Lizzy |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Tunika með sólfjaðramynstri, bygjukanti og A-formi, hekluð ofan frá og niður úr DROPS Safran. Stærð S-XXXL.
DROPS 176-2 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. (Mynsturteikning A.1a, A.2a, A.3a, A.4a og A.5a sýnir hvernig umferðin byrjar og endar). ÚTAUKNING 1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 180 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 74) = 2,4. Í þessu dæmi þá er aukið út til skiptis í ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. ÚTAUKNING 2: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla um sömu loftlykkju. ÚTAUKNING 3: Aukið út einn auka loftlykkjuboga með því að hekla (1 stuðul og 5 loftlykkjur) um einn loftlykkjuboga. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Byrjun umferðar er fyrir miðju að aftan. ATH! Veldu þá stærð sem þú notar venjulega. Yfirvíddin er stór, en flíkin fellur vel. TUNIKA: Byrjið með heklunál 3,5 með Safran, heklið 180-192-202-211-221-233 loftlykkjur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkjun. Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 5 loftlykkjum *, endurtakið frá *-* 28-30-32-33-35-37 sinnum til viðbótar, hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í hverja af 4-4-2-5-3-3 loftlykkjum sem eftir eru = 150-160-168-176-184-194 stuðlar. Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.1a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.1b í kringum alla umferðina. Í 3. umferð er heklaður 1 stuðull í hvern stuðul og 1 stuðull um hverja loftlykkju og aukið líka út 74-96-104-128-136-142 stuðla jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 (jafnt yfir) og ÚTAUKNING 2 = 224-256-272-304-320-336 stuðlar. Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.2a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.2b (= 28-32-34-38-40-42 mynstureiningar). Þegar 5. umferðin hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð endurtekin 3-3-4-5-6-6 sinnum til viðbótar (= alls 6-6-7-8-9-9 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan 6. umferð og aukið líka út 4-0-6-2-8-14 loftlykkjuboga jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 3 = 144-160-176-192-208-224 loftlykkjubogar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Stykkið mælist ca 14-14-15-16-17-17 cm frá fyrstu loftlykkjuumferð sem var hekluð. Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.3a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.3b (= 72-80-88-96-104-112 mynstureiningar). Þegar 4. umferð hefur verið hekluð á hæðina er berustykkið lokið. Stykkið mælist ca 18-18-19-20-21-21 cm frá kanti í hálsi og niður (og ca 28-29-30-32-33-34 cm frá öxl). Setjið eitt prjónamerki í stykkið – STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 4. umferð í A.3b einu sinni til viðbótar þannig: Heklið yfir fyrstu 9-10-11-12-13-14 mynstureiningarnar (= hálft bakstykki), hoppið yfir 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= ermi), heklið yfir næstu 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= framstykki), hoppið yfir 18-20-22-24-26-28 mynstureiningar (= ermi), heklið yfir 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar sem eftir eru (= hálft bakstykki) = 36-40-44-48-52-56 mynstureiningar fyrir fram- og bakstykki. Endurtakið 4. umferð í A.3 a og A.3b 2 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan 5. umferð og aukið líka út 0-2-4-0-2-4 loftlykkjuboga jafnt yfir = 144-162-180-192-210-228 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 8 cm. Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 48-54-60-64-70-76 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð endurtekin 3 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið síðan eins og útskýrt er að neðan og aukið líka út 3-0-6-1-1-4 loftlykkjuboga jafnt yfir: * heklið síðustu umferð í A.3b 1 sinni á breidd, heklið síðustu umferð í A.5b 1 sinni á breiddina *, endurtakið frá *-* = 171-189-216-225-246-270 loftlykkjuboga. Stykkið mælist ca 18 cm. Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 57-63-72-75-82-90 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina er þessi umferð hekluð 3 sinnum til viðbótar (= alls 6 umferðir með sólfjöðrum). Heklið næstu umferð eftir mismunandi stærðum þannig: Stærð S, M, L og XL: Heklið eins og útskýrt er að neðan og aukið líka út 20-12-0-2 loftlykkjuboga jafnt yfir: Heklið A.3a, * heklið síðustu umferð í A.3b 1 sinni á breiddina, heklið síðustu umferð í A.5b 2 sinnum á breiddina *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 210-222-240-252 loftlykkjubogar. Stærð XXL og XXXL: Heklið A.5a, heklið síðan síðustu umferð í A.5b umferðina hringinn og aukið líka út 18-6 loftlykkjuboga jafnt yfir = 264-276 loftlykkjubogar. Stykkið mælist ca 28 cm. Heklið áfram í öllum stærðum frá síðustu umferð í mynsturteikningu þannig: Heklið A.4a (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), heklið A.4b (= 70-74-80-84-88-92 mynstureiningar). Í næstu umferð er haldið áfram frá 3. umferð í A.3a og A.3b. Þegar 4. umferð hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið þessa umferð á hæðina þar til stykkið mælist ca 33-34-35-35-36-37 cm. Heklið síðustu umferð í mynsturteikningu. Tunikan mælist ca 63-65-67-69-71-73 cm frá öxl. Klippið frá og festið enda. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (141)
Gisele wrote:
Sååååå fint!
13.12.2016 - 17:03