Primrose Dress |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Heklaður kjóll úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri og hringlaga berustykki, heklaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning A.1 og A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Í 7., 11. og 13. umferð kemur ekki A.5 og A.1 í stað fyrstu lykkju í A.4 og A.2, þ.e.a.s. umferðin byrjar með 3 loftlykkjum (koma ekki í stað fyrsta stuðuls) og endar með 1 keðjulykkju í fyrstu lykkju í A.2 og A.4. Í þeim umferðum sem eftir eru, er fyrsta lykkja í A.2 og A.4 skipt út fyrir A.1 og A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með stuðlum, skiptið út fyrsta stuðli með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir). Til að reikna út hvernig auka eigi út jafnt yfir, teljið fjölda lykkju í umferð (t.d. 94 stuðlar) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 5,2. Í þessu dæmi þá eru heklaðir 2 stuðlar í ca 5. hvern stuðul. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Heklið þar til 2 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, heklið 2 stuðla í næsta stuðul, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa stuðla), heklið 2 stuðla í næsta stuðul. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar fleiri). HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum 2 fyrstu lykkjur á heklunálinni *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki þannig: Heklið þar til 3 stuðlar eru eftir á undan prjónamerki, HEKLIÐ 2 STUÐLA SAMAN – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hvorn af næstu 2 stuðlum (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), heklið næstu 2 stuðla saman. Fækkið lykkjum svona við bæði prjónamerkin (= alls 4 stuðlar færri). ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt yfir, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið þeim með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 10. Í þessu dæmi eru heklaðar 9. og 10. hver lykkja saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring, ofan frá og niður. Umferðin byrjar ca við miðju að aftan (þetta fer aðeins eftir stærðum og vegna fjölda mynstureininga á bakstykki). BERUSTYKKI: Heklið 108-108-117-117-124-124 loftlykkjur með heklunál 4 með Cotton Merino og tengið þær saman í 1 hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið fyrstu umferð þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – lesið HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 3-3-5-5-5-5 loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 stuðull í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* = 94-94-102-102-108-108 stuðlar. Heklið 1 umferð með 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 18-18-22-22-28-40 stuðla jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-1 = 112-112-124-124-136-148 stuðlar. Heklið næstu umferð og setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: A.1 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar – lesið MYNSTUR. Heklið A.2 (= 6 stuðlar) yfir fyrstu 18-18-24-24-24-30 stuðla (= 3-3-4-4-4-5 sinnum á breidd) (= ca hálft bakstykki), A.3 (= 4 stuðlar), setjið 1. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 2. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi), A.2 yfir næstu 36-36-42-42-48-54 stuðla (= 6-6-7-7-8-9 sinnum á breidd) (= framstykki), A.3 yfir næstu 4 stuðla, setjið 3. prjónamerki, A.2 yfir næstu 12 stuðla (= 2 sinnum á breidd), setjið 4. prjónamerki, A.3 yfir næstu 4 stuðla (= ermi) og endið með A.2 yfir síðustu 18-18-18-18-24-24 stuðla (= 3-3-3-3-4-4 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3. JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur svona og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.3. JAFNFRAMT sem aukið er út jafnt yfir á ermum (þ.e.a.s. á milli 1. og 2. prjónamerkis og á milli 3. og 4. prjónamerkis) þannig: UMFERÐ 8: Aukið út um 0-6-6-6-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-12-12-12-12-12 alls stuðlar fleiri). UMFERÐ 10: Aukið út um 0-0-0-0-6-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-12-12 stuðlar fleiri alls). UMFERÐ 14: Aukið út um 0-0-0-0-0-6 stuðla á hvorri ermi (= 0-0-0-0-0-12 alls stuðlar fleiri). Þegar A.1 til A.3 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina eru 240-252-264-264-288-312 stuðlar í síðustu umferð. Stykkið mælist ca 15 cm. Heklið fyrstu 0-0-2-2-4-4 umferð af A.2a yfir allar lykkjur. Stykkið mælist ca 15-15-17-17-19-19 cm. Heklið nú stuðla yfir fram- og bakstykki og mynstur yfir ermar þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-33-39-39-39-45 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki), heklið A.4 (= 6 stuðlar) yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi), heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-66-72-72-78-84 stuðlum og aukið út um 0-4-4-4-4-4 stuðla jafnt yfir (= framstykki), A.4 yfir næstu 54-60-60-60-66-72 stuðla (= 9-10-10-10-11-12 sinnum á breidd) (= ermi) og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-33-33-33-39-39 stuðlum og aukið út um 0-2-2-2-2-2 stuðla jafnt yfir (= ca hálft bakstykki) (= alls 0-8-8-8-8-8 stuðlar fleiri). Aukið svona út í hverri umferð alls 0-2-2-3-4-5 sinnum = 240-268-280-288-320-352 lykkjur. Í umferð 7, 10 og 12 í mynsturteikningu A.4a er hekluð skipting á milli stuðla og mynstur þannig: Heklið stuðla þar til 1 stuðull er eftir á undan mynstri, heklið 2 loftlykkjur og 1 fastalykkju í síðasta stuðul, heklið mynstur eins og áður, heklið 1 fastalykkju í fyrsta stuðul á eftir mynstri og 2 loftlykkjur. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21-23-25-27 cm. Nú skiptist ermar og fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 33-37-43-45-47-55 stuðlum (= ca hálft bakstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 66-74-80-84-94-104 stuðlum (= framstykki), heklið 6-6-6-12-12-12 loftlykkjur, hoppið yfir næstu 54-60-60-60-66-72 lykkjur (= A.4) fyrir ermi og endið með 1 stuðul í hvern af síðustu 33-37-37-39-47-49 stuðlum (= ca hálft bakstykki). Ermar og fram- og bakstykki er nú heklað til loka hvort fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-160-172-192-212-232 stuðlar/loftlykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir hvorri ermi. Haldið áfram með 1 stuðul í hverja lykkju. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, fækkið um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar færri) – lesið ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 0-3½-6- 3½-3½-0 cm millibili alls 1-3-2-3-3-1 sinnum = 140-148-164-180-200-228 stuðlar. Haldið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul. Þegar stykkið mælist 37-39-41-43-45-47 cm frá kanti í hálsmáli, aukið út um 1 stuðul hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 stuðlar fleiri) – lesið ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1½ cm millibili alls 16-17-16-15-19-18 sinnum = 204-216-228-240-276-300 stuðlar. Þegar stykkið mælist 47-48-48-48-48-48 cm frá þar sem stykkið skiptis frá ermum, heklið A.4a yfir allar lykkjur (= 34-36-38-40-46-50 sinum á breidd). Mynsturteikning A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar. Þegar A.4a hefur verið heklað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 59-60-60-60-60-60 cm frá þar sem stykkið skiptist frá ermum. Klippið frá og festið enda. Stykkið mælist ca 77-79-81-83-85-87 cm frá kanti í hálsmáli. ERMI: Ermar eru heklaðar í hring, ofan frá og niður. Heklið 1 fastalykkju í 1. loftlykkju við 6-6-12-12-12-12 loftlykkjur sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki, heklið A.4a yfir loftlykkjur (= 1-1-1-2-2-2 sinnum á breidd), stillið af mynstur við afgang af ermi, heklið síðan mynstur eins og áður yfir 54-60-60-60-66-72 lykkjur (þ.e.a.s. heklið A.4a, A.5 sýnir hvernig umferðin byrjar og endar) = 60-66-72-72-78-84 lykkjur. Mynsturteikning A.4a er nú hekluð 10-11-12-12-13-14 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé 1 umferð með stuðlum, fækkið um 6 stuðla jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1. A.4a er nú heklað 1 sinni færri á breiddina. Fækkið lykkjum svona með 8-6-6-5-5-3 cm millibili alls 2-3-3-3-3-4 sinnum = 48-48-54-54-60-60 stuðlar. A.4a er nú heklað 8-8-9-9-10-10 sinnum á breidd. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 22-22-20-18-17-15 cm frá þar sem ermar skiptust frá fram- og bakstykki, stillið af að næsta umferð sé umferð með stuðlum. Í næstu umferð er aukið út um 24-24-30-30-36-36 stuðla jafnt yfir = 72-72-84-84-96-96 stuðlar. A.4a er nú heklað 12-12-14-14-16-16 sinnum á breidd. Haldið svona áfram þar til ermin mælist 34-34-32-30-29-27 cm frá þar sem stykkið skiptist frá fram- og bakstykki, stillið af að endað sé fallega miðað við mynstur. Klippið frá og festið enda. Ermin mælist ca 52-53-53-53-54-54 cm frá kanti í hálsi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið kant í kringum hálsmál. Byrjið við miðju að aftan. Heklið * 1 fastalykkju í fyrsta/næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1cm *, heklið frá *-* í kringum allt hálsmálið. Passið vel uppá að kanturinn verði ekki stífur, stillið af þannig að endað sé með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (72)
Sonja wrote:
Zomer roosje
11.12.2017 - 16:15Vermeirsche Allison wrote:
J’adore cette robe! J’espere la retrouver dans les modèles gratuits pour pouvoir me la faire
11.12.2017 - 14:19