DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 142-9
DROPS Design: Mynstur nr u-681
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
650-700-750-850-950-1000 gr litur nr 55, ljós brúnn
50-50-100-100-100-100 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-100-100 gr litur nr 64, gráfjólublár
50-50-50-50-50-100 gr litur nr 71, ljós beige
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 69, ljós grágrænn

DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 l og 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10472.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Byrjið á l merktri með ör í mynstri fyrir rétta stærð. ATH: Ekki er byrjað eins á fram- og bakstykki, svo að mynstrið passi í hlið þegar stykkið er saumað saman.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 107-113-125-135-147-159 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-3-3-3 cm millibili, 9-9-9-11-11-11 sinnum til viðbótar = 87-93-105-111-123-135 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið á undan kantlykkju) Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm eru felldar af 2-2-4-4-5-5 í byrjun á 2 næstu umf fyrir handveg = 83-89-97-103-113-125 l. Haldið áfram með mynstur (passið uppá að í framhaldinu passi mynstrið yfir hvort annað í mynstureiningunum) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 73-76-79-82-85-88 cm – stillið af eftir einni heilli einingu í mynstri. Nú endar mynstrið og prjónað er með litnum ljós brúnn að loka máli. JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu eftir mynstur eru felldar af miðju 17-17-17-21-21-21 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónið fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 32-35-39-40-45-51 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 44-47-53-56-62-68 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma.
Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á prjóna nr 4,5. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-4-5-5-5 cm byrjar úrtaka í hliðum. Fellið af á sama hátt og á bakstykki = 34-37-43-44-50-56 l. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 1 l er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 61-63-65-66-68-70 cm er fellt af fyrir handvegi í byrjun umf frá hlið eins og á bakstykki = 32-35-39-40-45-51 l. Haldið áfram með mynstur og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 73-76-79-82-85-88 cm – stillið af eins og bakstykki. Prjónið nú með litnum ljós brúnn þar til stykkið mælist 75-78-81-84-87-90 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Fitjið upp 44-46-48-50-52-54 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma.
Prjónið 12 umf garðaprjón, skiptið yfir á prjóna nr 4,5 og haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 6-6-6-7-7-8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 7-6-5-3½-3-2½ cm millibili, 6-7-8-11-12-13 sinnum til viðbótar = 58-62-66-74-78-82 m.
Þegar stykkið mælist 52-52-50-49-46-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 5 l 1-1-2-2-1-1 sinnum og 4 m 0-0-0-0-2-2 sinnum. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 53-53-52-51-49-47 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju og saumið ermarnar í – sú eining sem er prjónuð eftir prjónamerkin upp meðfram ermi á að passa í úrtöku fyrir handveg.

VASAR:
Fitjið upp 39 l á prjóna nr 4,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4-4-4-6-6-6 cm er mynstur prjónað eftir mynsturteikningu A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið innan við kantlykkju). Eftir A.2 er skipt yfir á prjóna nr 3,5 og ljós brúnn. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 18-18-18-20-20-20 cm (ca 2 cm) fellið af. Prjónið annan vasa á sama hátt.
Saumið vasann í hvort framstykki með lykkjuspori, ca 3-3-4-4-5-5 cm frá kanti að framan og ca 10-10-12-14-14-16 cm frá neðrikanti (prufið peysuna til þess að ná fram persónulega staðsetningu á vösunum).

KANTUR AÐ FRAMAN:
Fitjið upp 34-34-34-38-38-38 l á prjóna nr 3,5 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 82-85-88-91-95-98 cm – haldið uppi stykkinu á meðan mælt er, annars verður kanturinn of langur. Fellið af. Prjónið annan kant á sama hátt. Saumið annan kantinn í hægra framstykki frá neðri kanti og aftur að miðju aftan við hálsmál – saumið með 1 spori yst í lykkjubogann við l í garðaprjóni í kanti og 1 spori innan við 1 kantlykkju á framstykki. Saumið hinn kantinn í vinstra framstykki. Saumið svo kantana saman við miðju að aftan yst í lykkjubogann svo að saumurinn sjáist ekki.

Mynstur

symbols = litur ljós brúnn
symbols = litur ljós beige
symbols = litur gráfjólublár
symbols = litur natur
symbols = litur ljós grágrænn
symbols = byrjið á bakstykki hér
symbols = byrjið á framstykki hér
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Betty wrote:

Ik heb het vest afgebreid, maar bij patroon A1 heb ik nu allemaal draadeinden aan de zijkanten. Hoe kan ik dit het mooiste afwerken?

13.01.2014 - 16:22

DROPS Design answered:

Hoi Betty. Er zijn meerdere manieren om af te werken en draden netjes weg te werken. Ik heb helaas hier geen video's voor je om te laten zien, maar maak gebruik van de manier dat jij zelf het mooiste vindt.

14.01.2014 - 14:59

country flag M. De Vos wrote:

Ik ben dit vest in xl aan het breien. Ik ben nu met het achterpand bezig en bij het patroon A1 aangekomen bij het vierkantje op zn kant en de X in naturel en lichtgrijsgroen (naast het patroon staat 69). In de tekst staat "het patroon begint en einidgt op dezelfde manier aan elke kant naast de kant st" maar dat klopt bij mij dan niet. Ik heb het juiste aantal steken. Wat doe ik verkeerd?

05.12.2013 - 15:03

DROPS Design answered:

Hoi M. De Vos. Het patroon klopt. Als u begint met A.1 heeft u 111 st op de nld. U breit dus A.1 over 109 (excl. de twee kantsteken). Er zijn 12 st per herhaling van A.1 = 9 keer herhalen in de breedte en brei de laatste st (109ste st) als de eerste st van A.1. Dan wordt het motief gelijk aan beide kanten.

17.12.2013 - 11:10

country flag Karin Bell wrote:

Ik ga nu juist beginnen aan het telpatroon, is hier enkel de goede kant weergegeven? Of is het voor- en achterkant? Indien enkel de goede kant hoe brei ik dan de terug gaande naalden ?

31.01.2013 - 14:52

DROPS Design answered:

Beide naalden zijn weergegeven. Eerste rij, goede kant. Tweede rij, verkeerde kant, en zo voort

31.01.2013 - 16:09

country flag Lisette wrote:

Het afkanten was mij wel duidelijk, maar hebben jullie ook naar het patroonverloop gekeken? Ben nu aan het breien, en een doorlopend patroon krijg ik echt alleen als ik op het linkerpand begin op de aangegeven plaats.

06.12.2012 - 12:56

DROPS Design answered:

Hoi. Wij kunnen niet een fout vinden, maar als je zou willen opgeven welke maat je breit, dan kunnen wij de bepaalde maat bekijken en narekenen. Alvast bedankt.

12.12.2012 - 11:17

country flag Lisette wrote:

Op het telpatroon wordt aangegeven waar te beginnen op het achter en voorpand. Na een eerste poging en wat telwerk ben ik tot de conclusie gekomen dat de start voor het voorpand voor het linkerpand is (dus aan de linkermouw kant). Klopt dit? Dat zou verwarrend zijn omdat de uitleg eerst het rechterpand betreft.

04.12.2012 - 20:14

DROPS Design answered:

Ik zie dat er wel een foutje in de vertaling stond. U moet alleen patroon A.1 breien op het achterpand en de voorpanden. Je moet afkanten aan het begin van de nld aan de zijkant, dus voor het rechter voorpand wordt dat aan het begin van een nld op de verkeerde kant en linker voorpand aan het begin van de nld op de goede kant.

05.12.2012 - 12:46

country flag MJ wrote:

I am so sorry this beautiful cardigan did not make it to the final release. There are a number of things I am sorrowful over not making it.

21.07.2012 - 19:49

country flag Agneta wrote:

Snygg tröja, när kan man komma åt mönstret

05.07.2012 - 14:32

country flag Diana wrote:

I love this sweater. This will be one of the first I knit when it's available. Socks and mittens too!

04.07.2012 - 07:11

country flag Małgosia wrote:

Przepiękny, choć wydaje mi się baaardzo pracochłonny!

29.06.2012 - 15:34

country flag Herma wrote:

Super mooi vest leuk patroon heb zin om hem te breien kan niet wachten totdat het patroon online is

28.06.2012 - 15:07