DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Key West Sweater

Peysa með gatamynstri og A-formi, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Belle. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-14
DROPS Design: Mynstur vs-041
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-500-550-600 g litur 15, gallabuxnablár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2:
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er framstykkið og bakstykki prjónað hvort fyrir sig, fram og til baka niður að handvegi, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring.
Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 16-17-17-18-19-20 lykkjur á hringprjón 4,5 með Belle.
UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsmáli), 10-11-11-12-13-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (= að handveg).
UMFERÐ 2: 3 lykkjur garðaprjón, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þrisvar sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 8 umferðir.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsi – lesið ÚTAUKNING-1 = 17-18-18-19-20-21 lykkja. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu og geymið stykkið. Stykkið mælist ca 4 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út um 1 lykkju við hálsmál er aukið út um 1 lykkju á undan 3 lykkjum í garðaprjóni að hálsmáli í 9. umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu.
Prjónið nú vinstri og hægri öxl saman þannig:
Snúið stykkinu (= vinstri öxl) og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 35-35-37-37-39-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, síðan eru prjónaðar 17-18-18-19-20-21 lykkja frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-79-81 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmál við miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður.
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir í garðaprjóni yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er mynstur prjónað jafnframt því sem aukið er út fyrir handveg þannig: - LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

Byrjið frá réttu og prjónið mynstur þannig:
3 lykkjur garðaprjón, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, A.1 (= 7 lykkjur), prjónið frá umferð með stjörnu í A.2 (= 23 lykkjur), A.1, 13-14-15-16-18-19 lykkjur í sléttprjóni, 3 lykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka (þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er hún endurtekin á hæðina til loka).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-14-14-12-11-9 cm frá uppfitjunarkanti á öxl er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-5-7-10-12-16 sinnum = 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist 18-18-19-20-20-21 cm frá öxl og niður. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp 16-17-17-18-19-20 lykkjur á hringprjón 4,5 með Belle.
UMFERÐ 1 (= rétta): 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= að hálsi), 10-11-11-12-13-14 lykkjur slétt, 3 lykkjur garðaprjón (= að handveg).
UMFERÐ 2: 3 lykkjur í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 3 lykkjur, 3 lykkjur garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 átta sinnum til viðbótar (= alls 9 sinnum) = 18 umferðir.
Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni að hálsmáli alveg eins og á bakstykki = 17-18-18-19-20-21 lykkja. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu og geymið stykkið. Stykkið mælist ca 8 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið hægir öxl þannig:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. þegar aukið er út um 1 lykkju að hálsi er aukið út um 1 lykkju á undan 3 lykkjum í garðaprjóni að hálsmáli í 19. umferð. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu.
Prjónið nú hægri og vinstri öxl saman þannig:
Snúið stykkinu (= hægri öxl) og prjónið eins og áður yfir allar lykkjur og fitjið upp 35-35-37-37-39-39 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, prjónið síðan 17-18-18-19-20-21 lykkju frá vinstri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-79-81 lykkjur. Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á framstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður.
Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli er prjónað mynstur jafnframt því sem lykkjur eru auknar út fyrir handveg þannig: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

Byrjið frá réttu og prjónið mynstur þannig:
3 lykkjur garðaprjón, 13-14-15-16-18-19 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 7 lykkjur), prjónið frá 1. umferð í A.2 (= 23 lykkjur), A.1, 13-14-15-16-18-19 lykkjur sléttprjón, 3 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona (þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina er hún endurtekin á hæðina til loka).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16-14-14-12-11-9 cm frá uppfitjunarkanti á öxl er aukið út um 1 lykkju innan við 3 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 3-5-7-10-12-16 sinnum = 75-81-87-95-103-113 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu á eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. Stykkið mælist 18-18-19-20-20-21 cm frá öxl og niður.

Prjónið nú frá réttu þannig: Snúið og prjónið yfir allar lykkjur á framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju lykkja (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið 75-81-87-95-103-113 lykkjur frá bakstykki inn á sama hringprjón og fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt í þessar nýju lykkjur (= 2-3-4-5-6-7 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 158-174-190-210-230-254 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan stykkið í hring á hringprjón. Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður, en yfir miðju 10-12-14-16-18-20 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5-6-7-8-9-10 lykkjur hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) er prjónað sléttprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir lykkjur inn í hvorri hlið er haldið áfram í sléttprjóni, A.1 og A.2 eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 lykkjur hvoru megin á stykki – lesið ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í 7.-7.-7.-7.-8.-8. hverri umferð alls 13 sinnum = 210-226-242-262-282-306 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 37-39-40-41-43-44 cm (alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl). Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

ERMI:
Fitjið upp 48-50-52-54-56-60 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-9-9-7-11-9 cm er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 20.-14.-10.-8.-6.-6. hverja umferð 5-6-8-10-11-12 sinnum, síðan þegar stykkið mælist 37-36-36-35-34-34 cm (= slétt eftir síðustu útaukningu) aukið út í annarri hverri umferð 6 sinnum = 70-74-80-86-90-96 lykkjur. Ermin mælist ca 42-41-41-40-39-39 cm. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-4-4-5-5-6 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 5 sinnum, 1 lykkja 0-1-2-3-5-6 sinnum, 2 lykkjur 4-5-5-5-5-5 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 18-16-20-22-22-24 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 50-51-52-52-52-53 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori. Saumið ermar í við fram- og bakstykki undir kanti í garðaprjóni. Saumið saum undir ermum. Passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkju slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = prjónið hnút þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, steypið 2. lykkjunni yfir síðustu lykkju á hægri prjóni, steypið næstu lykkju yfir síðustu lykkju á prjóni og haldið áfram þar til steyptar hafa verið yfir alls 4 lykkjur yfir síðustu lykkjuna
symbols = þegar mynstur er prjónað á bakstykki er byrjað í þessari umferð. Þegar öll mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina er mynsturteikningin endurtekin frá 1. umferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Key West Sweater

Oksana, Lithuania

Key West Sweater

collectionsakiri, Austria

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Carmen Giguère wrote:

Merci de votre réponse. Je parlais de la hauteur des épaules du dos (4cm) et du devant (8cm). Aussi 14 cm pour commencer les augmentations n’arrivent pas aux mêmes rangs sur les grilles A1 et A2 pour le dos et le devant.

27.03.2023 - 15:03

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Giguère, comme indiqué auparavant, ajustez la dernier rang du devant sur le dernier rang du dos, tricotez quelques rangs supplémentaires pour le dos si besoin, ainsi, les diagrammes seront ajustés quand on les tricote en rond. Bon tricot!

27.03.2023 - 15:40

country flag Carmen Giguère wrote:

Étant donné que les épaules n’ont pas la même longueur, je n’arrive pas aux mêmes rangs pour commencer les augmentations pour les emmanchures à 14 cm. Après ces augmentations je devrai joindre le dos et le devant pour continuer le tricot en rond. En raison de mon commentaire ci-dessus, est-ce que je dois continuer à suivre ma grille différemment pour le dos et le devant afin de ne pas briser la continuité ? Merci de me répondre et d’offrir un aussi bon service.

27.03.2023 - 13:19

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Giguère, je ne comprends pas bien votre question, les épaules droite et gauche doivent être de la même longueur à chaque fois avant de les joindre pour tricoter le dos/le devant. Ajustez pour terminer le devant au même rang que le dos pour pouvoir ensuite tricoter le dos et le devant ensemble. Bon tricot!

27.03.2023 - 13:38

country flag Carmen Giguère wrote:

Puis-je avoir une photo du projet de dos, svp ?

16.03.2023 - 16:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Giguère, nous n'avons pas de photos du dos, il est exactement comme le devant, sauf que l'encolure est moins profonde: on réunit les 2 épaules du dos à 4 cm et celles du devant à 8 cm. Bon tricot!

16.03.2023 - 16:45

country flag Marianna wrote:

Hi! I have the Drops Belle yarn and I'm ready to make the sweater, but I just do not like the knots. Can you suggest an alternative stitch in place of the knot stitch? Thanks 😊

26.02.2023 - 02:13

DROPS Design answered:

Dear Marianna, you can just not work the knots, for example, by knitting the stitch that corresponds to the knot. Happy knitting!

26.02.2023 - 23:40

country flag Hanna Mourino wrote:

Hej! Jag har stickat en del vågmönstrade halsdukar från er Garnstudio och tycker det är skoj. Min undran är varför man stickar denna tröja uppifrån och jobbar nedåt? Går det inte att sticka/börja detta mönster nedifrån istället?

29.06.2022 - 15:42

DROPS Design answered:

Hei Hanna. Vi prøver å variere på oppskriftene, noen strikkes ovenfra og ned, andre nedenifra og opp. Slik prøver vi tilfredstiller alle som strikker. Noen liker at det strikkes ovenfra og ned, da man kan prøve plagget underveis. Men du kan fint strikke denne nedenifra og opp, bare husk å tenke motsatt, både selve oppskriften og diagrammet. mvh DROPS Design

04.07.2022 - 10:25

country flag Susanne Turn Pedersen wrote:

Jeg kan ikke få opskriften til at passe, jeg skal til ærmekuplen. Jeg laver str small. Der står jeg skal lukke x antal masker af, og når jeg tæller de masker sammen, bliver det til 26, men der står 18 i opskriften. Derudover skal denne aflukning laves på ca 10 pinde og give 10 cm, det kan jo ikke lade sig gøre. Jeg håber I kan hjælpe med at forklare, hvordan det skal laves?!? Vh Sanne

03.05.2020 - 19:31

DROPS Design answered:

Hej Susanne, du tager ind i hver side ifølge opskriften og har da 18 masker tilbage når ærmet måler 50 cm. Selve ærmekuplen er 8 cm i small. Det er hele omkredsen på ærmekuplen som passer ind i ærmegabet. God fornøjelse!

05.05.2020 - 09:03

country flag Josepha Korsten wrote:

Heb ik alleen de rondbreinaald nodig of ook andere naalden?

08.06.2019 - 12:43

DROPS Design answered:

Dag Josepha,

Je kunt deze trui inderdaad volledig met rondbreinaalden maken.

08.06.2019 - 15:32

country flag Josepha Korsten wrote:

Hallo, ik zou graag willen weten of je de trui helemaal rond breit zonder zij naden. Groetjes Josepha

07.06.2019 - 15:56

DROPS Design answered:

Dag Josepha,

Je hebt indedaad geen naden in dit patroon (behalve de schoudernaden). Het werk wordt van boven naar beneden gebreid. De voor- en achterpanden worden eerst los van elkaar gebreid en bij de armsgaten voeg je het voor en achterpand samen om verder in de rondte naar beneden te breien. De mouwen worden ook in de rondte gebreid.

13.06.2019 - 09:59

country flag Bettina wrote:

Muster A1: über 7 M. Bei 2 Umschlägen in dem Muster wird nur eine Masche wieder ausgeglichen. oder muss ich die überzogene Masche zweimal stricken ? Dann sind es nämlich wieder sieben Maschen anstatt 8. Ich verstehe es einfach nicht.Bitte um Hilfe.

12.01.2019 - 13:13

DROPS Design answered:

Liebe Bettina, bei der 1. Reihe in A.1 werden 2 Maschen abgenommen = 1 Masche wie zum Rechtsstricken abheben, 2 Maschen rechts zusammenstricken, die abgehobene Masche überziehen. Viel Spaß beim stricken!

14.01.2019 - 10:01

country flag Mira wrote:

Schöne Anleitung. Aber bei der linken Schulter des Vorderteils in der deutschen Anleitung ein Fehler: Dort steht "In der nächsten Reihe 1 Masche neben den 3 kraus rechten Maschen in Richtung Halsausschnitt ebenso wie beim Rückenteil abnehmen = 17-18-18-19-20-21 Maschen. " Statt abnehmen müsste hier zunehmen stehen.

18.12.2018 - 21:54