DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Jackson

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma með einföldum kaðli, áferðamynstri og sjalkraga. Stærð XS - XXXL.

DROPS 174-1
DROPS Design: Mynstur nr u-805
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
750-850-900-1000-1100-1200 g litur nr 21, milligrár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
DROPS HORNATALA NR 538: 6 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR (á við um kanta að framan):
Til að koma í veg fyrir að kantar að framan dragist saman á hæðina eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant að framan með jöfnu millibili þannig: * Byrjið frá miðju að framan og prjónið sl yfir ystu 10 l (= kantur að framan), snúið stykkinu, takið 1. l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið sl út umf *, endurtakið frá *-* eftir ca 10. hverja umf í stykki.

ÚTAUKNING-1 (á við um sjalkraga):
Aukið út um 1 l í næst ystu l við miðju að framan með því að prjóna sl fram og til baka í sömu l.

ÚTAUKNING-2 (á við um miðju undir ermi):
Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í mitt undir ermi.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat. Útauknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur A.3.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið l innan við 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + útauknar lykkjur fyrir sjalkraga.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l á undan kant að framan + kraga þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið l á eftir kraga + kant að framan þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu á vinstri kant að framan (þegar flíkin er mátuð). 1 hnappagat = Prjónið 6 kantlykkjur að framan eins og áður, steypið næst ystu l á hægri prjón yfir síðustu l á hægri prjón, prjónið 1 l sl, steypið næst ystu l á hægri prjón yfir ystu l á hægri prjón (nú hafa verið felldar af 2 l), prjónið 3 síðustu l slétt. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð XS/S: 2, 12, 21, 31, 40 og 50 cm.
Stærð M: 2, 12, 21, 31, 41 og 51 cm.
Stærð L: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm.
Stærð XL: 3, 13, 23, 33, 43 og 53 cm.
Stærð XXL: 3, 13, 23, 33, 43 og 54 cm.
Stærð XXXL: 3, 13, 24, 34, 45 og 55 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp, frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 243-271-299-327-355-383 l (meðtaldar 10 kantlykkjur við miðu að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 1 umf br frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1A (= 28 l), * 3 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* alls 11-13-15-17-19-21 sinnum, 3 l sl, 7 l br (= miðja að aftan), * 3 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* alls 11-13-15-17-19-21 sinnum, 3 l sl, A.2A (= 28 l) og 10 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 8 cm – munið eftir HNAPPAGAT í vinstri kant að framan – sjá útskýringu að ofan og lesið LEIÐBEININGAR! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1B (= 28 l sem fækkaðar voru í 25 l), * 3 l sl, 2 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* alls 11-13-15-17-19-21 sinnum, 3 l sl, 2 l br saman, 3 l br, 2 l br saman, * 3 l sl, 2 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* alls 11-13-15-17-19-21 sinnum, 3 l sl, A.2B (= 28 l sem fækkaðar voru í 25 l) og 10 kantlykkjur að framan eins og áður = 213-237-261-285-309-333 l. Prjónið til baka frá röngu með garðaprjón yfir garðaprjón, br yfir br og sl yfir sl (A.1B og A.2B er prjónað eins og útskýrt er í mynstri). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: 10 kantlykkjur að framan eins og áður, A.4 (= 25 l), prjónið A.3A yfir næstu 72-84-96-108-120-132 l (= 12-14-16-18-20-22 mynstureiningar 6 l), prjónið A.3B (= 5 l), prjónið A.3C yfir næstu 66-78-90-102-114-126 l (= 11-13-15-17-19-21 mynstureiningar 6 l), prjónið A.5 (= 25 l) og endið með 10 kantlykkjum að framan eins og áður. Setjið 1 prjónamerki í 59.-65.-71.-77.-83.-89. l inn frá hvorri hlið (prjónamerki er staðsett í hliðum á fram- og bakstykki). Haldið svona áfram og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af l með prjónamerki í + 3 l hvoru megin við hana). Prjónið síðan fram- og bakstykki áfram hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 89-101-113-125-137-149 l. Haldið áfram með A.3 á bakstykki eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf i hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 0-0-2-5-5-7 sinnum og 1 l 2-2-4-4-4-6 sinnum = 85-97-97-97-109-109 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Fellið nú af miðju 23-27-27-27-29-29 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsi = 29-33-33-33-38-38 l eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm og fellið laust af. Endurtakið á hinni öxlinni.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 55-61-67-73-79-85 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2 umf eftir síðasta hnappagati á framstykki eru prjónaðar 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 10 kantlykkjur við miðju að framan (aðrar l í umf eru ekki prjónaðar). Prjónið nú yfir allar l í umf eins og áður. JAFNFRAMT er aukið út um 1 l fyrir sjalkraga við miðju að framan – LESIÐ ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umf alls 18-18-18-20-20-20 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-53-54-55-56-57 cm (nú hafa verið prjónaðir 2 cm eftir síðasta hnappagati), fækkið nú um 1 l við hálsmál við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið nú svona í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 10-12-12-12-13-13 sinnum og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 4 sinnum í öllum stærðum. Eftir allar útaukningar og úrtökur eru 57-61-61-63-68-68 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af síðustu 29-33-33-33-38-38 l á öxl = 28-28-28-30-30-30 l eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið áfram fram og til baka í garðaprjón yfir þessar l þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 18-18-18-20-20-20 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm innst þar sem stykkið er minnst (kraginn mælist ca 18-18-18-20-20-20 cm yst þar sem stykkið er breiðast). Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra, nema spegilmynd. ATH: Ekki er fellt af fyrir hnappagötum á hægir kant að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 10 l við miðju að framan er stillt af eftir vinstra framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 56-56-63-63-63-70 l á sokkaprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 1 umf slétt. Næsta umf er prjónuð þannig: * 3 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stykkið mælist 6 cm er næsta umf prjónuð þannig: * 3 l sl, 2 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48-48-54-54-54-60 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3A. setjið 1 prjónamerki í síðustu l í umf (þ.e.a.s. í l í garðaprjóni = mitt undir ermi), látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Aukið svona út alls 18-20-20-22-25-25 sinnum í stærð S: Í 7. hverri umf, í stærð M+L: Í 6. hverri umf, í stærð XL: Í 5. hverri umf, í stærð XXL: Til skiptis í 4. hverri og 5. hverri umf og í stærð XXXL: Í 4. hverri umf = 84-88-94-98-104-110 l. Þegar stykkið mælist 53-53-51-49-49-46 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri handvegs og breiðari axla), fellið af miðju 7 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af l með prjónamerki í + 3 l hvoru megin við hana).
Ermakúpan er nú prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT er fellt af í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1-1-2-3-3-4 sinnum og 1 l 2-2-3-3-3-6 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm í öllum stærðum, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og fellið af þær l sem eftir eru. Ermin mælist ca 60 cm í öllum stærðum.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið kragann saman við miðju að aftan – passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmál aftan við hnakka. Saumið ermar í. Saumið tölur í hægri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.12.2016
HNAPPAGAT:...Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Jackson

Julia, Israel

Jackson

Heike Mitteregger, Germany

Jackson

Diana Hendrickx, Belgium

Jackson

Adila At Yarnophilics, New Zealand

Jackson

Tina, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 174-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (204)

country flag Pia Spånghagenb wrote:

Hej Jag stickar hela kroppen. Jag förstår inte varför det ska vara 96 rapporter på ena sidan och 90 rapporter på andra sidan när jag har bytt till stickor stl 4? då blir ju ryggmaskorna inte mitt bak. Mönstret på A3A-A3B-A3C fungerar ju inte då heller. Hjälp mig. Tack Pia

25.01.2023 - 09:06

DROPS Design answered:

Hei Pia. Vi skal hjelpe deg så godt vi kan, men fint om du kan opplyse hvilken str. du strikker. mvh DROPS Design

30.01.2023 - 10:15

country flag Ayesha Naeem wrote:

I am doing Jackson jacket pattern please tell me after how many rows should I turn cable and in diagram A.3A ,the diagram is showing RS only or showing both sides RS and WSthanks

08.01.2023 - 16:27

DROPS Design answered:

Dear Mrs Naem, there is no cables to work in diagrams A.3 - in A.4 and A.5 work the first cable on the 3rd row (= 2nd row from RS) and repeat the cable on every 10th row. Diagrams show all rows, = the rows from RS as well as the rows from WS - read more about diagrams here. Happy knitting!

09.01.2023 - 10:22

country flag Polixas Christins wrote:

Eine Frage zum Schallkragen:wird nur einmal 1 Krausrippe nur über die ersten 10 Maschen gestrickt,oder 18mal vor jeder Zunahme?

24.10.2022 - 17:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Polixas, diese verkürzten Reihen werden nur einmal gestrickt, ie 2 Reihen nach dem letzten Knopfloch. Viel Spaß beim stricken!

25.10.2022 - 08:58

country flag Anitta Kivijärvi wrote:

Nämä lyhennetyt kerrokset...en oikein ymmärrä, mistä aloitetaan?

02.10.2022 - 14:58

country flag Andrea wrote:

Hallo, ich bin mir bei "Jackson " gerade unschlüssig. Ich stricke mit Karisma in Größe xl. Für die Ärmel sollen nach 77 Maschen von beiden Seite Markierer eingesetzt werden. Zähle ich inklusive der 10 Maschen für die Blende oder ohne ?

21.09.2022 - 19:34

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, ja genau, die 10 Maschen sind damit gezählt = es sind 131 Maschen für den Rückenteil zwischen den Markierungen. Viel Spaß beim stricken!

22.09.2022 - 09:37

country flag Gaby Meyer wrote:

Ich kann die Anleitung leider nicht ganz ausdrucken!?!? LG Gaby

04.06.2022 - 16:44

DROPS Design answered:

Liebe Gaby, schauen Sie mal die Druckereinstellungen, damit alle Seiten (7 hier) eingedruckt werden. Sie können auch mal versuchen, den Cache zu leeren, das hilft auch manchmal. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2022 - 08:18

country flag Suzanne Crosier wrote:

Hi I have few questions about this pattern. I'm work on body section and have gotten to point that I need to place 2 markers. I am making xxl so I place markers in stitch 83 it's states in garter stitches I don't believe there ate garter stitches in middle of body section. Then it states to continue pattern. Do I repeat last 2 rows? Knit over knit purl over purl then on next row follow charts A3A , A3B AND A3C and only do this row on right side.

20.04.2022 - 03:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Crosier, the markers should be in a stitch worked in garter stitch: the last stitch of the 8th repeat of A.3A after A.4 and the first stitch of the last 8th repeat before A.5. Work now following diagrams (with a cable in A.4 and A.5 as shown), when diagrams are done in height, repeat them from first row. Happy knitting!

20.04.2022 - 07:23

country flag Fennie Eefting wrote:

Ik begrijp de afwerking van de sjaalkraag niet. Welke gedeeltes moet ik aan elkaar naaien en hoe naai ik dit weer langs de hals. Ik heb verschillende mogelijkheden geprobeerd maar kom er niet uit.

04.04.2022 - 14:21

DROPS Design answered:

Dag Fennie,

Als het goed is heb je twee 'uitsteeksels' gebreid, eentje op het linker en eentje op het rechter voorpand. De korte kanten (dus de afkantranden) daarvan naai je eerst aan elkaar. Daarna naai je de kraag aan de halslijn vast.

08.04.2022 - 00:02

country flag Christine Lindop wrote:

I'm wondering about sizes for this pattern. Do you have a standard set of sizes for men's patterns? Usually patterns will indicate what chest size a particular instruction relates to, e.g. S = 38in, M = 40 etc. , and how much ease is included.

18.03.2022 - 18:44

DROPS Design answered:

Dear Christine, you can find the measurements in the figure below the pattern. These measurements are in cm; you can transform them into inches for more confort. This model seems to have a bit of ease (but it's not too loose). Happy knitting!

20.03.2022 - 19:47

country flag ANNIE IGLESIAS wrote:

Bonjour, Merci de me donner l'explication modèle jackson 174-1 , pas de maille sauter cette case, pour moi cela n'est pas clair, je voudrai savoir en détail le rang endroit ainsi que le rang envers concernant cette case. Merci pour votre aide, Cordialement, Annie

14.01.2022 - 10:48

DROPS Design answered:

Bonjour Annie, Lorsque vous tricotez l'avant-dernier rang de A.1B/A.2B, vous diminuez 1 mailles en tricotant 2 mailles ensemble à l'envers, il reste donc 3 mailles envers au dernier rang de A.1B/A.2B (= 3 mailles envers, la case noire = maille diminuée). Bon tricot!

14.01.2022 - 16:34