Isla Bonita |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð hringpeysa úr DROPS BabyMerino. Prjónið S - XXXL.
DROPS 177-18 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar er skipt út fyrir 1 loftlykkju, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar. Fyrsti stuðull í byrjun umferðar er skipt út fyrir 2 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. Fyrsti tvíbrugðni stuðull í byrjun umferðar er skipt út fyrir 4 loftlykkjur, umferðin endar með 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun umferðar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring. HRINGPEYSA: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með litnum ljós sægrænn og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan eftir mynsturteikningu A.1. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka mælist hringurinn ca 26 cm að þvermáli og það eru 27 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum í umferð. Heklið eftir A.2, í fyrstu umferð í A.2 er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir, aukið út alveg eins og í 6. umferð í A.1, þ.e.a.s. aukið út um 1 loftlykkjuboga þannig: heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann mitt í stuðlahópnum með tvíbrugðnu stuðlunum, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkju á milli stuðlahópa með tvíbrugðnu stuðlunum, 9 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahópi með tvíbrugðnum stuðlunum = 36 loftlykkjubogar. Heklið A.2 til loka 1 sinni á hæðina. Stærð L/XL-XXL/XXXL: Þegar A.2 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina er heklað áfram eftir A.3, aukið út á sama hátt og aukið er út í A.2 – heklaður er 1 stuðlahópur fleiri á milli hverra útaukninga í hvert skipti sem aukið er út = 45-45 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum. ALLAR STÆRÐIR:= 36-45-45 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum. Næsta umferð er hekluð eins og 1. umferð í A.3, JAFNFRAMT er heklaður handvegur þannig: 1 fastalykkja um loftlykkjubogann mitt undir stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum, heklið 33-36-39 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 6-7-8 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum (nú hefur annar handvegurinn verið heklaður), * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* alls 14-20-18 sinnum, heklið 33-36-39 lausar loftlykkjur, hoppið yfir 6-7-8 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum (nú hefur hinn handvegurinn verið heklaður), * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga). Næsta umferð er hekluð eins og í 2. umferð í A.3 þannig: Heklið alveg eins og áður með 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga, um hvern loftlykkjuboga á undan handveg eru heklaðir 7-8-9 stuðlahópar, JAFNFRAMT er aukið út um 9 stuðlahópa jafnt yfir í umferð, aukið út um 1 stuðlahóp með því að hekla 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla + 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um 1 loftlykkjuboga = 45-54-54 stuðlahópa. UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um loftlykkjuboga mitt í hverjum stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum = 45-54-54 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra. Haldið áfram að hekla eftir A.3, JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir í hvert skipti sem 1. umferð er hekluð þannig: UMFERÐ 1: Hekli keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga (mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum), 1 fastalykkja, * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga jafnt yfir í umferð = 54-63-63 loftlykkjubogar (endið umferð með 6 loftlykkjum og 1 þríbrugðnum stuðli í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar). UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 54-63-63 stuðlahópar. UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum umferðina hringinn = 54-63-63 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra. Endurtakið 1.- 3. umferð 5-5-6 sinnum til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 9 loftlykkjuboga í hver skipti sem 1. Umferðin er hekluð = 99-108-117 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum. Til að peysan fái sporöskjulaga form er heklað nú fram og til baka einungis yfir neðstu 62-67-72 stuðlahópana með tvíbrugðnu stuðlunum, ekki er heklað yfir miðju 37-41-45 stuðlahópa með tvíbrugðnu stuðlunum efst í hnakka. Byrjið frá réttu og endurtakið umferð 1-3 í A.3 eins og áður alls 2 sinnum (þ.e.a.s. bakstykki fær 6 umferðir fleiri á hæðina), til að fá fallega skiptingu í hvert skipti sem snúið er við er heklað eins og sýnt er í A.4 og A.5, JAFNFRAMT er aukið út um 7 loftlykkjuboga í hvert skipti sem umferð 1 er hekluð (= alls 113-122-131 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum í umferð meðtaldir stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum við hnakka). Að lokum eru heklaðar 2 umferðir með loftlykkjubogum í kringum alla peysuna (frá réttu) þannig – heklið með litnum púður: UMFERÐ 1: * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í einn stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum, 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga (á milli 2 stuðlahópa með tvíbrugðnum stuðlum) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * 4 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 fastalykkju í síðustu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. ERMI: Heklið upp 66-72-78 stuðlar í kringum handveg (ca 5 stuðlar í hverjum stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum og ca 33-36-39 stuðlar um loftlykkjuboga – byrjið mitt undir ermi). Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 stuðull í fyrsta/næsta stuðul, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 stuðul *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 33-36-39 stuðlar + 33-36-39 loftlykkjur. Heklið síðan þannig: UMFERÐ 1: * 6 loftlykkjur, hoppið yfir 5 stuðla/loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta stuðul/loftlykkja *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 11-12-13 loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn = 11-12-13 stuðlahópar. UMFERÐ 3: Heklið 2 tvíbrugðna stuðla + 2 loftlykkjur + 2 tvíbrugðna stuðla um hvern loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp og 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa umferðina hringinn = 11-12-13 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum með 1 loftlykkju á milli hverra. UMFERÐ 4: * 12 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 11-12-13 loftlykkjubogar, en fækkið jafnframt um 1 loftlykkjuboga í umferð mitt undir ermi þannig: 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í umferð mitt undir ermi þannig: 1 fastalykkja umloftlykkjuboga mitt í næst síðasta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum í umferð, 6 loftlykkjur, 1 stuðull um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum sem hoppa á yfir, 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í næsta stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum = 10-11-12 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum. Endurtakið umferð 2-4 og fækkið jafnframt um 1 loftlykkjuboga í 3. hverri umferð þannig að fyrir hverja mynstureiningu á hæðina verður 1 stuðlahóp með tvíbrugðnum stuðlum/loftlykkjubogum færri í umferð. Þegar það eru 6-7-8 stuðlahópar með tvíbrugðnum stuðlum/loftlykkjubogar í umferð er heklað án úrtöku þar til ermin mælist 34-34-35 cm, eða að óskuðu máli, mátið e.t.v. peysuna á meðan hún er í vinnslu. Klippið frá og festið enda. Heklið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (49)
Laura wrote:
Buon giorno. Per iniziare le.maniche al dritto del.lavoro faccio 5 m.a nei 7 gruppi di.m.a.d mentre dall.altro.lato in.totale 33 m.a. ma.non mi trovo.pero 66 in totale...grazie e saluti
01.06.2017 - 07:18DROPS Design answered:
Buongiorno Laura. Il numero complessivo delle maglie alte per la manica deve essere 66 (taglia S). Può p.es in un gruppo di m.a.d riprendere solo 4 m.a e non 5 e riprendere 32 m.a (e non 33) nell'arco di cat; oppure riprendere 4 m.a in due gruppi di m.a.d e 33 m.a nell'arco di cat. Buon lavoro!
01.06.2017 - 08:50Laura wrote:
Buona sera sono al secondo giro dopo gli scalfi. Le istruzioni dicono di proseguire con A3 aumentando 9 archi di catenelle. Ma si aumenta anche sopra gli scafi? Grazie e cordiali saluti
28.05.2017 - 21:42DROPS Design answered:
Buonasera Laura. Gli aumenti sono previsti su tutto il giro, anche sugli scalfi. Buon lavoro!
28.05.2017 - 22:31Laura wrote:
Buon giorno. Sono alla riga 3 di a1. Non capisco bene devo iniziare con le 6 cat e poi un bassissima o la tripla che vedo nel diagramma? Poi si prosegue con m.b. su far e 12 cat chiuse insieme nella prima x tutto il giro?? Poi però non chiudo con bassissima? Grazie laura
27.05.2017 - 11:34DROPS Design answered:
Buonasera Laura. Deve lavorare 1 m.bss nel primo arco di cat, 1 cat, 1 m.bassa intorno all’arco di cat, * 12 cat, 1 m.bassa intorno all’arco di cat successivo*; ripete le istruzioni tra gli asterischi su tutto il giro e finisce con 6 cat, 1 maglia alta tripla nella prima m.bassa all’inizio del giro. Deve avere 18 archi di cat. Non chiude il giro con la m.bassissima; si chiuderà con il quarto giro. Trova l’inizio del giro alla sinistra della riga continua verticale. Buon lavoro!
27.05.2017 - 19:35Laura wrote:
Buon giorno. Sono alla riga 3 di a1. Non capisco bene devo iniziare con le 6 cat e poi un bassissima o la tripla che vedo nel diagramma? Poi si prosegue con m.b. su far e 12 cat chiuse insieme nella prima x tutto il giro?? Poi però non chiudo con bassissima? Grazie laura
27.05.2017 - 11:34Aurore wrote:
Bonjour, J'ai un problème dans le A1, je viens de finir le rang 6 ( celui avec 2 double-brides +2 mailles en l'air + 2 double-brides ) mais je ne comprends pas comment faire le rang 7 avec les mailles serré autour de l'arceau. Et comment passer d'un groupe de 3 au suivant, d'après le diagramme il n'y a aucune mailles. Merci de m'aider. Cordialement
31.03.2017 - 23:28DROPS Design answered:
Bonjour Aurore, vous trouverez ici un tuto en images montrant comment crocheter A.1 pour un autre modèle, mais où le même diagramme est utilisé. Bon crochet!
03.04.2017 - 08:50Lynne Rutledge wrote:
I am having a problem when I go from 27 treble crochet clusters to 36 chain 9 spaces. no matter how I try it I end up with 40 chain 9 spaces and I con't figure out what I'm doing wrong. Can you help me?
14.02.2017 - 21:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Rutledge, the inc should be worked as on round 6 in A.1, with 2 ch-spaces between each inc. You can find here some pictures from a similar pattern showing how to work A.2. Happy crocheting!
15.02.2017 - 09:39Hildegard Weiß wrote:
Sehr schön, hätte gerne die Anleitung
16.01.2017 - 19:48Lauren McRoberts wrote:
One of my favorites! Absolutely beautiful!
14.12.2016 - 14:48Maire Ritson wrote:
Väga ilus!
14.12.2016 - 11:47