DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 143-33
DROPS Design: Mynstur nr fa-205
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: ca 24 - 24 - 24 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-100-100 gr litur nr 400, svartur
50-50-50 gr litur nr 820, karneval

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 32 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 894.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 til A-7. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðið, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 lykkja brugðið, og steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er steypt yfir prjóninn þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

SOKKUR:
Fitjið upp 72 lykkjur í öllum stærðum á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum svartur DROPS Fabel.
Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með 6 umferðir stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið nú A-1 yfir allar lykkjur 1 sinni á hæðina, prjónið nú A-2 1 sinni á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram með A-3 – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 6-0-0 lykkjur jafnt yfir = 66-72-72 lykkjur og í síðustu umferð er fækkað um 0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 66-70-70-70 lykkjur.
Þegar A-3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið áfram þannig: Prjónið A-4 (= 3 lykkjur), A-5 (= 25-29-29 lykkjur), A-4 (= 3 lykkjur) og A-6 (= 35 lykkjur) – lykkjum fækkar eins og útskýrt er í mynstri A-6. Þegar A-5 og A-6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 62-66-66 lykkjur á prjóni.
Setjið nú fyrstu 31-35-35 lykkjur á þráð (= lykkjur yfir A-4 + A-5 + A-4) = 31 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með A-7 yfir hællykkjur 5-5½-6 cm, setjið 1 prjónamerki, prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-13-14 lykkjur hvoru megin við hæl og þær 31-35-35 lykkjur af þræði eru settar aftur á prjóninn = 70-76-78 lykkjur. Þær 31-35-35 lykkjur ofan á fæti halda áfram í mynstri eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar í A-7 (= undir fæti) – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 31-35-35 lykkjur á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan 31-35-35 lykkjur slétt saman og 2 lykkjur á eftir 31-35-35 lykkjur á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 5 sinnum til viðbótar = 58-64-66 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki við hæl (= ca 4-5-5 cm til loka). Prjónið þannig: Prjónið A-4 eins og áður yfir lykkjur í hvorri hlið og A-7 yfir 25-29-29 lykkjur ofan á fæti og 27-29-31 lykkjur undir fæti – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá á hvoru megin við A-4 í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A-4, 2 lykkjur slétt saman, prjónið A-4, síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 3-6-6 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umferð 5-3-3 sinnum = 22-24-26 lykkjur eftir á prjóni.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum svartur = 11-12-13 l.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = litur karneval
symbols = litur svartur
symbols = 2 lykkjur slétt saman með litnum svartur
symbols = 2 lykkjur snúnar slétt saman með litnum svartur
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Irish Dream

Karolina, Poland

Irish Dream

Yannika, Belgium

Irish Dream

anka24

Irish Dream

Ewa, Poland

Irish Dream

Eva, Germany

Irish Dream socks

Karolina Kitkowska, Poland

Irish Dream

Mamamia64, Canada

Irish Dream socks

Maja, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Jannette V Ommeren wrote:

Klaar. Wat een geweldig resultaat! En complimenten voor de duidelijke manier waarop het patroon is geschreven. Wat mij betreft nooit genoeg van dit soort mooie patronen. Dank je wel.

27.03.2015 - 12:25

country flag Monica Forøy Olsen wrote:

Hei. Får ikke til å skrive ut oppskrifter fra drops. Bilde er greit men ikke selve oppskrifta. Har prøvd å marker det jeg vil ha ut men kommer bare noen ark. MVH Monica

31.01.2015 - 14:52

DROPS Design answered:

Hej Monica. Du må skrive ud ved at trykke på knappen "SKRIV UT: OPPSKRIFT" til højre for billederne. God fornøjelse!

02.02.2015 - 13:41

country flag Hannah wrote:

Hej igen. Hittade en norsk sida där det stod att Karneval utgått. Vad finns det för alternativ? Var det ett print eller long print garn?

14.01.2015 - 13:31

DROPS Design answered:

Hej Hannah. Se mit svar herunder:-)

14.01.2015 - 14:23

country flag Hannah wrote:

Hej! Jag har sökt efter Fabel 820 Karneval på alla internetbutiker ni listar som återförsäljare och kan inte hitta det. Har det utgått? Vill gärna sticka det här mönstret! Mvh Hannah

14.01.2015 - 13:15

DROPS Design answered:

Hej Hannah. Ja, 820 er udgaaet og ikke mere til at köbe. Det var en print farve, saa maaske kan du finde et fint alternativ paa Fabel farvekortet.

14.01.2015 - 14:23

country flag Marianne wrote:

Het goede nieuws: de tweede keer ging het breien veel vlotter. Dus de derde en vierde keer..argg..hopelijk nog iets vlotter? Het is dat het zo mooi wordt, anders zou een mens het toch bijna opgeven?

05.04.2014 - 10:04

country flag Marianne wrote:

Intussen toch een stekenproef gedaan en toen nog eens met een naald 0.5 dikker. En toen klopte de stekenproef. Sok 2 met dikkere naalden...krijg ik weer mijn voet niet om de bocht, als ik 'm pas. Ga nu voor noodplan B: mindering in A6 niet doen. Maar zou graag horen hoe ik dan de minderingen in de hiel moet doen (ik heb dan 4 steken meer) en hoe ik dan de steken weer moet opnemen en wegminderen langs de hiel. Suggesties?

05.04.2014 - 10:03

DROPS Design answered:

Wij ondersteunen geen persoonlijke aanpassingen op patronen, alleen op het patroon zoals het geschreven is. U bent uiteraard vrij om zelf aanpassingen te maken en andere opties te proberen en we wensen u daarbij veel succes.

07.04.2014 - 19:01

country flag Maianne wrote:

Ik ga maar met sok 2 beginnen en ga het daar anders doen: mindering in A6 doe ik niet, dan hou ik er 35 over aan het eind van A6. Dan zijn boven en ondervoet evenveel steken (dat zie ik bij de meeste patronen) en ga ik daarmee de hiel in. Ik kan niet echt bedenken hoeveel ik dan voor de hiel moet minderen en daarna langs de rand weer moet opnemen. Maar misschien weten jullie daar tzt raad op?

18.03.2014 - 20:59

DROPS Design answered:

Hoi Maianne. Het patroon zou correct zijn. Je mag natuurlijk altijd eigen aanpassingen maken, maar controleer ook eerst of je stekenverhouding voor het patroon correct is - dat heeft ook invloed op de afmetingen.

19.03.2014 - 11:11

country flag Marianne wrote:

Mijn sok is nu klaar (afgezien van de laatste minderingen) maar ik pas er niet in. Dat wil zeggen: de bocht is te krap, de opgenomen steken langs de hiel rekken helemaal uit, zo strak staat alles. Om de voet en het onderbeen past wel. Ik dacht nu eerst de tweede sok maar te breien. Maar hoor graag tips hoe ik 'm ruimen krijg rond de hiel/hak. Ik vermoed dat alleen dikkere pennen niet gaat helpen (deed geen stekenproef, zal van m'n oude sok nog eens tellen)

17.03.2014 - 08:41

DROPS Design answered:

Hoi Marianne. Altijd een proeflapje breien om je stekenverhouding te controleren - het kan invloed hebben op de afmetingen. Als de hiel te klein is, zou ik hem wat langer breien en/of meer steken opnemen langs de zijkanten van de hiel.

19.03.2014 - 17:23

country flag Christina Ulltin wrote:

Följer man mönstret uppifrån o ner eller tvärtom?

17.03.2014 - 07:32

DROPS Design answered:

Hej Christina. Du strikker mönstret nedefra og op. Du starter i höjre hjörne og strikker mod venstre. Du kan laese her hvordan du skal laese vores mönstre.

17.03.2014 - 14:37

country flag Marianne wrote:

Ik brei deze sokken in zwart met sunset, wordt erg mooi. Ik ben nu net de bocht om van de hiel en so far so good. Vond dat wel het lastigste stuk, heb er wel echt een tijd geconcentreerd aan gezeten. Maar ik vermoed dat het nu wel goed komt. Ben vol bewondering voor de ontwerpers (en ook wel trots op mezelf)

07.03.2014 - 14:38