Line Walking |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónaðar og þæfðar tátiljur með röndum úr DROPS Snow. Stærð 35-46.
DROPS 203-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í eitt stykki. Hliðarnar eru saumaðar saman við miðju að framan áður en prjónaður er upp kantur í kringum opið. Síðan eru hliðarnar saumaðar saman við miðju að aftan áður en tátiljurnar eru þvegnar í þvottavél. TÁTILJA: Fitjið upp 4-4-5-4 lykkjur á prjón 8 með litnum karrí og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 6-6-7-6 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 8-8-9-8 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 10-10-11-10 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 12-12-13-12 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 14-14-15-14 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 16-16-17-16 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt og fitjið upp 2-2-3-3 lykkjur í lok umferðar = 18-18-20-19 lykkjur. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 20-20-22-21 lykkjur. UMFERÐ 9 (= rétta): Prjónið slétt og fitjið upp 2-2-2-3 lykkjur í lok umferðar = 22-22-24-24 lykkjur. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 24-24-26-26 lykkjur. UMFERÐ 11 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, prjónið slétt og fitjið upp 4-4-5-8 lykkjur í lok umferðar = 28-28-32-34 lykkjur. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 2-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-30-34-36 lykkjur. UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, prjónið slétt. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-2-2-2 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-38 lykkjur. UMFERÐ 15 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið og fitjið upp 0-0-0-3 lykkjur í lok umferðar = 30-32-36-41 lykkjur. UMFERÐ 17 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 20 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 21 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 22 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 23 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 24 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 26 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 27 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 28 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 29 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 30 (= ranga): Prjónið brugðið. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-24-24-25 cm, setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er mitt undir fæti. Prjónið síðan með litnum ljós grár þar til prjónaðar hafa verið álíka margar umferðir í litnum ljós grár hvoru megin við prjónamerki (þannig að tátiljan verði alveg eins á báðum hliðum þegar búið er að ganga frá). UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 7 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 9 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið slétt. UMFERÐ 10 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 11 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 12 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 13 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí og prjónið slétt. UMFERÐ 14 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 15 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 0-0-0-3 lykkjur og prjónið slétt = 30-32-36-38 lykkjur. UMFERÐ 16 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 17 (= rétta): Fellið af fyrstu 0-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 30-30-34-36 lykkjur UMFERÐ 18 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 19 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 28-28-32-34 lykkjur. UMFERÐ 20 (= ranga): Fellið af fyrstu 4-4-6-8 lykkjur og prjónið brugðið = 24-24-26-26 lykkjur. UMFERÐ 21 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós grár, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 22-22-24-24 lykkjur. UMFERÐ 22 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-3 lykkjur og prjónið brugðið = 20-20-22-21 lykkjur. UMFERÐ 23 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 18-18-20-19 lykkjur. UMFERÐ 24 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-3-3 lykkjur og prjónið brugðið = 16-16-17-16 lykkjur. UMFERÐ 25 (= rétta): Skiptið yfir í litinn karrí, fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 14-14-15-14. UMFERÐ 26 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 12-12-13-12 lykkjur. UMFERÐ 27 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 10-10-11-10 lykkjur. UMFERÐ 28 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 8-8-9-8 lykkjur. UMFERÐ 29 (= rétta): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið slétt = 6-6-7-6 lykkjur. UMFERÐ 30 (= ranga): Fellið af fyrstu 2-2-2-2 lykkjur og prjónið brugðið = 4-4-5-4 lykkjur. Fellið af síðustu 4-4-5-4 lykkjurnar í næstu umferð frá réttu. FRÁGANGUR: Brjótið uppá tátiljuna mitt undir fæti (við prjónamerki) og saumið saum mitt á fæti (meðtalinn uppfitjunarkantur og affellingarkantur). Í kringum opið efst eru prjónaðar upp ca 55-60 lykkjur með litnum dökk grár frá réttu (það er mikilvægt að taka upp nægan fjölda lykkja, svo að stykkið verði ekki stíft). Prjónið 2 sléttar umferðir. Fellið af. Saumið saum mitt að aftan (A + B) í ystu lykkjubogana. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ÞÆFING: Setjið stykkið í þvottavél með þvottaefni án enzyma og bleikiefna saman með litlu frotte handklæði ca 50 x 70 cm. Þvoið við 40 gráður með venjulegri vindingu án forþvottar ATH: Ekki nota stutt þvottakerfi. Eftir þvott er stykkið formað til á meðan það er enn vott. EFTIR ÞÆFINGU: Ef stykkið hefur þæfst of lítið og er of stórt: Þvoðu stykkið einu sinni enn í þvottavél á meðan það er enn vott. Ef stykkið hefur þæfst of mikið og er of lítið: Togið stykkið út í rétta stærð á meðan það er enn vott, ef stykkið er of þurrt, bleytið það fyrst. Munið: Síðar er stykkið þvegið eins og venjuleg ullarflík. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (12)
Marianne wrote:
Dit patroon lijkt niet te kloppen. De hoogte van de hiel is net zo hoog als de hoogte van de teen. Aan beide kanten eindigt het meerderen na pen nr. 17 . Daarna doorbreien tot de gewenste hoogte . (midden onder van de voet.) De afbeelding op pag. 5 toont rechts AB als hoogte van de hiel. Links bij de teen is de hoogte minder dan de helft van AB. Terwijl gebreid volgens het patroon de teenkant gelijk is aan AB. Zie ik misschien iets over het hoofd?
09.04.2020 - 14:08DROPS Design answered:
Dag Marianne,
De breirichting van de slof is vanaf D omhoog en als je op de stippellijn bent, ga je weer minderen, dus brei je a.h.w. het spiegelbeeld van onder de stippellijn.
13.04.2020 - 10:54Diana Andersen wrote:
Strikkede, filtede futter! Kan jeg putte flere par i vaskemaskinen ad gangen?
26.02.2020 - 16:49DROPS Design answered:
Hej Diana, vi anbefaler et par ad gangen. Men man kan jo altid prøve :)
27.02.2020 - 08:52