DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 444.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Shore

Hekluð peysa með gatamynstri, hekluð í ferning frá miðju að aftan og út. Stærð S - XXXL. Stykkið er heklað úr DROPS Belle.

DROPS 187-7
DROPS Design: Mynstur vs-046
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 01, hvítur

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 stuðlar og 8 umferðir verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
1 mynstureining A.1 mælist 7 cm á hæð mælt frá loftlykkjuhring og upp að miðju af 3 loftlykkjubogum (= mitt í mynsturteikningu).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 444.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er skipt út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, eftir það eru heklaðar keðjulykkjur fram að fyrsta loftlykkjuboga í umferð.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næstu fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (ekki eru heklaðar 6 loftlykkjur á milli fastalykkja), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermar):
Á eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (= fyrsti loftlykkjubogi í næstu umferð). ATH: Merkið byrjun á umferð með prjónamerki á milli síðustu loftlykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATH: Passið uppá að prjónamerkið færist ekki til.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fyrst í hring frá miðu að aftan og út í ferning, síðan er heklað áfram fram og til baka fyrir framstykki í hvorri hlið. Ermar eru heklaðar í hring frá handveg og niður.

FERNINGUR:
Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Belle og tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju sem var hekluð. Heklið nú mynstur í hring frá umferð með ör í mynsturteikningu A.1 alls 4 sinnum hringinn í umferð – lesið HEKLLEIÐBEININGAR.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka mælist stykkið ca 14 x 14 cm.

Heklið síðan í hring frá umferð með ör í mynsturteikningu þannig: * A.2a, A.3, A.4a *, heklið frá *-* alls 4 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2a og A.4a hefur verið heklað til loka á hæðina, heklið A.2b yfir A.2a og A.4b yfir A.4a.

Endurtakið allar umferðir í A.2b, A.3 og A.4b á hæðina, en í hvert skipti sem A.3 hefur verið heklað til loka 1 sinni á hæðina og A.2b og A.4b hefur verið heklað til loka 2 sinnum á hæðina, heklið 2 mynstureiningar fleiri af A.3 á breiddina meðfram hverri af fjórum hliðum á ferning. Þegar stykkið mælist 36-38-40-42-44-46 x 36-38-40-42-44-46 cm – stillið af að síðasta umferðin sem er hekluð sé 2. eða 4. umferð í A.2b og A.4b, heklið fyrir handveg þannig:
Heklið mynstur eins og áður meðfram fyrstu hlið á ferning (= að hnakka), heklið (3 stuðla, 2 loftlykkjur, 3 stuðla) um loftlykkjubogann í horni, heklið 29-30-32-34-35-37 lausar loftlykkjur, hoppið yfir helming af lykkjum/loftlykkjuboga meðfram næstu hlið á ferning (= handvegur) og heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjubogi í hlið), haldið áfram með mynstur eins og áður meðfram afgangi af þessari hlið og meðfram allri næstu hlið (= niður meðfram fram- og bakstykki), heklið mynstur eins og áður fram að miðju loftlykkjuboga meðfram næstu hlið, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga (= miðju loftlykkjubogi í hlið), heklið 29-30-32-34-35-37 lausar loftlykkjur, hoppið yfir þær lykkjur/loftlykkjuboga sem eftir eru meðfram hlið og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, síðan eru heklaðar keðjulykkjur fram að loftlykkjuboga í horni. Haldið síðan áfram með mynstur hringinn eins og áður, en yfir nýjar loftlykkjur sem heklaðar voru fyrir handveg eru heklaðir stuðlar og fastalykkjur um þessar loftlykkjur fyrir handveg, í stað í lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 72-74-76-78-80-82 x 72-74-76-78-80-82 cm er ferningurinn tilbúinn – stillið af að það sé heil mynstureining af A.2b, A.3b og A.4b hekluð til loka á hæðina. Klippið frá. Heklið síðan framstykkin til loka fram og til baka hvort fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Byrjið frá réttu í horni með svartri stjörnu – sjá mynsturteikningu og heklið saman mynstur fram og til baka þannig:
Byrjið í umferð merktri með svörtum ferning og heklið A.5 (= 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í horni og 1 fastalykkja í 2. stuðul), heklið A.3 eins og áður meðfram allri hliðinni, endið með A.6 (= 1 fastalykkja um loftlykkjuboga í næsta horni).
Snúið og haldið svona áfram fram og til baka þar til framstykkið mælist 63-65-67-69-71-73 cm frá miðju á ferning – stillið af að endað sé á eftir síðustu umferð í A.3. Klippið frá og festið enda.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Vinstra framstykki er heklað alveg eins og hægra framstykki, en byrjið frá réttu við hornið merkt með svörtum punkti – sjá mynsturteikningu.

ERMI:
Ermar eru heklaðar í hring frá heklaða ferningnum og niður. Festið þráðinn mitt undir ermi með því að hekla 1 fastalykkju.
UMFERÐ 1: Heklið * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um loftlykkjuboga/umferð með loftlykkjur sem heklaðar voru fyrir handveg *, endurtakið frá *-* alls 19-20-21-22-23-24 sinnum í kringum handveg (= 19-20-21-22-23-24 loftlykkjubogar). Lesið HEKLLEIÐBEININGAR (á við um ermar). Haldið áfram með að hekla 6 loftlykkjur og 1 fastalykkju um hvern loftlykkjuboga. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 loftlykkjuboga á undan prjónamerki – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona til skiptis í annarri hvorri hlið á prjónamerki með ca 8-8-7-6-6-6 cm millibili alls 4-4-5-6-6-6 sinnum = 15-16-16-16-17-18 loftlykkjubogar. Þegar stykkið mælist 39 cm í öllum stærðum, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð mitt undir ermi. Nú er heklaður kantur neðst á ermi þannig: Heklið 3 loftlykkjur í byrjun á umferð, (3 stuðlar, 2 loftlykkjur, 3 stuðlar) um hvern loftlykkjuboga, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Klippið frá og festið enda.
Heklið hina ermina á sama hátt.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið nú kant í kringum alla peysuna þannig:
Festið þráðinn með 1 fastalykkju í ystu lykkju á efsta horninu á hægra framstykki.
UMFERÐ 1: Heklið * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga/ í miðju á 3 stuðlunum í stuðlahópi á milli loftlykkjuboga í mynstri *, heklið frá *-* hringinn alla umferðina, en heklið auka loftlykkjuboga um loftlykkjuboga í hverju horni og þegar heklað er meðfram hliðum á framstykki hoppið yfir ca 2 cm. Endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í umferð.

Mynstur

symbols = 5 loftlykkjur, tengið þær saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Svartur punktur er í byrjun á umferð
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull um loftlykkjuboga/loftlykkjuhring
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull í lykkju
symbols = 1 fastalykkja í lykkju. ATH: Síðasta fastalykkjan í A.1, A.4a/A.4b er hekluð í miðju á 3 stuðlum frá fyrri umferð
symbols = 1 fastalykkja um loftlykkjuboga
symbols = 6 loftlykkjur
symbols = byrjið í þessari umferð – sjá útskýringu í uppskrift.
symbols = þegar heklað er fram og til baka á framstykki er byrjað í þessari umferð – sjá útskýringu í uppskrift. Síðan eru endurteknar allar umferðir í mynsturteikningu á hæðina
symbols = heklið hægra framstykki með byrjun frá þessari hlið frá réttu
symbols = heklið vinstra framstykki með byrjun frá þessari hlið frá réttu
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 187-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Carolina Mancera wrote:

¿Podríais mandarme video tutorial de toda la labor paso a paso? no se como seguirlo. en Español. gracias. no soy muy docta en crochet/ganchillo. att.

04.07.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Hola Carolina. No hacemos tutoriales personalizados. Todos los vídeos que te pueden ayudar en la elaboración del modelo los tienes bajo el patrón. Puedes también contactar con la tienda especializada de DROPS más cercana.

10.07.2020 - 20:34

country flag Dominique Davagle wrote:

Désolée, je ne comprends toujours pas. J ai effectué une hauteur du diagramme et le dernier rang du A3, il n y a que des arceaux. Je débute le diagramme À 2b, j ai les 6 mailles en l air et je veux commencer le diagramme A3 et là, je suis sur un arceau, que faire ? Je dois bien avouer que je n ai pas compris votre réponse. Merci pour votre reponse

20.05.2020 - 16:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Davagle, quand A.3 (= 10 rangs) est terminé, la 1ère fois vous avez crocheté A.2a+A2b (5 rangs chacun). Reprenez maintenant au 1er rang de A.2b (répétez ces 5 rangs) et augmentez comme dans A.2b (les groupes de brides du coin), et crochetez maintenant A.3 en commençant par la rang avec le carré jusqu'au coin suivant, et terminez par A.4b (= 1 groupe de brides pour augmenter). Les losanges doivent continuer - essayez en reprenant les 10 rangs de A.2a/A.2b (A.4a, A.4b), ce sera probablement plus simple. Bon crochet!

22.05.2020 - 08:24

country flag DAVAGLE DOMINIQUE wrote:

Répéter tous les tours de A.2b, A.3 et A.4b en hauteur, mais à chaque fois que l'on crochète 1 fois A.3 en hauteur et 2 fois A.2b et A.4b en hauteur, on a suffisamment de mailles pour crocheter 2 motifs de A.3 en plus le long de chaque côté du carré. Lorsque l'on a fait une fois la hauteur, on doit recommencer A2b A3 et A4b mais le A3 va commencer dans un arceau ? Je dois bien avouer que je suis perdue

20.05.2020 - 15:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Davagle, quand A.2a et A.4a sont terminés, vous crochetez A.2b au-dessus de A.2a et A.4b au-dessus de A.4a, et vous continuez toujours ainsi = dans les coins, vous aurez A.2b et les côtés commencent par les premières mailles de A.2b puis vous répétez A.3 et vous terminez par A.4b avant le coin suivant. Comme vous augmentez à chaque motif en hauteur, vous pouvez répéter A.3 sur davantage de mailles à chaque fois entre les coins et le début/la fin des motifs. Bon croche!t

20.05.2020 - 15:53

country flag Laurent wrote:

Bonjour’ Je trouve vos explications peu claires et confuses alors que je sais suivre un diagramme en crochet d art sans problème. Vous ne respectez pas les signes internationaux en matière de crochet. Pourquoi? Merci pour votre réponse. Cordialement.

17.04.2020 - 08:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laurent, Les modèles DROPS sont réalisés par des milliers de personnes dans le monde entier. Nous comprenons toutefois qu’en fonction du pays, les explications puissent être formulées différemment. Nous faisons naturellement en sorte que nos modèles soient compréhensibles. Vous pouvez volontiers poser votre question ici, et pour toute assistance individuelle, vous adresser au magasin où vous avez acheté votre laine – même par mail ou téléphone. Bon crochet!

17.04.2020 - 09:22

country flag Carrole Lebel wrote:

Bonjour! J’ai reçu un message courriel de votre part m’informant qu’une réponse à ma question a été donné . Par contre, aucune réponse n'a été donné à ma question. Pourriez-vous SVP me faire parvenir votre réponse à nouveau? Merci

23.09.2019 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebel, vos deux questions précédentes ont toutes deux reçu une réponse - cf ci-dessous. Bon crochet!

23.09.2019 - 15:25

country flag Carrole Lebel wrote:

Merci pour votre réponse concernant le diagramme A5. C'est apprécié. . Ma question concerne le diagramme A.6. Est-ce que les trois symboles « l » illustrés verticalement dans le diagramme A.6 signifient 3 mailles en l'air (rangs 1, 3, 5, 7, 9, à partir de la flèche) même si leur graphie est différente? Merci!

23.09.2019 - 13:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebel, tout à fait, 1 tiret = 1 maille en l'air, donc dans A.5, on a 1 ml, 1 ms, et dans A.6, 1 ms en fin de rang et 3 ml en début de rang. Bon crochet!

23.09.2019 - 15:21

country flag Lebel, Carrole wrote:

Bonjour! J'ai deux questions. 1) Que veut dire le symbole « I » accompagnant VI que l'on retrouve dans A5 et le symbole « / » dans le diagramme A6? 2) Je n'arrive pas à repérer les endroits où il faut faire des double brides dans les schémas. Pourriez-vous m'indiquer où elles se trouvent SVP ? Mille mercis pour votre aide.

20.09.2019 - 21:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebel, le I correspond à 1 maille en l'air (= cf 2ème symbole de la légende) et le v à 1 maille serrée, vous allez ainsi commencer le rang par 1 maille en l'air, puis 1 maille serrée. Les diagrammes vont être vérifiés pour savoir si les double-brides sont utilisées, merci pour votre retour. Bon crochet!

23.09.2019 - 08:09

country flag Carrole Lebel wrote:

Concernant la technique pour crocheter les emmanchures, vous avez proposé à une personne quelques photos expliquant une façon de faire sur le forum DROPS (DROPS Design 20.07.2018 kl. 14:26). Serait-il possible d’accéder à ces quelques photos car je suis perdue dans les explications écrites. Merci beaucoup pour m’aider dans la réalisation de ce projet.

13.09.2019 - 17:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lebel, les photos sont momentanément indisponibles pour des raisons techniques. Pour crocheter les emmanchures, vous allez sauter des mailles du carré (côté carré = emmanchure dos) que vous allez remplacer par des mailles en l'air (= emmanchure coté devant). Au rang suivant, crochetez dans les chaînettes comme avant, autrement dit, comme s'il n'y avait pas eu ces deux "trous" pour les manches. Bon crochet!

16.09.2019 - 08:23

country flag Jean Whiting wrote:

I really don't understand this pattern! I've watched the video and completed the same as video and now it tell me to complete a2. But not sure where to start with it. Do I start from the arrow. And how many times do I have to do this pattern. I'm not sure how to follow on. This ain't a good guide.

14.07.2019 - 01:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Whiting, after you have worked A.1, you now continue the same way but following new diagrams: A.2a in the corners, A.3 over the next stitches, and finish with A.4a before next corner. Continue that way following diagrams until the square has the right measurements. read more about diagrams here. Happy crocheting!

15.07.2019 - 11:38

country flag Marieeve Stalter wrote:

Bonjour , moi je bloque de suite j'ai fais le carré comme sur la vidéo , et apres j'arrive plus , pour le 1er carré on fait 3 brides 2 mailles en l'air et a nouveau 3 brides , ensuite si on continue on se retrouve plus que avec 1x3 brides pourriez vous m'aider j'ai horreur de laisser tomber un crochet ou un pull que j'arrive pas à faire merci beaucoup

27.04.2019 - 07:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Stalter, on répète 4 fois A.1 en largeur pour former le carré - cette vidéo montre comment crocheter A.1. Vous trouverez plus ici d'infos sur les diagrammes . Bon crochet!

29.04.2019 - 08:22