DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Shades of Grey Cardigan

Prjónuð peysa með 2 þráðum úr DROPS Alpaca með hringlaga berustykki, röndum og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1325
DROPS Design: Mynstur nr z-745
Garnflokkur A + A eða C
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 g nr 100, natur
100-100-100-100-150-150 g nr 9020, ljós perlugrár
100-100-100-150-150-150 g nr 501, ljós grár
150-200-200-200-250-250 g nr 517, milligrár
50-50-100-100-100-100 g nr 506, dökk grár
ATH: Ef flíkin er prjónuð með einum lit þarf 450-500-550-600-650-700 g með 2 þráðum Alpaca.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l x 22 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni með 2 þráðum Alpaca verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 522: 7 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10890.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN:
ATH! Í hvert skipti sem snúið er við mitt í stykki er 1. l tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram.
Prjónið upphækkun í sléttprjóni í hnakka með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 4 l sl (= kantur að framan), prjónið br yfir næstu 52-54-58-60-62-69 l, setjið eitt prjónamerki þannig (= miðja að aftan), haldið síðan áfram yfir næstu 8-9-10-11-11-12 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16-18-20-22-22-24 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 29-31-33-35-35-37 l, snúið við, herðið á þræði og prjónið 50-52-54-56-56-58, snúið við, herðið á þræði og prjónið 58-60-62-64-64-66 l. Snúið við og prjónið br þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 4 l sl.

RENDUR:
Allar rendur eru prjónaðar með 2 þráðum Alpaca. Þegar eftir er ca 1 cm í rönd 1-5 er prjónuð GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að neðan.
RÖND 1: 9-9-9-10-10-10 cm með 2 þráðum natur
RÖND 2: 9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði natur + 1 þræði ljós perlugrár.
RÖND 3: 9-9-10-10-10-11 cm með 1 þræði ljós perlugrár + 1 þræði ljós grár.
RÖND 4: 9-10-10-10-11-11 cm með 1 þræði ljós grár + 1 þræði milligrár
RÖND 5: 9-10-10-10-11-11 cm með 2 þráðum milligrár.
RÖND 6: 1 þræði milligrár + 1 þræði dökk grár prjónað til loka.

GATAUMFERÐ:
Þegar eftir er ca 1 cm á rönd 1-5 er prjónuð ein gataumferð með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn*, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, 4 kantlykkjur í garðaprjóni. ATH: Ef eftir er 1 l í umf á undan síðustu 4 kantlykkjum að framan er l prjónuð slétt. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður br svo að það myndist gat.
ATH: Þegar prjónuð er gataumferð á ermum er stykkið prjónað í hring. Prjónið þá uppsláttinn slétt í næstu umf, svo það myndist gat!

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf (t.d. 96 l) mínus kanta að framan (t.d. 8 l) og deilið þessum l með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 16 l) = 5,5. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út um 1 l til skiptis í 5. og 6. hverja l, ekki er aukið út yfir kant að framan.

ÚTAUKNING-2 (berustykki):
Aukið út frá réttu þannig: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br, svo ekki myndist gat.
Aukið út frá röngu þannig: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl, svo ekki myndist gat.
Aukið út til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki séð frá réttu! Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er aukið út hægra megin við öll prjónamerkin, í annað skiptið er aukið út vinstra megin við öll prjónamerkin o.s.frv.

ÚTAUKNING-3 (fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónið 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ATH: Stillið af úrtöku þannig að hún komi ekki yfir gataumferð.

AFFELLING:
Til að affellingarkanturinn verði ekki of stífur er fellt af með ½ nr grófari prjónum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). Fellið af frá réttu þegar 3 l eru eftir í umf þannig: Sláið1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu l slétt saman og prjónið síðustu l slétt.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir 1. hnappagatinu þegar stykkið mælist 2 cm (mælt meðfram kanti að framan). Fellið síðan af fyrir næstu 5 hnappagötum í sömu umf og gataumferðin var prjónuð. Fellið af fyrir 7. hnappagatinu (= síðasta hnappagatinu) þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 96-100-103-107-111-117 l (meðtaldar 4 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) með 2 þráðum í litnum natur á hringprjóna nr 4,5.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-16-21-21-21-23 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir), ekki er aukið út yfir kanta að framan = 112-116-124-128-132-140 l. Skiptið yfir í hringprjóna nr 5.
Til þess að flíkin passi betur er prjónuð UPPHÆKKUN AÐ AFTAN – sjá útskýringu að ofan, í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og setjið 6 prjónamerki þannig: Prjónið 13-13-14-14-15-15 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 18-18-20-20-22-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið 17-18-19-20-20-22 l, setjið eitt prjónamerki, prjónið þær 13-13-14-14-15-15 l sem eftir eru. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Haldið áfram fram og til baka með RENDUR og GATAUMFERÐ – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki - LESIÐ ÚTAUKNING-2 (berustykki). Aukið svona út í hverri umf 13-17-19-20-21-21 sinnum og í annarri hverri umf 8-8-8-10-12-14 sinnum (= alls 21-25-27-30-33-35 sinnum) = 238-266-286-308-330-350 l. Prjónið 1 umf frá réttu þar sem aukið er út um 2-4-2-2-4-2 l jafnt yfir = 240-270-288-310-334-352 l. Prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 38-42-44-48-53-57 l (= vinstra framstykki), setjið næstu 48-55-60-63-65-66 l á band (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið næstu 68-76-80-88-98-106 l (= bakstykki), setjið næstu 48-55-60-63-65-66 l á band (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-12 l undir ermi, prjónið næstu 38-42-44-48-53-57 l sem eftir eru (= hægra framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 156-172-184-200-224-244 l fyrir fram- og bakstykki.
Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju 6-6-8-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar l í hvorri hlið). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram fram og til baka með 4 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið, rendur, sléttprjón og gataumferð eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið l svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 140-156-168-184-208-228 l. Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-16-16 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING-3 (fram- og bakstykki). Aukið svona út með 2 cm millibili alls 7 sinnum = 168-184-196-212-236-256 l. Þegar stykkið mælist 39-39-40-40-40-40 cm skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af – LESIÐ AFFELLING. Stykkið mælist alls 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5 = 48-55-60-63-65-66 l. Prjónið upp 1 l í hverja af 6-6-8-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp undir ermi, setjið eitt prjónamerki mitt í þessa l (= 3-3-4-4-5-6 nýjar l hvoru megin við prjónamerki) = 54-61-68-71-75-78 l. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, rendur og gataumferð eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi. Fellið svona af með ca 4-3-2-2-2-2 cm millibili alls 9-12-15-15-16-17 sinnum = 36-37-38-41-43-44 l. JAFNFRAMT í stærð S, M og L er 3.,4. og 5. röndin prjónuð 2-2-1 cm lengri en á fram- og bakstykki (þetta er gert til að síðasta röndin verði ekki mikið lengri en hinar).
Í stærð XL, XXL og XXXL eru rendur prjónaðar á sama hátt og á fram- og bakstykki.
Prjónið 6. röndina þar til stykkið mælist 46-45-44-42-41-39 cm:
Prjónið nú gataumferð. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.01.2017
BERUSTYKKI: ...Prjónið 1 umf frá réttu þar sem aukið er út um 2-4-2-2-4-2 l jafnt yfir = 240-270-288-310-334-352 l. Prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 38-42-44-48-53-57 l.
FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 156-172-184-200-224-244 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju 6-6-8-8-10-12 l sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi (= 3-3-4-4-5-6 nýjar l á hvorri hlið). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið síðan áfram fram og til baka með 4 kantlykkjur við miðju að framan á hvorri hlið, rendur, sléttprjón og gataumferð eins og áður.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1325

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Patty Walk wrote:

What are the bust measurements for each size of this sweater pattern?

16.04.2024 - 20:38

DROPS Design answered:

Dear Patty, you can find all the relevant measurments of the sweater on the schematic drawing at the bottom of the pattern. The measurements are given in cm's. We suggest, you take a similar sweater that fits the intented wearer and compare. Happy Crafting!

16.04.2024 - 21:31

country flag Kathy Rogers wrote:

I have followed the directions exactly a written and the yoke increases do no work out. Having the three sections at the back and increasing as directed makes the back huge! and much larger than the front.

06.03.2021 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rogers, we are sorry to hear you are having some worries, do you want us to help you? Please let us know which size you are working on so that we can help you to understand how to work and increase for the yoke. Happy knitting!

08.03.2021 - 09:55

country flag Donica wrote:

I previously posted as a comment. My question is: can this pattern be knit with a single strand of alpaka yarn to create a lighter weight sweater? My understanding is that this sweater is heavy and made to be worn outdoors.

30.08.2018 - 06:02

DROPS Design answered:

Hi Donica, If you wish to use a lighter garn you will have to work out the knitting tension and then adjust the number of rows and stitches on a row so that the piece has the right measurements. It takes some work, but can be done! Happy knitting!

30.08.2018 - 08:18

country flag Donica wrote:

I am told that alpak a yarn knit with double strands will make a very warm sweater. I have the yarn in this array of gray but wish the sweater to be a lighter weight to be worn indoors as part of an outfit. I love the pattern. Can I knit this sweater with a single strand of each color? How would I convert?

30.08.2018 - 05:48

DROPS Design answered:

Dear Donica, we use here 2 strands to get smoother stripes. You can use instead of 2 strands yarn group A 1 strand yarn group C - read more about alternatives here. Happy knitting!

06.09.2018 - 09:56

country flag A HERVE wrote:

Bonjour, Pour les augmentations 2 (empiècement), faut-il augmenter 1 maille sur les rangs endroits uniquement ou 1m sur l'endroit et 1m sur l'envers? Merci

23.07.2018 - 13:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Herve, on augmente pour l'empiècement d'abord tous les rangs (et non tours, correction faite), puis tous les 2 rangs, quand on augmente tous les rangs, on va augmenter alternativement sur l'endroit et sur l'envers, quand on augmente tous les 2 rangs, on augmente seulement sur les rangs sur l'endroit. Bon tricot!

23.07.2018 - 14:40

country flag A HERVE wrote:

Lorsque vous parlez de TOURS pour les augmentations , page 5,est_ce qu' un tour signifie un aller_retour,c'est à dire 2 rangs?1 jeté sur l'endroit tricoté en maille torse sur l'envers? Merci pour votre réponse

16.04.2018 - 10:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hervé, l'empiècement se tricote en allers et retours, quand on augmente, on va tricoter en rangs et non en tours (seules les manches se tricotent en rond ensuite). La correction sera bientôt faite, merci. Bon tricot!

16.04.2018 - 12:18

country flag A HERVE wrote:

Lorsque pour les augmentations p5 vous parlrez de TOURS , est-ce que un tour =un aller retour? Jeté à l'endroit et maille torse tricotée sur l'envers Merci

16.04.2018 - 10:28

country flag Iwona wrote:

Dziękuję!

30.08.2017 - 16:55

country flag Iwona wrote:

Mam też problem z dołem swetra, francuski ściągacz wywija się do góry, co robię żle?

28.08.2017 - 22:11

DROPS Design answered:

Witaj, po zakończeniu pracy należy namoczyć lekko sweter i blokować (naciągnąć zwijający się brzeg i przypiąć szpilkami do materaca lub dywanu i suszyć rozłożony na płasko). To powinno pomóc. POWODZENIA!

29.08.2017 - 18:34

country flag Iwona wrote:

Problem mam w tym miejscu karczka ''Dodawać tak samo 13-17-19-20-21-21 razy w każdym okrążeniu, dalej 8-8-8-10-12-14 razy co 2 okr'', czyli jak dodawać?

28.08.2017 - 22:08

DROPS Design answered:

Witaj Iwono, na karczku dodajemy po 1 oczku w miejscu każdego markera – PATRZ DODAWANIE OCZEK-2 (karczek). Np. w rozmiarze S dodajemy oczka 13 razy w każdym rzędzie (tj. i na prawej i na lewej stronie robótki, w sumie będziemy dodawać oczka na 13 rzędach), dalej dodajemy oczka 8 razy co 2 rzędy (tylko na prawej stronie robótki, tj. 16 kolejnych rzędów) = w sumie dodajemy oczka 21 razy. POWODZENIA!

29.08.2017 - 18:32