Little Lamb |
||||||||||
|
||||||||||
Sett með basker / alpahúfu og heilgalla fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 16-2 |
||||||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. ÚTAUKNING (á við um basker /alpahúfu): Aukið út með því að slá uppá prjóninn, til þess að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á kanti framan á skálm. Á hægri skálm er fellt af frá réttu og á vinstri skálm er fellt af frá röngu. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar skálmin mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 5, 8, 11 og 14 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 6, 10, 14 og 18 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 2, 6, 11, 16 og 21 cm. STÆRÐ 2 ára: 2, 6, 10, 14, 18 og 23 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 2, 7, 12, 17, 22 og 28 cm. ---------------------------------------------------------- GALLI: HÆGRI SKÁLM: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 47-53-53 (59-65) l á hringprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan – (kantur fyrir hnappagöt), stroff = 3 l sl/3 l br yfir næstu 36-42-42 (48-54) l, endið á 3 l sl og 4 l garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Prjónið síðan áfram alveg eins með stroffi og garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umf slétt yfir allar l – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 11-13-9 (11-13) l jafnt yfir = 36-40-44 (48-52) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Haldið áfram í sléttprjón og 4 l garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 4 l garðaprjón. Endurtakið útaukningu í 3.-3.-4. ( 4.-4.) umf alls 9-10-11 (12-13) sinnum = 54-60-66 (72-78) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-30) cm fellið af 4 l í hvorri hlið = 46-52-58 (64-70) l. Geymið stykkið. VINSTRI SKÁLM: Prjónið eins og hægri, en með hnappagötin á gagnstæðri hlið. BUXUR: Setjið skálmarnar á sama hringprjón = 92-104-116 (128-140) l. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið = 46-52-58 (64-70) l á milli prjónamerkja. Næsta umf er prjónuð þannig – byrjið á vinstri hlið á stykkinu: 18-21-24 (27-30) l sléttprjón, 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (= 4 l sl), 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (= 4 l), 2 l br og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru = 96-108-120 (132-144) l. Næsta umf er prjónuð þannig: 18-21-24 (27-30) l sléttprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, M.2, 2 l br og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 38-46-54 (59-66) cm. Þá skiptist stykkið við hliðarmerkin og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka fyrir sig. ATH: Passið uppá að skipta stykkinu þannig að kaðlaumferðirnar í M.1 og M.2 verði á réttunni. FRAMSTYKKI: = 50-56-62 (68-74) l. Haldið áfram í sléttprjón og kaðla – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar. Fitjið upp í lok hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 2-1-1 (1-1) sinnum, 6 l 0-1-1 (2-1) sinnum, 8 l 1-1-1 (1-2) sinnum og 9-9-13 (16-21) l 1 sinni = 100-110-124 (148-168) l. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 44-53-61 (67-75) cm prjónið l yfir 2 kaðlana saman tvær og tvær = 96-106-120 (144-164) l. Í næstu umf eru miðju l 10-10-12 (14-16) l settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL/ERMI: Haldið áfram að prjóna eins og áður – JAFNFRAMT er fellt af í byrjun á hverri umf frá hálsi: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-55-64 (70-78) cm er byrjað að prjóna garðaprjón yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) l frá hálsi að öxl (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umf með garðaprjón er fellt af fyrir 4 hnappagötum frá réttu þannig. 2 l sl saman, sláið uppá prjóninn, 5-6-7 (8-9) l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn. Prjónið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) l í hálsmáli þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af. VINSTRI ÖXL/ERMI: Prjónið og fellið af fyrir hálsmáli eins og á hægri öxl, nema gagnstætt = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af. BAKSTYKKI: = 46-52-58 (64-70) l. Fitjið upp nýjar l á hliðum fyrir ermar eins og á framstykki = 96-106-120 (144-164) l. Þegar stykkið mælist 46-55-64 (70-78) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) l fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL/ERMI: = 40-45-51 (62-71) l. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 39-44-50 (61-70) l. Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm fellið af fyrstu 27-31-36 (46-54) l neðst á ermi. Prjónið síðan 1½ cm í sléttprjóni og 1 l garðaprjóni í hvorri hlið yfir þær 12-13-14 (15-16) l sem eftir eru (= kantur fyrir tölur). Prjónið síðan 1 umf slétt frá röngu yfir allar l áður en fellt er af með sléttu frá réttu. VINSTRI ÖXL/ERMI: Prjónið og fellið af fyrir hálsmáli eins og á hægri öxl, nema gagnstætt = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori – á hægri öxl/ermi er einungis saumað fram að kanti fyrir tölur. STROFF: Takið upp 38-44-50 (50-56) l á prjóna nr 3,5 neðst á annarri erminni. Prjónið 2 umf slétt, haldið áfram með stroff = 3 l sl/3 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fellið af þegar stroffið mælist 5 cm. Endurtakið á hinni erminni. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. HÁLSMÁL: Takið upp ca 48 til 64 l í kringum háls (meðtaldar l af bandi að framan) á prjóna nr 4,5. Prjónið 3 umf slétt, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman kanta fyrir hnappagöt efst á framhlið á skálm og kant af fyrir tölur efst á bakhlið á skálm. Saumið tölur í kant á milli skálma og á öxl. ---------------------------------------------------------- ALPAHÚFA: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 90-92-94 (96-98) l á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br í 2 cm. Haldið áfram með slétt í hverri umf (= garðaprjón) – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 5-7-4 (6-3) l jafnt yfir = 85-85-90 (90-95) l. Setjið síðan 5 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir 1 l, næstu 4 prjónamerkin eru sett með 17-17-18 (18-19) l millibili, nú eru 16-16-17 (17-18) l á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l vinstra megin við öll prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING – að ofan. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6-7-8 (9-10) sinnum = 115-120-130 (135-145) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6½-7-7½ (8-8½) cm fækkið um 1 l vinstra megin við öll prjónamerkin með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 18-19-20 (21-22) sinnum = 25-25-30 (30-35) l eftir á prjóni. Prjónið allar l tvær og tvær saman, klippið frá og þræðiði þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman að aftan yst í lykkjubogann. Húfan mælist ca 15-16-17 (18-19) cm. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (133)
Lene Jensen wrote:
SÅ praktisk med åbning forneden. Ser dejlig ud.
17.10.2008 - 16:27Jane wrote:
Rigtig sød model og smart med knapperne i bukserne!
17.10.2008 - 15:09Siri wrote:
Denne vil jeg strikke! :) Håper den kommer med i heftet!
17.10.2008 - 14:35