DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Opaline

Prjónað sjal í garðaprjóni og gatamynstri. Stykkið er prjónað frá hlið með 2 þráðum DROPS Kid-Silk.

DROPS 188-37
DROPS Design: Mynstur ks-133
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Lengd: ca 169 cm mælt meðfram hlið án blúndu
Breidd: ca 46 cm mælt þar sem það er breiðast (með blúndu)

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75 g litur 08, gráblár
75 g litur 07, ljós gráblár

DROPS PRJÓNAR EÐA HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 6 - eða þá stærð sem þarf til að 15 lykkjur og 29 umferðir með garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8580.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á prjóna eða hringprjóna. Prjónað er frá hlið með útaukningu frá annarri hlið fram að miðju, síðan er lykkjum fækkað á sömu hlið þannig að sjalið fái þríhyrnt útlit. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni (= allar umferðir eru prjónaðar slétt).

SJAL:
Fitjið upp 3 lykkjur á prjón 6 með 1 þræði af hvorum lit Kid-Silk = 2 þræðir. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið síðan mynsturteikningu A.1. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 19 lykkjur í umferð.

Prjónið A.2 yfir 3 lykkjur, setjið eitt prjónamerki á prjóninn, prjónið A.3 yfir næstu 16 lykkjur. Prjónamerkið á að vera innan við A.3 í gegnum allt stykkið, þannig verður auðveldara að sjá hvar A.3 byrjar og hvar auka skal út í A.2. Haldið áfram að prjóna A.2 og A.3, þegar prjónað hefur verið upp að umferð merktri með ör eru prjónaðar 2 stuttar umferðir EINUNGIS yfir lykkjur í A.2 (= 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu). ATH! Í síðustu umferð í A.3 eru felldar af 6 lykkjur yst í A.3 (eins og útskýrt er í mynsturteikningu) áður en prjónað er yfir allar lykkjur í umferð. Nú eru 22 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓFNESTUNA!

Prjónið sléttar lykkjur fram þar til eftir eru 3 lykkjur á undan prjónamerki, prjónið A.2 yfir 3 lykkjur, flytjið prjónamerkið yfir til hægri og prjónið A.3 yfir 16 lykkjur.
Prjónið þar til A.3 hefur verið prjónað alls 17 sinnum á hæðina (= 17 blúndur í hlið) og það eru 70 lykkjur í umferð (= 54 lykkjur fram að prjónamerki og 16 lykkjur í A.3).

Nú eru prjónaðar 3 mynstureiningar af A.3 á hæðina, ÁN útaukningar.
Prjónið þannig: Prjónið sléttar lykkjur fram að prjónamerki, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón og prjónið A.3 yfir 16 lykkjur. Prjónið þar til A.3 hefur verið prjónað svona 3 sinnum á hæðina (alls 20 sinnum í öllu sjalinu).

Prjónið sléttar lykkjur þar til 6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið mynsturteikningu A.4 yfir 6 lykkjur, færið prjónamerkið yfir á hægri prjón og prjónið A.3 yfir síðustu 16 lykkjur.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 67 lykkjur í umferð. Prjónið svona þar til prjónaðar hafa verið alls 36 mynstureiningar af A.3 (= 36 blúndur í hlið) og það eru 22 lykkjur í umferð.

Prjónið A.4 yfir 6 lykkjur, flytjið prjónamerkið yfir á hægri prjón og prjónið A.3 yfir 16 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu 1 sinni á hæðina, nú eru 19 lykkjur í umferð (3 lykkjur fram að prjónamerki og 16 lykkjur í A.3). Nú hafa verið prjónaðar alls 37 mynstureiningar af A.3 á sjali.

Prjónið A.5 yfir allar lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina eru 3 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt og fellið af með sléttum lykkjum í næstu umferð. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, svo að ekki myndist gat
symbols = lykkja sem er felld af frá röngu
symbols = slétt lykkja frá réttu og slétt lykkja frá röngu, en einungis yfir lykkjur í A.3 (stuttar umferðir)
symbols = þessar lykkjur eru ekki prjónaðar, einungis sýndar vegna styttri umferða í A.3
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Denise Rancourt wrote:

Après avoir terminé mon châle, j'ai constaté une erreur ; au diagramme A-4, il devrait y avoir une jetée après les 2 mailles ensemble aux rangs 1 - 5 et 9, tel que le diagramme 2, afin d'avoir une ligne de jetées au dessus des pointes.

17.04.2019 - 03:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rancourt, il ne manque pas de jetés dans A.4, c'est A.4 qui va permettre de diminuer le nombre de mailles, on continue ensuite le point ajouré A.3 sur les 16 dernières mailles (= on diminue avant A.3). Bon tricot!

23.04.2019 - 15:56

country flag Véronique wrote:

Je viens de terminer le châle. J'ai utilisé L'Alpage Silk aig 6. Le rendu est vaporeux et très doux. Il y a juste un défaut d'après moi dans le modèle. Dans la pointe du début, il y a 3 jetés qui font 3 trous et dans la pointe de fin, il n'y a que 2 trous. Je vais refaire le modèle en remplaçant dans A1 le jeté de droite par un jeté torse pour n'avoir que 2 trous ; idem sur les 3 premiers jetés.

14.01.2019 - 21:59

country flag Denise wrote:

Ich habe die frage von Katharina gelesen und mir dies angeschaut was sie nicht so schön findet. Wäre es nicht besser wenn man diese 3 umschläge verkehrt strickt, damit es keine löcher gibt? Oder aus einer 2 machen.

18.12.2018 - 15:55

DROPS Design answered:

Liebe Denise, gerne dürfen Sie anpassen, wie Sie am besten möchten, aber so wie in der Anleitung wird das Tuch hier gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

19.12.2018 - 08:48

country flag Katharina wrote:

Hat sich bei dem Muster eventuell ein Fehler eingeschlichen? A1 und somit der Beginn wir mit 3 Umschlägen gestrickt; somit ergeben sich auch 3 Lochmusterreihen. A5 und somit das Ende des Tuches wird hingegen nur mit 2 Umschlägen gestrickt und ergibt daher nur 2 Lochmusterreihen. Optisch sieht das nicht so schön aus, da man es eindeutig sieht, wenn das Tuch umgelegt wird. Soll dies bewußt so sein? Sonst ein wunderschönes Tuch, welches sich sehr schnell strickt!

18.06.2018 - 11:58

DROPS Design answered:

Liebe Katharina, es gibt keine Lochmuster mehr am Ende A.5, da es nicht genügend Maschen für das Lochmuster gibt: in A.1 wird es zugenommen (mit Umschläge) ohne Abnahme, in A.5 wird es nur abgenommen (ohne Umschläge/Zunahmen). Viel Spaß beim stricken!

27.06.2018 - 13:55

country flag Mattie Blanchard wrote:

I like the pattern on this shawl, but would like to make a rectangular scarf with the design running along both sides and bottom of the rectangle. Do you have any instructions for reversing the design? Or a similar pattern for a rectangular shawl?

02.04.2018 - 21:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Blanchard, we are unfortunately not able to adjust every our pattern to every individual request. You will find our knitted scarves here. Happy knitting!

03.04.2018 - 09:53

country flag Zaza wrote:

Je pense avoir fait A2 et A3 une fois de trop. Je défais et je vérifie mes mailles. zaza

26.02.2018 - 19:05

country flag Zaza wrote:

Je me suis peut etre mal expliquée, désolée, du fait que je constate que j'ai 3 mailles en plus par rapport au résonnement du calcul , je n'arrive pas à voir ou j'ai pu faire mon erreur. Me reste plus qu'à tout recommencer. Merci pour votre aide cordialement zaza

26.02.2018 - 16:53

country flag Zaza wrote:

Je me suis peut etre trompée à cause du jeté entre 2 mailles. Tricoter le jeté torse à l'endroit au rang suivant pour éviter un trou. = rabattre cette maille sur l'envers. Est ce que je devais le tricoter torsé à l'endroit et le rabattre ensuite ?? Je vais devoir tout recommencer Merci pour votre aide cordialement zaza

26.02.2018 - 15:31

DROPS Design answered:

Bonjour Zaza, ce jeté à tricoter torse à l'endroit au rang suivant pour éviter un trou se tricote dans A.2 (= augmentations), les mailles qui se rabattent sont celles de A.3, pas de A.2 (à moins que je comprenne mal votre question). Bon tricot!

26.02.2018 - 15:39

country flag Zaza wrote:

Bonjour, je viens de terminer les 17 pointes de A 3. En comptant le nombre de mailles j'ai 57 mailles jusqu'au marqueur et 16 mailles de A 3. Ce qui me fait 73 mailles au total et non 70 mailles comme indiqué. Ou j'ai pu faire une erreur ? Merci pour votre aide. Cordialement zaza

26.02.2018 - 12:17

DROPS Design answered:

Bonjour Zaza, on répète 17 fois A.2/A.3 en hauteur, en augmentant 3 m à chaque fois dans A.2, on va augmenter 51 m au total avant le marqueur + les 3 mailles du départ = 54 m avant le marqueur. Bon tricot!

26.02.2018 - 12:45

country flag Regnault Pascaline wrote:

Bonjour j'ai commencé à tricoter le châle 188-7 mais je suis bloquée car je ne comprends pas vos explications après le diagramme A1 pouvez vous m'expliquer plus simplement la façon d'associé les diagrammes A2 et A3 car si j'ai bien compris au 33ème rang on commence par le 1er rang A2 et A3 et c'est le diagramme A2 qui augmente les mailles du châle? après avoir terminer les diagrammes A2 et A3 comment tricote t on Lles rangs suivants ? merci pour votre réponse

12.02.2018 - 19:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Regnault, après avoir tricoté 1 fois A.2 et A.3 en hauteur, répétez les diagrammes de la même façon mais en tricotant A.2 juste avant le marqueur = au 1er rang suivant, on tricote à l'endroit jusqu'à ce qu'il reste 3 m avant le marqueur, on tricote le 1er rang de A.2 = 3 m et on tricote A.3 sur les 16 dernières mailles. On continue donc toujours ainsi en tricotant à l'endroit jusqu'au début de A.2, puis on tricote A.2 avant le marqueur, et on termine par A.3 jusqu'à ce qu'il y ait 70 m (= 17 x A.3 en hauteur). On tricote ensuite 3 x A.3 sans augmenter (plus A.2) et on va diminuer ensuite avec A.4 avant le marqueur et A.3 comme avant. Bon tricot!

13.02.2018 - 10:19