X large. Love love love this design!

27.09.2016 - 02:33

DROPS Design answered:

Dear Gail, you can compare the measurements in chart at the bottom of the pattern with a similar garment you have and like the shape (= width between armholes at the top and at the bottom, etc...). Happy knitting!

27.09.2016 - 09:52

country flag Ineke Van Dioxhoorn wrote:

Hoe kan ik alleen een breiboek bestellen? Ik wil graag het hele nr. 171 !! Help

10.09.2016 - 20:56

DROPS Design answered:

Hoi Ineke. De breiboeken komen binnen 1-2 weken in de winkels. Neem contact op met jouw verkooppunt voor meer informatie.

12.09.2016 - 11:16

country flag Mary-Ann Andersen wrote:

Hej Jeg er nu færdig med "første stykke" af denne opskrift. Jeg er sluttet ned 8 riller. Nu står der at jeg skal strikke stykket 20 gange Ialt, MEN!! Skal jeg starte med 8 riller igen, som der står i opskriften (Ialt 16 riller efter hinanden), eller er de 8 riller jeg sluttede med, de samme riller dom beskrives først i opskriften? Venligst Mary-Ann Andersen

10.08.2016 - 12:07

DROPS Design answered:

Hej Mary-Ann. Jeg ville gentage fra: Fortsæt med forkortede p i retstrik således... Altsaa de forkortede pinde 1-6 med 6 masker mere for hver p fra retsiden.

16.09.2016 - 17:02