DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Children 27-5
DROPS Design: Mynstur nr li-009-bn
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152
Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
250-250-300-350-400 g nr 0619, beige
100-100-100-100-150 g nr 0100, natur
50-50-50-50-50 g nr 6273, kirsuberjarauður
50-50-50-50-50 g nr 2923, gulur
50-50-50-50-50 g nr 9018, sægrænn
50-50-50-50-50 g nr 7219, pistasía

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt er mjög mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 23 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA, NR 511: 6-6-7-7-7 st
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist saman.
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna ofan frá og niður.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 84-88-92-96-100 l á stutta hringprjóna nr 3 með beige. 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3-3-4-4-5 cm (= kantur í hálsmáli). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 81-87-93-101-108 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 40-43-46-50-54 l (= miðja að aftan). Prjónið síðan upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, snúið við og haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað hefur verið yfir 24-24-32-32-40 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið sl út umf, prjónið 1 umf br til baka. Prjónið síðan þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.1 (= 13-14-15-14-15 mynstureiningar á breidd) endið á fyrstu l í mynstri og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð! LESIÐ LEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.1 er lokið eru 211-227-243-255-273 l á prjóni. Prjónið 0-1-2-0-1 cm með beige. Stykkið mælist nú ca 15-16-17-17-18 cm fyrir miðju að framan (mælt án stroffs í hálsi). Stykkið er nú prjónað með beige og sléttprjóni. Fyrst er prjónuð 1 umf JAFNFRAMT er aukið út um 3-3-3-11-9 l jafnt yfir = 214-230-246-266-282 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 62-66-70-74-78 l (= bakstykki), setjið næstu 44-48-52-58-62 l á þráð fyrir ermi (án þess að prjóna þær fyrst), fitjið upp 6 nýjar l, prjónið 32-34-36-38-40 l (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 138-146-154-162-170 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýju 6 l sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 l garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin (4 l fleiri). Aukið út með 7-9-10-12-13 cm millibili alls 3 sinnum = 150-158-166-174-182 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 19-23-26-29-32 cm. Prjónið A.2 með eina kantlykkju í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 14 l jafnt yfir = 164-172-180-188-196 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan þannig: 1 l garðaprjón, 2 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 l garðaprjón. Prjónið stroff í 3 cm. Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið l af öðrum þræðinum á sokkaprjóna nr 4, fitjið að auki upp 6 l mitt undir ermi (setjið 1 prjónamerki mitt í þessa l) = 50-54-58-64-68 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið úrtöku með 4½-3½-4-3-3½ cm millibili alls 5-7-7-10-10 sinnum = 40-40-44-44-48 l. Þegar ermin mælist 18-23-27-30-34 cm, prjónið A.2, skiptið síðan yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið alveg eins yfir l af þræði í hinni hliðinni.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu ca 84 til 118 l meðfram hægra framstykki innan við 1 kantlykkju á hringprjóna nr 3 með beige. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 102-110-118-130-142 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: * 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið með 2 l sl og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-7 hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = prjónið 2 l slétt saman og sláið uppá prjóninn (fallegast er að fella af í 2 l br séð frá réttu).
Efsta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá kanti í hálsi og neðsta 8-8-10-10-10 cm frá neðri kanti. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kanturinn mælist 3 cm. Endurtakið meðfram vinstra framstykki, nema ekki fella af fyrir hnappagötum á vinstri kanti að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = natur
symbols = beige
symbols = kirsuberjarauður
symbols = sægrænn
symbols = gulur
symbols = pistasíu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo að ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Prairie Fairy

Terkel, Norway

Kaylee Prairie Fairy

Kate, Australia

S27-5 Prairie Fairy

perbath, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 27-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Susanne wrote:

Er lige startet på ryg- og forstykke. Der står i mønstret at jeg skal fortsætte i glatstrikning og "2 pinde retstrikning i hver side" - hvordan skal jeg forstå 2p retstrik i hver side ?

14.01.2019 - 17:17

DROPS Design answered:

Hei Susanne. Her skal det stå 1 kantmakse i retstrik i hver side. Vi skal få korrigerte dette snarest. God fornøyelse

16.01.2019 - 15:22

country flag Birgitte wrote:

Skal man blive ved med at tage ud i bærestykket? Jeg kan ikke få maskeantallet til at passe med de 243 m. når man starter med 92 (og tager ialt 64 ud), hvor står der hvordan man "anskaffer" sig de sidste masker i bærestykket?

31.12.2018 - 11:06

country flag Sara wrote:

Vill gärna ha svar på svenska.

26.10.2018 - 12:04

country flag Sara wrote:

Den första maskan på andra varvet är ju svart, inte vit som ni skriver.

26.10.2018 - 12:01

DROPS Design answered:

Hej Sara, jeg kan inte hitta i mönstret att vi skriver svart eller vit.... men när du stickar diagrammet avslutar du efter 1:a maskan i diagrammet i andra sidan, så mönstret blir ens på varje sida om mitt fram. Lycka till :)

30.10.2018 - 10:49

country flag Sara wrote:

Förstår inte hur man läser diagrammet A1. Jag stickar oket och ska börja med diagrammet. Första varvet blir helvitt från rätsidan och andra ska, om jag tolkar det rätt, börja med en svart "ruta" och fortsätta vit, svart, vit och avslutas med svart (bortsett från kantm) eftersom det står att jag ska avsluta varvet med första m i diagrammet. Men avslutar jag med svart blir det ju fel mönster eftersom nästa varv börjar med svart.

25.10.2018 - 22:47

DROPS Design answered:

Hei Sara. Du leser diagrammt på vanlig måte: fra nederst til øverst, fra høyre mot venstre. Fra vrangen leses det fra venstre mot høyre. Det stemmer at første omgang i A.1 er helt hvit, og du har strikket slik: 1 kantmaske, 13-14-15-14-15 rapporter A.1, avsluttet med første masken i diagrammet og 1 kantmaske. Når du så snur arbeidet strikker du 1 kantamske, den første masken av A.1 (= hvit rute), 13-14-15-14-15 rapporter A.1 (A.1 leses fra venstre mot høyre - første maske = sort rute), 1 kantmaske. Den siste masken på 2 omg (før kantmasken) er derfor hvit. God fornøyelse.

26.10.2018 - 11:30

country flag Daniela Becherer wrote:

Hallo, ich stricke die Jacke in der Größe 9/10 Jahre, leider habe ich im Muster nur 8 1/2 Pinke Blumen. Sprich vorne im sichtfeld sieht man diese 1/2blume. Das sieht nicht hübsch aus 😔. Was habe ich falsch gemacht??? Vielen Dank für eure Hilfe.

25.08.2018 - 22:22

country flag Janneke Besjes wrote:

Hallo, bij het breien van het lijf, moet er gemeerderd worden, 3x in totaal. voor mijn maat staat daar na elke 10cm (3x10cm plus begin 3 cm =33 cm) maar in het patroon staat dat je door moet breien tot 26 cm..Dit snap ik niet. is het 33 of 26 cm? of betekent het dat je bij 26 cm A2 moet breien en daarna ook weer meerderen? hoop dat u me kan helpen , met vriendelijke groet, janneke

02.03.2018 - 19:19

DROPS Design answered:

Hoi Janneke, Als je op een hoogte van 3 cm de eerste meerdering doet, 10 cm later de 2e meerdering en nog 10 cm later de 3e meerdering, kom je totaal op 23 cm na de laatste meerdering. Dan rest er nog 3 cm tot je op 26 bent.

04.03.2018 - 19:12

country flag Eugenia wrote:

Hallo! Wenn ich die verkürzten Reihen mit braun stricke .. beginnt nach dem Rippenmuster nicht sofort das bunte Muster wie auf den Bildern .. ist das richtig so? Oder wäre es besser die verkürzten Reihen im Rippenmuster zu stricken? LG

01.02.2018 - 20:49

DROPS Design answered:

Liebe Eugenia, wahrscheinlich können Sie die verkürzten Reihen auch im Rippenmuster stricken. Viel Spaß beim stricken!

02.02.2018 - 08:42

country flag Selina wrote:

Guten Abend! Ich hätte noch eine Frage. Wird das Diagramm immer hin und her gelesen oder nur von rechts? Also jede Reihe wird von rechts gelesen? Oder immer abwechselnd?

05.08.2017 - 22:40

DROPS Design answered:

Liebe Selina, die Hinreihen werden rechts nach links gelesen und die Rückreihen werden links nach rechts gelesen. Viel Spaß beim stricken!

07.08.2017 - 17:43

country flag Selina Konrad wrote:

Hallo liebes Drops Team! Ich habe die gleiche Frage wie Jule. Also ich habe jetzt die zweite Reihe von Diagramm A1 gestrickt und habe mit der Farbe ocker und mit einer randmasche in Kraus rechts aufgehört. Wenn ich jetzt in Reihe drei eine randmasche in Kraus rechts mache und dann mit ocker anfange, ist ja ocker über ocker und weiß über weiß. Das ist dann nicht versetzt. Muss man am Anfang und am Ende eine randmasche in Kraus rechts Stricken? Liebe Grüße

05.08.2017 - 13:36

DROPS Design answered:

Liebe Frau Konrad, das Diagram lesen Sie von dem unteren Ecke an der rechten Seite (Vorderseite), und dann rechts nach links bei den Hinreihen und links nach rechts bei den Rückreihen. In den 2 größeren Größe stricken Sie 1 Reihe mit Natur, 1 Reihe mit Oker, 1 Reihe mit Natur, 1 Reihe mit Oker, usw. Viel Spaß beim stricken!

07.08.2017 - 17:47