Myosotis |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri og ¾ ermum með blúndu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Cotton Merino.
DROPS 191-9 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka/fækka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 2,9. í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 3. hverja lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 8 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 16 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum 16 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndast göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veljið mynsturteikningu fyrir rétta stærð (á við um A.1). LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin í hverjum samskeytum á milli fram- og bakstykkis og erma. Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykki verði aðeins hærri í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu á upphækkun aðeins neðar í uppskrift. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-106-110-116-120-126 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum pistasía. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 35-38-43-37-42-45 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 135-144-153-153-162-171 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram í að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð. Byrjið frá réttu með litnum pistasía og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði. Snúið, herðið á þræði og prjónið 30-32-34-36-38-40 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 45-48-51-54-57-60 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 60-64-68-72-76-80 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-80-85-90-95-100 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 90-96-102-108-114-120 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. BERUSTYKKI: = 135-144-153-153-162-171 lykkjur. Lesið LEIÐBEININGAR og prjónið A.1 hringinn (= 15-16-17-17-18-19 mynstureiningar með 9 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT í umferð merktri með ör í A.1 er aukið út um 21-36-27-39-54-45 lykkjur jafnt yfir = 156-180-180-192-216-216 lykkjur. Haldið áfram með A.1 (nú er pláss fyrir 13-15-15-16-18-18 mynstureiningar með 12 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er prjónuð 1 umferð slétt með litnum natur og aukið út um 4-0-0-8-4-4 lykkjur jafnt yfir = 160-180-180-200-220-220 lykkjur. Prjónið A.2 hringinn (= 8-9-9-10-11-11 mynstureiningar með 20 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 240-270-270-300-330-330 lykkjur í umferð. Prjónið síðan með litnum natur til loka. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-2-10-12-2-10 lykkjur jafnt yfir = 248-272-280-312-332-340 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 36-39-41-46-51-54 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki, prjónið 72-78-82-92-102-108 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki, prjónið 52-58-58-64-64-62 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki og prjónið þær 36-39-41-46-51-54 lykkjur sem eftir eru (= ½ bakstykki). Í næstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 4. hverri umferð alls 4-5-7-7-8-9 sinnum = 280-312-336-368-396-412 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 40-44-48-53-59-63 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-106-118-126 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-68-72-78-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-44-48-53-59-63 lykkjur eins og áður (= ½ bakstykki). Takið frá öll prjónamerki. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-212-232-260-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi = 88-96-106-116-130-140 lykkjur á milli prjónamerkja. Byrjið umferð við annað prjónamerkið og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 192-208-228-248-276-296 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 190-209-228-247-285-304 lykkjur. Prjónið A.3 hringinn (= 10-11-12-13-15-16 mynstureiningar með 19 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 270-297-324-351-405-432 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-68-72-78-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-82-88-92-94 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi og byrjið umferð við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 8-11-13-15-16-15 sinnum = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 25-24-22-21-19-18 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið síðan 2 umferðir slétt og aukið JAFNFRAMT út 16-14-12-10-25-21 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 68-68-68-68-85-85 lykkjur. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4 og prjónið A.4 hringinn (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 17 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 108-108-108-108-135-135 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 34-33-31-20-28-27 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Dianne wrote:
Love this one it's so pretty.
12.12.2017 - 23:45Mieke wrote:
I love this one and the yarn are beautyful to work with
12.12.2017 - 12:41