DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5187.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spanish Sonata

Kjóll með laskalínu, A-formi og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður úr Muskat. Stærð S - XXXL.

DROPS 178-47
DROPS Design: Mynstur r-714
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-800-850-950-1050 g litur 18, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 fyrir garðaprjón – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 399.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5187.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki á hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 10,1. Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 10. hverja lykkju.

LASKALÍNA:
ÚTAUKNING Í ANNARRI HVERRI UMFERÐ:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Byrjið á 1 lykkju á undan A.1A, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1A-A.1C (aukið út um 2 lykkjur fyrir laskalínu í mynsturteikningu), prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat.

ÚTAUKNING Í FJÓRÐU HVERRI UMFERÐ:
UMFERÐ 1: Byrjið 1 lykkju á undan A.1A: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1a-A.1c, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1a-A.1c.
UMFERÐ 2: Uppslátturinn er prjónaður slétt, svo að það myndist gat.
UMFERÐ 3: Byrjið 2 lykkjum á undan A.1A: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið A.1A-A.1C, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð – ekki er aukið út um lykkjur, en gataumferðin heldur áfram eins og áður. Endurtakið á undan og á eftir næsta A.1A-A.1C.
UMFERÐ 4: Uppslátturinn er prjónaður slétt, það eiga að myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 3 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri).
Fækkið um 1 lykkju þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.

KJÓLL:
Fitjið upp118-122-122-126-126-134 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í næst síðustu umferð í garðaprjóni er aukið út um 12-12-16-16-20-24 lykkjur jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir) = 130-134-138-142-146-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið mynstur þannig: Prjónið 19-20-21-22-23-26 sléttar lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, A.1A (= 7 lykkjur), A.1B (= 12 lykkjur), A.1C (= 6 lykkjur) (= hægri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 38-40-42-44-46-52 sléttar lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, A.1A, A.1B, A.1C (= vinstri ermi), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 19-20-21-22-23-26 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið = 138-142-146-150-154-166 lykkjur. Nú er aukið mismunandi út á fram- og bakstykki og ermum. Á fram og bakstykki er aukið út í annarri hverri umferð alls 14-16-17-25-32-34 sinnum og í lokin í 4. hverri umferð 4-5-6-3-0-0 sinnum. Á ermi er aukið út í annarri hverri umferð (útaukningar eru teiknaðar inn í mynsturteikningu A.1) 21-25-28-30-32-34 sinnum. Í hvert skipti sem A.1A til A.1C hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með 2 fleiri mynstureiningum af A.1B á milli A.1A og A.1C.

Þegar aukið hefur verið út alls 21-25-28-30-32-34 sinnum á ermum og 18-21-23-28-32-34 sinnum á framstykki og bakstykki eru 67-75-81-85-89-93 lykkjur á hvorri ermi, 76-84-90-102-112-122 lykkjur á framstykki og bakstykki = 286-318-342-374-402-430 lykkjur alls. Berustykkið mælist nú 17-20-22-23-24-25 cm frá hálsmáli við miðju að framan og niður. Ef málið passar ekki þá verður að halda áfram með mynstur á ermum og sléttprjón á fram- og bakstykki að réttu máli.

Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 67-75-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 76-84-90-102-112-122 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 67-75-81-85-89-93 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 38-42-45-51-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 168-184-200-224-248-272 lykkjur á fram- og bakstykki. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í ca 6.-7.-6.-7.-10.-15. hverri umferð 15-14-16-13-10-7 sinnum = 228-240-264-276-288-300 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 36-35-35-36-37-38 cm. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið mynsturteikningu A.2 (= 19-20-22-23-24-25 mynstureiningar 12 lykkjur í fyrstu umferð). Í næst síðustu umferð í A.2 (umferð með stjörnu) er aukið út um 3-5-3-5-1-3 lykkjur jafnt yfir = 307-325-355-373-385-403 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið A.3A (= 7 lykkjur), A.3B (= 6 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, A.3C (= 6 lykkjur). Þegar öll mynsturteikning A.3a til A.3c hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið mynstureiningu 1 sinni til viðbótar á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið aftur til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum.

ERMI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á sokkaprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 75-83-91-95-101-107 lykkjur. Setjið 1 lykkju mitt í nýjar lykkjur = mitt undir ermi. Haldið áfram með A.1B, þær lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri mitt undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 3 cm byrjar úrtaka undir ermi – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í annarri hverri umferð 0-0-0-4-5-6 sinnum og 1 lykkja hvoru megin við prjónamerki í 5.-3.-2.-2.-2.-2. umferð 7-10-13-5-4-3 sinnum = 61-63-65-69-73-77 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 15-13-12-10-10-9 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla og lengri ermakúpu) skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.02.2019
Leiðrétting - XXXL: Aukið er út alls 34 sinnum = 122 lykkjur á fram- og bakstykki.
Yfirfarið á vefsvæði: 16.06.2023
Ný mynsturteikning A.2

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt frá réttu svo að það myndist gat
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = útaukningsumferð – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-47

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Angelika wrote:

Danke für das schöne Modell! Ich bin fast fertig mit dem Kleid und es sieht ganz toll aus, hat eine schöne Passform und ist gut zu Stricken, die Anleitung ist für mich gut verständlich. Die Wolle Muskat hat ein sehr schönes Maschenbild und wirkt für bei dem Kleid sehr gleichmäßig und edel. Ich bin begeistert!

12.04.2018 - 20:13

country flag Cille Sigrun wrote:

Super lækker opskrift på en lækker kjole! :-)

26.03.2018 - 09:03

country flag Jos wrote:

Est-ce qu'il y a une moyen de tricoter ce morceau en commençant par le bas .

28.02.2018 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Jos, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande. Vous pouvez recalculer/réécrire les explications si vous souhaitez le commencer par le bas. N'hésitez pas à demander de l'aide à votre magasin DROPS ou sur un forum de tricot si besoin. Bon tricot!

28.02.2018 - 17:45

country flag Doris wrote:

Hallo, die Raglanzunahme besteht aus 2 Masvhen rechts und je ein Umschlag vor und nach den Maschen, oder?

08.09.2017 - 15:25

DROPS Design answered:

Liebe Doris, die Raglanzunahmen sind an Rumpfteil und Ärmeln unterschiedlich, dh Sie werden je nach der Größe entweder nur am Vorder- und Rückenteil oder an den Ärmeln oder überall zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

08.09.2017 - 16:16

country flag Doris Thielen wrote:

So ein schönes Kleid ,leider ist die Anleitung total unverständlich, ich komme einfach nicht auf die angegebene maschenzahl bei Größe L. Schade!!!

30.07.2017 - 16:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Thielen, Maschenanzahl für Größe L stimmt: am Anfang beginnen Sie mit 132 M. Bei Vorder- und Rückenteil werden insgesamt 2 M x 17 + 2 M x 6 = 46 M zugenommen - bei den Ärmeln werden insgesamt 2 M x 27 = 56 M zugenommen. Dann haben Sie: 138 + 46 (Vorderteil) + 46 (Rückenteil) + 56 x 2 Ärmel = 342 M. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2017 - 10:56

country flag Viviana wrote:

Hallo, Ik brei veel van jullie patronen omdat ik de uitleg zo fijn vind. Maar bij dit patroon loop ik toch even vast. Er staat namelijk: . Elke keer wanneer u A.1A tot A.1C een keer in de hoogte hebt gebreid, ga dan verder met nog 2 herhalingen van A.1B tussen A.1A en A.1C. Betekend dit dat ik A.1A en A.1C moet stil leggen? Als ik dit doe dan wordt het midden deel van de mouw toch langer dan de rest? Kunnen jullie dit uitleggen? Ik zou zo graag dit jurkje willen verder breien ;-)

24.07.2017 - 20:58

DROPS Design answered:

Hoi Viviana, Elke keer dat je A.1A tm A.1C hebt gebreid staan er meer steken op de naald door de meerderingen die in het telpatroon zitten. Daarom maak je op de volgende herhaling in de hoogte, nog 2 herhalingen in de breedte er bij van A.2B.

25.07.2017 - 19:20

country flag Eva Rossen wrote:

Der er sket et eller andet med opskriften siden jeg startede med at strikke modellen - nu mangler pludseligt diagrammet til ærmernes hulmønster og billedet af kjolen... Kan disse venligst tilføjes igen ?

20.06.2017 - 21:38

DROPS Design answered:

Hei Eva. Usikker på hva som kan ha skjedd, men på vår nettside vieses nå 1 bildet, 1 målskisse og 5 diagrammer. Så alt skal være ok til denne oppskriften.

21.06.2017 - 07:24

country flag Yiuvan wrote:

M encantaría realizar este diseño pero no entiendo los patrones soy principiante

30.04.2017 - 17:55

country flag Monika wrote:

Olisiko mahdollista saada ohje suomeksi? Kaunis malli.

29.04.2017 - 09:47

DROPS Design answered:

Klikkaa kuvan alla olevan valikon suomi-linkkiä, niin pääset suomenkieliseen ohjeeseen.

14.08.2017 - 14:08

Britta wrote:

Hey. This dress looks lovely. I would like to make it knee-length. How would it be best to do that? Don't seem to be able to find the best spot in the instructions. Thanks in advance!

28.04.2017 - 13:30

DROPS Design answered:

Dear Britta, we are unfortunately not able to adjust each our patterns to every individual request. You are welcome to contact your DROPS store, even per mail or telephone, they will provide you any further individual assistance. Happy knitting!

28.04.2017 - 13:55