My Sweetie |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Heilgalli fyrir skírn eða nafnagjöf heklaður ofan frá og niður með laskalínu og áferðamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0-2 ára.
DROPS Baby 29-5 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Heilgallinn í uppskrift er útskýrður með opi og tölukanti að aftan og gataumferð fyrir skrautborða við miðju að framan, en heilgallinn er alveg eins að framan og að aftan og er því hægt að snúa honum við og nota hann með op að aftan eða með op að framan (eins og útskýrt er á mynd). Ef óskað er eftir því að hafa opið að framan er hægt að hekla umferð með áferðamynstri yfir miðju 6 lykkjur í miðju að aftan ef maður vill ekki hafa gataumferð. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umferðar með fastalykkjum er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með stuðlum. Í byrjun hverrar umferðar með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur. Umferðin endar með 1 stuðli í loftlykkju frá byrjun fyrri umferðar með fastalykkjum. UMFERÐ MEÐ ÁFERÐAMYNSTRI: * 1 umferð fastalykkjur, 1 umferð stuðlar *, endurtakið frá *-* (1 umferð fastalykkjur + 1 umferð stuðlar = 1 umferð áferðamynstur). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla í sömu lykkju. MYNSTUR-1: Sjá mynsturteikningu A.1. Þegar umferð 1-3 hefur verið hekluð einu sinni á hæðina eru umferðir 2 og 3 endurteknar. MYNSTUR-2: Sjá mynsturteikningu A.2. ÚRTAKA: Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að bregða þræði um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin, dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni (nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Allt stykkið er heklað fram og til baka og heklað er ofan frá og niður frá miðju að aftan – LESIÐ LEIÐBEININGAR. BERUSTYKKI: Heklið 77-77-81 (85) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við) með heklunál 3 með BabyAlpaca Silk. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja loftlykkju út umferðina = 76-76-80 (84) fastalykkjur í umferð. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við op – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerkin eru sett í): Hoppið yfir fyrstu 12-12-13 (14) fastalykkjur (= hægra bakstykki þegar flíkin er mátuð), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir næstu 12 fastalykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir næstu 12-12-13 (14) fastalykkjur, setjið 1 prjónamerki á undan næstu fastalykkju (= miðja að framan), hoppið yfir 12-12-13 (14) fastalykkjur (þessar 24-24-26 (28) fastalykkjur = framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fastalykkju, hoppið yfir 12 fastalykkjur (= ermi) og setjið síðasta prjónamerki í næstu fastalykkju (nú eru 12-12-13 (14) fastalykkjur á vinstra bakstykki á eftir síðasta prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umferð frá réttu þanni: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, nema í hverja fastalykkju með prjónamerki er heklað 2 stuðlar + 2 loftlykkjur + 2 stuðlar = 88-88-92 (96) stuðlar í umferð. Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐAMYNSTRI – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fastalykkju frá röngu og heklaðar eru 2 loftlykkjur yfir 2 loftlykkjur frá fyrri umferð í laskalínu). Að auki er MYNSTUR-1 heklað – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 6 lykkjur við miðju að framan (ör í mynsturteikningu A.1 merkir miðju að framan). ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu (þ.e.a.s. í umferð með stuðlum) aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um loftlykkjuboga í hverri laskalínu (= 16 stuðlar útaukning í umferð – ATH: Heklið um báða loftlykkjubogana). Endurtakið útaukningu í hverri umverð frá réttu alls 1-2-3 (4) sinnum og síðan í annarri hverri umferð frá réttu alls 2 sinnum í öllum stærðum = 136-152-172 (192) lykkjur í umferð. Á eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umferð með fastalykkjum frá röngu eins og áður. Næsta umferð er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 20-22-25 (28) stuðlum (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 28-32-36 (40) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-8-8 (6) loftlykkjur, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 40-44-50 (56) fastalykkjum (= framstykki), hoppið yfir næstu 28-32-36 (40) fastalykkjur (= ermi), heklið 8-8-8 (6) loftlykkjur og heklið 1 stuðul í hverja af síðustu 20-22-25 (28) fastalykkjum (= vinstra bakstykki). Nú hafa verið heklaðar alls 7-8-9 (10) umferðir með áferðamynstri frá uppfitjunarkanti, stykkið mælist ca 11-12-13 (14) cm frá öxl og berustykki er nú lokið. Heklið fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu – heklið 1 fastalykkju í hvern stuðul frá fyrri umferð og 1 fastalykkju í hverja af 8-8-8 (6) loftlykkjum undir hvorri ermi = 96-104-116 (124) fastalykkjur í umferð. Haldið áfram fram og til baka með áferðamynstri og A.1 eins og áður – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar stykkið mælist ca 24-30-32 (36) cm frá hálsmáli (þ.e.a.s. ca 27-33-35 (39) cm frá öxl) – stillið af að síðasta umferð sé 1 umferð með stuðlum frá réttu, endar bæði op fyrir kant við miðju að aftan og A.1 við miðju að framan. Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í byrjun og í lok umferðar til að merkja op á kanti. Haldið áfram fram og til baka með umferð með áferðamynstri yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-35-39 (43) cm frá hálsi (og ca 32-38-42 (46) cm frá öxl) skiptis stykkið upp fyrir skálmar og hvor skálm er hekluð til loka fyrir sig. SKÁLM: Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með umferð með áferðamynstri og til baka yfir fyrstu 48-52-58 (62) lykkjur í umferð (þ.e.a.s. yfir helming af lykkjunum). Þegar skálmin mælist 2-2-3 (3) cm frá prjónamerki er fækkað um 1 fastalykkju/stuðul í hvorri hlið -LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 1½-2-2 (2½) cm millibili alls 7-7-8 (8) sinnum) = 34-38-42 (46) lykkjur. Þegar skálmin mælist 14-17-20 (25) cm frá prjónamerki við skiptingu eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Skálmin mælist ca 18-21-24 (29) cm og allur gallinn mælist ca 50-59-66 (75) cm frá öxl. Heklið hina skálmina á sama hátt. ERMI: = 28-32-36 (40) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið 4-4-4 (3) loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju og heklið 6-6-6 (5) loftlykkjur. Snúið stykkinu, heklið 1 stuðul í 4. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 stuðul í hverja af 2-2-2 (1) næstu loftlykkjum, 1 stuðul í hverja fastalykkju frá fyrri umferð og 1 stuðul í hverja af 4-4-4 (3) loftlykkjum frá byrjun fyrri umferðar = 36-40-44 (46) lykkjur í umferð. Heklið nú umferð með áferðamynstri fram og til baka eins og áður. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum er fækkað um 1 lykkju á hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 6 -4-3½ (4½) cm millibili alls 2-3-4 (4) sinnum) = 32-34-36 (38) lykkjur. Þegar ermin mælist 13-15-17 (21) cm frá prjónamerki við handveg eru heklaðar fastalykkjur fram og til baka yfir allar lykkjur í 4 cm. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 17-19-21 (25 cm) frá prjónamerki. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana. Saumið saman op undir ermum. Brjótið e.t.v. uppá kantinn neðst á ermum og á skálmum. Saumið saman op við miðju að aftan frá prjónamerki þar sem kantur fyrir tölur endaði og niður að skiptingu fyrir skálmum – saumið í ystu lykkjubogana. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá röngu neðst niðri á hægra bakstykki og heklið MYNSTUR-2, þ.e.a.s. heklið þannig: 1 fastalykkja um ysta stuðulinn, * heklið 2 stuðla + 2 loftlykkjur + 2 stuðla um næsta stuðul, 1 fastalykkja um næsta stuðul *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra bakstykki fyrir háls og endið með 1 keðjulykkju yst í hornið við hálsmál. Snúið stykkinu og heklið til baka frá réttu þannig: 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju), heklið síðan * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju í næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga mitt í stuðlahóp *, endurtakið frá *-* og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í síðustu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Saumið niður kant að framan neðst niðri við skiptingu. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN OG HÁLSMÁL: Heklið fyrstu umferð eins og á hægri kant að framan, en byrjið frá réttu neðst niðri á vinstra bakstykki og heklið eins og á hægri kant fyrir tölur upp að hálsi, en í stað þess að enda með 1 keðjulykkju í horni við háls heldur kantur áfram í kringum háls þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju meðfram hálsmáli þar til 3 lykkjur eru eftir á undan fyrstu lykkju með prjónamerki í (laskalína), hoppið yfir þessar 3 lykkjur og heklið 4 stuðla í lykkjuna með prjónamerki í, hoppið yfir 3 næstu lykkjur og haldið áfram með 1 fastalykkju í hverja lykkju þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næstu lykkju með prjónamerki í (laskalína), hoppið yfir þessar 3 lykkjur og heklið 4 stuðla í lykkju með prjónamerki í. Haldið svona áfram í kringum hálsmál og endið með 1 keðjulykkju yst í umferð, snúið stykki og heklið næstu umferð frá röngu (í kringum hálsmál) þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu/næstu lykkju, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 fastalykkjur *, endurtakið frá *-* fram að horni á undan kant fyrir tölur, síðan er heklað niður yfir kant fyrir tölur eins og í hægri kanti. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið tölur í hægri kant að framan. ATH: Hneppt er í gegnum loftlykkjuboga í vinstri kant að framan – byrjið með 1 tölu í efsta loftlykkjubogann, síðan á að vera 1 tala í öðrum hverjum loftlykkjuboga niður. Þræðið silkiborða upp og niður í gegnum gataumferð í A.1 meðfram miðju að framan (byrjið og endið við hálsmál og endið með að hnýta slaufu við hálsmál). Ef nota á gallann með op að framan er hægt að þræða silkiborðann upp og niður á milli stuðla meðfram miðju að framan (sjá ljósmynd). |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (41)
Salvo wrote:
Salve il non ho capito questa parte: lavorare il motivo-1 – vedere le spiegazioni sopra, sulle 6 maglie al centro sul davanti; la freccia nel diagramma A.1 coincide con il segno al centro sul davanti)
18.02.2018 - 18:30DROPS Design answered:
Buonasera Salvo. Sulle tre maglie che precedono e che seguono il segno che ha messo al centro sul davanti, deve lavorare il diagramma A.1. La freccia coincide con il segno. Buon lavoro!
18.02.2018 - 19:33Sasy wrote:
Salve io possiedo un filato diverso come faccio a calcolare le catenelle giuste da avviare per lo sprone?
18.02.2018 - 11:23DROPS Design answered:
Buongiorno Sasy, per utilizzare un filato diverso deve provare a fare un campione con il suo filato e rifare le proporzioni per il modello. Buon lavoro!
02.07.2018 - 17:01Clara wrote:
Je m excuse je reviens souvent,y-a-t-il des rangs de brides à l'endroit où il n y a pas d'augmentations ? si oui comment je fais au dessus des 2 m en l'air des raglans du rang précédent ?
14.12.2017 - 12:00DROPS Design answered:
Bonjour Clara, quand on augmente tous les 2 rangs sur l'endroit, on va crocheter 1 rang de brides sans augmenter sur l'endroit entre 2 rangs de brides avec augmentations. Crochetez simplement 1 bride dans chaque bride et 2 mailles en l'air (comme pour les mailles serrées). Bon crochet!
15.12.2017 - 09:05Clara wrote:
Est-ce qu il y a des rangs où il n y a pas d augmentation ?parce que moi je n ai que 5 rangs texturés au lieu de 7
14.12.2017 - 10:53Clara wrote:
Bonjour,je travaille en taille 1/3 mois, j ai fait une augmentation 1 fois tous les rangs puis 2 fois tous les 2 rangs sur l 'endroit avec 136 m au total, jusque-là on aura combien de rangs texturés?
14.12.2017 - 10:25DROPS Design answered:
Bonjour Clara, il me semble que cela nous donnera 7-8 rangs textures. Bon crochet!
14.12.2017 - 10:41Margareth Næss wrote:
Hei, jeg kommer også til hit "men på hver rad med fm fra vrangen hekles det 2 lm over de 2 lm fra forrige rad i raglanlinjene). " Men, hva gjøres over de to lm på annen hver rad, den det ikke skal økes på?
23.08.2017 - 22:26Anika wrote:
Hallo, Am Ende des passee komme ich nicht auf 8 strukturreihen in der zweiten Größe, sondern auf 6. Es sind 88 Stäbchen nach der ersten Zunahme (1.strukturreihe) und am ende sollen es 152 Stäbchen sein. Wenn ich pro hin-reihe/stäbchenreihe 16 Stäbchen aufnehme, sind das vier strukturreihen. Plus die erste sind dann in der Summe fünf, plus die letzte wo dann die ÄrmelLöcher gehäkelt werden , sind es sechs strukturreihen. Was mache ich falsch??? Bitte um Hilfe, Anika
13.08.2017 - 12:51DROPS Design answered:
Liebe Anika, in der 2. Größe wird es nach den 88 M noch 1 x in jeder Hin-Reihe zugenommen (= 120 M) und dann noch 2 x in jeder 2. Hin-Reihe zugenommen, so insgesammt Strukturreihen. Viel Spaß beim häkeln!
28.08.2017 - 11:18Denis wrote:
Hallo, Im Text bei der Zunahme im passee steht "Diese Zunahme in jeder hin-Reihe insgesamt 1-2-3 (4)x arbeiten und dann in jeder 2.hinreihe insgesamt 2x in allen Größen." Ich verstehe nicht wie das gemeint ist und komme an der Stelle nicht weiter. ... Bitte helft mir es zu verstehen. LiebeN Dank, Denis
12.08.2017 - 12:49DROPS Design answered:
Liebe Denis, sie haben gerade 16 Stb zugenommen, diese Zunahmen sollen je nach der Größe in jeder Hin-Reihe noch 0-1-2 (3) x gearbeitet werden, dann in jeder 2. Hin-Reihe (= in jede 4. Reihe) 2 x gearbeitet. Viel Spaß beim häkeln!
28.08.2017 - 11:01Denis wrote:
Hallo, Im Text bei der Zunahme im passee steht "Diese Zunahme in jeder hin-Reihe insgesamt 1-2-3 (4)x arbeiten und dann in jeder 2.hinreihe insgesamt 2x in allen Größen." Ich verstehe nicht wie das gemeint ist und komme an der Stelle nicht weiter. ... Bitte helft mir es zu verstehen. LiebeN Dank, Denis
12.08.2017 - 11:49Anika wrote:
Hallo, Am Anfang sind 4 markierer zu setzen. Im weiteren Text kommen jedoch fünf markierer zum Einsatz. Bitte um Korrektur. Lieben Dank.
11.08.2017 - 21:19DROPS Design answered:
Liebe Anika, es werden insgesamt 4 Markierungsfaden für den Raglan eingesetzt und noch dazu 1 Markierer (= vordere Mitte). Viel Spaß beim häkeln!
28.08.2017 - 09:51