DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Autumn Stroll

Prjónað poncho úr DROPS Alaska með hettu og klauf, prjónað ofan frá og niður. Stærð: S -XXXL

DROPS 157-37
DROPS Design: Mynstur nr x-405
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
600-750-900 gr litur nr 03, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SILFURTALA NR 533: 1 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6600.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjónar):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið nýjar l í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Poncho og hetta er prjónuð hvor í sínu lagi og saumað saman í lokin.
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Prjónað er fram og til baka að þar til lokið er við klauf/opi við miðju að framan í hálsmáli, síðan er prjónað í hring að klauf í byrjun í hvorri hlið, síðan er fram- og bakstykki prjónað fram og til baka.

PONCHO:
Fitjið upp 92-102-112 á hringprjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 7. umf í garðaprjóni (= rétta) aukið út um 30-32-34 l jafnt yfir = 122-134-146 l. Munið eftir HNAPPAGAT! Prjónið síðan frá miðju að framan þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 8-10-12 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki hér, A.2 (= 13 l), setjið 2. prjónamerki hér, 13-15-17 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki hér, A.2, setjið 4. prjónamerki hér, 22-26-30 l sléttprjón, setjið 5. prjónamerki hér, A.2, setjið 6. prjónamerki hér, 13-15-17 l sléttprjón, setjið 7. prjónamerki hér, A.2, setjið 8. prjónamerki hér, 8-10-12 l sléttprjón, 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út í hvorri hlið í hverri mynstureiningu af A.2- LESIÐ ÚTAUKNING! ATH: Mismunandi er aukið út á fram- og bakstykki og í stykkjum í hlið: Aukið svona út á undan 1. og 5. prjónamerki og á eftir 4. og 8. prjónamerki: Í annarri hverri umf 5-6-7 sinnum, í 4. hverri umf 4-6-9 sinnum og í 6. hverri umf 6-6-4 sinnum.
Einnig er aukið svona út á undan 3. og 7. prjónamerki og á eftir 2. og 6. prjónamerki: Í annarri hverri umf 7-8-9 sinnum og í 4. hverri umf 9-10-11 sinnum og í 6. hverri umf 2-2-2 sinnum. Þegar útaukningu er lokið eru 254-286-314 l í umf. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls 11 cm er klauf/op við miðju að framan lokið og prjónað er í hring þannig: Prjónið fram að fyrstu mynstureiningu af A.2 (= byrjun umf), prjónið umf hringinn eins og áður með mynstur og útaukningar að 3 l garðaprjón á undan klauf að framan, prjónið síðan 6 l GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan, yfir 3 l garðaprjón hvoru megin við klauf. Haldið svona áfram þar til 4 umf í garðaprjóni eru fyrir neðan klauf.

Haldið síðan áfram í sléttprjóni, útaukningar og A.2 þar til stykkið mælist 34-36-38 cm. Prjónið nú frá byrjun umf þannig: * A.2, 21-24-27 l sléttprjón, 7 l garðaprjón, 21-24-27 l sléttprjón *, A.2, sléttprjón fram að næsta A.2, endurtakið frá *-*, A.2, prjónið sléttprjón út umf. Haldið svona þar til 4 umf í garðaprjóni eru á hvoru hliðarstykki, JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af miðju 7 l garðaprjón í hvorri hlið (= 6 l garðaprjón eftir), prjónið fram að affelldu lykkjum í hlið = 252-284-312 l í umf. Prjónið síðan fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
Snúið stykkinu við og prjónið frá röngu þannig. 3 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 21-24-27 l, A.2 eins og áður, sléttprjón yfir næstu 52-62-70 l, JAFNFRAMT er aukið út um 1-0-1 l, prjónið A.2, 21-24-27 l sléttprjón, 3 l garðaprjón = 127-142-157 l. Þegar stykkið mælist 41-43-45 cm er prjónað frá réttu: 3 l garðaprjón, A.1 þar til 4 l eru eftir, 1 l sl (= 1. l í A.1), 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stykkið mælist alls 48-50-52 cm. Fellið af.

BAKSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og framstykki. Stillið lengdina af eftir framstykki.

HETTA:
Hettan er prjónuð fram og til baka.
Fitjið upp 92-102-112 l á hringprjóna nr 5 með Alaska. Prjónið 2 umf garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 8-1-0 l jafnt yfir í síðustu umf = 100-103-112 l. Prjónið nú þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 3 l) þar til 4 l eru eftir, 1 l sl, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 30 cm. Prjónið 2 umf garðaprjón. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Brjótið hettuna saman og saumið saman affellingarkantinn með því að sauma l 1 og 1 fallega saman. Saumið hettuna við poncho, saumið l 1 og 1 saman. Saumið tölu 2 cm frá uppfitjunarkant í vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 01.09.2014
FRÁGANGUR... Saumið tölu niður 2 cm frá uppfitjunarkanti á vinstri kant að framan. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-37

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

Ika wrote:

Hi! I asked questions in August but had time to start in November. And ... done!!! It's not as difficult as it's read on pattern :). For the increasing part, I just followed my intuision by imagining the shape to be. Et voilà! It turns to be a cute ponch. Thanks.

11.12.2014 - 01:26

country flag Marie Barot wrote:

Merci pour ce modèle, seyant et facile à porter. Je l'ai réalisé en violet mix et le rendu est très joli. Il a été rapide et agréable à tricoter. Un grand merci également pour avoir répondu aussi rapidement à ma question.

27.11.2014 - 09:50

country flag Katherine Smith wrote:

About the increases from 122 sts up to 252 sts. The pattern says inc 1 on either side of A2 but then says only do 1st 5th & 4th and 8th every other row. I know inc only occur on the RS so does that count as the every other round? Or does this mean every other round on the right side? Do that for 5 rounds then switch to the 3rd 7th & 2nd and 6th for 7 rounds, or are these meant to be alternating inc steps? Then the notes on the 4th and 6th rounds really confused me. Help me please!

11.11.2014 - 02:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, you inc either side of A2 for raglan a different way, ie you inc for raglan on body (markers 1-5 + 4-8) every 2 row a total of 5 times, every 4th row a total of 4 times... And inc for sleeves (markers 3-7 + 2-6) every other row 7 times, every 4th row 9 times... These inc start all from the beg of the raglan, so that you will inc sometimes either side of all A.2 and sometimes only on sleeves/body. Happy kniting!

11.11.2014 - 09:23

country flag Marie Barot wrote:

Pour la fin de la partie devant (ou dos) en aller retour, faut-il augmenter une seule fois une maille (taille S-M) au premier rang ou augmenter une maille à chaque rang ?

30.10.2014 - 15:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Barot, on augmente 1 m au 1er rang, dans les m jersey on a ainsi 127 m (en taille S/M) et on continue sur ces 127 m. Bon tricot!

30.10.2014 - 17:25

country flag Tineke wrote:

Bij een hoogte van 11cm heb ik 254 steken, bij een hoogte van 36 cm zou ik incl meerderingen 252 steken moeten hebben? Wat doe ik fout?

05.10.2014 - 22:39

DROPS Design answered:

Hoi Tineke. Volgens mij gaat er iets fout bij de meerderingen. Meerder je misschien te veel te snel?

06.10.2014 - 16:41

country flag Ika wrote:

As I can't imagine piece by piece of this project, I have difficulty to understand how they will be sewn together at the end of the day. The way like how the hoodie's assemblied would be helpful. I hope there's somebody to help me out to continue and finish this project. This is a cute piece I really like to have as my knitted garment collection. Thank you in advance 4 answering all my questions..

30.08.2014 - 17:19

DROPS Design answered:

The video below shows you how to sew hood together, the cast-on edge will be then sewn on to cast-on edge of poncho around neckline. Happy knitting!

01.09.2014 - 09:49

country flag Ika wrote:

I make S size. All I understand is I suppose to work back and forth to finish the vent (first one), but on increasing part explanation (when the first time A.2 diagram explained), why it's said every 4th row/round 4-6-9 times? Are we doing back & forth work or round? Thx. (to be continued)

30.08.2014 - 17:17

DROPS Design answered:

The poncho is worked back and forth until vent mid front is done, so that you will work in rows with inc until piece measures 11 cm in total, then work in the round and continue inc as before.

01.09.2014 - 09:47

country flag Ika wrote:

I make the S size.I don't understand 3 BAND sts in garter st. The garter sts part is well understood, but what band? Thx. (tobe continued).

30.08.2014 - 17:16

DROPS Design answered:

The 3 sts in garter st worked each side will make the front bands for neck (vents) - when vent mid front is done, you continue in the round with 2 ridges garter st under vent mid front then in stocking st.

01.09.2014 - 09:44

country flag Ika wrote:

I make the S size. how many button needed? I check on materials list: DROP SILVER ANTIQUE BUTTONS NO. 533: 1 piece for all sizes. Meaning only 1, but the pattern says as if more than 1 button needed. Where exactly the button (s) will be? I can't see any on the picture. Thx. (to be continued)

30.08.2014 - 17:14

DROPS Design answered:

There is only 1 button, the buttonhole is made onto right band when piece measure 2 cm from cast-on edge. The button is sewn onto left band.

01.09.2014 - 09:41

country flag Ika wrote:

Hi,I make the S size and did cast on 92 sts to make Poncho, then increased 30 sts evenly so now I have 122 sts on my needle. Now the warning REMEMBER BUTTONHOLES stopped me. What? I do the buttonholes on the wrong side after I do increasing? Right away after I finish the increasing 30 sts, or on the other end? Thx.(to be continued)

30.08.2014 - 17:11

DROPS Design answered:

Dear Ika, the buttonhole should be made when piece maeasures approx. 2 cm from cast on edge. After you have inc evenly, continue as stated, just remember to open the buttonhole when piece measures 2 cm.

01.09.2014 - 09:40