Hvernig á að prjóna blóm - Marguerite

Keywords: blóm, stjörnumynstur,

Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig þú heklar blómamynstur - Marguerite .
Fitjið upp þann fjölda lykkja sem er deilanlegur með 4+1 (+ e.t.v. kantlykkjur). Í myndbandinu höfum við nú þegar fitjað upp 16 + 1 lykkjur og byrjum á umferð 1. Fyrst sýnum við umferð 1-4 einungis með grænum lit, síðan sýnum við umferð 1-2 með bláfjólubláum lit og umferð 3-4 með grænum lit. Að lokum sýnum við 6 mynstureiningar af umferð 1-4.
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 lykkju slétt * hafðu þráðinn að þér, prjónið 3 lykkjur brugðnar saman, látið lykkjurnar vera á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, stingið hægri prjón í gegnum 3 sömu lykkjurnar, sækið bandið og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar, takið lykkjurnar yfir á vinstri prjón, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-* út umferðina.
UMFERÐ 3 (skiptið um lit): Prjónið allar lykkjur slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðna, * 1 lykkja slétt, hafðu þráðinn að þér, prjónið 3 lykkjur brugðnar saman, látið lykkjurnar vera á vinstri prjón, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, stingið hægri prjón í gegnum 3 sömu lykkjurnar, sækið bandið og dragið í gegnum allar 3 lykkjurnar, takið lykkjurnar yfir á vinstri prjón *, endurtakið frá *-* út umferðina og endið með 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin og 1 lykkja slétt. Í myndbandinu notum við garnið DROPS Snow, en prufan í hvítu og bleiku er prjónuð úr DROPS Safran.

Athugasemdir (3)

Baraka wrote:

Merci, enfin un tuto qui explique le point fleur avec ma façon de tricoter :-)

04.10.2019 - 11:05

Claire wrote:

Bonjour Comment tricoter ce point avec des aiguilles circulaires? En vous remerciant d'avance. Bien cordialement

26.02.2018 - 22:51

DROPS Design answered:

Bonjour Claire, vous pouvez essayer d'ajuster le motif en tricotant les rangs comme ils doivent se voir sur l'endroit. Bon tricot!

09.03.2018 - 09:42

Guylaine Nadeau wrote:

Comment faire pour avoir des patrons en français?

25.07.2017 - 23:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nadeau, changez de langue en choisissant français sous la vidéo (en bas à droite, "available in:". Bon tricot!

26.07.2017 - 09:05

Skrifa athugasemd við þetta myndband

Netfangið þitt verður ekki birt. Dálkar sem verður að fylla út eru merktir með *.