Leona |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Heklað vesti úr DROPS Paris með mynstri. Stærð: S-XXXL
DROPS 145-4 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (mynsturteikning A.3 og A.4 sýna úrtöku fyrir handveg í stærð XXL + XXXL). ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 fl með því að hekla 2 fl í sömu l. ÚRTAKA (fækkið um 1 fl): Heklið 1 fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 189-204-219-242-264-287 ll með heklunál nr 6 með Paris, snúið við. UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hvora af næstu 2 ll *, endurtakið frá *-* þar til 4-4-4-3-4-3 ll eru eftir, hoppið yfir næstu ll og endið með 1 fl í hverja af síðustu 3-3-3-2-3-2 ll= 126-136-146-161-176-191 fl í umf, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja l frá fyrri umf = 126-136-146-161-176-191 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2. UMFERÐ 4: Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið 5 ll (þær jafngilda 1 tbst + 1 ll), * hoppið yfir 4 fl, í næstu fl er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* þar til 5 fl eru eftir, hoppið yfir 4 fl og endið með 1 ll og 1 tbst í síðustu fl = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópa, snúið við. UMFERÐ 5: Heklið 5 ll, um ll-bogann í hverjum tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, endið umf með 1 ll og 1 tbst í 4. ll í byrjun fyrri umf = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópar, snúið við. Endurtakið umf 5 þar til stykkið mælist ca 16 cm. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (þær jafngilda 1 tbst), í ll-bogann í miðju á hverjum tbst-hóp er heklað 2 tbst + 1 ll (í stað 2 ll) + 2 tbst, endið umf með 1 tbst í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópar, snúið við. Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, heklið nú 1 fl í hvern tbst út umf, endið með 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf, snúið við = 98-106-114-126-138-150 fl. Heklið nú þannig: UMFERÐ 1: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja fl út umf JAFNFRAMT er fækkað um 18-18-18-18-14-14 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 80-88-96-108-124-136 fl, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (þær jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hverja l út umf = 80-88-96-108-124-136 st í umf. UMFERÐ 3-5: Heklið eins og umf 2 = 80-88-96-108-124-136 st. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig: Stærð S + M + L + XL + XXL: Aukið út um 5-9-5-5-5 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING. Stærð XXXL: Fækkið um 3 l jafnt yfir- LESIÐ ÚRTAKA = 85-97-101-113-129-133 fl, snúið við. UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, heklið nú 1 fl í hverja fl frá fyrri umf = 85-97-101-113-129-133 fl, snúið við. UMFERÐ 8: Heklið 5 ll, * hoppið yfir 3 fl, í næstu fl er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* þar til 4 fl eru eftir í umf, hoppið yfir 3 fl og endið með 1 ll og 1 tbst í síðustu fl í umf = 20-23-24-27-31-32 tbst-hópar í umf, snúið við. UMFERÐ 9: Heklið nú aftur mynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið 5 ll, í ll-bogann í miðju hverra tbst-hópa er heklað 2 tbst + 2 ll +2 tbst, endið umf með 1 ll og 1 tbst í 4. ll í byrjun fyrri umf = 20-23-24-27-31-32 tbst-hópar. Endurtakið umf 9. JAFNGRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er stykkinu skipt upp fyrir handveg þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir 5-6-6-7-8-8 tbst-hópar frá hvorri hlið (= 10-11-12-13-15-16 tbst-hópar á milli prjónamerkja á bakstykki). Hvort stykki er heklað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 10-11-12-13-15-16 tbst-hópar. Haldið áfram fram og til baka með tbst-hópa eins og útskýrt er í A.1. JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í stærð XXL +XXXL þannig: Fækkið um 1 tbst-hóp í byrjun umf eins og útskýrt er í A.3, heklið nú eins og áður þar til 1 tbst-hópur er eftir í umf, endið umf eins og útskýrt er í A.4 (lykkjum er ekki fækkað í öðrum stærðum) = 10-11-12-13-13-14 tbst-hópar eftir í umf. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Heklið nú 1 umf með tbst-hópum einungis yfir síðustu 3-4-4-5-5-5 tbst-hópa í annarri hliðinni á stykkinu þannig: Heklið 5 ll, * í ll-bogann í miðju á næsta tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll +2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-5 sinnum, endið með 1 tbst í síðasta tbst í sama tbst-hóp, snúið við. Heklið nú 1 umf fl þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, * 1 fl í hvorn af fyrstu 2 tbst, 1 fl um ll-boga í miðjan tbst-hóp, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-5 sinnum, endið með 1 fl um síðustu ll og 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 18-23-23-28-28-28 fl í umf. Klippið frá og festið enda. Endurtakið eins á hinni öxlinni (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir miðju 4-3-4-3-3-4 tbst-hópa = hálsmál). HÆGRA FRAMSTYKKI: = 5-6-6-7-8-8 tbst-hópar. Haldið áfram fram og til baka með tbst-hópum eins og á bakstykki. JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið eins og í stærð XXL + XXXL eins og útskýrt er í A.4 (lykkjum er ekki fækkað í öðrum stærðum) = 5-6-6-7-7-7 tbst-hópar. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm – passið uppá að heklaðar séu jafnmargar umf með tbst-hópum eins og á bakstykki. Heklið nú 1 umf fl eins og á bakstykki einungis yfir síðustu 3-4-4-5-5-5 tbst-hópa á öxl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir 2 tbst-hópa við hálsmál = kragi) = 18-23-23-28-28-28 fl. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki á öxl. Nú eru heklaðir tbst-hópar fram og til baka yfir kraga þannig: Heklið 5 ll, um ll-boga í fyrsta tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, um ll-boga í næsta tbst-hóp er heklað 2 tbst +2 ll + 2 tbst, heklið 1 ll og endið með 1 tbst í síðasta tbst í sama tbst-hóp. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kraginn mælist ca 10-8-10-8-8-10 cm frá prjónamerki á öxl. Nú er 1 umf með fl hekluð þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, 1 fl um næstu ll, 1 fl í hvorn af fyrstu 2 tbst, 1 fl um ll-boga mitt í tbst-hóp, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst*, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, endið með 1 fl um síðustu ll og 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 14 fl, klippið frá. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg í stærð XXL + XXXL er fækkað um 1 tbst-hóp eins og útskýrt er í A.3. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumið kant í kant) og saumið kragann við hálsmálið aftan við hnakka. Saumið tölur í hægra framstykki – sjá mynd. Tölum er hneppt í HEKLAÐUR KANTUR – sjá útskýringu að neðan! HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum allt opið á vestinu og í kringum bæði opin við handveg þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 5 ll, hoppið yfir ca 2½ cm, 1 fl í næstu l/í næsta boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 5 ll og 1 kl í byrjun umf. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (189)
Redouane wrote:
Franchement parler tous ces modeles sont magnifiques
11.12.2012 - 08:41Helene wrote:
Very flattering!
11.12.2012 - 07:16Kordula wrote:
Sehr schönes Muster!
10.12.2012 - 21:32Bertina wrote:
Super leuk!
10.12.2012 - 20:43Elisabeth wrote:
Vil være sød til sommer
10.12.2012 - 20:35Pia Kolbe wrote:
Den er rigtig flot og kan anvendes af både gamle og unge
10.12.2012 - 19:34Johanne Høygaard Larsen wrote:
Den er så fin, den MÅ jeg bare eje!
10.12.2012 - 16:47Maggie wrote:
Beautiful pattern, perfect fit!
10.12.2012 - 16:18Gisele wrote:
Beautiful!
10.12.2012 - 13:20