DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9367.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Rainbow Hugs

Prjónuð peysa með Fana mynstri, hringlaga berustykki, röndum, prjónuð ofan frá og niður með klauf í hliðum úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.

DROPS 183-25
DROPS Design: Mynstur ne-247
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-650-750-800-900 g litur 0300, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 1709, sæblár
50-50-50-50-50-50 g litur 8906, skógur
50-50-50-50-50-50 g litur 8905, djúpsævi
50-50-50-50-50-50 g litur 6314, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 4434, fjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 2923, skærgulur
50-50-50-50-50-50 g litur 8910, hindber
50-50-50-50-50-50 g litur 3608, djúprauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 fyrir kant með garðaprjóni – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9367.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka – á við um fram- og bakstykki):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring – á við um berustykki og ermar):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

HRINGLAGA BERUSTYKKI:
Aukið er út í berustykki hvoru megin við lykkjur með prjónamerki (= 16 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð – sjá ör í A.1) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri). Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið í næstu umferð, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman.
Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar með grunnlit.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður.
Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur og þá verður berustykkið aðeins hærra í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 74-78-82-86-90-96 lykkjur á hringprjón 4 með litnum beige Nepal.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið síðan frá miðju að aftan þannig: Prjónið 13-14-15-16-17-18 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-2-2-2-3-5 lykkjur jafnt yfir, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 11 sinnum, 26-28-30-32-34-37 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-4-4-4-6-9 lykkjur jafnt yfir, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 11 sinnum, 13-14-15-16-17-19 lykkjur sléttprjón og aukið út um 0-2-2-2-3-4 lykkjur jafnt = 96-108-112-116-124-136 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn, það á ekki að myndast gat. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun.

UPPHÆKKUN Í HNAKKA:
Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = miðja að aftan.
Byrjið frá réttu með litnum beige og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur fram hjá prjónamerki.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt.
Snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt að miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Setjið 8 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 5-7-6-8-9-8 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, * 11-12-13-13-14-16 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju *, prjónið frá *-* alls 7 sinnum, endið með 6-9-7-9-9-8 lykkjur sléttprjón.
Í næstu umferð er prjónað A.1 (= 24-27-28-29-31-34 mynstureiningar með 4 lykkjum) JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – lesið HRINGLAGA BERUSTYKKI, í umferð merktri með ör í mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út alls 9-10-11-12-13-14 sinnum (þegar aukið hefur verið út áætlaður fjöldi, er ekki lengur aukið út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu) = 240-268-288-308-332-360 lykkjur. Haldið áfram með mynstur án útaukningar þar til stykkið mælist 21-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig – passið uppá að þetta sé umferð sem er prjónuð með litnum beige: Prjónið 34-38-40-44-49-54 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi), prjónið 68-76-80-88-98-108 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 52-58-64-66-68-72 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= undir ermi) og prjónið þær 34-38-40-44-49-54 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTSYKKI:
= 148-164-176-192-216-236 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu.
Haldið áfram með A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm frá þar sem ermar voru settar á þráð, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri) – lesið ÚTAUKNING! Aukið svona út með 5 cm millibili alls 6 sinnum = 172-188-200-216-240-260 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-30-31-31-31-31 cm frá þar sem stykkið skiptist, skiptið stykkinu upp við prjónamerkin og framstykki og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig (= 8 cm klauf).

BAKSTYKKI:
= 86-94-100-108-120-130 lykkjur. Stykkið er nú prjónað fram og til baka. Prjónið sléttprjón með 5 lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki. Þegar stykkið mælist 36-37-38-38-38-38 cm frá prjónamerki, skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með hringprjón 5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Stykkið mælist alls ca 62-64-66-68-70-72 cm mælt frá öxl.

FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 52-58-64-66-68-72 lykkjur af þræði frá annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-64-72-74-78-82 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram með litnum beige. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2-1½-1½ cm millibili alls 10-12-16-16-17-18 sinnum = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-40-38-37-35 cm, skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir allar lykkjur. Fellið af með sokkaprjón 5 (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur). Ermin mælist ca 42-41-41-39-38-36 cm frá þar sem stykkið skiptist upp í fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
Teikning sem sýnir mál hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 29.04.2019
Leiðrétting - UPPHÆKKUN Í HNAKKA:..snúið, herðið á bandi og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á bandi og prjónið slétt að miðju að aftan.

Mynstur

symbols = beige
symbols = sæblár
symbols = skógur
symbols = djúpsævi
symbols = gallabuxnablár
symbols = fjólublár
symbols = skærgulur
symbols = hindber
symbols = djúprauður
symbols = útaukningsumferð

diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rainbow Hugs

Isabelle Mock, Germany

183-25 Rainbow Hugs

Selva, Canada

Rainbow Hugs

Annalisa, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 183-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Vicky Wills wrote:

Hi, Is it possible to knit the sleeves using circular needles instead of DPN's? I'm still learning and don't know how to use DPN's but okay on circular Do you then follow A1 from the start of the chart for the sleeves?

26.08.2021 - 13:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wills, sure you can, you will then divide the sts on sleeve from mid under sleeve in 2 parts and knit with the magic loop technique, beg of rounds are mid under sleeve, and follow A.1 starting from the mid under sleeve, as for dpn. Happy knitting!

26.08.2021 - 16:25

country flag Tiina wrote:

How do the sizes go?? What are measures in centimeters for example in XL, XXL ?

14.09.2020 - 14:08

DROPS Design answered:

Dear Tiina, you will find measurements for each size in the measurement chart - read more about the shematic drawing here. Happy knitting!

14.09.2020 - 15:48

country flag Isabelle Vavasour wrote:

I have just picked up the stitches to knit the sleeve, having finished the body of the jumper. I have 74 stitches as instructed in the pattern BUT the pattern requires a repeat of 4... and 74 is not a multiple of 4... what should i do?

17.01.2020 - 18:41

DROPS Design answered:

Dear Isabelle, for those stitches you cannot fit into the patter, knit with the color of the stripe's base(background color). Happy Knitting!

19.01.2020 - 00:53

country flag Birgitte wrote:

Hej Jeg skal til at strikke Drops 183-25 i str. M Jeg kan dog ikke få maskeantal til at gå op ved udtagninger i halskant. Der står flg. i opskriften Strik 14 m., tag 2 masker ud 11 gang. Strik 28 masker, tag4 masker ud 11 gange, strik 14 masker, tag 2 masker ud. Der står i opskriften at maskeantal nu er 108, jeg får maskeantal til 124. Hvad gør jeg forkert? Mvh Birgitte Juul

07.10.2019 - 09:57

DROPS Design answered:

Hei Birgitte. Du har 78 masker og strikkes slik: Strikk 14 masker, øk 2 masker jevnt fordelt, deretter strikkes det slik 11 ganger: *1 kast, 1 rett* (= 22 masker), strikk 28 masker, øk 4 masker, deretter strikkes det slik 11 ganger igjen: *1 kast, 1 rett (= 22 masker), strikk 14 masker, øk 2 masker (= 14+2+22+28+4+22+14+2) = 108 masker. God Fornøyelse!

07.10.2019 - 14:01

country flag Laurence wrote:

Bonjour, je ne comprends les explications pour les augmentations à faire après les 2 cotes mousse ? pouvez vous me donner des explications plus simples pour la taille M ? merci beaucoup

02.05.2019 - 21:48

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, cette leçon vous explique comment augmenter à intervalles réguliers. Bon tricot!

03.05.2019 - 08:58

country flag Susan wrote:

Die Nackenerhöhung ist unvollständig - wenn man es sich aufzeichnet, wie es beschrieben ist, hat man am Ende auf der einen Seite der Mitte 6 verkürzte Reihen und auf der anderen Seite der Mitte nur 4 verkürzte Reihen, so dass am Ende nochmal bis über die Mitte hinaus zum anderen Wendepunkt (66-66... Maschen) gestrickt werden muss, damit man am Ende auf beiden Seiten gleich viele verkürzte Reihen hat.

25.04.2019 - 08:19

DROPS Design answered:

Liebe Susan, Sie sind ja recht, eine Korrektur erflogt gleich. Viel Spaß beim stricken!

29.04.2019 - 13:57

country flag Eva Cisneros wrote:

Estoy haciendo el jersey en la talla S. En la parte de poner los marcadores no me cuadran los puntos. Tengo 96 puntos. Si tengo que hacer 5 puntos y marcar 7 veces cada 11 puntos y me quedan 6. Suman 88 puntos. Me sobran 8 puntos.

09.03.2019 - 00:58

DROPS Design answered:

Hola Eva. Los 8 puntos no sobran - son los puntos con los marcapuntos

10.03.2019 - 20:33

country flag Selva AKINCI wrote:

My question is about inserting 8 markets before the yoke. The pattern tells me to knit 8 stitches (for size XL) insert a marker and knit 13 stitches and insert a marker and repeat this 6 more times, after which I am supposed to knit 9 more stitches. But this falls short of the total of 116 stiches for 116 stitches of size XL by 8 stiches. Are those extra 8 stiches in the back? (8+(13×7)+9=108. 116-108=8.

20.07.2018 - 18:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Akinci, the 8 missing sts looks to be the sts with markers, ie you insert here markers in the next st and not between sts, so that your number of stitches will then match. Happy knitting!

23.07.2018 - 09:00

country flag Nuala Brummitt wrote:

Thank you for your reply. I had already done what you suggested, as it seemed to me to be the only way forward, glad I got it right! Unfortunately that particular 'turn' left a hole, even though I 'wrapped & turned' it, but hopefully I'll be able to 'draw' it together, when I 'block'. All else good! Thank You!

25.01.2018 - 21:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brummitt, you can also use the technique of wrap & turns for the short rows on elevation - see here from RS and here from WS. Happy knitting!

26.01.2018 - 08:22

country flag Nuala Brummitt wrote:

As the last short row for the back of neck elevation, is a purl row, how do you get back to knit rows, or 'stocking stitch' on circular needles?

24.01.2018 - 21:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brummitt, when you have worked the last short ro from RS, turn and P all sts to the end of row (= to mid back again). Turn and continue now from RS. Happy knitting!

25.01.2018 - 08:18