DROPS Safran uni colour 100% Bómull |
440.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Safran uni colour 100% Bómull 440.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= slétt lykkja | |
= á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að ekki myndist gat | |
= 2 lykkjur slétt saman | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð | |
= lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Diamonds in Lace Top |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaður toppur með gatamynstri, laskalínu og A-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Safran.
DROPS 188-16 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 44) = 2,5. Í þessu dæmi þá er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir aðra og þriðju hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat! Prjónið síðan nýjar lykkjur slétt. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið fram að 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið á hinni hliðinni (= 4 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 110-115-120-125-130-137 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 44-39-38-41-56-65 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 154-154-158-166-186-202 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 53-53-55-59-69-77 lykkjur (= bakstykki), setjið næsta prjónamerki eftir 24 nýjar lykkjur (= ermi), setjið næsta prjónamerki eftir 53-53-55-59-69-77 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru 24 lykkjur (= ermi) á eftir síðasta prjónamerki. Umferðin byrjar í skiptingu á milli erma og bakstykkis. Nú er mynstur prjónað þannig: * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 0-0-1-3-8-12 lykkjur, prjónið miðju 49 lykkjur í A.1 (þ.e.a.s. hoppið yfir ystu 4 lykkjur hvoru megin við mynsturteikningu), prjónið 0-0-1-3-8-12 lykkjur slétt (= bakstykki/framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett hér) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fyrsta útaukningin fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 20-24-28-31-33-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukningin eins og útskýrt er að ofan) = 314-346-382-414-450-490 lykkjur. ATH: Í hvert skipti sem aukið er út fyrir laskalínu er pláss til að prjóna eina lykkju fleiri af mynstri A.1 að laskalínu á bakstykki og framstykki. Þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur til að prjóna allar lykkjur í mynsturteikningu eru eftir 16-20-24-27-29-32 útaukningar fyrir laskalínu – þessar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn slétt. Mynsturteikning A.1 er endurtekin á hæðina til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð á stykkið að mælast 15-17-20-22-23-25 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Haldið síðan áfram án þess að auka út fyrir laskalínu þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-25 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan (ef prjónfestan passar á hæðina þá hefur stykkið náð réttu máli í stærð XL, XXL og XXXL). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 93-101-111-121-135-149 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 64-72-80-86-90-96 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 93-101-111-121-135-149 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 64-72-80-86-90-96 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur í hlið undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 202-218-238-262-290-318 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum (= 101-109-119-131-145-159 lykkjur bæði á bakstykki og á framstykki). Haldið áfram hringinn með mynstur A.1 eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-3-3-4-4-4 cm millibili alls 9 sinnum = 238-254-274-298-326-354 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 34-35-36-37-38-38 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-72-80-86-90-96 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-80-88-96-100-106 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu er skipt yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (17)
Connie Bach wrote:
Der er ikke fordi jeg ikke forstår diagrammet ! Det er de masker FØR OG EFTER det er galt med, jeg er i tvivl om alle de rk med mønster, skal laves som 1. rk ?
16.04.2024 - 11:32DROPS Design answered:
Hej Connie, alle masker på hver side af diagrammet strikkes i glatstrik. Men for at du skal få mønsteret som på billedet, er du nødt til at følge hver maske ifølge diagrammet. Så pind 3 i diagrammet starter 1 maske tidligere end på pind 1 (og ser lidt anderledes ud), men det kan du jo så selv se når du følger diagrammet :)
16.04.2024 - 11:48Connie Bach wrote:
Ang. starten på diagrammet, så har jeg de to første rk men hvad nu med rk 3 osv Skal man starte de rk med mønster ligesom den første : *2m ret, slå om, strik 8 m ret, strik de midterste 49 m osv Jeg kan simpelthen ikke få 3. rk. til at gå op med det der står i mønstret Den forklaring der er skrevet nedenunder fatter jeg ikke ! Der er jo masker før og efter mønstret !!
16.04.2024 - 08:50DROPS Design answered:
Hej Connie, jo hvis du sætter et mærke på hver side af de 57 masker diagrammet, så skal hver maske strikkes ifølge diagrammet (jeg beskrev starten på række 3 i tidligere svar)
16.04.2024 - 11:19Connie Bach wrote:
Ang. starten på diagrammet, så har jeg de to første rk men hvad nu med rk 3 osv Skal man starte de rk med mønster ligesom den første : *2m ret, slå om, strik 8 m ret, strik de midterste 49 m osv Jeg kan simpelthen ikke få 3. rk. til at gå op med det der står i mønstret
14.04.2024 - 15:53DROPS Design answered:
Hej Connie, jo hvis du sætter et mærke på hver side af de 57 masker som du kan se i selve diagrammet, så strikker du hver maske på hver pind ifølge diagrammet. Det vil sige at på første pind skal du have 5 ret før de første 2r sm. På 3.pind har du 4 ret før de første 2r sm :)
16.04.2024 - 08:03Cesardig wrote:
N1casino Finland
29.04.2023 - 16:33Eva-Lisa Johnsson wrote:
Hej! Jag har börjat på denna top. Ska börja på mönstret,har stickat en omgång av diagrammet-49 maskor,sticka 8 maskor,1 omslag,4 maskor och då ska markören komma mittemellan de fyra m men då har jag 11 maskor kvar till markören….vad gör jag fel?
06.07.2022 - 21:48DROPS Design answered:
Hej Eva-Lisa du har 69 masker på forstykket/bagstykket: Du strikker således imellem mærkerne. Mærke, 2ret, 1omslag, 8ret, 49 A.1, 8ret, 1omslag 2ret, mærke.
07.07.2022 - 08:51Danuta wrote:
Proszę o dodatkowe wyjaśnienie, czy ażur ma być taki sam z przodu i z tyłu bluzki? Wg zdjęć, wywnioskowalam, że z tyłu powinien być tylko mały fragment na karczku. Natomiast z opisu wynika, że nie, no i brak schematu do tego małego ażuru. Czy ja dobrze rozumiem? Bardziej podoba mi się wersja z małym ażurkiem z tylu. Będę wdzięczna za szybką odpowiedź, gdyż jestem już w trakcie robótki (początek). Danuta
31.05.2022 - 10:50DROPS Design answered:
Witaj Danusiu, na tyle i przodzie jest identyczny ażur. Pozdrawiamy!
31.05.2022 - 13:03Kerstin wrote:
Ich habe Probleme mit den Größen. Was Entspricht Damengröße 48?\r\nDanke
24.05.2022 - 10:36DROPS Design answered:
Liebe Kerstin, am besten messen Sie ein ähnliches Top, das Sie gerne tragen und vergleichen Sie alle Maßen mit den in der Skizze - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
24.05.2022 - 13:50HELENA MATŁOSZ wrote:
Chcę wykonać ten top w rozmiarze XL. W schemacie robótki z zaznaczonymi miarami jest pokazane obniżenie dekoltu z przodu o 3 cm, a w opisie wykonania karczku, tyłu/przodu nie znalazłam informacji jak to zrobić. Podane jest łączenie oczek tyłu i przodu (po oddzieleniu oczek na rękawy) po wykonaniu takiej samej ilości rzędów z tyłu i z przodu robótki. Lubię mieć większy dekolt z przodu, a ten top jest piękny. Będę wdzięczna za poradę, pozdrawiam
14.02.2022 - 22:16DROPS Design answered:
Witaj Heleno, aby dekolt tyłu był wyżej, a przodu niżej, musiałabyś wykonać rzędy skrócone ponad oczkami tyłu, stopniowo wydłużając je i kończąc prawie na końcu rękawów. To nie byłoby trudne, gdyby ażur był tylko z przodu. Tutaj ażur mamy na przodzie i na na tyle sweterka, i rzędy skrócone zaburzą wzór. Ja zrobiłabym tył dżersejem i z rzędami skróconymi. Pozdrawiam!
15.02.2022 - 09:34ESCANDE HELENE wrote:
Merci de votre réponse. Vous me donnez un lien qui ne répond pas !!! S'agit il du lien classique de votre site et des articles vendus avec vos laines?. Mes aiguilles circulaires viennent de chez Kalidou Boutique et sont les Drops Basic Aluminium. Ce problème me gâche un peu le plaisir que j'ai à redécouvrir de tricot !!! Merci - cordialement Hélène
12.06.2020 - 11:56DROPS Design answered:
Bonjour Mme Escande, oops petite faute de frappe dans le code du lien, tout est en ordre maintenant - si vous avez ce souci avec l'une de nos aiguilles, merci de bien vouloir contacter directement la boutique Kalidou pour lui expliquer le problème (avec photos si possible, c'est toujours plus parlant). Merci d'avance! Bon tricot!
12.06.2020 - 12:26ESCANDE HELENE wrote:
Merci de me communiquer comment faut il faire pour que les mailles (surtout les jetés), sur les aiguilles circulaires, arrivent régulièrement sans qu'elles se coincent dans la jonction "cable-aiguille". Y a t'il une marque d'aiguilles circulaires qui ont moins ce problème ? merci pour votre aide Hélène
11.06.2020 - 19:08DROPS Design answered:
Bonjour Mme Escande, effectivement, la transition entre le câble et l'aiguille doit être toute douce pour bien faciliter le passage des mailles, découvrez nos aiguilles circulaires ici, vous ne rencontrerez ainsi plus ce genre de désagrément. Bon tricot!
12.06.2020 - 07:32