-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
= slétt lykkja | |
= brugðin lykkja | |
= sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat | |
= sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður slétt | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir (= 2 lykkjur færri) |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Spring Forest |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Peysa með öldumynstri og laskalínu, prjónuð neðan frá og upp úr 2 þráðum DROPS Delight. Stærð S - XXXL
DROPS 178-27 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum. BYRJAÐ Á NÝRRI DOKKU: Til að litaskiptingin með Delight verði fallegar þegar skipta á um dokku, er mikilvægt að finna dokku sem byrjar á sama lit og fyrri dokka sem er að ljúka. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikningin sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Til að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 17,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 17. og 18. hver lykkja saman. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. ATH: Í stærð S, M XXL er lykkjum fækkað mismunandi á fram- og bakstykki og ermum eins og skýrt er frá í uppskrift. Fækkið lykkjum eftir A.9 þannig: Takið 1 lykkju eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á undan A.9 þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan A.9 og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 270-297-324-351-378-405 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið A.1 (= 27 lykkjur) 10-11-12-13-14-15 sinnum á breidd. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 230-253-276-299-322-345 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 (= 23 lykkjur) yfir mynstureiningu A.1. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka 3-3-3-3-3-4 sinnum á hæðina – LESIÐ BYRJAÐ Á NÝRRI DOKKU! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið A.3 (= 23 lykkjur) 1 sinni á hæðina. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 210-231-252-273-294-315 lykkjur í umferð. Prjónið A.4 (= 21 lykkjur) 2 sinnum á hæðina í öllum stærðum. Prjónið A.5 (= 21 lykkjur) 1 sinni á hæðina. Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 190-209-228-247-266-285 lykkjur í umferð. Prjónið A.6 (= 19 lykkjur) 3 sinnum á hæðina í öllum stærðum. Prjónið síðan A.7 (= 19 lykkjur). Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 150-165-180-195-210-225 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-11-14-13-8-5 lykkjur jafnt yfir = 140-154-166-182-202-220 lykkjur. Prjónið síðan næstu umferð þannig: Prjónið 32-35-38-42-47-52 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í síðustu lykkju sem var prjónuð, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 64-71-77-85-95-104 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu lykkju sem var prjónuð), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 32-36-39-43-48-52 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkjuna sem var prjónuð. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMAR: Fitjið upp 32-34-36-40-42-46 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði í hvorum lit (= 2 þræðir). Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.8. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-12-7-5-5-10 cm aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið svona út í 7.-5.-5.-5.-4.-4. hverri umferð alls 10-12-14-14-14-14 sinnum = 52-58-64-68-70-74 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-44-44-42-41-40 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 46-52-58-62-64-68 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 220-246-270-294-318-344 lykkjur í umferð. Nú eru 4 prjónamerki í stykkinu (1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). Prjónið nú sléttprjón og A.9 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (lykkjur með prjónamerki í er miðjulykkjan í A.9). JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Úrtakan er mismunandi eftir stærðum. STÆRÐ S, M og XXL: Lykkjum fækkar mismunandi á fram- og bakstykki og ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur færri í umferð) alls 18-20-25 sinnum. ERMAR: Fækkið um 1 lykkju í 4. hverri umferð alls 2-2-1 sinnum og í annarri hverri umferð (= 4 lykkjur færri í umferð) alls 13-16-23 sinnum. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 eftir þörf. STÆRÐ L, XL og XXXL: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.9 (= 8 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 21-23-26 sinnum. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 5,5 eftir þörf. ALLAR STÆRÐIR: Eftir allar úrtökur eru 88-94-102-110-122-136 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 5-8-12-16-24-34 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 83-86-90-94-98-102 lykkjur. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (45)
Ingela Tapper Hellman wrote:
Hej igen kan berätta att mönster 178-27 är helt fel. Måttet längst ner är 205 cm det blir en volangkant på ca 80 cm . Det syns inte på bilden. Där är det helt slätt nertill med en vågkant. Mycket besviken 😢
22.11.2023 - 14:00DROPS Design answered:
Hej Ingela, se tidligere svar. Det lyder til at du kun har 17 masker på 10 cm i bølgemønster. Hvis du har 20 masker som vi skriver i opskriften, så får du 162 cm nederst og når du følger diagrammet, så bliver der taget ind allerede på pind 3 osv :)
24.11.2023 - 14:21Ingela Tapper Hellman wrote:
Hej igen jag behöver veta i mönstret 178-27 hur många cm som 378 maskor är om 16 maskor är 10 cm. Många andra mönster har hälften så många maskor som stickas runt.
20.11.2023 - 19:05DROPS Design answered:
Hej Ingela, hvis du overholder strikkefastheden som står i opskriften, så får du 81+81=162 cm nederst (se måleskitsen), men når du fortsætter ifølge diagrammet, så tager du ind for hver gang du strikker diagrammet på 6 forskellige steder, så når du kommer op til brystmålet så har du 126 cm i omkreds. God fornøjelse!
24.11.2023 - 12:26Ingela Tapper Hellman wrote:
Jag ska sticka mönster 178-27 på rundsticka. 16 maskor är 10 cm. Hur många cm är 378 maskor? Jag vill att tröjan ska passa ett stussmått på 120 cm. Vilket antal maskor ska jag välja ? Med vänlig hälsning,
20.11.2023 - 11:13DROPS Design answered:
Hei Ingela. Sjekk den oppgitte strikkefastheten, 16 masker = 10 cm. Du har 378 masker (omkretsen på genseren), halve maskeantallet = 189 masker, da har du ca 60 cm foran og ca 60 cm bak = 120 cm. Det er når plagget ligger flatt, husk at det er litt tøyelig. mvh DROPS Design
20.11.2023 - 13:56Doucet-Chollet Marie-Françoise wrote:
J’ai commencé le corps du modèle avec l’aiguille circulaire 5,5 mais c’était beaucoup trop grand. Du coup, j’ai recommencé avec celles du 4,5 et c’était parfait….
31.01.2023 - 17:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Doucet-Chollet, pensez toujours à bien tricoter votre échantillon au préalable et ensuite à bien vous tenir à la même tension, car effectivement, on tricote toutes de façon différente et ce qui compte, c'est bien la tension et non la taille des aiguilles. Bon tricot!
31.01.2023 - 17:39Sabrina wrote:
Buon giorno, nella leggenda del diagramma mi compare 2 volte la parola “Symbol”: nel primo caso per identificare le maglie a rovescio, e nelnsecondo per identificare le 2 maglie gettate tra 2 maglie. Devo intendere che le stelline vuote siano le maglie a rovescio e che le ellissi nere le 2 maglie gettate? Grazie mille!!!
04.01.2022 - 21:03DROPS Design answered:
Buongiorno Sabrina, probabilmente ha avuto qualche problema di connessione e non è riuscita a visualizzare i simboli della legenda: provi a ricaricare la pagina o utilizzare un altro browser e a svuotare la cache del suo browser. I simboli della legenda sono tutti visibili e sono tutti diversi. Buon lavoro!
05.01.2022 - 10:40REINE MARIE wrote:
BONOUR .CE PULL ME PLAIT BEAUCOUP .VOILA COMME CE PULL DOIT SE TRICOTER AVEC 2 FILS MAIS ES CE DE MEME COULEURS OU FAUT IL PRENDRE 1 FIL D UNE COULEUR ET 1 DE L AUTRE COULEUR?.MERCI DE VOTRE REPONSE
08.09.2020 - 15:55DROPS Design answered:
Bonjour Reine Marie, ce pull se tricote entièrement avec 1 fil de chaque couleur tricotés ensemble. Bon tricot!
08.09.2020 - 16:30Geri wrote:
Habe den Pullover mit viel Schwitzen und Unsicherheiten, ob ich es richtig mache, fertiggestellt - mit Erfolg! Er sieht sehr schön aus, passt auch wirklich gut, war mir aber erstmal zu kurz. Ich habe ihn dann mit feuchten Tücher gespannt und etwas in die Länge gezogen. Nun ist er perfekt und ich freue mich sehr darüber.
12.01.2020 - 13:37Béatrice Bégarin wrote:
Est-il possible de faire une réhausse sur ce type de pull (bottom up) ?\\r\\nj\\\'aurai aimé monter le col pour le fermer davantage.\\r\\nMerci pour le conseil apporter à ma question précedente.\\r\\nAutrement le modèle est sympa et très agréable à faire.
01.08.2019 - 12:45DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bégarin, vous pouvez vous inspirer d'un modèle tricoté sur la base du même échantillon, avec une réhausse, pour en faire une ici aussi. Ou bien vous pouvez également former l'encolure de façon plus traditionnelle en vous basant sur celle d'un modèle similaire. Bon tricot!
08.08.2019 - 10:55Béatrice Bégarin wrote:
J'ai monté 270m je fais A.1 soit 10 fois lr dessin et il me reste 6m à la fin du tour. J'ai recomencé 2fois en pensant avoir fait une erreur et recompté mon nombre de mailles et mon nombre de dessin, mais ça ne va tjrs pas il me reste 6m tjrs. je ne comprends pas ou est mon erreur. merci pour votre aide.
13.06.2019 - 21:15DROPS Design answered:
Bonjour Mme Bégarin, A.1 se tricote sur 27 mailles et on le répète 10 fois au total, soit 10x27 = 270 m.Vous pouvez placer un marqueur entre chaque A.1, il vous sera ainsi plus facile de bien recompter le nombre de mailles. Au 3ème rang de A.1, on va diminuer 4 m (= il restera 23 m dans chaque A.1). Bon tricot!
14.06.2019 - 07:17Valeria wrote:
Buongiorno, bellissimo questo modello; io vorrei farlo aperto davanti, per cui lavorarlo con i ferri avanti e indietro. Qualcuno ha già provato? In ogni caso, i diagrammi A.n sono formati da 6 giri o bisogna intervallare anche un giro di rovescio, lavorando le maglie come si presentano? Grazie per l'attenzione Valeria
14.02.2019 - 11:19DROPS Design answered:
Buongiorno Valeria. I diagrammi mostrano tutti i ferri del motivo, quindi lavorando avanti e indietro ci sono anche i ferri di ritorno. La riga dove trova i simboli per lavorare 2 m insieme a diritto , 2 maglie gettate, sono lavorate sul diritto del lavoro. Buon lavoro!
14.02.2019 - 12:09