DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7888.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lobelia

Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með laskalínu og köðlum, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 171-14
DROPS Design: Mynstur nr ne-235
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
800-850-950-1050-1150-1250 g nr 6314, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA Bogalaga (blá), NR 612: 6 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7888.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 97), mínus kant að framan (t.d. 8 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20 l) = 4,4. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis á undan ca 4. og 5. hverri l (ekki er aukið út yfir kant að framan).

ÚTAUKNING-2 (fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA Á ERMI:
Aukið út um 1 l á eftir/á undan A.2 á ermi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri á hvorri ermi).
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat.

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út fyrst 2 l á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki (= alls 8 l fleiri), aukið síðan út um 1 l á undan/á eftir A.2 á fram- og bakstykki (= alls 4 l fleiri).

Aukið út 2 l á undan A.2 þannig:
Prjónið þar til 1 l er eftir á undan A.2, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út 2 l á eftir A.2 þannig:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
ATH: Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður næst A.2 br svo það myndist gat. Aðrir uppslættir eru prjónaðir snúnir br svo að ekki myndist gat.
Aukið út 1 l á undan/á eftir A.2 þannig: Aukið út 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br svo það myndist gat.

ÚRTAKA-1 (fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa), takið næstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 l færri í umf).

ÚRTAKA-2 (ermi):
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan A.2, prjónið 2 l slétt saman, A.2, takið næstu l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þ.e.a.s. kantur að framan í lok umf séð frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrri hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti og meðfram kanti að framan):
STÆRÐ S: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38 og 47 cm.
STÆRÐ L: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm.

AFFELLING:
Ef affellingarkanturinn verður of stífur þá er fellt af með ½ nr grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 97-99-103-109-111-117 l (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út 17-19-19-25-27-25 l jafnt yfir í síðustu umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING-1 = 114-118-122-134-138-142 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5.
Prjónið nú upphækkun í sléttprjóni aftan í hnakka þannig:
Prjónið fyrstu 61-63-67-73-77-79 l, snúið við og prjónið 16-16-20-20-24-24 l til baka, snúið við og prjónið 20-20-24-24-28-28 l, snúið við og prjónið 24-24-28-28-32-32 l, snúið við og prjónið út umf. Prjónið síðan 1 umf br með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT!
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, A.1 (= 4 l) 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 l br, 1-2-2-1-2-3 l sl (= vinstra framstykki), A.2 (= 8 l í 1. umf), 14-14-16-16-16-16 l sl (= ermi), A.2, 1-2-2-1-2-3 l sl, 1 l br, A.1 5-5-5-7-7-7 sinnum, 1 l br, 1-2-2-1-2-3 l sl, (= bakstykki) A.2, 14-14-16-16-16-16 l sl (= ermi), A.2, 1-2-2-1-2-3 l sl, 1 l br, A.1 2-2-2-3-3-3 sinnum, 1 l br, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu á sama hátt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI og LASKALÍNA Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er út mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki.
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Aukið út um 2 l í annarri hverri umf 4-4-5-6-7-9 sinnum og 1 l í annarri hverri umf 11-14-14-14-15-14 sinnum (= alls 15-18-19-20-22-23 sinnum).
ERMAR:
Aukið svona út í annarri hverri umf alls 15-18-19-20-22-23 sinnum.

Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 250-278-294-318-342-362 l í umf. Nú er prjónað frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 38-42-44-49-53-57 l (= hægra framstykki), setjið næstu 52-58-62-64-68-70 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið næstu 70-78-82-92-100-108 l (= bakstykki), setjið næstu 52-58-62-64-68-70 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið þær 38-42-44-49-53-57 l sem eftir eru (= vinstra framstykki). Stykkið mælist ca 15-17-18-19-21-22 cm meðfram kanti að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 158-174-186-206-226-246 l fyrir fram- og bakstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og setjið eitt prjónamerki í miðju á nýju l undir ermi í hvorri hlið.
Fækkið nú l í hvorri hlið og í mynstri þannig:
ÚRTAKA Á HLIÐUM:
Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin á hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA-1 (fram- og bakstykki). Fækkið l svona í 8. hverri umf alls 2 sinnum = alls 8 l færri.
ÚRTAKA Í MYNSTRI:
Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l br með því að prjóna 2 l br saman í hverri einingu með br á milli 2 kaðla = 6-6-6-10-10-10 l færri (þ.e.a.s. fækkið um 1-1-1-2-2-2 l á hvoru framstykki og 4-4-4-6-6-6 l á bakstykki).

Þegar öll úrtaka hefur verið gerð eru 144-160-172-188-208-228 l í umf. Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm aukið út um 1 l br í hverri einingu með br sem l var fækkað í – LESIÐ ÚTAUKNING-2 (= 6-6-6-10-10-10 l fleiri) = 150-166-178-198-218-238 l. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l br hvoru megin við hvern kaðal (= 18-18-18-26-26-26 l fleiri í umf). Aukið svona út í 10.-10.-10.-14.-14.-14. hverri umf (= 5.-5.-5.-7.-7.-7. hverri umf frá réttu) alls 7-7-7-5-5-5 sinnum = 276-292-304-328-348-368 l. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar er haldið áfram fram og til baka í mynstri. Þegar stykkið mælist 56-56-57-57-57-57 cm – passið uppá að endað sé eftir 4. eða 8. umf í mynstri og prjónið 2 umf sléttprjón innan við 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af – LESIÐ AFFELLING.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Setjið 52-58-62-64-68-70 l af þræði á sokkaprjóna nr 5 og prjónið upp 1 l í hverja af 6-6-8-8-10-12 nýju l sem fitjaðar voru upp undir ermum = 58-64-70-72-78-82 l. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!
Prjónið A.2 (= 8 l í 1. umf) mitt undir ermi (þ.e.a.s. það eru 4 l í A.2 hvoru megin við prjónamerkin), þær l sem eftir eru í umf eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við A.2 – LESIÐ ÚRTAKA-2 (ermi). Fækkið l svona í 8.-6.-5.-4.-4.-4. hverri umf alls 11-14-15-19-18-19 sinnum = 36-36-40-40-42-44 l. Þegar ermin mælist 48-47-46-45-44-44 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.10.2016
FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 158-174-186-206-226-246 l fyrir fram- og bakstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður og setjið eitt prjónamerki í miðju á nýju l undir ermi á hvorri hlið.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = prjónið 3 l sl, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að l lyggi utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
symbols = Í þessari umf er prjónað sl á milli kaðla (þ.e.a.s. það verður garðaprjón í þessari umf). Þetta er gert til að áferðamynstrið dragist ekki of mikið saman.
symbols = þessi l hefur verið felld af, hoppið yfir þessa rúðu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 171-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag Lena wrote:

Så, är det 2 A2 på insidan av ärmen? Eller är det 1? Om bara 1, var finns den andra? Att ni svarar på hur jag ska öka hjälper inte då jag redan ökat 20 gånger.

04.05.2023 - 16:02

DROPS Design answered:

Hei Lena. Når du strikker bærestykket strikkes A.2A 4 steder, på hver side av raglan, MEN når du strikker ermene strikkes A.2A kun 1 gang på undersiden av ermet. Se evnt bildet av modellen der modellen står med ryggen til. Da ser du 1 stk A.2A som er strikket langs innersiden av ermet hele veien. A.2 strikkes midt under ermet (dvs det er 4 masker av A.2 på hver side av merket du har satt under ermet), de resterende maskene på omgangen strikkes i glattstrikk. mvh DROPS Design

08.05.2023 - 09:14

country flag Lena wrote:

Hej! Fått ihop antalet maskor efter ett antal försök. Nu undrar jag, jag ska lägga ärmarna på lina och sticka vidare. Är A2 på båda sidor del av en ärm? Jag har ökat exakt enligt mönstret och då är bara A2 på framsidan av ärmarna med. Den som är på baksidan nämns inte

02.05.2023 - 19:19

DROPS Design answered:

Hej Lena, jo du strikker A.2 i hver raglanovergang og tager ud på hver side af A.2 i alle 4 overgange. :)

04.05.2023 - 12:03

country flag Lena wrote:

Hej! I mönstret ska det vara 138 maskor efter ökning. Men från varv fem är det 118 maskor i mönstret i XL. Hur ska man lösa det?

19.04.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Hei Lena. Litt usikker på hvor du er i oppskriften. I str. XL skal du før og etter forhøyningen ha 134 masker. Så strikker du etter forklaringen ( = 4 stolpe-m rille, 1 vr, A.1 3 ganger, 1 vr, 1 r , A.2, 16 m rett, A.2, 1 r, 1 vr, A.1 7 ganger, 1 vr, 1 r, A.2, 16 m rett, A.2, 1 r, 1 vr, A.1 3 ganger, 1 vr, 4 stolpe-m rille =det er strikket over 134 masker). Strikk 1 p tilbake fra vrangen på samme måte. Nå starter økningen til RAGLAN BOL og RAGLAN ERME – les forklaringen i i oppskriften. NB: Det økes forskjellig på ermer og bol. mvh DROPS Design

24.04.2023 - 10:39

country flag Bonnie wrote:

In the 171-14 pattern, there is A1 and A2, A1 is 12 rows and A2 is 8 rows, why do they not coordinate? After you cast on and do the garter stitch rows and increase, you do a the first row with A1and A2 in it, it then says work 1 row from WS the same way, so what do you do when you get to the YO .

14.04.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Dear Bonnie, they are different patterns, applied on different sections of the garment so they don't need to match in the number of rows. The yarn overs on each side of the raglan stitches are simply purled (not twisted, there should be a hole). Happy knitting!

16.04.2023 - 19:55

country flag Janice wrote:

Please explain A.1 and A.2 171-14\\r\\nPlus said equals 4 stitches and 8 stitches.

22.02.2023 - 00:52

DROPS Design answered:

See answer et video linked below in previous answer - A.1 should be counted over 4 sts even when there are 5 sts - A.2 should be counted as 8 sts even when there are 9 sts. the yarn over made for the small cable doesn't count as a stitch when counting the stitches on the row. Happy knitting!

22.02.2023 - 08:49

country flag Janice wrote:

Please explain A. and A.2

22.02.2023 - 00:45

DROPS Design answered:

Dear Janice, this video shows how to work this cable over 3 stitches - in A.1 you will purl 1 stitch on each side of these 2/3 sts and in A.2 you will work K1, P2, the cable, P2, K1 (seen from RS). Hope it can help you. Happy knitting!

22.02.2023 - 08:47

country flag Sabine Schrodt wrote:

Ich habe nun den Rumpfteil mit 4 Reihen kraus beendet und locker abgekettet. Beim Tragen der Jacke klappen sich die kraus gestrickten Reihen nach oben um, was leider nicht schön aussieht. Haben Sie einen Tipp?

08.10.2022 - 18:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schrodt, Sie können die Jacke mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen. Viel Spaß beim stricken!

10.10.2022 - 09:00

country flag Sabine Schrodt wrote:

Vielen Dank für Ihre Antwort, leider muss ich noch einmal nachfragen: wie Sie geschrieben haben, gibt es 4 x A.2. Bei welchem A.2 nehme ich 5 x 2 und 14 x 1 M zu (bei dem 1. , 2., 3. oder 4. A.2) und bei welchem A.2 nehme ich 19 x 1 Masche zu (bei dem 1., 2., 3. oder 4. A.2)? Nochmals danke!

21.09.2022 - 20:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schrodt, für das linke Vorderteil nehmen Sie vor der 1. A.2 zu, für die 1. Ärmel nehmen Sie nach der 1. A.2 + vor der 2. A.2 zu, für das Rückenteil nehmen Sie nach der 2. A.2 + vor der 3. A.2 zu; für die 2. Ärmel nehmen Sie nach der 3. A.2 + vor der 4. A.2 und für das linke Vorderteil nehmen Sie nach der 4. A.2. Viel Spaß beim stricken!

22.09.2022 - 09:40

country flag Sabine Schrodt wrote:

Hallo, auch ich trenne zum 2. Mal auf. Ich lese die Anleitung, dass der linke Ärmel mit A.2 beginnt und 16 M re folgen bei Größe L, dann beginnt das Rückteil mit A2. Der rechte Ärmel beginnt mit A.2 und 16 M folgend. Das rechte Vorderteil beginnt mit A.2, somit beihaltet das linke Vorderteil kein A.2. Daher frage ich mich, bei welchen A.2 nehme ich 5 x 2 Maschen zu und dann 14 x 1 und wo nehme ich "nur 19 x 1 zu. Ich komme nicht auf 294 M nach allen Zunahmen. Danke für Ihre Hilfe!

18.09.2022 - 18:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schrodt, A.2 gilt für die Raglanlinien, dh innerhalb die Blenden-Maschen + 1 Masche links stricken Sie A.1 und bei jeder Raglanlinie stricken Sie jeweils A.2 (es sind 4 x A.2 insgesamt) - Für Raglan nehmen Sie wie unter RAGLANZUNAHMEN ÄRMEL: und RAGLANZUNAHMEN RUMPFTEIL: zu, es sind so am Ende li. Vorderteil = vor A.2 - am Anfang Ärmel/Rückenteil = nach A.2 + am Ende Ärmel/Rückenteil = vor A.2 - am Anfang re. Vorderteil = nach A.2 zugenommen. Viel Spaß beim stricken!

19.09.2022 - 10:31

country flag Tamara wrote:

Goedemorgen. Ik begrijp het tweede stukje niet van de pas. Er staat dat ik 61 steken moet breien, daarna omdraaien en 16 steken breien, weer omdraaien en 20 steken breien. Ik snap dit niet. Ik denk dat dan terug moet breien over de gebreide steken, maar dat klinkt ook niet logisch. Er staat als laatst: brei de laatste ... steken. Kunt u dit voor mij uitleggen? Groeten Tamara

24.08.2022 - 09:54

DROPS Design answered:

Dag Tamara,

Ja, dat klopt dat je terug moet breien over de gebreide steken. Je breit dus eerst 61 steken (dus je breit de naald niet helemaal uit), dan keer je het werk en brei je terug. Dit doe je nog een aantal keren zoals aangegeven. Hierdoor krijg je een verhoging aan de achterkant van het werk.

31.08.2022 - 14:12