DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

The Bunny Bunch

Prjónuð leikfanga kanína fyrir börn úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk eða 1 þræði Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað fram og til baka í garðaprjóni. Þema: Leikfang

DROPS Baby 46-18
DROPS Design: Mynstur z-115-by
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Lengd: ca 22 cm.

EFNI:

Valmöguleiki 1:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 44, tunglskin

Valmöguleiki 2:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 100 natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 01, natur

Valmöguleiki 3:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 9020, ljós perlugrár
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
25 g litur 44, tunglskin

Valmöguleiki 4:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
25 g litur 01, natur

Og notið:
Afgang í litnum grár, brúnn eða svartur fyrir augu og nef.

1 kanína (með fyllingu) er ca 34 g í DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk og ca 17 g í DROPS Brushed Alpaca Silk.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 3,5.

FYLGIHLUTIR:
Vatt til fyllingar.

PRJÓNFESTA:
22 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni í DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk (haldið saman) eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2420.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A og B. Mynsturteikning sýnir útskýringu á útsaum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KANÍNA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Fyrst er hvort eyra prjónað hvort fyrir sig, síðan eru eyrun sett saman og prjónað er áfram niður yfir höfuð, búk, hendur og fætur.

FYRRA EYRA:
Fitjið upp 5 lykkjur á prjón 3,5 með 1 þræði í DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (haldið saman) eða notið 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk og prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt. Það eru 9 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 lykkja slétt. Það eru 13 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 5-22: Prjónið slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (stykkið mælist ca 5 cm).
Klippið þráðinn, látið lykkjurnar sitja innst á prjóni á meðan hitt eyrað er prjónað.

SEINNA EYRA:
Fitjið upp jafnmargar lykkjur og fyrra eyra og prjónið alveg eins og fyrra eyra. Passið uppá að prjónaðar séu jafnmargar umferðir í garðaprjóni á báðum eyrum, ekki klippa þráðinn frá. Fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

HÖFUÐ:
Snúið stykkinu, prjónið lykkjur frá öðru eyranu, fitjið upp 2 nýjar lykkjur, prjónið lykkjur frá fyrra eyra, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. Það eru 30 lykkjur í umferð.
Prjónið 8 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.

NEF:
Nú er aukið út fyrir nef þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 13 lykkjur slétt. Það eru 32 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Prjónið 13 lykkjur slétt, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (svo ekki myndist gat), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn snúinn slétt (svo ekki myndist gat) og prjónið 13 lykkjur slétt. Það eru 34 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3-5: Prjónið slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gart.
Nú er lykkjum fækkað neðanverðu á nefi þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 13 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 13 lykkjur slétt. Það eru 32 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2: Prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 12 lykkjur slétt. Það eru 30 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3: Prjónið 11 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 11 lykkjur slétt. Það eru 28 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4: Prjónið 10 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 10 lykkjur slétt. Það eru 26 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 5: Prjónið 9 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 9 lykkjur slétt. Það eru 24 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 6-10: Prjónið slétt.

HENDUR:
Í næstu umferð eru hendur prjónaðar inn þannig:
Prjónið 9 lykkjur slétt (búkur), fitjið upp 4 nýjar lykkjur fyrir fyrri hendi, snúið stykkinu og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir ystu 8 lykkjur á prjóni í ca 7 cm.
Fellið síðan af þessar 8 lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu, klippið þráðinn og skiljið eftir ca 25 cm langan enda (notað fyrir frágang).
Nú er fyrri höndin tilbúin.
Prjónið áfram á búk þar sem stykkið skiptist fyrir hendur þannig: Prjónið næstu 10 lykkjur slétt (búkur), fitjið upp 4 nýjar lykkjur fyrir seinni hendi, snúið stykkinu og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir ystu 8 lykkjur á prjóni í ca 7 cm.
Fellið síðan af þessar 8 lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu, klippið þráðinn og skiljið eftir ca 25 cm langan enda (fyrir frágang).
Nú er seinni höndin tilbúin.
Prjónið áfram á búk frá þar sem stykkið skiptist fyrir hendur þannig: Prjónið síðustu 5 lykkjur slétt (búkur). Snúið stykkinu.

BÚKUR:
UMFERÐ 1 (frá röngu): Prjónið 5 lykkjur slétt (búkur), brjótið höndina saman tvöfalda þannig að hægt sé að prjóna upp 1 lykkju í hverja og eina af lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hendi, hoppið yfir síðustu 4 lykkjur á hendi, prjónið 6 lykkjur slétt (búkur, á milli handa), brjótið næstu hönd þannig að hægt sé að prjóna upp 1 lykkju í hverja og eina af 4 lykkjum sem fitjaðar voru upp fyrir hendi, hoppið yfir síðustu 4 lykkjur á hendi, prjónið síðustu 5 lykkjur slétt (búkur). Það eru 24 lykkjur í umferð.
Nú er aukið út fyrir maga þannig:
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir í umferð – aukið út með uppslætti sem er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. Það eru 32 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3-7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð – aukið út með uppslætti sem er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. Það eru 38 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 9-14: Prjónið slétt.
UMFERÐ 15: Prjónið sléttar lykkjur og aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð – aukið út með uppslætti sem er prjónaður snúinn í næstu umferð svo ekki myndist gat. Það eru 44 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 16: Prjónið slétt.
Prjónið garðaprjón þar til búkurinn mælist ca 7 cm (ca 30-32 umferðir garðaprjón), stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Nú er lykkjum fækkað undir maga þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 4 lykkjur slétt.
Það eru 38 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 3 lykkjur slétt. Það eru 32 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 6-8: Prjónið slétt.
UMFERÐ 9: Prjónið 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 6 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman og 3 lykkjur slétt. Það eru 28 lykkjur í umferð.

FÆTUR:
Héðan er nú stykkið mælt!
Prjónið garðaprjón í 4 cm (ca 16-18 umferðir garðaprjón) og fellið laust af.

ÚTSAUMUR:
Notið afgang af litnum grár, brúnn eða svartur.
Saumið 1 franskan hnút fyrir hvort auga ofan við nef – sjá mynsturteikningu A. Saumið nef út með 2 sporum flatsaum (ca 2 cm langt) þversum yfir nefsvæðið – sjá mynsturteikningu B, staðsetjið sporin þannig að þau fari í kross yfir hvort annað.
Saumið 1 lítið spor flatsaum (ca ½ cm) sem krossar yfir miðju á 2 löngu sporunum með flatsaumi.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hvort eyra – saumið í ystu lykkjubogana og fyllið með vatti jafnóðum.
Saumið saman op á toppi á höfði, haldið áfram að sauma kanínuna saman mitt aftan á baki – saumið í ystu lykkjubogana og fyllið með vatti jafnóðum.
Saumið saman affellingarkantinn neðst, saumið frá hlið að hlið og passið uppá að saumurinn mitt að aftan mætist fyrir miðju neðst.
Saumið saum til að merkja fætur, byrjið neðst fyrir miðju á affellingarkanti og saumið upp í ca 4 cm í gegnum bæði lögin og vatt.
Saumið saman hvora hendi í hlið – saumið í ystu lykkjubogana og fyllið með vatti jafnóðum.
Þræðið þráði í gegnum lykkjurnar neðst á hendi, herðið á þræði og festið vel.

Mynstur

symbols = Franskur hnútur mynd 1-4.
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt hafa franska hnútinn.
MYND 2: Snúðu síðan þræðinum í kringum toppinn á nálinni 2 til 4 sinnum – allt eftir því hversu stóran hnút þú vilt fá.
MYND 3: Stingdu nálinni niður í stykkið ca 0,5 – 1 lykkju við hlið á gatinu þar sem þráðurinn kom upp og dragðu þráðinn aftur út frá röngu.
MYND 4: Þegar þráðurinn er dreginn í gegnum stykkið þá herðast snúningarnir þannig að það myndast franskur hnútur. Festu þræðina að röngu.
symbols = Flatsaumur mynd 1-4:
MYND 1: Stingdu nálinni inn frá röngu og upp að framhlið þar sem þú vilt að fyrsta sporið með flatsaum byrji.
MYND 2: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykki og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
MYND 3: Hoppaðu fram 0,5 – 1 cm og stingdu nálinni niður í stykkið og aftur upp þar sem þú vilt byrja á næsta spori með flatsaum og dragðu þráðinn í gegn.
Haltu svona áfram þar til þú hefur eins mörg spor og þig langar til.
MYND 4: Flatsaumurinn sýndur í mismunandi stefnu og lengd.

diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 46-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Wida wrote:

Hej! Ska jag sticka denna två gånger? eller hur blir det en hel kanin??

29.10.2023 - 00:22

DROPS Design answered:

Hei Wida. Du strikkers det som et stykke. Når den er ferdig syr du sammen hvert øre (på baksiden), Deretter sys åpningen på toppen av hode, så hele veien ned midt bak. Husk å fyll vatt underveis. mvh DROPS Design

30.10.2023 - 09:24

country flag Tatiana Moscoso wrote:

Hola. Estoy tratando de realizar el conejo, pero tengo una duda acerca de las patas delanteras. Dice que teja 9 puntos, aumente 4 y luego solo teja 8 puntos de ida y vuelta x 7 centímetros, quedando 5+13 puntos más. ¿?. Al cerrar tengo que realizar otra vez 4 aumentos (en la parte interna?) y luego tejer nuevamente los 8 externos, quedandome 10 puntos en el centro, Es así?

03.06.2023 - 03:37

DROPS Design answered:

Hola Tatiana, primero trabajas 9 pts del cuerpo (que vienen de la cabeza) y montas 4 pts. Ahora trabajas sobre estos 4 pts + los 4 pts del cuerpo más cercanos (de los 9 pts) a estos pts montados. Después de 7 cm, cerrar los 8 pts sobre los que has trabajado y continuar la vuelta, trabajando los siguientes 10 pts. Ahora montar 4 pts y trabajar sobre estos 4 pts + los 4 pts más cercanos a los pts montados de los 10 pts recién trabajados. Después de 7 cm, cerrar estos 8 pts. Ahora terminar la vuelta, trabajando sobre los últimos 5 pts. Tras terminar las patas delanteras, deberías tener 5+6+5 pts para el cuerpo.

04.06.2023 - 18:31

country flag Kathleen wrote:

Thank you for that information about commenting or questioning. With the Bunny Bunch pattern above I have tried unsuccessfully three times following the directions for the second front leg. There aren't enough characters in the question section below adequately to address my needs so I am pitching the entire project. The pattern, in my humble estimation, lacks clear directions, such as "The second leg should also fold toward center...", etc.

05.04.2023 - 23:00

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, both legs are worked in the same way, and the instructions are identical for both, except for the number of stitches in the body and between both legs. After having worked both front legs, it's stated in the first row of the body that you fold the stitches of both legs: "ROW 1 (wrong side): ... fold the front leg double so you can knit up 1 stitch in each of the 4 cast-on stitches on the front leg, skip the next 4 front-leg stitches, knit 6 (between the legs), fold the second front leg double and knit up 1 stitch in each of the 4 cast-on stitches on the front leg .... What part of the front legs gives you trouble? Happy knitting!

06.04.2023 - 23:10

country flag Kathleen wrote:

Will you please translatethe German comments or respond in English?

01.04.2023 - 23:14

DROPS Design answered:

Dear Kathleen, the comments are answered in the same language as they were asked, when possible, so that they will better understand the answers. If you want to know what was asked and answered before you can use a translation page or plug-in in your browser to translated all other text. If you have any doubts regarding the pattern you can post your specific question here and we will answer in English. Happy knitting!

02.04.2023 - 22:12

country flag Kathleen wrote:

In English, please.

01.04.2023 - 23:13

country flag Kathleen wrote:

This pattern is rather difficult in places. I need pictures or a video to follow the front legs portion of the pattern.

01.04.2023 - 22:16

country flag Caroline Giesberts wrote:

Evenals Verena, kom ik niet uit het patroon van de Bunny bunch: na de neus heb ik 24 steken. Dan naar de voorste poten: ik brei 9 (lijf?)steken, zet er 4 op, waar ik niets mee doe, ik keer het werk en brei de buitenste 8 steken ( ik meende van het lijf?) 7 cm lang. Dan zit ik met 4 steken van de voorpoot? En nog overig 15 steken. . Hiervan brei ik vlg patroon: 10 voor het lijf en dan weer 4 steken voor de poot . Nu de buitenste 8 st voor de poot. Het is niet symmetrisch met de andere kant. Out

23.03.2023 - 21:53

DROPS Design answered:

Dag Caroline,

Na het opzetten van de 4 steken, keer je het werk en brei je heen en weer over deze 4 steken + 4 steken van het lijf. Je breit heen en weer tot je een hoogte hebt van 7 cm en dan kant je af. Je hebt nu eigenlijk een los lapje eraan gebreid. Nu pak je het werk weer op op het lijf, je breit 10 steken van het lijf en dan brei je de andere voorpoot op dezelfde manier. De voorpoten worden op het einde in de lengte dicht genaaid.

24.03.2023 - 19:44

country flag Verena wrote:

Hallo, die Anleitung sollte korrigiert werden. Arbeitsschritt Arme: wenn ich die Arme einstricke, sind 5M am re Rand, 6M zwischen den Armen und die letzten 5M am li Rand stillgelegt. Davon steht aber nichts in der Anleitung. Beste Grüsse Verena

20.03.2023 - 10:38

DROPS Design answered:

Liebe Verena, man muss 10 Maschen stricken und die letzten 4 gestrickten Maschen für den Arm behalten (so sind es zuerst nur 6 Maschen für Rückenteil/Vorderteil) und diese 4 M + die 4 neue angegschlagene Maschen = 8 M für den Arm. Viel Spaß beim stricken!

20.03.2023 - 14:22

country flag Verena wrote:

Ich komme mit dieser Anleitung ab den Arbeitsschritten ARME nicht mehr klar! Ich verstehe nicht, wie ich diese arbeiten muss, auch nicht wie nach der Arbeit der Arme der Körper von anfangs 10M plötzlich nur noch 5M hat??? 🤔🧐 Und auch nicht wie dann beim nächsten Arbeitsschritt KÖRPER dann wieder 24M auf der Nadel sind ..? Ich bin verwirrt 😠

19.03.2023 - 19:29

DROPS Design answered:

Liebe Verena, stricken Sie die ersten 5 Maschen (die sind für Körper und werden später gestrickt), dann für den 1. Arm stricken Sie die nächsten 4 Maschen + schlagen Sie 4 M, jetzt stricken Sie 7 ncm über diese 8 Maschen und ketten Sie ab. Faden Abschneiden und die nächste 10 M nach den 5 ersten Maschen vom Körper stricken, 4 M anschlagen und jetzt stricken Sie den 2. Arm über die letzten 8 M (es sind 6 M zwischen beide Ärme), nach dem 2. Arm, Faden abschneiden und die letzten 5 Maschen vom Körper stricken. Viel Spaß beim stricken!

20.03.2023 - 09:13

country flag Verena wrote:

Ich verstehe die Anleitung nach dem Arbeitsschritt Schnautze nicht mehr, zu kompliziert geschrieben!

19.03.2023 - 19:24