DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 177-18
DROPS Design: Mynstur nr bm-031
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350 g litur 43, ljós sægrænn
50-50-50 g litur 44, púður

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 stuðlar og 12 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar er skipt út fyrir 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar.
Fyrsti stuðull í byrjun umferðar er skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
Fyrsti tvíbrugðni stuðull í byrjun umferðar er skipt út fyrir 4 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HRINGPEYSA:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ljós sægrænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka mælist hringurinn ca 26 cm að þvermáli og það eru 27 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum í umferð.

Heklið eftir A.2, í fyrstu umferð í A.2 er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir, aukið út alveg eins og í 6. umferð í A.1, þ.e.a.s. aukið út um 1 loftlykkjuboga þannig: heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann mitt í stuðlahópnum með tvíbrugðnu stuðlunum, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkju á milli stuðlahópa með tvíbrugðnu stuðlunum, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahópi með tvíbrugðnum stuðlunum = 36 loftlykkjubogar. Heklið A.2 til loka 1 sinni á hæðina.

Stærð L/XL-XXL/XXXL: Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað áfram eftir A.3, aukið út á sama hátt og aukið er út í A.2 – heklaður er 1 stuðlahópur fleiri á milli hverra útaukninga í hvert skipti sem aukið er út = 45-45 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum.

ALLAR STÆRÐIR:= 36-45-45 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð eins og 1. umferð í A.3, JAFNFRAMT er heklaður handvegur þannig:
1 fastalykkja um loftlykkjubogann mitt undir stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 33-36-39 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 6-7-8 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum (nú hefur annar handvegurinn verið heklaður), * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* alls 14-20-18 sinnum, heklið 33-36-39 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 6-7-8 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum (nú hefur hinn handvegurinn verið heklaður), * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga).

Næsta umferð er hekluð eins og í 2. umferð í A.3 þannig: Heklið alveg eins og áður með 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga, um hvern loftlykkjuboga á undan handveg eru heklaðir 7-8-9 stuðlahópar, JAFNFRAMT er aukið út um 9 stuðlahópa jafnt yfir í umferð, aukið út um 1 stuðlahóp með því að hekla 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla + 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um 1 loftlykkjuboga = 45-54-54 stuðlahópa.
UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum = 45-54-54 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra.

Haldið áfram að hekla eftir A.3, JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir í hvert skipti sem 1. umferð er hekluð þannig:
UMFERÐ 1: Hekli keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga (mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum), 1 fastalykkja, * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir í umferð = 54-63-63 loftlykkjubogar (endið umferð með 6 loftlykkjum og 1 þríbrugðnum stuðli í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar).
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 54-63-63 stuðlahópar.
UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum umferðina hringinn = 54-63-63 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra.

Endurtakið 1.- 3. umferð 5-5-6 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga í hver skipti sem 1. Umferðin er hekluð = 99-108-117 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum.

Til að peysan fái sporöskjulaga form er heklað nú fram og til baka einungis yfir neðstu 62-67-72 stuðlahópana með tvíbrugðnu stuðlunum, ekki er heklað yfir miðju 37-41-45 stuðlahópa með tvíbrugðnu stuðlunum efst í hnakka.

Byrjið frá réttu og endurtakið umferð 1-3 í A.3 eins og áður alls 2 sinnum (þ.e.a.s. bakstykki fær 6 umferðir fleiri á hæðina), til að fá fallega skiptingu í hvert skipti sem snúið er við er heklað eins og sýnt er í A.4 og A.5, JAFNFRAMT er aukið út um 7 loftlykkjuboga í hvert skipti sem umferð 1 er hekluð (= alls 113-122-131 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum í umferð meðtaldir stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum við hnakka).

Að lokum eru heklaðar 2 umferðir með loftlykkjubogum í kringum alla peysuna (frá réttu) þannig – heklið með litnum púður:
UMFERÐ 1: * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í einn stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga (á milli 2 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Heklið upp 66-72-78 stuðlar í kringum handveg (ca 5 stuðlar í hverjum stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum og ca 33-36-39 stuðlar um loftlykkjuboga – byrjið mitt undir ermi).

Næsta umferð er hekluð þannig:
* 1 stuðull í fyrsta/næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 33-36-39 stuðlar + 33-36-39 loftlykkjur.
Heklið síðan þannig:
UMFERÐ 1: * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla/loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta stuðul/loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 11-12-13 loftlykkjubogar.
UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 11-12-13 stuðlahópar.
UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa umferðina hringinn = 11-12-13 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra.
UMFERÐ 4: * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 11-12-13 loftlykkjubogar, en fækkið jafnframt um 1 loftlykkjuboga í umferð mitt undir ermi þannig: 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í umferð mitt undir ermi þannig: 1 fastalykkja umloftlykkjuboga mitt í næst síðasta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum í umferð, 6 loftlykkjur, 1 stuðull um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum sem hoppa á yfir, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum = 10-11-12 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum.
Endurtakið umferð 2-4 og fækkið jafnframt um 1 loftlykkjuboga í 3. hverri umferð þannig að fyrir hverja mynstureiningu á hæðina verður 1 stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum/loftlykkjubogum færri í umferð. Þegar það eru 6-7-8 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum/loftlykkjubogar í umferð er heklað án úrtöku þar til ermin mælist 34-34-35 cm, eða að óskuðu máli, mátið e.t.v. peysuna á meðan hún er í vinnslu. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = 4 loftlykkjur, 1 keðjulykkja í fyrstu loftlykkju (sjá punkt í hring) umferðin byrjar og endar hér
symbols = loftlykkja
symbols = keðjulykkja
symbols = heklið keðjulykkjur að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja
symbols = fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = stuðull um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = þríbrugðinn stuðulli í lykkju
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = 12 loftlykkjur
symbols = 9 loftlykkjur
symbols = 2 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðnir stuðlar um loftlykkjuboga í stuðlahóp
symbols = 4 loftlykkjur, 1 tvíbrugðinn stuðull + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðnir stuðlar um loftlykkjuboga í stuðlahóp
symbols = sýnir síðustu umferð frá fyrri mynsturteikningu, umferðin hefur nú þegar verið hekluð
diagram
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 177-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Iride wrote:

Mi trovo dopo gli scalfi e sto proseguendo con i 9 aumenti prima nel giro 2 e successivamente nei giri 1 di A3. Non sono sicura di aver capito bene. Le indicazioni dicono che tali aumenti vanno fatti in modo uniforme nel corso del giro, ma non in unaposizione precisa... com'è possibile che il lavoro assuma la forma ovale e nella direzione verticale? Grazie mille Iride

17.08.2019 - 19:23

DROPS Design answered:

Buonasera Iride, le spiegazioni del modello sono corrette: gli aumenti vengono fatti a intervalli regolari su tutto il giro. Continui a seguire le istruzioni e il lavoro verrà da sè. Buon lavoro!

19.08.2019 - 17:56

country flag Henriette wrote:

Er det en tastefejl at der står at man skal hækle 9 luftmasker når man hækler A2 delen. Symbolet der bruges er det samme som 12 luftmasker når man kigger på diagrammet?

12.08.2019 - 21:21

DROPS Design answered:

Hej Henriette, tak for info! Nu er teksten til symbolet rettet i opskriften. God fornøjelse!

16.08.2019 - 10:43

country flag Henriette wrote:

Hej hvorfor er der 2 forskellige symboler for 12 luftmasker ? en med og en uden prikker

09.08.2019 - 19:33

DROPS Design answered:

Hej Henriette, det er blevet rettet i opskriften. God fornøjelse!

16.08.2019 - 10:53

country flag Lily wrote:

Hi, No but that's my point, it says 14-"20-18", not 14-"18-20". 20 is a larger number than 18 so L-XL should have 18 and XXL-XXXL should have 20, isn't it?

01.07.2019 - 23:21

DROPS Design answered:

Dear Lilly, in the larger size you will skip more stich-groups for the armholes and work less stitch-groups between armholes, in the 2nd size you will crochet less stitch-groups than in larger size, but will hten work more stitch-groups between armholes. But of course, you can adjust to your own size/wishes if you llike to. Happy crocheting!

02.07.2019 - 08:50

country flag Lily wrote:

Hi! In the part were we first make the armholes, the instructions say to "repeat from *-* in total 14-20-18 times". Is it a typo for 14-18-20, or is it actually 14 for S-M, 20 for L-XL and 18 for XXL-XXXL? I assume it's a typo, but I just wanted to double check. Thanks :)

28.06.2019 - 17:31

DROPS Design answered:

Dear Lily, no typo here, you will skip 1 more st-group in larger size, and then repeat 2 more times in 2nd size, so that armholes are larger in larger sizes. Happy crocheting!

01.07.2019 - 06:46

country flag Coni wrote:

Ich brauch wieder Hilfe Ich muss echt sagen, das Eure Anleitungen sehr unverständlich geschrieben sind..... A2 habe ich gehäkelt und komme auch auf 36 Luftmaschenbögen. Nun soll ich, A3 wie A2 arbeiten( die Zunahmen) Nur komme ich so auf mehr Doppelstäbchen-Gruppen als nur 45!!! Ihr Link den sie mir beim letzten Mal geschickt haben, bringt mich auch nicht weiter, da dort unter A3 beschrieben wird, wie ich die Armausschnitte häkeln soll........

12.05.2019 - 13:24

DROPS Design answered:

Liebe Coni, Sie sollen 9 Zunahmen häkeln = 36 Luftmaschenbogen + 9 Zunahmen = 45 Luftmaschenbogen bei der 1. Reihe in A.3 = 45 Doppelstäbchen-Gruppen wenn A.3 fertig ist. Die Zunahmen häkeln Sie wie die Zunahmen der 6. Runde in A.1 gearbeitet werden. Viel Spaß beim häkeln!

13.05.2019 - 09:35

country flag Coni wrote:

Guten Morgen, ich komme einfach nicht weiter. Ich habe A1 fertig gehäkelt und komme auch auf die angegebenen 27 Doppelstäbchen Gruppen. Mein Problem ist, das wenn ich nach A2 weiter arbeite, sollte ich auf 36 Luftmaschen-Bogen kommen... Es werden aber immer 40. und ja, ich halte mich an die Anleitung: 1 fm um die Lm zwischen den Dstb-Gruppe, 9 Lm, 1 Fm und die LM zwischen der Dstb-Gruppe etc........ Ich komme einfach nicht weiter

10.05.2019 - 08:43

country flag Coni wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu Diagramm A1. Werden die Luftmaschen-Bögen in die gleiche Masche beendet wie begonnen? Oder werden sie zwischen die festen Maschen gehäkelt?? Danke im Voraus für die Hilfe

09.05.2019 - 14:12

DROPS Design answered:

Liebe Coni, bei der 3. Runde häkeln Sie die Feste Maschen um die Luftmasche der 2. Runde, und zwischen jede feste Maschen häkeln Sie 12 Luftmaschen. Bei der 6. Runde häkeln Sie die festen Maschen um die Luftmasche (siehe Diagram) und zwischen jede feste Masche häkeln Sie 9 Luftmaschen - nur das letzte Luftmaschenbogen wird unterschiedlich: 6 Lm+ 1 Dreifach-Stb (3. Runde) / 5 Lm + 1 Doppelstb. (6. Runde). Viel Spaß beim häkeln!

09.05.2019 - 14:24

country flag Virginia wrote:

Buongiorno! Non riesco a capire come dovrei lavorare i giri con A4 e A5, potrei avere una descrizione dettagliata, per favore? Non mi tornano i gruppi di maglie alte doppie finali!! Sono meno di quelli che dovrebbero essere! Grazie in anticipo per l'aiuto! Buona giornata

09.04.2019 - 15:22

DROPS Design answered:

Buongiorno Virginia. Purtroppo in questa sede non riusciamo a dettagliare le spiegazioni. Verifichi di aver aumentato i 7 archi di cat quando lavora la prima riga di A3 e di contare nei gruppi di m.a doppie anche quelle verso il collo. Per un aiuto più personalizzato , può contattare il suo rivenditore Drops di fiducia, mandando anche una fotografia del suo lavoro . Buon lavoro!

09.04.2019 - 21:43

country flag Stine wrote:

Hvor er diagram A1? Jeg skjønner ikke begynnelsen på oppskriften

30.03.2019 - 20:52

DROPS Design answered:

Hej Stine, Du starter i midten af cirklen som er A.1 og følger diagrammet mod solen række for række. God fornøjelse!

05.04.2019 - 15:24