DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 178-67
DROPS Design: Mynstur w-642
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni: DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 16, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR(40 + 60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir kanta með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1408.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um handveg):
Fækkið lykkjum fyrir handveg innan við 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan 4 kantlykkjum og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handvegi, síðan er framstykkið og bakstykki prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-132-144-168-192-204 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið A.1 (= 10-11-12-14-16-17 mynstureiningar 12 lykkjur). Þegar prjónaðar hafa verið 12 umferðir í A.1 er skipt yfir á hringprjón 5 áður en haldið er áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka mælist stykkið ca 11 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir 60-66-72-84-96-102 lykkjum (= í hliðum). Prjónið síðan sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13-13-14-14-14-15 cm aukið út hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2-2-2-4-4-4 cm millibili alls 4-4-4-3-3-3 sinnum í hvorri hlið = 136-148-160-180-204-216 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 14-14-16-18-18-20 lykkjur í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum – aðrar lykkjur í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður). Í fyrstu umferð á eftir 4 umferð í garðaprjóni eru felldar af 6-6-8-10-10-12 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (fellið af 3-3-4-5-5-6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Fram- og bakstykki eru nú prjónað hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 62-68-72-80-92-96 lykkjur. Prjónið sléttprjón, en 4 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir handveg – LESIÐ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 3-5-6-10-17-17 sinnum og síðan í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 4-4-4-3-0-0 sinnum í hvorri hlið = 48-50-52-54-58-62 lykkjur eftir á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón og 4 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 11-12-12-13-14-16 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið af. Prjónið síðan hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 62-68-72-80-92-96 lykkjur. Prjónið síðan alveg eins og á bakstykki og fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-32-33-35-36-38 cm setjið miðju 12-12-10-10-10-10 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið síðan eins og áður og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hveri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-3-4-4 sinnum = 11-12-12-13-14-16 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 70 til 86 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stutta hringprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = KÚLA: Prjónið 1 lykkju slétt framan í og aftan í sömu lykkju þar til komnar eru 4 lykkjur, snúið við og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir þessar 4 lykkjur, snúið við og prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Notið vinstri prjón og steypið annarri lykkjunni á hægri prjóni yfir fyrstu lykkjuna og af prjóni, steypið þriðju lykkjunni yfir fyrstu lykkjuna og síðan fjórðu lykkjuna yfir fyrstu lykkjuna (= 1 lykkja eftir)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Joyful Jane

blancheart, Germany

Joyful Jane

Solveig, Norway

Joyful Jane

Jessica, Sweden

Joyful Jane

@schuju.crafts, Sweden

Joyful Jane

Lise, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS 178-67

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Robert wrote:

Combien de pelotes dois je commander pour un top taille S

03.10.2022 - 15:10

DROPS Design answered:

Bonjour, 4 pelotes pour la taille S (200g/50g=4 pelotes). Bon tricot!

03.10.2022 - 15:16

country flag Esther Krunufjall wrote:

Kan man ikke lave opskriften om, så den passer til strikkepinde nummer 3? Mvh Esther

13.05.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Hej Esther, vi kan desværre ikke hjælpe med at skrive opskriften om. Men her finder du masser af søde toppe som er strikket på pind nummer 3: Dame - Toppe - pind 3

13.05.2022 - 10:20

country flag Donatella wrote:

Buongiorno. Vorrei chiedervi come devo iniziare il giro 23...se inizio dal gettato e poi le 3 maglie insieme non mi viene corretto il lavoro. Grazie per l'aiuto.

06.05.2021 - 18:43

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella, in quel punto il giro dev'essere spostato indietro di una maglia. Buon lavoro!

06.05.2021 - 21:17

country flag Dawn Humphrey wrote:

I have the circular needles to knit this pattern but would prefer to use straight ones. Could I just halve the cast on stitches and follow the pattern as two parts for back and front ?

01.04.2021 - 11:57

DROPS Design answered:

Hi, of cours you can. Please check the lesson DROPS HERE. Happy knitting!

01.04.2021 - 13:35

country flag Rosa Alvarez wrote:

Buenos dias. Tengo una duda, los 22 centimetros hasta la sisa , se contabilizan desde el inicio de la prenda. Ó desde el final del dibujo? Gracias.

12.03.2021 - 01:22

DROPS Design answered:

Hola Rosa, desde el inicio de la prenda. Buen trabajo!

12.03.2021 - 11:20

country flag Ula wrote:

Drogi Dropsie 😉 Dziekuje za znak. Szczerze mowiac jestem juz jakies 3 projekty do przodu. Usiluje sobie odtworzyc lecz nadaremnie 🙈Niemniej jednak znalazlam źródło nieścisłości a bluzeczka gotowa. Bardzo dziekuje za gotowosc to pomocy! I zawsze dziekuje serdecznie za pomoc przeszłą i przyszłą 🤗 Dołączyłabym zdjecie ale nie wiem jak..🙈

23.11.2020 - 12:23

DROPS Design answered:

Witaj Ulu, zamieść zdjęcia na naszej grupie na facebooku DROPS Workshop, a jeśli udostępniasz już swoje prace gdzieś na facebooku, albo na instagramie, możesz przesłać nam linki do swoich dzieł na naszej stronie w dropsfan gallery TUTAJ. Pozdrawiamy serdecznie!

23.11.2020 - 17:00

country flag Ula wrote:

Dzień dobry! Wykonalam tyl. Wszystko sie zgodziło. Jednak po zamknieciu po 3o.po obu stronach na podkroj rekawa na przodzie mam 22o.po obu stronach na ramiona i 12o na drucie pomocniczym. Czyli (62-12-6):2=22. Zamykajac jak na tyle na rekawy 3x1, 4x1 zostaje mi 15o. na ramię. Po odjeciu 7o na dekolt zostaje 8o. Prosze o pomoc co robie nie tak..

17.08.2020 - 13:10

DROPS Design answered:

Witaj Ulu, przepraszam, że przegapiłam twoje pytanie, zmyliła mnie flaga UK. Napisz czy się udało, a jak nie to jaki rozmiar wykonujesz. Pozdrawiam!

20.11.2020 - 17:05

country flag Wenche Myhre wrote:

Jeg får ikke maske antallet man skal ha igjen på skulderen til å stemme med så mange det står at man skal ha i oppskriften?.... strikker str L og får mye færre masker igjen på skulderen? Har regnet og regnet men skjønner ikke det her.

11.07.2020 - 08:21

DROPS Design answered:

Hei Wenche. Bakstykket = 72 masker, felle 1 maske i hver side 6 ganger på annenhver pinne = 12 felte, deretter felle 1 maske i hver side 4 ganger på hver 4. pinne = 8 felte masker. Når arbeidet måler 40 cm felles de midterste 26 masker og du har 13 masker på hver skulder. Felle 1 maske i hver side mot halsen = 12 masker på hver skulder. Forstykket: Fell som bakstykket = 52 masker, når arb måler 33 cm settes de midterste 10 maskene på 1 tråd. 21 masker på hver skulder, fell 2 masker 3 ganger i hver side mot hals = 15 masker på hver skulder, deretter felles det 1 maske 3 ganger på hver skulder = 12 masker på hver skulder, samme som bakstykket. God Fornøyelse!

13.07.2020 - 11:13

country flag Barbier Brigitte wrote:

Bonjour, Quel sorte de jeté faut-il faire au début du 23 rang de A.1 puisque la maille qui vient après n'est ni une maille endroit, ni une maille envers mais une maille glissée ? et pourquoi ce rang est-il décalé ? Je débute...Merci !

01.03.2019 - 00:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barbier, au 23ème rang de A.1, commencez ce tour 1 maille avant la fin du tour, faites 1 jeté (= 1ère m de A.1), déplacez votre marqueur début de tour ici, glissez la m suivante à l'endroit (= la dernière m du tour), tricotez les 2 m suivantes ensemble à l'end (= les 2 premières m du 1er A.1), et passez la m glissée par-dessus la m tricotée. Continuez A.1 ainsi, c'est-à-dire que la dernière m de chaque motif est remplacée par le jeté du début du A.1 précédent, et cette dernière maille se tricote avec les 2 premières m du A.1 suivant. Bon tricot!

01.03.2019 - 09:59

Linda wrote:

I wish the patterns would be designed for flat knitting and not circular

15.07.2017 - 17:10

DROPS Design answered:

Dear Linda, please find here some tips to adapt a pattern onto straight needles. Happy knitting!

17.07.2017 - 10:01