Garden Paradise |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður Bolero með hekluðum ferning úr DROPS Big Delight. Stærð S-XXXL.
DROPS 178-11 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um kant í kringum op á bolero): Í byrjun á hverri umferð með stuðlum er fyrsta stuðli skipt út með 3 loftlykkjum. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju, heklið síðan keðjulykkjur fram að miðju á næsta loftlykkjuboga. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. ÚTAUKNING (á við um kant í kringum op á bolero): Aukið út um 4 loftlykkjuboga í umferð með því að hekla 1 auka loftlykkjuboga (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur) um loftlykkjuboga á undan og á eftir loftlykkjuboga með prjónamerki í. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er heklaður einn ferningur (heklaður í hring) frá miðju að aftan, síðan er heklað áfram fram og til baka á tveimur hliðum á ferningi til að gera ermar. Að lokum er heklaður kantur í kringum opið á bolero. HEKLAÐUR FERNINGUR: Byrjið með Big Delight með heklunál 6 og heklið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið heklað til loka á hæðina er síðasta umferðin endurtekin. Í hverri nýrri umferð verða 4 loftlykkjubogar. JAFNFRAMT í hverri 6. umferð er aukið aukalega út um 8 loftlykkjuboga – sjá stjörnur í mynsturteikningu (= 8 auka útaukningar í 6. hverri umferð). Haldið svona áfram þar til ferningurinn mælist ca 48-52-52-56 x 48-52-52-56 cm. Heklið fram og til baka í hvorri hlið þannig: Heklið eins og áður fram að fyrsta horni og heklið 1 fastalykkju um loftlykkjubogann í horni. SETJIÐ EITT PRJÓNAMERKI HÉR. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið frá 2. umferð í mynsturteikningu (= umferð merkt með ör) þannig: Heklið A.2a, heklið A.2b fram að næsta horni, heklið A.2c. Þegar A.2a til A.2c hefur verið heklað til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar í mynsturteikningu þar til stykkið mælist 12-12-16-16 cm, en passið uppá að endað sé eftir síðustu umferð í mynsturteikningu. Klippið frá. Heklið alveg eins í gagnstæðri hlið á ferningi. Brjótið stykkið saman á lengdina þannig að horn A og B mætast og horn C og D mætast – sjá teikningu. Heklið stuttan ermasaum meðfram skammhlið á stykkinu í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 1 fastalykkju um ysta lykkjuboga í horni A og B. Heklið * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja um bæði lögin *, endurtakið frá *-* í 6-6-4-4 cm. Klippið ekki frá. Handvegurinn er nú ca 36-40-44-48 cm í ummáli. Heklið síðan kant í kringum handveg þannig: Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull). Heklið 3 stuðla um hvern og einn af loftbogum í kringum handveg. Endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð. Endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í umferð. Endurtakið í hinni hliðinni þar sem horn C og D mætast. KANTUR Í KRINGUM OP Á BOLERO: Heklið nú kant í kringum allt opið á bolero þannig: UMFERÐ 1: Festið endann með 1 fastalykkju um fyrsta loftlykkjuboga á eftir horni A/B þar sem það var heklað saman. Heklið 6 loftlykkjur (= 1 stuðull + 3 loftlykkjur) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið * 1 stuðul um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* hringinn alla umferðina. Setjið eitt prjónamerki í loftlykkjubogann við horn A/B þar sem það var heklað saman og eitt prjónamerki þar sem C/D var heklað saman = 2 prjónamerki. UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og aukið út um 1 loftlykkjuboga hvoru megin við loftlykkjubogana með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 loftlykkjubogar fleiri. UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið umferð 2 og 3 þar til kanturinn mælist ca 14 cm. Klippið frá og festið enda. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Britt Yman wrote:
Har sett detta mönster alltför ofta. Förnyelse efterfrågas!
01.01.2017 - 14:32Lauren McRoberts wrote:
Love this one, but no more votes. Please include!
14.12.2016 - 16:18