DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Casual Diamond

Prjónuð poncho peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 194-19
DROPS Design: Mynstur sk-012
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokkur B)
400-450-500-550-600-650 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stykkið.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Þar sem lykkjum fækkar og fjölgar í mynsturteikningu A.2b og A.3b, getur lykkjufjöldinn breyst miðað við þetta með 4 lykkjur, sérstaklega þar sem lykkjum hefur fækkað.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 122 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 6,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= alls 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna ofan frá og niður í vinkil niður að handveg. Berustykki skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring, áður en það skiptist yfir í framstykki og bakstykki og það verður klauf í hliðum, stykkið er síðan prjónað áfram fram og til baka. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 122-126-130-146-146-154 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 20-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 142-146-150-170-170-178 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið og aukið út lykkjur þannig:
Vinstri ermi: Prjónið 1 lykkju sléttprjón og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-6-6-8-6-6 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju.
Bakstykki: Prjónið A.1a (= 11 lykkjur), A.2a (= 13 lykkjur), 1 lykkja sléttprjón og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju, A.3a (= 13 lykkjur), A.4a (= 11 lykkjur).
Hægri ermi: Prjónið 1 lykkju með sléttprjóni og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-6-6-8-6-6 lykkjur með sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 7. prjónamerki í þessa lykkju.
Framstykki: Prjónið A.1a yfir 11 lykkjur, A.2a yfir 13 lykkjur, 1 lykkja sléttprjón og setjið 8. prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 9. prjónamerki í þessa lykkju (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 6-7-8-12-13-15 lykkjur sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón og setjið 10. prjónamerkið í þessa lykkju, A.3a yfir 13 lykkjur, A.4a yfir 11 lykkjur.

Nú hafa verið auknar út 2 lykkjur á hvorri ermi og 14 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki (þ.e.a.s. 2 lykkjur fyrir laskalínu, 2 lykkjur við miðju lykkju og 10 lykkjur fleiri í mynstri A.1a til A.4a) = 174-178-182-202-202-210 lykkjur.
Uppslátturinn á ermum og hvoru megin við miðju lykkju eru EKKI prjónaðar snúnar (= gat), á meðan uppslættir á eftir A.2 og á undan A.3 eru prjónaðir snúnir (= ekki gat).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1a til A.4a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.1b til A.4b yfir A.1a til A.4a.
Útaukning heldur áfram þannig (fyrsta útaukningin hefur nú þegar verið útskýrð):
Sláið 1 sinni uppá prjóninná eftir 1.,4., 6. og 9. prjónamerki og á undan 2., 4., 7. og 9. prjónamerki í annarri hverri umferð alls 26-29-31-33-36-39 sinum (þ.e.a.s. 25-28-30-32-35-38 sinnum til viðbótar). Þessir uppslættir eru ekki prjónaðir snúnir = gat.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. og 8. prjónamerki og á undan 5. og 10. prjónamerki í 4. hverri umferð alls 9-11-14-12-16-19 sinnum (þ.e.a.s. 8-10-13-11-15-18 sinnum til viðbótar. Þessir uppslættir eru prjónaðir snúnir = ekki gat.

Þegar ölll útaukning hefur verið gerð eru 60-66-70-76-80-86 lykkjur á hvorri ermi og 143-155-167-175-191-207 lykkjur á hvoru framstykki/bakstykki = alls 406-442-474-502-542-586 lykkjur.
Stykkið mælist ca 22-24-26-27-30-32 cm frá uppfitjunarkanti, mælt mitt ofan á ermi.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: (síðasta umferð sem er prjónuð er 1 umferð þar sem lykkjum er fjölgað).
Vinstri ermi: Setjið fyrstu 60-66-70-76-80-86 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-12 lykkjur undir ermi. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli þessa lykkja.
Bakstykki: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (= 143-155-167-175-191-207 lykkjur).
Hægri ermi: Setjið lykkjur á þráð og fitjið upp lykkjur undir ermi eins og á vinstri ermi.
Framstykki: Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (= 143-155-167-175-191-207 lykkjur).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 302-326-350-374-406-438 lykkjur. Færið umferðina til þannig að hún byrjið við prjónamerki undir ermi. Lykkjur undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu):
Bakstykki: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri), A.1b, A.2b og sléttprjón fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttprjón, A.3b og A.4b þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 2 lykkjur sléttprjón.
Framstykki: Prjónið eins og bakstykki.
Þ.e.a.s. það fækkar um 4 lykkjur og aukið út um alls 4 lykkjur, þannig að lykkjufjöldinn verðu sá sami.
UMFERÐ 2 (= frá röngu):
Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn = gat).
UMFERÐ 3:
Bakstykki: prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðju lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttprjón og mynstur að prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri).
Framstykki: Prjónið eins og bakstykki.
Þ.e.a.s. það er aukið út um alls 4 lykkjur.
UMFERÐ 4:
Prjónið mynstur og sléttprjón eins og áður (uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn = gat).
Endurtakið umferð 1 til 4. Þ.e.a.s. lykkjur í A.1b til A.4b fækkar og sléttar lykkjur aukast við miðju framan/aftan. Þegar það eru ekki nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir mynstur.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-18-18-19-19-19 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum, stillið af að síðasta umferðin sé 2. eða 4. umferð. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig (= ca 12 cm klauf í hliðum).

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með umferð 1 til 4 (fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu) fram og til baka, en nú eru 2 ystu lykkjur í hvorri hlið prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 26-26-26-27-27-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist frá ermum = ca 183-195-207-221-237-253 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu eins og áður, en jafnið lykkjufjöldann út þannig að það séu 92-100-104-112-120-128 lykkjur hvoru megin við miðju lykkju, þ.e.a.s. aukið út ca 1-3-1-2-2-2 lykkjur jafnt yfir hvoru megin við miðjulykkju (= alls 2-6-2-4-4-4 lykkjur fleiri) = 185-201-209-225-241-257 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Prjónið nú stroffkant yfir allar lykkjur þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið * 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* fram að miðju lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 1 lykkja sléttprjón (= miðjulykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri) og endið með 2 lykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir sléttprjón og garðaprjón yfir garðaprjón, útaukni uppslátturinn er prjónaður inn í stroffi (það eiga að myndast göt).
Endurtakið umferð 1 og 2. Þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu er aukið út um 2 lykkjur og fækkað um 2 lykkjur, þannig að lykkjufjöldinn verði sá sami. Þegar stykkið mælist 30-30-30-31-31-31 cm, frá þar sem fram- og bakstykki skiptist við ermar, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-63-65 cm frá öxl og niður þar sem stykkið er styst.

FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og bakstykki

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.
Setjið 60-66-70-76-80-86 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 4,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-74-78-88-92-98 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-8-12-12-12 lykkja (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 1 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-15-18-20-21 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-36-34-33-31-29 cm frá þar sem ermarnar skiptust frá fram- og bakstykki, skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stykkið mælist 41-40-38-37-35-33 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan var felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = prjónið 3 lykkjur, takið fyrstu lykkju sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjur þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 194-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Karin Jensen wrote:

Venter på opskrift.

07.08.2018 - 08:46

country flag Monique wrote:

Ein schöner Pullover mit aussergewöhnlicher Form!

13.07.2018 - 08:41

country flag SARDA wrote:

Très joli et original

06.07.2018 - 09:35